Morgunblaðið - 13.01.1980, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JANÚAR 1980
13
Tvö börn skot-
in til bana
Pittsbursth. 11. janúar. AP.
MAÐUR nokkur, sem haldið hafði
konu og tveimur börnum hennar í
gíslingu í þrjá daga í Pittsburgh
skaut í dag börnin tvö til bana og
framdi síðan sjálfsmorð. Móðir
barnanna gat flúið úr húsinu.
Maðurinn hafði krafizt þess, að
allir vottar Jehóva í borginni
kæmu saman á íþróttaleikvangi í
borginni og hlýddu á mál hans, þar
sem hann væri spámaður. Áður
hafði hann óskað eftir skipi til að
komast til írans til að frelsa
gíslana í bandaríska sendiráðinu
þar.
íkorninn setti
þjófabjölluna
af stað
Corona del Mar. Kaliforniu.
11. janúar — AP.
Á SÍÐUSTU sex vikum fór þjófa-
bjöllukerfi af stað í vínbúð Bruce
Olson í Corona del Mar. Hundruð
súkkulaðistykkja hurfu en aldrei
fundust nein merki um innbrot.
Þar sem um gabb virtist vera að
ræða var Olson gert að greiða 30
þúsund krónur í sekt. En í gær
tókst Olson að ráða gátuna dular-
fullu — af hverju þjófabjöllukerfið
fór af stað. Hann fann íkorna, sem
var að búa sér verustað fyrir
veturinn og við hlið hans hafði
hann raðað súkkulaðistykkjunum,
900 talsins. „Ég held að hann hafi
verið að safna forða fyrir vetur-
inn,“ sagði Olson. Viðvörunarkerf-
ið virðist hafa farið af stað þegar
íkorninn kom við þræði tengda því.
Þó Olson sé ekki hefnigjarn þá
ákvað hann að úthýsa þessum gesti
sínum. Hann fangaði hann og
sleppti honum út í náttúruna.
Óáriægja meö hljómburðinn,
þrátt fyrir fuiikomin tæ/d?
ST6WCO f^6QV*NCY £00*1.126»
AO M ao <00 aoo 500
3M 4K 9K WCW«
900 ItOO 900 *«00 » 4K 9*i
• m-*?
o o o
M*>6 »otrrg»
rccomd <xn eo out
O éééé ° <\
ADC TONJAFNARINN
erráð við því.
Slæmur hljómburður er ekki óvana-
legur, enda löng leið frá hljómlistar-
mönnunum til eyrna þinna.
Leiðin liggur um hljóðnema, upp-
tökutæki, pressun hljómplötunnar,
tónhöfuðið og plötuspilarann þinn,
magnarann og hátalarana. Þessi
tæki hafa öll verið þróuð og endur-
bætt í áratugi og eru nú yfirleitt há-
þróuð völundarsmíð.
En endastöð leiðarinnar er enn
ónefnd. Þó er hún einna mikilvæg-
ust. Það er húsnæðið, sem þú notar
til flutningsins og aðstæður þar,
Húsakynni þín eru ekki hönnuð sem
upptöku- eða hljómleikasalur. Hlut-
föll lengdar, breiddar og hæðar,
húsgögn og hurðir, klæðningar,
teppi, gluggatjöld og rúður geta spillt
hljómburðinum, ýkt eóa kæft ein-
staka tóna á ákveðnum tíðnisviðum
og bjagað þar með heildina.
ADC TÓNJAFNARI
Ráö gegn þessu er ADC tónjafnari
(Frequency-equalizer), sem þú
tengir magnara þínum.
Bygging ADC tónjafnarans grund-
vallast á þeirri staðreynd, að mis-
munandi tónar hafa mismunandi
tíðni. Hvertónn á þlötunni þinni ligg-
ur að öllum líkindum einhvers staðar
á tíðnisviðinu 60—16000 rið. Á ADC
tónjafnaranum hefur þú fjölmargar
stillingar til að auka eða draga' úr
styrk tóna með mismunandi hiárri
tíðni, t.d. tóna, sem liggja nálægt 60o
riðum, s.s. dýpri tóna píanós, eða
1000 riðum, s.s. hærri flaututóna. Á
þennan hátt getur þú leiðrétt þá
bjögun, sem verður, og fengið
hljómburð, sem nálgast þann, sem
var í upþtökusalnum.
AÐRIR KOSTIR ADC
TÓNJAFNARANS
1. Hann eykur hljómstyrk magnar-
ans.
2. Hann stórbætir gæðin á þínum
eigin upptökum.
3. Hann eyðir aukahljóðum, sem
liggja á háfrí tíðni (suð) eða lágri
(drunur), án þess að hafa umtals-
verð áhrif. á tóngæðin.
TÓNJAFNARI 1
Fimm tíðnistillingar 60—10000 riö
Tvöfalt kerfi (hægri og vinstri)
Bjögun: 0.02%
TÓNJAFNARI 2
Tólf tíðnistillingar 30—16000 rið
Hægra og vinstra kerfi aðskilið
Bjögun: 0.02%
u
Leiðandi fyrirtæki
á sviði sjónvarps
útvarps og hljómtækja
VERZLUN OG SKRIFSTOFA: LAUGAVEGI 10.SÍMI: 27788 (4 LÍNUR).
n
ÞAK sumarhús, íslensk framleiðsla
ÞAK sumarhús við allra hæfi, á öllum
byggingarstigum. Hagkvæm greiðslukjör.
Þeir, sem vilja tryggja sér hús fyrir vorið,
ættu að hafa samband við okkur sem allra
fyrst.
Hringdu núna í síma 72019 eða 53931.
ÞAKht
Sími 53473