Morgunblaðið - 09.05.1981, Blaðsíða 31
HVAD ER AÐ GERAST UM HELGINA?
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1981 3 1
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Síðasta sýning á
La Bohéme í hili
í kvöld verður síðasta sýningin
á óperu Puccinis, La Bohéme, að
sinni, en aítur verða nokkrar
sýningar i júní með breyttri
hlutverkaskinan eftir að Sinfón-
íuhljómsveit lslands kemur heim
úr hljómieikaför um Þýskaiand
og Austurriki.
Aðsóknin á La Bohéme hefur
verið mjög góð og uppselt á flestar
sýningarnar. I einsöngshlutverk-
um eru Garðar Cortes, Ólöf K.
Harðardóttir, Halldór Vilhelms-
son, Ingveldur Hjaltested, John
Speight, Eiður Gunnarsson, Krist-
inn Hallsson og Guðmundur
Jónsson. Það er Jean Pierre
Jacquillat sem stjórnar Sinfóníu-
leikinn og Áskell Másson samdi
tónlistina.
Oliver Twist í 30.
og síðasta sinn
Barna- og fjölskylduleikritið
Oliver Twist eftir Charles Dick-
ens, í leikgerð Árna Ibsens, verður
sýnt í 30. skiptið kl. 15.00 á
morgun og er það jafnframt síð-
asta sýning verksins. Sýningin
verður ekki á fjölunum í haust.
Á fjórða tug leikenda eru í
sýningunni og eru veigamestu
hlutverkin í höndum Barkar
Hrafnssonar, Sigurðar Sverris
Stephensen, * Baldvins Halldórs-
sonar, Flosa Ólafssonar, Bryndís-
ar Pétursdóttur, Þórunnar
Úr La Bohéme.
hljómsveitinni. Leikstjóri er
Sveinn Einarsson og Þuríður Páls-
dóttir er aðstoðarleikstjóri. Leik-
myndin er eftir Steinþór Sigurðs-
son.
Fáar sýningar eft-
ir á Sölumanninum
Annað kvöld ' verður sýning á
leikriti Arthur Millers, Sölumaður
deyr, og er fólki bent á, að nú eru
aðeins fáar sýningar eftir á
verkinu. Með aðalhlutverkin fara
Gunnar Eyjólfsson, Margrét Guð-
mundsdóttir, Hákon Waage,
Andri Örn Clausen, Róbert Arn-
finnsson, Bryndís Pétursdóttir,
Árni Tryggvason og Randver
Þorláksson. Leikstjóri er Þórhall-
ur Sigurðsson og leikmyndin er
eftir Sigurjón Jóhannsson. Dr.
Jónas Kristjánsson hefur þýtt
Magneu Magnúsdóttur, Erlings
Gíslasonar, Ævars R. Kvaran,
Vals Gíslasonar, Jóns S. Gunn-
arssonar, Jóhönnu Norðfjörð, Þór-
unnar Sigurðardóttur og Sigurðar
Skúlasonar. Leikstjóri er Bríet
Héðinsdóttir og leikmynd og bún-
inga hannaði Messíana Tómas-
dóttir.
Gustur, saga um hest —
frumsýning á næstunni
Nú er undirbúningur í fullum
gangi fyrir næstu frumsýningu
Þjóðleikhússins, sem er rússnesk-
ur söngleikur byggður á vinsælli
smásögu eftir Tolstoj og heitir
Gustur, saga um hest. Söngleikur
þessi var fyrst sýndur í Leningrad
árið 1975 og hefur síðan verið
sýndur víða við miklar vinsældir,
m.a. á Norðurlöndum, Þýskalandi
og á Broadway í New York.
Látbragðsleikur í
Félagsstofnun stúdenta
í kvöld og annað kvöld
sýnir bandarískur látbragðs-
leikari, Maria Lexa, lát-
bragðsleik í Félagsstofnun
stúdenta við Hringbraut og
hefjast sýningarnar bæði
kvöldin kl. 21. Maria Lexa
hefur verið á sýningaferða-
lagi um Evrópu og er nú á
leið heim með viðkomu hér.
Enn fremur munu ung ís-
lensk ljóðskáld, Elísabet Þor-
geirsdóttir og Anton Helgi
Jónsson, lesa úr eigin verkum
bæði kvöldin og Nýja komp-
aníið tekur lagið.
