Morgunblaðið - 21.10.1980, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 21.10.1980, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 1980 Svíþjóö Frá Guðfinnu Rairnarsdóttur. fréttaritara Mbl. i Svfþjóð. Mikill hiti var í umræðum í sænska þinginu sl. miðvikudag og voru helstu deilumálin efna- hagur sænskra launþega. Það var einmitt vegna skerts kaup- máttar Svía, að Olaf Palme, leiðtogi jafnaðarmanna, lýsti yf- ir vantrausti í sænsku ríkis- stjórnina. Vantraustsyfirlýsing jafnaðarmanna á ríkisstjórn Thorbjörns Falldin kom vissu- lega ekki á óvart. Þegar þingið kom saman til aukafundar um miðjan september kröfðust margir innan þingflokks jafn- aðarmanna og einnig Lars Werner, leiðtogi kommúnista, að lýst yrði vantrausti á stjórnina. „Við munum sitja í stjórn meðan þingið veitir okkur stuðn- „Okkur ber skylda til að leggja fram þessa kröfu — kjósendur okkar krefjast þess af okkur,“ bætti hann við. Það eru vissu- lega engin létt vandamál, sem sænska stjórnin á við að glíma þessa dagana. Rekstrarhalli ríkissjóðs er áætlaður um 50 milljarðar sænskra króna á næsta ári. Iðnaðurinn á í miklum erfiðleik- um, erlendar skuldir aukast jafnt og þétt, áætlað er að vextir af erlendum lánum muni hækka um 3 milljarða á komandi ári. Hvert fyrirtækið af öðru verður gjaidþrota og áætlað er atvinnu- leysingjum fjölgi úr rúmlega 90 þúsundum í 150 þúsund á næsta ári og verði 3,5%. Thorhjörn Fálldin. forsa’tisráðherra — segir að jafnaðarmenn hafi ekki komið fram með neinar raunhæfar tiilögur til lausnar efnahags- vanda Svía. Olaf Palme, leiðtogi jafnaðarmanna. — harðorður i garð sænsku stjórnarinnar vegna efnahags- ráðstafana. sem gripið hefur verið til. leggingar stjómarinnar um að minnka aðstoð við stáliðjufyrir- tæki, skipasmiðjur, trjávöruiðn- aðinn og ef til vill fataiðnaðinn. Það myndi hafa í för með sér víðtæk gjaldþrot og þar af leið- andi atvinnuleysi fyrir fjölda fólks. Á undanförnum árum hef- ur stjórnin veitt 30 milljarða sænskra króna styrk til iðnaðar- ins, fyrst og fremst til skipa- smíða og stáliðjuvera. En landið hefur ekki efni á því, að styrkja þennan iðnað endalaust, að því er kemur fram í skýrslu fjár- málaráðuneytisins. Áætlað er að gjöld ríkisins muni aukast úr 200 milljörðum í 235 milljarða á næsta ári. Ríkisstjórnin hefur að undan- förnu átt viðræður við hags- munasamtökin, AFI og PCO (það er samsvarandi samtök Atkvæðagreiðsla um vantrausts- tillögu jafnaðarmanna á morgun ing sinn,“ sagði Thorbjörn Fáll- din, forsætisráðherra þá. „Og enn hafið þið ekki lagt fram neina formlega vantraustsyfir- lýsingu," bætti hann við. En nú liggur hún sem sagt fyrir — vantraustsyfirlýsingin. Þetta er yfirlýsing sem fyrst og fremst er ætlað að sýna vanþóknun stjorn- arandstöðunnar á efnahags- stefnu stjórnar Fálldins. „Við gerum okkur fulla grein fyrir því, að við fellum ekki stjornina nú“ sagði Olaf Palme í umræðum í þinginu í gær. Innan tíðar hefjast svo samn- ingar á vinnumarkaðinum. Rík- isstjórnin hefur lagt fram yfir- gripsmiklar sparnaðaráætlanir í um það bil 100 atriðum. Þær eiga að auka tekjur ríkisins, um 6—7 milljarða á árunum 1981 og 1982. Sparnaðaraðgerðirnar munu koma harðast niður í húsnæð- ismálum og félagslegum umbót- um. Húsaleigustyrkur mun minnka til muna og