Morgunblaðið - 10.05.1980, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 10.05.1980, Qupperneq 10
 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. MAÍ1980 Fjárrekstur Sólblóm Kvöld í baðstofu. Hannes Hafstein. Kristín mun hafa málað þessa mynd eftir ljósmynd á árunum milli 1930—’40. Hún fékkst annars sáralitið við mannamyndamálun. Framlag Kjarvalsstaða til Lista- hátíðar í ár er sýning á verkum tveggja listakvenna, þeirra Kristínar Jónsdóttur listmálara og Gerðar Helgadóttur myndhöggvara. Sýningin verður opn- uð 1. júní og stendur í tvo mánuði. Hér er lítillega sagt frá hlut Kristínar í sýningunni og f jallað um Gerði Helga- dóttur í blaðinu eftir helgi. Listaverk aldri. í tvö ár nam hún við Tegneskole for kvinder til und- irbúnings námi sínu á Aka- demíunni og þaðan lauk hún prófi árið 1916. Fyrstu sýningu sína hér hélt hún ásamt Muggi í Miðbæjarskólanum í ágúst- mánuði 1915. Kristín dvaldist lengst af í Danmörku til ársins 1923, að hún flutti heim al- komin, en hún var þó iðulega hér á sumrin, ferðaðist um landið og málaði. Fyrsta sýn- ing erlendis sem hún átti verk á var Vorsýningin á Charlott- enborg árið 1915 og síðan átti hún myndir á þeirri sýningu á hverju vori fram til ársins 1921. Listasafn íslands keypti fyrstu myndina sem það eign- aðist eftir Kristínu árið 1916, nefnist hún „Saltfiskverkun". Eftir að Kristin fluttist heim hélt hún allmargar sýn- ingar, þá fyrstu árið 1924 og síðan með nokkurra ára milli- bili um margra ára skeið. Síðast sýndi hún 1952. Hún andaðist 1959 og síðasta sýn- ing á verkum hennar fram til nú, var haldin árið 1962, fyrir forgöngu dætra hennar Huldu og Helgu Valtýsdætra. Kristín var afkastamikil listakona sem naut mikillar viðurkenningar fyrr og síðar. Hún málaði landslagsmyndir en er einnig mjög þekkt fyrir blóma- og kyrralífsmyndir sínar. Hún ferðaðist alla tíð mikið um úti á landi og málaði, m.a. á Akureyri, var í Möðru- dal um hríð, málaði í Húsaf- elli, á Þingvöllum og víðar. h.k. Gerðar og Kristínar á Kjarvalsstöðum frá 1. júní Kristin Jónsdóttir i vinnustofu sinni. Á YFIRLITSSÝNINGU Krist- ínar Jónsdóttur verða um tvö hundruð málverk frá ýmsum tímum á ferli hennar. Kristín hélt til náms í Kaupmanna- höfn 1909 og var fyrsta ís- lenzka konan, sem lagði fyrir sig myndlistarnám. Barnabörn Kristínar, börn Huldu og Helgu heitinnar Valtýsdóttur, hafa undanfarna mánuði unn- ið við að skrá og taka myndir af málverkum Kristínar og hafa nú samtals tekið myndir af um 450 verkum, en óskráð munu að líkindum vera a.m.k. 150—200 til viðbótar. Þar af eru ýmis erlendis, en töluvert einnig hér í Reykjavík og úti á landi og eru það tilmæli ætt- ingja listakonunnar, að haft sé samband við þá til að þeir fái að taka myndir af verkunum. Listmálararnir Þorvaldur Skúlason og Jóhannes Jóhann- esson munu síðan velja mál- verkin á sýninguna og stendur hún bæði júní og júlímánuð. Eins og fyrr segir hélt Krist- ín Jónsdóttir til Kaupmanna- hafnar árið 1909, þá 21 árs að

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.