Morgunblaðið - 09.05.1981, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1981
MYNDLIST
Síðasta sýning-
arhelgi hjá Eddu
Um þessa helRÍ lýkur sýnin«u Eddu Jónsdóttur í Gallerí
Langbrók við Amtmannsstíg.
Opið verður í dag og á morgun frá kl. 14—18.
A sýningunni eru collage-myndir og fléttuð grafík.
Ein af myndum Eddu Jónsdóttur á sýnin«unni í Galleri Lanxhrók.
Píanótónleikar í
Norræna húsinu
í dag heldur finnski píanó-
leikarinn Eero Heinonen ein-
leikstónleika í Norræna hús-
inu og hefjast þeir kl. 16. A
efnisskrá eru verk eftir Einar
Englund, Sibelius, Hannika-
inen, Mozart og Liszt.
Eero Heinonen er fæddur 1950
og hóf nám í píanóleik 6 ára
gamall í Ábo. Að loknu tónlistar-
námi þar hélt hann til Moskvu,
þar sem hann var í þrjú ár
nemandi hjá Dmitry Baschkirov.
Hann hefur haldið tónleika víða
um heim og alls staðar hlotið
mikið lof fyrir leik sinn.
Aðgöngumiðar að tónleikum
Eero Heinonens eru seldir í kaffi-
stofu og við innganginn.
SAFNAHÚSIÐ Á SELFOSSI
Sýningu JaJcobs Haf-
stein lýkur um helgina
Utn helgina lýkur sýningu Jakobs Hafstein í Safnahúsinu á
Selfossi.
Á sýningunni eru yfírleitt stór verk, 14 olíumyndir, 13
vatnslitamyndir og 6 pastelmyndir, m.a. með blandaðri tækni.
Aðsókn að sýningunni hefur verið góð, bæði frá Selfossi, úr
nágrannasveitunum og Reykjavík og margar myndir selst.
Jakob Hafstein við eina mynda sinna.
Síðustu vortónleik-
ar Tónmenntaskólans
í dag verða haldnir síðustu
vortónleikar Tónmenntaskóla
Reykjavíkur í Austurbæjar-
bíói og hefjast þeir kl. 14. Á
þessum tónleikum koma eink-
um fram eldri nemendur skól-
ans.
Á efnisskránni verður
einleikur, samleikur og hóp-
atriði. Aðgangur er ókeypis
og öllum heimill.
Tónmenntaskólinn er nú að
ljúka 28. starfsári sínu. I
skólanum voru um 450 nem-
endur í vetur. Kennarar voru
rúmlega 30.
Meðal annars starfaði við
skólann hljómsveit með tæp-
lega 50 þátttakendum og
lúðrasveit með um 30 þátttak-
endum.
Mikið hefur verið um
tónleikahald á vegum skólans í
vetur og vor.
MYNDLIST
Eiríkur Smith við eina mynda sinna i austursal Kjarvalsstaða.
Sýningu Eiríks Smith
lýkur um helgina
Um helgina lýkur sýningu Eiríks Smith í austursal
Kjarvalsstaða. Þar sýnir hann 114 verk, olíumálverk og
vatnslitamyndir, einnig 20 litteikningar úr þjóðsögum.
Aðsókn hefur verið mjög góð á sýninguna og hafa um 80
myndir selst.
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR
Gfsli Halldórsson og Guðmundur Pálsson i hlutverkum sinum i
Skornum skömmtum.
Uppselt á allar sýningar
Í kvöld er Ofvitinn á fjölunum
hjá Leikfélagi Reykjavíkur og er
þegar uppselt á þá sýningu. Sömu-
leiðis á nýju reviuna. Skorna
skammta, eftir þá Jón Hjartarson
og Þórarin Eldjárn.
Revían hefur nú verið sýnd 15
sinnum, ætíð fyrir fullu húsi, og
seljast miðar á þá sýningu á
örfáum mínútum strax og miðasala
hefst á hverja sýningu. Tólf leikar-
ar leika í revíunni, undirleikari er
Jóhann G. Jóhannsson. Með hlut-
verk fara: Gísli Halldórsson, Kjart-
an Ragnarsson, Sigríður Hagalín,
Guðmundur Pálsson, Aðalsteinn
Bergdal, Soffía Jakobsdóttir, Karl
Guðmundsson, Helga Stephensen,
Harald G. Haraldsson, Lilja Þóris-
dóttir og Jón Júlíusson. Leikstjóri
er Guðrún Ásmundsdóttir.
MÍR-SALURINN
„A leið til
Berlínar“
í dag verður sýnd í MÍR-saln-
um, að Lindargötu 48t 2. hæð,
sovéska kvikmyndin „Á leið til
Berlínar“ og hefst sýningin kl.
15.
Sú gerð myndarinnar sem sýnd
verður er frá 1969. Leikstjóri er
Mikhaíl Jersov. Þetta er leikin
mynd, en þó er verulegur hluti
hennar settur saman úr frétta-
myndum sem teknar voru meðan á
sókn Rauða hersins til Berlínar
stóð vorið 1945. Lýst er síðustu
dögum stríðsins. Sovéskar her-
sveitir hafa brotist inn í Berlínar-
borg, en bardagarnir eru enn mjög
harðir. Hafnar eru viðræður um
vopnahlé við Þjóðverja og frá
samkomulagi gengið, en á elleftu
stundu tekst sovéskum hersveitum
að bjarga lífi 3000 pólitískra fanga.
Myndin er svart-hvít, 90 mín. löng
með enskum skýringartextum.
Leikfél. Húsavíkur
Á 6. þúsund hafa
séð Halelúja
í kvöld verður aukasýning hjá
Leikfélagi Húsavikur á leikritinu
Hallelúja eftir Jónas Árnason og
19. sýningin verður annað kvöld.
Uppselt hefur verið á hverja
sýningu til þessa og hafa á 6.
þúsund áhorfenda séð sýninguna,
en heilu hóparnir hafa komið frá
Akureyri og Sauðárkróki. Uppi
eru raddir um að taka verkið aftur
í haust.
Karlakórinn Ægir
Söngskemmtun
á Suðuregri
í kvöld heldur Kariakórinn
/Egir í Bolungarvík söng-
skemmtun í Félagsheimilinu á
Suðureyri við Súgandafjörð og
hefst hún kl. 21. Söngstjóri er
séra Gunnar Björnsson, en und-
irleikari á píanó Anna Kjart-
ansdóttir og einsöngvari Örn
Jónsson.
Á efnisskránni eru m.a. lög eftir
Árna Björnsson, Sigvalda Kalda-
lóns, Pál Halldórsson, Sigfús Ein-
arsson, Sigfús Halldórsson, Emil
Thoroddsen og séra Bjarna Þor-
steinsson.