Morgunblaðið - 09.05.1981, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1981
íslenzkur stóll
vekur mikla at-
hygli í Danmörku
ÍSLENZKI stúlHnn STACCO frá
StálhúsKagnagerð Stcinars hf..
hannaúur af Pétri Lútherssyni
húsKaKnaarkitekt. hefur vakið
verulejta athyKÍi á Scandinavian
Furniture Fair á Bella-Center í
Kaupmannahofn, sem hófst 6.
maí <>k stendur yfir til 10. maí.
Bandaríska fyrirtækiú Scandi-
line, Los AnKelcs. hefur kcypt í
einu laKÍ alla stólana sem eru á
sýninKunni <>k ætlar aó sýna þá á
alþjoðleKum sýninKum. EinnÍK
hefur fyrirta-kió pantaó 500 stóla
til afKreióslu nú í sumar. l>á hafa
fjölmarKÍr aóilar lýst yfir mikilli
hrifninKU á stólnum <>k lof-
samleKa hefur verið skrifaó um
hann í dónskum blöóum.
Stólinn hannaði Pétur í ágúst-
mánuði 1980 og er hann ætlaður
til nota í félagsheimilum, fundar-
sölum, kennslustofum og á fleiri
álíka stöðum. Honum er hægt að
raða upp með ýmsum hætti og
ýmsir fylgihlutir fylgja, ef óskað
er. Þá er og hægt að stafla
stólunum upp, án mikillar fyrir-
ferðar.
Bandaríska fyrirtækið, sem
keypti stólana, ætlar fyrst að sýna
þá á stofnanahúsgagnasýningu í
Chicago í júnímánuði og er síðan
fyrirhugað að fara með þá víðar
um heim. Fjöldinn allur af öðrum
aðilum hefur lýst áhuga á kaupum
og umboðum fyrir hann og fram-
leiðslufyrirtækið. Þá var í fyrra-
dag sérstaklega bent á stólinn í
skrifum um sýninguna í Jyllands
Posten.
Engum lóðum úthlutað í gær:
Umsækjendur geta kynnt
sér stigaútreikninginn
Starísmaður Stálhúsgagnagerðar Steinars sýnir hér nokkur eintök af stólnum STACCO. Ljówm. Mbi. RAX.
Æ *
Asmundur Stefánsson forseti ASI:
LÓÐAÚTIILUTUN fór ekki fram
á horgarráósfundi sem haldinn
var í gær, eins <>k við hafði verið
búist.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins var á fundinum lagt til að
lóðaumsækjendum yrði gefinn
kostur á að kynna sér útreikning á
stigum sínum, en eins og kunnugt
er, er lóðum t Reykjavík úthlutað
eftir svokölluðu „punktakerfi".
Einnig geti umsækjendur gert
sínar athugasemdir við stigaút-
reikninginn og farið fram á að
hann verði skoðaður nánar.
Punktaútreikningurinn mun
liggja frammi í næstu viku og er
búist við að lóðum verði úthlutað
strax og athugasemdir umsækj-
enda hafa verið kannaðar.
SAMÞY KKT var með ágreiningi
i borgarráði í gær að visa tillögu
Alberts Guðmundssonar frá, en
tillaKan Kerir ráð fyrir því að
tillit verði tekið til óska loðaum-
sa-kjenda með sérþarfir. Þó segir
í frávísunartillögunni að rétt sé
að taka efnisatriði tillögunnar til
skoðunar fyrir næstu reglulegu
loðaúthlutun.
Vegna þessa létu borgarráðs-
menn Sjálfstæðisflokksins, þeir
Davíð Oddsson og Magnús L.
Sveinsson, m.a. bóka að punkta-
reglur núverandi meirihluta væru
sérstaklega gallaðar, eins og yrði
æ ljósara eftir því sem oftar á þær
reyndi. Nú væri svo komið að
menn ættu þess engan kost að fá
úthlutað einbýlishúsalóðum, nema
hafa „safnað synjunarstigum".
