Morgunblaðið - 09.05.1981, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1981
ASSOCIATED PRESS
Fréttaskýring
Vestur-Berlin:
Fellur
jaínaðarmannastjórnin?
BorKar.stjórnar-kosninKar fara
fram í Vestur-Borlín á sunnu-
daK- Undanfarna daga hofur
kosninKaharáttan harðnaA
mjóK. þar som útlit er fyrir að
stjórn jafnaðarmanna í þessu
viðkva'ma byKKðarlaKÍ sé i
haútu. on sí. þrjátíu ár hafa
jafnaðarmonn ráðið loKum o«
lofum þar.
Niðurstöður skoðanakannana,
sem fram hafa farið að undan-
förnu, benda til þess, að jafnað-
armenn standi mjög tæpt. I
kosningunum 1979 fengu þeir
42,7% atkvæða, en nú virðast
þeir oinungis hafa stuðning 28%
kjósenda. Samvinnuflokkur
þeirra, sem í kosningunum 1979
fékk 8,1%, vi'rðist vera með í
kringum 9%, þannig að hinn
tæpi meirihluti þessara stjórn-
arflokka er að öllum líkindum
ekki lengur fyrir hendi.
Það eru Kristilegir demókrat-
ar sem ætla að verða skeinu-
hættir í þessum kosningum. I
kosningunum fyrir tveimur ár-
um fengu þeir 44,4%, en nú
virðist fylgi þeirra vera komið
upp í 49%. En hvert fara þá þau
14%, sem enn eru ótalin? Allar
líkur benda til þess, að þau hljóti
sundurleitt og losaralegt kosn-
ingabandalag hinna ýmsu
vinstrihópa og náttúruverndar-
samtaka í borginni. Þegar kosið
var í hitteðfyrra, bauð bandalag-
ið fram, en fékk ekki kjörinn
fulltrúa á þingið, þar sem 135
eiga sæti.
Helztu vandamálin, sem við er
að etja í V-Berlín, eru efnahags-
legs eðlis, og ástæðan fyrir því
að kosningar eru haldnar nú,
þegar kjörtímabilið er aðeins
hálfnað, er sú helzt, að upp
komst um gífurlegt viðskipta-
hneyksli í borginni ekki alls
fyrir löngu. Stjórn borgarinnar
hafði gengið í ábyrgð fyrir 90%
af 270 milljóna dollara láni til
byggingaframkvæmda, en hús-
næðisskortur er mjög alvarlegt
vandamál í borginni. Fyrirtækið,
sem lánið fékk, varð síðan gjald-
þrota og ábyrgðaraðilinn, þ.e.
borgin, var sá sem skellurinn
lenti á. Borgarbúar kenna borg-
arstjórninni um hið gífurlega
Ríkisþinghúsið í Vestur-Berlín.
fjárhagstap, en húsnæðisvand-
ræði hrjá um 60 þúsund borgar-
búa.
Richard von Weizácker heitir
borgarstjóraefni Kristilegra
demókrata. Hann hefur mjög
gagnrýnt stjórn jafnaðarmanna
og þá ekki sízt Hans-Jochen
Vogel, borgarstjóraefni jafnað-
armanna, en í janúar sl. varð
kjörinn borgarstjóri, Dietrich
Stobbe, að segja af sér vegna
þess hneykslismáls, sem áður
var rakið. Weizácker ásakar
jafnaðarmenn um „linku og að-
gerðarleysi" varðandi stjórn
borgarinnar, en aðalslagorð
Ilans-Jochen Vogel
Kristilegra demókrata í kosn-
ingabaráttunni er: „Mál til kom-
ið að skipta um stjórn".
Stjórnarskipti í Vestur-Berlín
mundu ekki hafa mikil áhrif á
pólitíska stöðu borgarinnar, sem
enn er undir yfirráðum sigur-
vegara í heimsstyrjöldinni síð-
ari. Fulltrúar V-Berlínar í Bonn
hafa ekki atkvæðisrétt á sam-
bandsþinginu, þannig að úrslit
kosninganna um helgina munu
ekki hafa bein áhrif á stjórn-
málaástand í V-Þýzkalandi. í
V-Berlín búa 2,2 milljónir
manna, en þar af hafa 1,5
milljónir atkvæðisrétt. Á sunnu-
daginn verða kjörnir 135 þing-
menn, sem síðan kjósa borgar-
stjórann.
Leyni-spólur ráðuneytisins
notaðar undir popp-tónlist
l/4>ndnn. 8. maí. AP.
FIMM segulhandsspólur
hrezka varnarmálaráðuneyt-
isins. sem á vuru leynilegar
upplýsingar um viðbrögð
Breta ef til hernaðar kæmi.
eru nú komnar i leitirnar.
Peim var stolið úr spólusafni
ráðuneytisins árið 1978, en
þegar þær fundust hafði nýtt
cfni verið tekið upp á spól-
urnar, popp-tónlist og
kennslustund í þýzku.
Brezka öryggismálanefndin
skýrði frá þessu í dag, og á þingi
sagði Margaret Thatcher forsæt-
isráðherra að varnarmálaráðu-
neytinu hafi verið fyrirskipað að
Hollendingum gefnir mun-
ir úr eigu Önnu Franks
Amstrrdam. 8. mai. AP.
ÓNAFNGREINDUR mað-
ur hefur gefið hollenskum
yfirvöldum ýmsa muni
sem voru í eigu (jnnu
Frank og er talið að þeir
geti orðið til þess að sýna
fram á sannleiksgildi dag-
hókarinnar frægu.
