Morgunblaðið - 09.05.1981, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 09.05.1981, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1981 Bragi Kristjónsson: Spjall um út- varp og sjónvarp ÝmSUm ábyrffum aðiljum í þjóð- félaginu þykir Jónas Dagblaðsrit- stjóri Kristjánsson vera hinn dröfnótti silungur í tærri lind íslenzkrar fjölmiðlunar. Og mörgum þótti það hið mesta glæfra- og áhættuspil hér um árið, þegar sami, þá ritstjóri Vísis, yfirgaf meðeigendur sína, alla nema einn og hélt út í óvissuna með starfslið blaðsins og stofnaði Dagblaðið. Minnugir fyrri tilrauna til dagblaðsstofnunar — og hins mikla fjölda þeirra hér í fásinninu, voru fjölmargir næsta vissir — eða vonuðu, að þessi atbeini myndi mistakast. En elja og þrái Jónasar, lífleg skrif blaðsins í beinu sam- bandi við fólkið umhverfis, alls- kyns höfðun um frelsi til orðs og æðis og ekki síst skynsamleg fjár- málapólitík, fleyttu blaðinu yfir byrjunarörðugleikana. Pólitískir puntudrengir við stjórn höfuðóvinarins á síðdegis- markaðnum, urðu Dagblaðinu einnig til mikilla heilla, einkum eftir að Þorsteinn Pálsson yfirgaf Vísi og hóf að ritstýra Vinnuveit- endasambandinu. Skynsamleg breidd í starfsliði blaðsins og frjálsar hendur til efnisvals og meðferðar hafa þó sennilega ráðið mestu um vinsæld- ir þess hjá hinum gráa massa — auk þeirrar staðreyndar, að blaðið náði all fljótlega til sín nær öllum smáauglýsingamarkaðnum. At- hvarfsöryggi fékk blaðið svo end- anlega, þegar prentsmiðja Morg- unblaðsins tók að sér prentun þess og má segja að það hafi ráðið úrslitum um örlög þess. Sú festa — og vinsældir, sem þetta síðdegisblað hefur náð, staf- ar þó ekki frá einum aðilja: heldur frábærlega vel skipulagðri hóp- vinnu margra — og eru þar á Jónas meðal landstólpar úr mörgum flokkum, sem af ýmsum ástæðum hafa haldið sig undir yfirborðinu. En Dagblaðið náði ekki athygli markaðarins vegna þess, að það fjallaði um aðra eða merkilegri hluti en keppinautarnir: heldur vegna þess, að það fjallaði um þá með öðrum hætti: fjær hinu bók- lega talmáli, sem blaðamenn hafa löngum tamið sér. Á hversdags- máli fjöldans. Og tók fyrir almenn hagsmunamál hans lið fyrir lið, en sinnti minna flokkspólitískum draumórum. Og telst ópólitískt. Og það einnig, þótt pólitísk skoðun blaðsins sé vel ljós, hefur það aldrei látið eftir sér að lýsa fylgi við pólitískan flokk — fremur einstaklinga í ákveðnum flokki. Hin síðari misseri hefur þess gætt í æ ríkara mæli, að nokkur þreyta er komin í hið fyrrum ferska lið blaðsins. En hugmynda- samir eru þeir Dagblaðsmenn þó enn í ríkum mæli: þeir tóku upp skoðanakannanir og hafa náð úr- taki, sem hefur skilað þeim merki- lega góðum niðurstöðum í mörgum dæmum. Hinar dýru og hávísinda- legu kannanir höfuðóvinarins á markaðnum hafa ekki skilað nánd- ar eins góðum árangri. í líflegum samtalsþætti hjá Ilalldóri llalldórssyni frétta- manni hljóðvarps, settust þeir á rökstóla um skoðanakannanir: Vilmundur og Alexander alþing- ismenn, Svanur Kristjánsson stjórnmálafræðilektor og Jónas ritstjóri. Að vanda lagði stjórn- andinn málið skynsamlega fyrir og fléttaði inni