Við núverandi úthlutun væri lagt
til að nokkrum aðilum yrði úthlut-
að einbýlishúsalóðum án tillits til
stigafjölda þeirra.
Er í lok bókunarinnar sagt að
þær hugmyndir sem kynntar hafi
verið vjð núverandi úthlutun, gefi
fullt tilefni til þess að samþykkja
tiljögu Alberts Guðmundssonar.
í bókun sem Sigurjón Péturs-
son, borgarfulltrúi Alþýðubanda-
lagsins, gerði á fundinum segir að
sjálfstæðismenn hefðu átt að
koma fram með breytingartillögur
við úthlutunarreglur við reglulega
endurskoðun reglnanna.
„Fáránlegt að draga stað-
festingu á verðhækkunum“
Lóðaumsækjendur með sérþarfir:
Tillögu Alberts Guð-
mundsvsonar vísað frá
„ÉG VERÐ að vona það að
viðskiptaráðherra og ríkisstjórn-
in oll reynist það skynsöm að það
verði ekki dregið frekar að stað-
festa þær verðákvarðanir sem
hafa verið samþykktar, annað
va*ru ákaflega óheppileg vinnu-
brögð, því þeir liðir sem eiga að
fara inn í visitöluna eiga skilyrð-
islaust að fara inn í verðlagið nú
þeKar.
Það væri íáránlegt að draga
staðfestingu á þessum verðhækk-
unum fram yfir útreikning vísitöl-
unnar, því þar með væri augljós-
lega verið að halda aftur af
eðlilegum kauphækkunum," sagði
Ásmundur Stefánsson forseti ASI
Sumarvaka
í Garðabæ
GARÐALEIKHÚSIÐ gengst fyrir
sumarvöku í Garðaholti, samkomu-
húsi Garðbæinga, í kvöld, laugar-
dagskvöld 9. maí, kl. 20.30. Á
sumarvökunni verður lesið og sung-
ið úr verkum Kjartans Ragnarsson-
ar, sem er meðal flytjenda. Kynnir
verður Ragnheiður Steindórsdóttir.
Viðskiptaráðherra
og Seðlabankabréfið
Viðskiptaráðherra Tómas
Árnason segir í vðtali við MorK-
unhlaðið í Kær um bréf Scðla-
banka íslands vegna grciðslu
rekstrar- <>k afurðalána til
ha-nda: „Það rétta i málinu er
það. að þetta bréf Seðlabankans.
sem ég veit að Davíð ólafsson
ætlar að birta út af þessu máli.
hef ég ekki séð fyrr en í daK (þ.e.
7. maí; innsk.), en það er frá 15.
janúar 1980 <>k stílað til landbún-
aðarráðuneytisins. Það er ekki
hæKt að ætlast til þess að ég
framkvæmi eitthvað samkvæmt
þessu bréfi, sem éK hef ckki séð
<>K <’“K hef í raun enKU við að bæta
í þessu máli.“
Morgunblaðið birtir umrætt
bréf í gær ásamt skýringum
Davíðs Olafssonar seðlabanka-
stjóra. I lok greinar sinnar segir
Davíð, að bréf Seðlabankans hafi
verið birt sem fylgiskjal með
nefndaráliti, er landbúnaðarráð-
herra fékk frá sérstakri nefnd 13.
febrúar 1981.
Sé svar Tómasar Árnasonar við
fyrirspurn Eyjólfs K. Jónssonar
um þetta sama mál á Alþingi
skoðað, kemur í ljós, að ráðherr-
anum er fullkunnugt um bréf
Seðlabankans. Svarið gaf Tómas á
Alþingi 5. maí sl. og vísar þar til
álits þeirrar nefndar, sem skilaði
landbúnaðarráðherra skýrslu í
febrúar sl. Síðan segir Tómas
Árnason á þingi: „Nefndin vekur í
álitinu athygli á þeirri leið, er
bent er á í svari Seðlabankans við
bréfi landbúnaðarráðuneytis í júlí
mánuði. Má um þá leið vísa til
áðurnefnds svars míns í nóvem-
bermánuði á síðasta ári...“ í lok
svars síns segir viðskiptaráðherra
á Alþingi 5. maí: „En eins og hér
segir áður, þá vísa ég til þess, sem
ég svaraði í svari mínu til hv. þm.
hér á fyrra ári um þá leið sem
Seðlabankinn benti á í þessum
efnurn."
