Morgunblaðið - 09.05.1981, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MAI 1981
Fisks<>lustaðurinn við NASA Boulcvard.
staðinn sækja margir starfs-
manna NASA.
Gencral Arnold Brown og kona hans mcð Karli Bretaprins við
sctnin^u alþjóðlegs ársþings Hjálpræðishersins í London 1978.
HJÁLPRÆÐISHERINN: I
Hershöfðinginn kann-
ar lið sitt á Islandi
„Einu sinni sem oftar fékk
ég mér að borða og konurnar
tóku eftir því að ég var
útlendingur. Því spurðu þær
mig hvaðan ég væri. Ég sagði
þeim það. Þær sögðu þá, að
þær seldu um 300 pund af
íslenzkum fiski á viku hverri.
Jafnframt sýndi hún mér einn
fiskikassann.
Við opnuðum hann og þá
kom í ljós, að fiskurinn, sem
ég var að borða í Houston
hafði verið unninn og pakk-
aður á Húsavík, mörg þúsund
mílur í burtu,“ sagði Ólafur. í
hverjum fiskpakka er getið um
framleiðanda og kom í ljós, að
fiskurinn í Houston hafði ver-
ið unninn í Sambandsfrysti-
húsinu á Húsavík. Þar var
skilmerkilega tekið fram, að ef
yfir einhverju væri að kvarta,
þá skyldi haft samband við
SÍS.
Alþjóðlegur yfirmaður Iljálp-
ræðishersins general Arnold
Brown og kona hans Jean koma
til Islands í byrjun júlí nk.
Hjálpræðisherinn hefur starfað
á íslandi í 86 ár en þetta er í
fyrsta skipti sem hershöfðinginn
kemur til Islands.
General Brown er kanadískur
islenzkum fiski. Þær selja 300 pund
en hefur aðsetur í London í
aðalstöðvum Hjálpræðishersins.
General Brown og kona hans
verða hér á landi i tvo daga, 9. og
10. júlí og verða á samkomum í
Neskirkju bæði kvöldin. Auk þess
snæða þau kvöldverð í boði bisk-
ups, morgunverð í boði borgar-
stjórnar Reykjavíkur og hádegis-
verð í Valhöll í boði ríkisstjórnar-
innar.
Með hershöfðingjanum kemur
ritari hans, yfirmaður Hjálpræð-
ishersins á íslandi, í Noregi og
Færeyjum, Kommandör K.A. Sol-
haug og kona hans Else og brig-
ader Oskar Jónsson. Þau þrjú
síðast nefndu verða hér á landi
tveimur dögum lengur en hers-
höfðinginn og taka þátt í fleiri
samkomum.
í tilefni heimsóknar hershöfð-
ingjans koma allir foringjar
Hjálpræðishersins á íslandi og í
Færeyjum til Reykjavíkur og auk
þess fjöldi hermanna. Verður því
einnig haldið svokallað deildar-
þing í Reykjavík.
Konurnar í Houston með pakka af
á viku hverri.
Fiskurinn verkaður á Ilúsavik.
HLAÐVARPINN
Umsjón Hallur Hallsson
LÍTILL HEIMUR:
Frá
Húsavík
til
Houston
ÓLAFUR K. Magnússon.
Ijósmvndari hér á Morgun-
blaóinu. var í Bandaríkjun-
um síðastliðinn vetur og var
meðal annars í Houston í
Texas. Á NASA-Boulevard.
skammt frá stjórnstöð Geim-
ferðastofnunar Banda-
ríkjanna er lítill fisksölustað-
ur. Þar eru seldir fiskréttir.
meðal annars djúpsteiktur
fiskur, rækjur og ostrur.
Ólafur fór nokkrum sinnum
inn á þennan veitingastað og
fékk sér fisk að borða en
STARFI:
í snertingu við lífs-
baráttu fólksins
„ÉG STARFAÐI hjá Flugleið-
um í 20 ár. Var deildarstjóri
markaðssviðs og sá til að
mynda um leiguflug, Kanarí-
ferðir og Miamiferðir og
þurfti starfs míns vegna að
ferðast mikið. mjög víða. Nú
er ég orðinn sveitarstjóri á
Raufarhöfn. sumir segja á
norðurhjara veraldar en mér
finnst ég kominn í snertingu
við lífsharáttu fólksins í land-
inu; kominn í samband við
raunveruleikann,“ sagði
Gunnar Hilmarsson í stuttu
spjalli við hlaðamann en
Gunnar er nýtekinn við starfi
sveitarstjóra á Raufarhöfn.