fróðlegum skoðunum brautryðjanda á sviði skoðana- kannana hérlendis: Torfa Ás- geirssonar hagfræðings. Það kom einkar vel fram í þessum þætti, að hið opinbera andlit Dagblaðsins, Jónas ritstjóri, á auðveldara en flestir með að tjá sig á skiljanlegu talmáli. Meira að segja Vilmundur var allur í öngstrætum og nú hefur hann fengið sérstakt dálæti á smáorðinu „að“. Beitir hann því í undarlegasta samhengi. Hin kynduga hugmynd átta- villtra stjórnmálamanna um að setja opinberar reglur um skoð- anakannanir fékk ekki mikinn hljómgrunn hjá þessum hópi manna. Það var helzt stjórnmála- fræðingurinn — og þó, það var bágt að fylgja eftir þeim hugsana- flækjum, sem þar bærðust hið innra. Guðjón Kinarsson stjórnaöi á hátíðisdegi verkalýðsins heldur dapurlegum þætti um málefni launafólks í landinu. Guðjón er ágætur sjónvarpsmaður. Glöggur og alveg mátulega stressaður. Dáldið kaldhryssingslegur á köfl- um, en oft með kímniblik í öðru auga. Það kom fjarska vel í ljós í þessum þætti, að hinir tveir gagn- merku forystumenn verkalýðsins í landinu, Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ og Kristján Thorlacius formaður BSRB, tala annað tungu- mál en skjólstæðingar þeirra, hinir óbreyttu. Og enn annað: hvorugur skilur mál hins. „Áratugurinn endurspeglast ekki af stórstígum framförum í kaupmætti," mælti hagfræðingurinn spaklega. En bætti við: „í haust reyndum við að sækja kjarabætur." Og þegar Kristján var að því spurður, hvort hann teldi núverandi ríkisstjórn vinveitta launþegum í landinu, hljóðaði hið syfjulega mæðusvar á þá leið, að launþegahreyfingin væri ávallt í stjórnarandstöðu. í upphafi þáttarins voru spyrj- endurnir fullir jákvæðrar eftir- væntingar á svip. Ýmsir lögðu fram eðlilegar og sjálfsagðar spurningar, en svörin voru jafnan mjög loðmulluieg og óráðin. Það var því eðlilegt, að um það bil sem þætti lauk, voru spyrjendurnir orðnir jafn dapurlegir á svip og verkalýðsforingjarnir. Það var helzt stjórnandinn sem lét sér ekki bregða hót, sleit þessu vonlitla tali jafn glaðbeittur og hann var í upphafi. Utvarpið kálaði með tilkomu sinni fyrir 50 árum margskonar fræðasýsli alþýðu á heimilum landsins. I staðinn efndi þessi miðill til flutnings á margskyns þjóðlegu efni, sagnaþáttum, vísum og hér- aðalýsingum. í dagskrárgerðarróti síðustu ára hefur út skolað mörgu löku efni og inn mörgu nýju og tímabæru. En flutningur og val þjóðlegs efnis er enn með svipuðum hætti. Nú er það flutt vikulega undir Kvöldvöku nafni. Það tilheyrir auðvitað í slíkri menningarstofnun að flytja alþýðlegan fróöleik af misjöfnum gæðum. En form kvöld- vökunnar er nú múmíustjarft orðið og oft er það mjög lummulegt efni, sem gusað er í eyru hlustenda. Hljóðvarpið hikar ekki við að bjóða móttakendum uppá flytjend- ur, sem alls ekki myndu ná lestr- arprófi í 10 ára bekk í barnaskóla. Og þótt fjölskyldur hljóðvarps- starfsmanna séu jafnan önnum kafnar við störf fyrir kaupgreið- andann, hlýtur einhver ættkvislin að geta hlaupið undir bagga við flutning fyrir þá dagskrárstarfs- menn, sem sjá um Kvöldvökuna. Auðvitað ætti dagskrárstjórnin að brjóta þennan þátt upp. Hætta að