Harry Paape, yfirmaður
stríðsminjasafns Hollands,
sagði að meðal þess sem gefið
var væru bréf og ljósmyndir.
Gefandinn hefði fengið þessa
muni frá vini Otto Franks,
föður Önnu, sem dó í Basel i
Sviss á sl. ári.
Paape sagði rithöndina á
bréfunum, sem eru skrifuð
1936, hjálpa til við að rannsaka
upprunalegu dagbókina sem
faðir Önnu gaf safninu rétt
fyrir lát sitt.
Árið 1982 hyggst stríðs-
minjasafnið gefa út dagbók
Önnu Frank eins og hún kemur
fyrir í frumritinu en faðir
Önnu hafði haldið hjá sér
nokkrum köflum og þeir hafa
aldrei verið gefnir út. Töldu
margir það merki um að bók-
inni hefði verið breytt eða að
hún hefði jafnvel aldrei verið
til. Með þessari útgáfu munu
einnig fylgja upplýsingar frá
rannsóknastofnun um áreiðan-
leika bókarinnar.
herða öryggiseftirlit sitt.
Spólurnar fimm, sem stolið
var, voru uppistaðan í „styrjald-
arbók" varnarmálaráðuneytisins
með ítarlegum fyrirmælum um
hvernig Bretland skyldi hervæð-
ast ef þess gerðist þörf. Við
rannsókn öryggismálanefndar-
innar kom í ljós að þessum fimm
spólum hafði verið stolið, og að
ekkert væri vitað um allt að því
120 spólur til viðbótar.
Það var starfsmaður ráðuneyt-
isins, Barry Wagstaff, sem játaði
í fyrra að hafa stolið spólunum
fimm, og tekið þær með heim til
einkanota. Ekkert bendir til þess
að upplýsingarnar, sem fyrir
voru á spólunum, hafi verið
látnar öðrum í té.
■ ■■
\f/
ERLENT
Japanir efla
landvarnir
Washinjíton. 8. mai. AP.
ZENO SUZUKI, forsætisráð-
herra Japans. sem er í heimsókn i
Washington, sagði í dag að Jap-
anir myndu halda áfram að efla
varnir lands síns.
Hins vegar sagði hann að Japan-
ir legðu fyrst og fremst áherslu á
að vesturveldin mótpðu heilsteypta
friðarstefnu.
Suzuki sagði einnig að hvert ríki
yrði að byggja upp varnir sínar
samkvæmt eigin getu og kringum-
stæðum heima fyrir.
Bandaríkjamenn hafa undanfar-
ið kvatt Japani til þess að auka
eigin varnir og eftirlit með sigl-
ingaleiðinni um norðurhluta
Kyrrahafsins.
Tveggja daga heimsókn Suzukis
til Washington er nú brátt á enda.
Hann hefur rætt við Ronald Reag-
an forseta og aðra háttsetta ráða-
menn í Bandaríkjunum og fullviss-
að þá um að Japanir hafi undanfar-
ið unnið mikið verk við eflingu
landvarna og að japanska stjórnin
reyni að gera þjóðinni grein fyrir
mikilvægi þess verks.
Vændiskonur
mótmæla
London. 8. maí. — AP.
HÓPUR um 25 vændiskvenna
efndi til mótmæla fyrir framan
Old Bailey dómshúsið I London í
dag til að mótmada ummælum
saksóknara um „virðingarverð-
ar“ konur í réttarhöldunum yfir
Peter Sutcliffe, sem viðurkennt
hefur morð á 13 konum. en átta
kvennanna voru vændiskonur.
Sutcliffe var handtekinn í vænd-
ishverfi Sheffield-borgar 2. janúar í
ár, og hafa fjölmiðlar í Bretlandi
gefið honum viðurnefnið „The
Yorkshire Ripper". Hann viður-
kenndi fljótlega morðin, en kvaðst
ekki hafa getað þolað vændiskonur
og því myrt þær. „Ég veit að ég
hefði ekki getað hætt, og er feginn
því að ég var handtekinn," sagði
Sutcliffe við yfirheyrslu.
Talsmaður mótmælahóps vænd-
iskvennanna í dag, Anne Neal, sgði
að verið væri að mótmæla ummæl-
umsir Michaels Havers ríkissaks-
óknara varðandi „virðingarverðar"
konur meðal fórnarlambanna. „Er
saksóknarinn að gefa í skyn að
hefði morðinginn einbeitt sér að
vændiskonum hefði hreingern-
ingarherferð hans verið afsakanl-
eg,“ spurði Anne Neal.
Málverk Soffíu
Loren á uppboð
RómaborK. 8. maí. AP.
MÁLVERK og aðrir verðmætir
munir úr eigu leikkonunnar Soffiu
Loren og eiginmanns hennar, Carlo
Ponti, verða boðnir upp á næstunni
samkvæmt skipun italska fjármála-
ráðuneytisins. Andvirði munanna
fer til að greiða gjaldfallinn skatt
hjónanna.
Málverkin eru m.a. eftir Canaletti,
Picasso, Braque og de Chirico. Verð-
mæti þeirra er um 3,5 milljónir
dollara en hjónin munu skulda
nokkrar milljónir dollara.
Málverkin voru gerð upptæk fyrir
tveimur árum en þá höfðu þau
hjónin fengið franskan ríkisborgar-
rétt. Soffía Loren hefur reynt að fá
málverkin aftur en það hefur ekki
tekist.