Á Alþingi 25. nóvember 1980
sagði viðskiptaráðherra, Tómas
Árnason: „Svör Búnaðarbankans
og Landsbankans bárust í byrjun
október 1979 og Seðlabankans í
ianúar 1980.“
í samtali við Mbl. í gær um þær
verðákvarðanir sem hafa verið
ákveðnar í Verðlagsráði en ríkis-
stjórnin hefur frestað að afgreiða.
„Ýmsar af þessum hækkunum
hafa beðið afgreiðslu mjög lengi
en þær snerta ekki allar vísitöluna
beint vegna þess að ýmsar verð-
hækkanir koma ekki fram i verð-
laginu fyrr en að nokkrum tíma
liðnum, til dæmis varðandi flutn-
ingskostnað. Það er því engan
veginn um hreint vísitölumál að
ræða. Það hefur hins vegar löng-
um verið tilhneiging til þess hjá
stjórnvöldum að reyna að hag-
ræða verðákvörðunum með tilliti
til vísitölunnar og sú viðleitni
hefur greinilega komið fram nú í
því hve lengi hefur verið dregið að
afgreiða þessar hækkanir. Verð-
hækkanirnar eru staðreynd, ef
ekki i dag, þá á morgun. Við
höfum séð slík vinnubrögð fyrr á
árum að beðið var með verðstað-
festingar fram yfir vísitölu-
ákvörðun, en við verðum að vona
að þau verði ekki viðhöfð nú,“
sagði Ásmundur Stefánsson.
Páll Sigur jónsson end-,
urkjörinn formaður VSÍ
Á FUNDI sambandsstjórnar
Páll Sigurjónsson
isspo
Vinnuveitcndasambands Islands
5. maí sl. var Páll Sigurjónsson
endurkjörinn formaður Vinnu-
veitendasambandsins næsta
starfsár.
Hjalti Einarsson var endurkjör-
inn varaformaður.
Aðrir í framkvæmdastjórn sam-
bandsins voru kosnir: Ágúst Haf-
berg, Davíð Sch. Thorsteinsson,
Gísli Ólafsson, Guðlaugur Björg-
vinsson, Gunnar S. Björnsson,
Gunnar J. Friðriksson, Haraldur
Sveinsson, Hjörtur Hjartarson,
Jón Páll Halldórsson, Jón Ingv-
arsson, Kristján Ragnarsson,
Ragnar Halldórsson, Valtýr Há-
konarson og Þórður Gröndal.
Hekla ekki
til Ecuador
EKKERT verður af sölu Heklu.
strandferðaskips SkipaútKerðar
ríkisins, til Ecuador, eins <>g til
stóð, að sögn Guðmundar Einars-
sonar. framkvæmdastjóra Skipa-
útKerðarinnar.
„Samningurinn var að vísu með
þeim fyrirvara, að viðkomandi aðili
fengi tilskilin leyfi heima fyrir. Það
hefur hins vegar komið einhver
afturkippur í það nú,“ sagði Guð-
mundur Einarsson.
„Ég vil árétta það sérstaklega, að
okkur liggur ekkert á að selja
skipið, heldur vildum við hafa
tímann fyrir okkur og þetta boð
kom. Við höfum fengið fyrirspurnir
frá mörgum aðilum og munum fara
að líta á þau má! á næstunni," sagði
Guðmundur Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Skipaútgerðar ríkis-
ins að síðustu.