kemur það fyrst og fremst niður á einbýlis- húsaeigendum, eftirlaunafólki, einhleypu fólki og námsfólki. Kostnaður í sambandi við stutt veikindi starfsfólks munu færast yfir á atvinnuveitendur. Læknis- vitjanir og meðalakostnaður hækka úr 25 krónum í 40 krón- um. Niðurgreiðslur á helstu mat- vörum minnka stórlega um ára- mótin 1980 og 1981. Ríkisstjóm- in áætlar að spara þar 1,2 milljarða á næsta ári. Ríkisstyrkur til skólanna minnkar um 306 milljónir. Það sem þó hefur valdið mestum úlfaþyt í sænska þinginu er það að ríkisstjórnin tryggir ekki lengur óskertan kaupmátt allra eftirlaunaþega. Auk þess mun stjórnin leggja fram tillögur um skatt á stærri bátum, aukna skatta á sölu fasteigna, hærri fasteignaskatt, leiguflugsskatt og takmörkun á vaxtafrádrætti. í fjárlögum ríkisins, sem lögð verða fram 10. janúar er gert ráð fyrir samdrætti hjá hinu opin- bera og engar nýjar félagslegar umbætur munu ganga í gildi á næstunni. Það sem ef til vill veldur mestum ugg eru bolla- starfsmanna ríkis og bæja og háskólamenntaðs fólks), um efnahagsaðgerðirnar, um lag- færingar á sköttum og komandi samninga. Tekjuaukning laun- þega fyrir skatt var á árinu um 2%. Á næsta ári er áætlað að tekjuaukningin verði um Vfe% eða minnki um ‘á %, allt eftir því hvernig samningar takast. Þó skoðanir séu skiptar um efnahagsástandið eru allir aðilar sammála um, að árið 1981 verði mun erfiðara í efnahagslegu tilliti en líðandi ár. FRETTASKYRING Verður kúvending Eanes honum að fótakefli? Mario Soares Antonio Ramahlo Eanes. Sú ákvöröun Mario Soares, for- manns Sósialistaflokks Portú- gals aö hætta stuöningi sínum viö Eanes forseta í komandi kosningum hefur vakiö verulega athygli, en verður þó aö teljast eölilegt framhald af kyndugum yfirlýsingum forsetans á blaöamannafundi sem hann efndi til í lok síöustu viku. Eanes lýsti þar yfir aö hann væri á engan hátt tengdur neinum stjórnmálaflokki í framboöi sínu, og afneitaöi sérstaklega komm- únistaflokknum PCP, en af öllu máli hans mátti marka aö hann heföi einnig fjarlægzt mjög Sósi- alistaflokkinn. Kvaöst Eanes vera hlynntur „miöblokkinni" og er hér um aö ræöa nánast óskiljanlega kúvendingu Portú- galsforseta. Þaö kom berlega fram í þingkosningunum á dög- unum, aö hann hvatti þá ein- dregið kjósendur til að veita Sósialistaflokknum og jafnvel PCP brautargengi og af öllu varö þá ráöiö aö dáleikar væru milli hans og PS og ekki sízt hans og formannsins, Mario Soares. Þessi yfirlýsing Eanesar kom eins og þruma úr heiöskíru lofti yfir kjósendur og er trúlegt aö hún kunni aö hafa veruleg áhrif á komandi kosningabaráttu og andstæöingar forsetans munu án efa óspart nota sér þetta gegn honum, ásaka hann um hringlandahátt og hentistefnu: nú hefur Alianca democratica fengiö ótvíræöa stuöningsyfir- lýsinu þjóöarinnar og þá viröist sem hann álfti aö hann veröi einnig aö sööla yfir. Francisco Sa Carneiro forsætis- ráöherra hefur ekki þegar þetta er ritaö látiö neina skoöun í Ijósi á því sem gerzt hefur, en úr aöalbækistöövum stjórnarflokk- anna PSD, CDS og Kóngssinna- flokknum, hefur svariö veriö það eitt aö boöa aö nú veröi hafin stórkostleg herferö til aö efla fylgi viö frambjóðanda AD, So- ares Carneiro. Eins og fram hefur komiö hafa menn fundiö Soares Carneiro, forsetaframbjóöanda