Maria Lexa
bregður á leik
LEIKFÉLAG VESTMANNAEYJA
Hrafn Hauksson, Jóhanna Jónsdóttir og Guðrún Kolbeinsdóttir
Með „Öngstrœtið“ til
höfuðborgarsvæðisins
Leikfélag Vestmannaeyja
hefur undanfarið sýnt leikritið
„Fvrsta Öngstræti til hægri“
eftir Örn Bjarnason í Bæjar-
leikhúsinu í Vestmannaeyjum,
við mjög góðar undirtektir leik-
húsgesta.
Leikfélagið er nú komið til
fastalandsins og mun sýna
Öngstrætið í Kópavogsleikhús-
inu í kvöld, annað kvöld og
mánudagskvöld nk. og hefjast
sýningarnar kl. 20.30. Leikstjóri
er Sigurgeir Scheving og er þetta
sjöunda leikritið sem hann setur
á svið fyrir félagið. Leikmynd er
eftir Sigurjón Jóhannsson og
lýsingu annaðist Ingvar Björns-
son.
Þetta er annað leikferðalag
Leikfélags Vestmannaeyja á
þessu ári, hið fyrra var um
miðjan janúar er LV sýndi
gamanleikinn „Aumingja
Hanna" í Kópavogsleikhúsinu
við frábærar undirtektir leik-
húsgesta.
Breiðholtsleikhúsið
„Segðu pang!!“
í dag og á morgun sýnir Breið-
holtsleikhúsið íslenska barnaleik-
ritið „Segðu pang!!“ í Fellaskóla við
Norðurfell og hefjast sýningarnar
háða dagana ki.15.
Segðu pang!! er leikrit sem fjallar
um tvö börn, strák og stelpu, og
greinir frá samskiptum þeirra, hug-
renningum og því sem þau láta sér
detta í hug sér til skemmtunar og
fróðleiks. Leikendur eru tveir, Þór-
unn Pálsdóttir og Þröstur Guð-
bjartsson, og hafa þau fengið góða
dóma fyrir leik sinn.
Þórunn Pálsdóttir og Þröstur Guð-
bjartsson í hlutverkum sínum í
„Segðu pang!!“ sem Breiðholtsieik-
húsið sýnir um þessar mundir.
MYNDLIST
Sýningu
Einars lýkur
annað kvöld
Annað kvöld lýkur sýningu
Einars Þorlákssonar í kjall-
ara Norræna hússins.
Á sýningunni eru 92 akríl-
myndir sem flestar eru unnar
íðustu tveimur til þremur ár-
um.
MYNDLIST
Ensk listakona opn-
ar sýningu í Djúpinu
í dag kl. 15 opnar enska
listakonan Catherine Anne Tirr
myndlistarsýningu i Djúpinu
við Hafnarstræti. Er þetta önn-
ur sýning hennar hér á landi;
hin fyrri var á Akureyri 1979.
Catherine Anne Tirr er fædd í
Leeds árið 1956. Hún hóf mynd-
listarnám árið 1974—75 í Jacob
Kramer School of Art í Leeds.
Frá 1975—79 stundaði hún nám í
listaskólum í London, m.a. í
grafík.og 1979—80 stundaði hún
grafíknám í Cranbrook Art Aca-
demy í Detroit í Bandaríkjunum
þar sem hún hlaut verðlaun fyrir
námsárangur.
Catherine hefur tekið þátt í
mörgum samsýningum, svo sem
Cheníl Gallery, London, Royal
Academy of Art London, St.
Paul’s Gallery Leeds, Robert
Kidd Gallery Detroit, svo eitt-
hvað sé nefnt. Hún hefur sér-
hæft sig í sáldþrykki (serigrafíu)
og eru flest verk hennar á
sýningunni í Djúpinu unnin með
þeirri tækni. Myndir á sýning-
unni spanna 4 ára tímabil. Eldri
verk hennar eru tengd goðsögn-
um, en sum verka hennar eru
sýnilega undir áhrifum frá ferð-
um hennar t.d. til Afríku. Nýj-
ustu verk hennar eru heidur
meira abstrakt því í þeim leggur
Catherine meiri áherslu á til-
finningasvið, en raunsæissvið.
Sýningu Catherine Anne Tirr
lýkur miðvikudaginn 20. maí.
Catherine Anne Tirr við eina mynda sinna í Djúpinu við
Hafnarstræti.