Morgunblaðið - 10.05.1980, Page 10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. MAÍ1980
Fjárrekstur
Sólblóm
Kvöld í baðstofu.
Hannes Hafstein. Kristín mun hafa málað þessa mynd eftir
ljósmynd á árunum milli 1930—’40. Hún fékkst annars sáralitið
við mannamyndamálun.
Framlag Kjarvalsstaða til Lista-
hátíðar í ár er sýning á verkum tveggja
listakvenna, þeirra Kristínar Jónsdóttur
listmálara og Gerðar Helgadóttur
myndhöggvara. Sýningin verður opn-
uð 1. júní og stendur í tvo mánuði. Hér
er lítillega sagt frá hlut Kristínar í
sýningunni og f jallað um Gerði Helga-
dóttur í blaðinu eftir helgi.
Listaverk
aldri. í tvö ár nam hún við
Tegneskole for kvinder til und-
irbúnings námi sínu á Aka-
demíunni og þaðan lauk hún
prófi árið 1916. Fyrstu sýningu
sína hér hélt hún ásamt Muggi
í Miðbæjarskólanum í ágúst-
mánuði 1915. Kristín dvaldist
lengst af í Danmörku til ársins
1923, að hún flutti heim al-
komin, en hún var þó iðulega
hér á sumrin, ferðaðist um
landið og málaði. Fyrsta sýn-
ing erlendis sem hún átti verk
á var Vorsýningin á Charlott-
enborg árið 1915 og síðan átti
hún myndir á þeirri sýningu á
hverju vori fram til ársins
1921. Listasafn íslands keypti
fyrstu myndina sem það eign-
aðist eftir Kristínu árið 1916,
nefnist hún „Saltfiskverkun".
Eftir að Kristin fluttist
heim hélt hún allmargar sýn-
ingar, þá fyrstu árið 1924 og
síðan með nokkurra ára milli-
bili um margra ára skeið.
Síðast sýndi hún 1952. Hún
andaðist 1959 og síðasta sýn-
ing á verkum hennar fram til
nú, var haldin árið 1962, fyrir
forgöngu dætra hennar Huldu
og Helgu Valtýsdætra.
Kristín var afkastamikil
listakona sem naut mikillar
viðurkenningar fyrr og síðar.
Hún málaði landslagsmyndir
en er einnig mjög þekkt fyrir
blóma- og kyrralífsmyndir
sínar. Hún ferðaðist alla tíð
mikið um úti á landi og málaði,
m.a. á Akureyri, var í Möðru-
dal um hríð, málaði í Húsaf-
elli, á Þingvöllum og víðar.
h.k.
Gerðar og
Kristínar á
Kjarvalsstöðum frá 1. júní
Kristin Jónsdóttir i vinnustofu sinni.
Á YFIRLITSSÝNINGU Krist-
ínar Jónsdóttur verða um tvö
hundruð málverk frá ýmsum
tímum á ferli hennar. Kristín
hélt til náms í Kaupmanna-
höfn 1909 og var fyrsta ís-
lenzka konan, sem lagði fyrir
sig myndlistarnám. Barnabörn
Kristínar, börn Huldu og
Helgu heitinnar Valtýsdóttur,
hafa undanfarna mánuði unn-
ið við að skrá og taka myndir
af málverkum Kristínar og
hafa nú samtals tekið myndir
af um 450 verkum, en óskráð
munu að líkindum vera a.m.k.
150—200 til viðbótar. Þar af
eru ýmis erlendis, en töluvert
einnig hér í Reykjavík og úti á
landi og eru það tilmæli ætt-
ingja listakonunnar, að haft sé
samband við þá til að þeir fái
að taka myndir af verkunum.
Listmálararnir Þorvaldur
Skúlason og Jóhannes Jóhann-
esson munu síðan velja mál-
verkin á sýninguna og stendur
hún bæði júní og júlímánuð.
Eins og fyrr segir hélt Krist-
ín Jónsdóttir til Kaupmanna-
hafnar árið 1909, þá 21 árs að