AD, þaö helzt til foráttu, aö hann sé Irtt þekktur meöal almennings og er nú ætlunin aö gera á því hressi- lega bragarbót. Stuöningsmenn hans keppast viö aö benda á aö Eanes forseti hafi sjálfur veriö nánast óþekktur meöal portú- galsks almennings, þegar hann fór í framboö fyrir fjórum árum. Hann haföi þó rós í hnappagat- inu; honum mátti þakka aö verulegum hluta aö kommúnist- ar voru endanlega brotnir á bak aftur þann 25. nóv. 1975 og hafa ekki síðan boriö sitt barr í Portúgal. Innan Sósialistaflokksins varö mikil reiöi meö yfirlýsingar Ean- esar, en eftir langa og stranga fundi um helgina ákvaö æösta stjóm flokksins engu aö síöur aö halda til streitu stuöningi viö hann, þrátt fyrir eindregna and- stööu formanns flokksins, Mario Soares. Þaö er auðvitað enn of snemmt aö spá nokkru um, hvort ákvöröun Soares muni draga einhvern dilk á eftir sér varöandi breytingar á forystuliöi PS, en ekkí ósennilegt aö svo verði. Þaö á líka eftir aö koma í Ijós hver verða viöbrögö hins atmenna kjósanda Sósialista- fiokksins viö kollsteypu Eanes- ar. Engum dettur í hug aö Mario Soares muni grípa til þess ráös aö styöja Soares Carneiro. En engum blandast heldur hugur um, aö þar sem Mario Soares er, hvaö sem ööru líöur, hinn sterki maöur PS og einna ást- sælastur forystumannanna, get- ur þaö auövitaö haft sínar af- leiðingar, aö hann snýst opin- berlega gegn forsetanum. Þaö var í lok vikunnar sem Eanes hélt nefndan blaöamannafund og þegar spuröist út hvaöa orö hann heföi látið þar falla var æösta stjórn PS þegar kvödd saman til fundar og var mönnum heitt í hamsi. Eanes reyndi aö milda PS, bauð So- ares til hádegisveröar og full- vissaöi hann um aö hann heföi öldungis ekki afneitaö Sósial- istaflokknum, heldur heföi hann aöeins viljaö efla einingu þjóö- arinnar og vekja athygli á aö hann færi fram sem óháöur og yfir flokkadrætti hafinn. Mario Soares skundaöi síðan á fund stjórnar flokks síns meö skila- boö Eanesar upp á vasann og eftir langa og stranga fundi komst stjórnin aö fyrrgreindri niöurstööu og Soares ákvaö aö víkja úr formannsstööu fram yfir kosningarnar, sem veröa raunar á afmælisdegi hans þann 7. desember, — eftir aö tillaga hans um aö PS hætti öllum formlegum stuöningi viö Eanes var felld. Kosningabaráttan er rétt aö hefj- ast, en þessir fyrstu atburöir eru sýnilega fyrirboði þess aö hún veröi haröskeytt í meira lagi. Og Sa Carneiro forsætisráöherra og hans menn telja sig án efa hafa betri stööu nú og hafa fengiö vænan höggstaö á for- setanum — þótt Eanes hafi í reynd veriö aö gera þarna nokkuö kauöalega tilraun til aö nálgast miðflokkana. Skömmu áöur en blaöamanna- fundurinn var haldinn birti viku- ritiö Expresso í Lissabon niöur- stööur skoöanakannana um fylgi frambjóöenda. Þar kom fram aö Eanes nyti um 80 prósent fylgis og meöal annars yfirgnæfandi fylgis í ýmsum þeim kjördæmum sem AD haföl meirihluta í nýafstöönum þing- kosningum. Hvort hugarfars- breyting Eanesar veröur til aö vekja almenna tortryggni á hon- um ræöst á næstu vikum, svo og því hversu Alianca demo- cratica tekst til meö kynningu á frambjóöanda sínum, Soares Carneiro. Þá gætu vopnin held- ur betur snúizt í höndunum á Portúgalsforseta. Jóhanna Kristjúnsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.