safna í einn stóran vikulegan meis öllu þjóðlegu efni: góðu, sæmilegu og lélegu. Flytja þetta efni inná milli annarra dagskrár- liða, þar sem hver efnisliður myndi fá notið sín sjálfstætt í stað hinnar langdregnu vöku, sem fyrir löngu er orðin tímaskekkja hjá stofnun- inni. Anna Sólrún Jóhannesdóttir er 17 ára. Á virkum dögum dvelur hún á Lyngásdagheimil- inu. Það er við Safamýrina. Þangað er ég komin að morgni dags þess erindis að eiga tal við hana. Ég hefi aldrei komið hér áður. Við sem erum á þönum alla daga, önnum kafin í þjóðfélags- kapphlaupinu, leggjum hvorki leið okkar til — né stöldrum við — hjá hinum þroskaheftu börn- um sem lífið hefur veitt svo lítið af hinum sjálfsögðu — að okkur finnst — gjöfum sem gera mannlíf eðlilegt. Þess vegna „Hún Bryndís verður að spjara sig“ þekkjum við heldur ekki störf þeirra sem kosið hafa að vinna með þessum börnum, hjálpa þeim, taka þátt í gleði þeirra og sorg af einlægni og áhuga. Kristjana, kennari í Lyngási, hefur sagt mér að það sé gaman að tala við Önnu Sólrúnu þegar allt gangi vel hjá henni, en hún geti átt það til að vera hljóð og svara litlu ef á móti blæs. Anna Sólrún er ókomin frá tannlækni þegar ég kem. Og þar sem það dregst dálítið að hún komi, fæ ég að líta í kring um mig í húsinu. Afdrep starfsfólks er skotið innst á ganginum, þar eru fáein- ir stólar og gamalt borð sem síminn stendur á. Með leyfi Hrefnu forstöðu- konu geng ég um stofur með Kristjönu kennara. Allar eru stofurnar litlar og þétt setnar. Alls staðar er verið að hjálpa, leika við, kenna eða tala saman. Hér er sýnilega unnið af alúð — við erfiðar og knýjandi aðstæð- ur, þótt það merkist ekki á andlitum eða í framkomu þeirra er hér veita hjálp. Það þarf ekki að staldra lengi við til þess að koma auga á furðulega opin tjáskipti á milli hins vanmáttuga og þess sem hjálpar. Anna Sólrún er komin frá tannlækninum. Hún stendur fyrir framan mig, ung stúlka, lágvaxin, knáleg og broshýr. — Loks ertu þá komin, segir hún er við höfum heilsast. Kristjana finnur okkur afdrep í einni stofunni og sest þar hjá okkur. — Jæja, Anna Sólrún. Hvern- ig líkar þér lífið í dag? — Lífið, jú. Það er gaman, ofsagaman af því að það er sól úti. — Það getur varla legið vel á þér að vera að koma frá tann- lækninum. — Jú, það var ekki vont að vera hjá honum. Hann er góður og hann er líka skemmtilegur. Hann segir skrýtlur. En það er vont að vera með skemmdar tennur. Þær skemmast ef maður borðar sælgæti og sætar kökur og gosdrykkir skemma tennur. Já þeir skemma. — Hvenær kemur þú hingað á morgnana? — Klukkan níu, en ég fer á fætur klukkan sjö — það er nú dálítið snemmt. — Hvað gerir þú á daginn? — Ég reikna, les og sauma — ogýmislegt annað. Það er gaman að sauma og mest gaman að sauma eitthvað fínt. Svo les ég hundrað bækur. Ég er alltaf að lesa, bæði heima og hér. Bækur eru svo skemmtilegar. Ég hefi lesið allar bækurnar hans Ár- manns Kr. Þær eru nú skemmti- legar. Þú ættir að lesa þær. Svo les ég líka Barbapabba stundum. Það er líka í sjónvarpinu. Það er nú gaman. Anna Sólrún — Hlustarðu á útvarp? — Já, barnatímana, það er skemmtilegast. En Stundin