Morgunblaðið - 09.05.1981, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 09.05.1981, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1981 13 Senn líður að þeim tima að áriklur fari að sýna blómskrúð sitt og má segja að forystu haíi þar Primula pub. „Mrs. J.H. Wilson“, með sín skæru blóm, blárauð á lit með hvítu auga. Um þá fögru frú var ritað í grein nr. 209, 10. júní 1979. Fjölærar jurtir I Jæja góðir hálsar! Þá er nú þessi langi vetur loksins liðinn og blessað sumarið gengið í garð svo að nú veitir okkur sannarlega ekki af því að láta hendur standa fram úr ermum við garðyrkjustörfin!! Þetta vorið er það ætlunin að reyna að fræða lesendur þessara þátta lítilsháttar um ræktun fjölærra jurta, almennt, og það hyggjumst við gera með því að birta grein sem Ólafu'r Björn Guðmundsson hefur ritað um það efni. Að líkindum verður greinin birt næstu fjóra eða fimm laugardaga og fjallar um: Gróðursetningu — staðsetn- ingu og umhirðu. Og hér kemur þá fyrsti hlutinn: Alltaf er það svolítið ævintýri að koma í góða gróðrarstöð. Það er eins og að koma á listsýningu , þar sem listamaðurinn er skap- arinn sjálfur og okkur er sjálf- um boðið að taka þátt í sköpun- arverkinu með því að velja okkur viðfangsefni: plöntur í garðinn okkar. Með eftirvæntingu er athugað hvað til boða er, og hvað pyngjan og plássið leyfa. Hvern- ig skyldi nú þessi tegund, sem við þekkjum kannski ekkert, reynast hjá okkur? Væri ekki reynandi við þetta eða hitt? Þessi myndi nú fara vel í hlaðna veggnum! Spurningar. Vanga- veltur. Forvitni. Þarna finnum við kannski plöntur, sem við höfum heyrt mikið látið af eða lesið um og flytjum þær, full eftirvæntingar og tilhlökkunar, heim í garð. Og nú veltur á miklu að vel takist þegar til okkar kasta kemur að sjá þeim farborða í nýju umhverfi. Nú eru þær orðnar okkar fósturbörn og þurfa sína réttu aðhlynningu eins og aðrar lifandi verur, ef þær eiga að lifa og dafna. Sagt er að sumir hafi „græna fingur" og allur gróður lifi og blómgist sem þeir snerta á. En ætli hugarfarið hafi nú ekki sitt að segja í því efni! Það er líka sagt að það þurfi að tala við blómin til þess að þau þrífist vel! Þó þetta sé nú ef til vill ofmælt þá eru blómin vissulega góðir viðmælendur. Og þeir sem eru í svo nánu sambandi við líf og gróður, að þeir geti rabbað við blómin sín, ganga sannarlega að ræktun þeirra með réttu hugar- fari. Jurt sem gróðursett er í garðinum þolir litlu síður gleymsku og afskiptaleysi en barn, því öllu sem lifir þarf að sinna ef því á að vegna vel. \ Við ættum því þegar við erum komin heim með plönturnar okkar úr gróðrarstöðinni — að glöggva okkur svoítið á því sem helst ber að minnast og hafa í huga varðandi framtíð þeirra undir okkar verndarvæng. — Og í næsta þætti verður rætt um gróðursetningu. Listahátíó tíl styrktar byggingu Hjúkrunarheimilis aldraðra í Kópavogi Háskólabíó laugardaginn 9. maí kl. 14.30 Dagskrá Samleikur á tvö píanó Gísli Magnússon Halldór Haraldsson Listdans Birgitte Heide Guðrún Pálsdóttir Ingibjörg Pálsdóttir Samleikur á flautu og píanó Manuela Wiesler Snorri Sigfús Birgisson Upplestur Arnar Jónsson, leikari Einsöngur Sigurður Björnsson Undirleikur: Agnes Löve Tvisöngur Sieglinde Kahlmann Sigurður Björnsson Samleikur á selló og píanó Gunnar Kvaran Gísli Magnússon Upplestur Ævar R, Kvaran, leikari Kynnir Gunnar Eyjólfsson, leikari Gísli Halldór Gunnar Agnes Arnar Birgitle Guörun Ingibjörg Sigurður Ævar Manuela Snorri Sigfus Sieglinde Gunnar I DAG! Við heitum á velunnara Hjúkrunar- heimilisins að fjölmenna í Háskóla- bíó. Miðasala við innganginn frá kl. 1. Starfshópur listamanna FJORIR BILAR UIANLANDSFERÐIR HLJOMTÆKI VERTUMEÐ VINNINGARNIR ERU ÞESS VIRÐI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.