„Ég kom hingað í apríl. bað
er að vísu kalt núna. Nei,
enginn fimhulkuldi en hita-
stigið er um frostmark og föl
á jörðu en hér hef ég aðeins
mætt hlýju viðmóti fólks.“
Eftir 20 ára starf hjá Flug-
leiðum og 47 ára lífsferil þá
hafa það verið mikil viðbrigði
að hætta hjá Flugleiðum, ekki
satt?
„Jú, vissulega. Ég starfaði í
20 ár hjá Flugleiðum og það
tók tíma að átta sig á hlutun-
um. En maður verður að horf-
ast í augu við raunveruleikann.
Það skemmtilegasta við þetta
er, að maður axlaði alveg yfir
um. Starfið hér er gjörólíkt því
Gunnar Hilmarsson
sem ég áður vann við en
jafnframt fjölbreytt."
Hefurðu sett þér einhver
markmið nú?
„Ég er hér að læra, reyna að
komast inní hlutina og því
ótímabært að vera með stórar
yfirlýsingar. Það tekur 1—2 ár
að komast virkilega inn í
hlutina, komast inní starfið
því svo lengi lærir sem lifir."
Nú hefur útgerðarfyrirtækið
Jökull verið nokkuð í sviðsljós-
inu vegna slæmrar stöðu.
„Já, en ég efast um, að Jökull
sé verr staddur en önnur
útgerðarfyrirtæki víðs vegar
um landið, nema þá kannski á
beztu útgerðarstöðunum. Jök-
ull og togarinn Rauðinúpur
hafa mikla þýðingu fyrir Rauf-
arhöfn og því mikilvægt að vel
takist til um útgerð héðan. Nú,
en grásleppuvertíðin hefur
gengið vel og ég held að menn
séu nokkuð ánægðir. Þá er
bátaútgerð héðan. Það hefur
verið nokkuð misjafnt hjá bát-
unum hér, en almennt hefur
gengið sæmilega."
Hverjar eru helstu fram-
kvæmdir á vegum hreppsins
nú?
„Lífið er ekki bara saltfiskur
hér. Það eru margvíslegar fé-
lagslegar framkvæmdir. Nú er
verið að byggja sundlaug hér
og er hún stærsta einstaka
framkvæmdin. Síðar verður
bætt við íþróttahúsi. Gatna-
gerð er og stór hluti fram-
kvæmda hér. Nú, hreppurinn á
Hótel Norðurljós og við ætlum
að opna 1. júní næstkomandi.
Það er ákaflega mikilvægt að
hafa hótel á slaðnum, ekki
bara fyrir túristana heldur og
vinnuflekka.
Það eru því mörg verkefni
framundan og ég hlakka til að
takast á við þau.“
íkáðinni...
Fánalitirnir sjást að
vísu ekki í svart/
hvítu, en við látum
auglýsinguna
fylgja.
íslenzki
fáninn
á Suður-
pólnum
The Great European
ÍSLENSKI fáninn á Suður-
skautinu! Kreditkortin frá
Euorcard eru velþekkt hér á
landi. Undanfarið hefur
íyrirtækið auglýst mjög í
erlendum stórblöðum, m.a. i
handaríska tímaritinu
Newsweek. í heilsíðu auglýs-
ingu í Newsweek er þeirra
Marco Polo, Roald Amundsen
og Arthur de Gobineau, hinna
miklu landkönnuða getið. Og
segir, að Evrópubúar haíi
alltaf verið miklir ferðamenn
og að Eurocard stuðli að
þessu í dag. Hvartvetna í
heiminum sé hægt að fram-
vísa kreditkortum frá fyrir-
tækinu og fá þjónustu.
Nú er þetta í sjálfu sér ekki
í frásögur færandi en í um-
sögn um Amundsen er rétti-
lega skýrt frá því, að hann
hafi fyrstur manna farið
norð—vesturleiðina, og hann
varð fyrstur manna til að
komast á Suðurpólinn. Þar
reisti hann norska fánann en í
auglýsingu hafa þeir hjá
Newsweek farið fánavillt, því
þeir birtu mynd af íslenzka
fánanum. Einnig er mynd af
íslenzka fánanum um borð í
skipi Amundsen.