okkar í sjónvarpinu, hún er best. Hún Bryndís er svo skemmtileg og góð. Hún er góð. — Hlustarðu á Lög unga fólksins? — Stundum. En hún Bryndís má ekki hætta í Stundinni okkar. Hún Bryndís verður að Sagan er um efri hluta þessarar myndar. spjara sig og halda áfram í haust — annars leiðist okkur. — Leiðist ykkur — hverjum? — Okkur leiðist öllum — bara öllum hér og alls staðar. —Hvað gerir þú helst um helgar? — Hjálpa til heima. Ég tek til og þurrka ryk. Það er ljótt að hafa ryk inni hjá sér. — Ferðu stundum út að skemmta þér? — Já, stundum. Ég fór í Stapa um daginn. Það var ofsagaman. Það voru táningar þar — og Keflvíkingar. — En hvað gerir þú á sumrin? — Þá leik ég mér oft úti. Ég „húla“, það er svo gaman að „húla“. Svo ferðast ég í sveitina. Þá eru fuglarnir alltaf að syngja — og litlu ungarnir, þeir tína korn upp úr jörðinni. Þeir eru fallegir. — Nú erum við búnar að tala mikið saman. — Nei, ekki mikið. Ég á eftir að sýna þér myndir. Sjáðu, hér er mynd af skammelinu mínu, ég saumaði ofan á það. Er það ekki fallegt? Og ég saumaði líka eina svuntuna á þessari mynd. Þessa mynd teiknaði ég og bjó svo til sögu um hana. — Viltu segja mér söguna? — Já, ef þú hlustar vel. Á myndinni eru pabbi og mamma. Þau eru með litla barnið sitt í vagninum. Sérðu blómin. Þau eru þarna af því að það er komið sumar. Heyrirðu — litla barnið er að gráta. Þau flýta sér heim með það. Pabbinn baðar það og mamman býr til matinn. Svo lætur mamman það pissa. Svo bjóða þau litla barninu sínu góða nótt. — Þetta er falleg saga. — Já, hún er falleg og ég bjó hana til. Nú verðurðu að fara. En þú mátt ekki plata mig. — Hvernig get ég platað þig? — Þú verður að setja þetta í blaðið. Þú mátt ekki plata. — En hvað á ég nú að láta þetta heita? — Eitthvað um hana Bryndísi og Stundina okkar — bara eitt- hvað um það. — Ég hefi lokið erindi mínu. En þegar mér er boðið að borða með fólkinu þigg ég það. Það er kjöt og kjötsúpa með alls konar grænmeti. Hér er enginn matsalur. Það er borðað í stofunum og nánast þar sem hægt er að sitja við borð. Hér borðar enginn betra. Allir borða það sem matráðskonan hefur fram að bjóða og hér stendur starfsfólkið upp hvort fyrir öðru af fullri tillitssemi, engin sérréttindi um sæti. Ég borða í eldhúsinu. Hér þurfa hinar færu hendur mikið að hjálpa og aðstoða við máltíð- ir, sem endranær. Á leiðinni fram ganginn mæti ég Önnu Sólrúnu. — Þú ert ekki farin enn? — Nei, mér var boðið að borða. — Það er gott, þá ferðu ekki svöng frá okkur. Það má enginn vera svangur. Það má heldur enginn vera gikkur — af því langt í burtu deyr fólk úr svengd — það deyr. Ég yfirgef þennan stað, hraða mér út í lifsþægindakapphlaup- ið. Hugsa um sannleiksgildi orðanna: „Að bera eitthvað þungt, það er að vera.“ En hvað ég á bágt með að sætta mig við „allsnægtirnar" á vinnustað mínum næstu daga á eftir. Meðan þroskaheftu börnin og þeir sem með þeim vinna hafa allt það af skornum skammti, sem ríkið lætur þeim í té. Hver er máttur okkar heil- brigðu til að koma þannig auga á þetta, að við viljum öll bæta og gerum það? J.J.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.