Morgunblaðið - 14.07.1981, Qupperneq 1
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Aðsúgur gerður
að Thatcher
Lundúnum. 13. júli. AP.
MARGARET Thatcher, íorsætisráðherra Bretlands, fór í
óvænta heimsókn til Liverpool í dag. Hún ferðaðist m.a. um
Toxteth-hverfið þar sem miklar óeirðir urðu í síðustu viku.
Hún hvatti landsmenn til að koma á röð og reglu í landinu.
„Við verðum að komast yfir vandræði okkar, því annars tapa
allir. Án laga og réttar þrífst lýðræði ekki,“ sagði Thatcher á
fundi með fréttamönnum eftir ökuferð um Toxteth. Hún sagði,
að óeirðirnar undanfarna 10 daga væru mesta áhyggjuefni
stjórnar sinnar og að hún hefði lítið sofið þessa daga.
Skömmu síðar yfirgaf hún ráð-
húsið í Liverpool. Fyrir utan voru
um þúsund manns, sem mótmæltu
stefnu stjórnar hennar. Einhver
kastaði tómat og munaði litlu að
hann hæfði forsætisráðherrann.
Þá var kastað klósettrúllum og
ýmsu lauslegu í átt að Thatcher.
Alls hafa um 2500 manns verið
teknir höndum eftir að óeirðirnar
á Bretlandi hófust fyrir 10 dögum.
Nokkur hundruð óeirðaseggja
komu fyrir dómara í dag. Margir
hlutu skilorðsbundna dóma en
hinn harðasti var 9 mánaða fang-
elsi fyrir þjófnað. Margir hinna
handteknu voru staðnir að verki
er þeir létu greipar sópa um
glugga verslana.
Víða kom til óeirða um helgina
og í morgun. Verst varð ástandið í
Leicester í miðlöndunum. Þar
barðist lögregiulið við fjölmenna
flokka unglinga, sem gengu um
götur, brutu rúður og kveiktu í
húsum. Fimm lögreglumenn særð-
ust í Leicester og 20 unglingar
voru handteknir. Þá kom til óeirða
í Birmingham, Wolverhampton,
Coventry, Derby auk Lundúna. Til
óeirða kom í Skotlandi. í Dundee
fóru unglingar um verslunar-
hverfi, brutu rúður og kveiktu í
húsum. Sextán manns voru hand-
teknir í Dundee.
Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, umkringd öryggisvörðum í Liverpool
Simamvnd AP.
Hundruð Sovétmanna falla
í bardögum við Spainghar
Nýju Delhi, 13. júli. AP.
FRELSISSVEITIR Algana unnu
sennilega sinn staersta sivrur í stríðinu
Francois Mitterand, forseti Frakklands, og Helmut Schmidt,
kanslari V-Þýskalands, í Bonn í dag. — Sjá frétt „Nauðsynlegt
að efla varnir vestrænna ríkja“ bls. 17. simamynd ap.
við sovéska innrásarliðið i Alganistan
ok stjórnarherinn f siðustu viku.
Áreiðaniegar heimildir herma. að um
1000 sovéskir og afganskir stjórnar-
hermenn hafi fallið eða særst i bar-
dögum við rætur SpainKhar-fjall-
Karðsins, um 120 kilómetra austur af
Kabúl.
Bardagarnir við rætur Spainghar
hófust þann 5. júlí síðastliðinn. Um tvö
þúsund manna herlið var sent að rótum
fjallgarðsins en skömmu áður hafði
stjórnarhernum tekist að komast yfir
talsvert magn vopna á svæðinu. Því var
ekki búist við mikilli mótspyrnu
skæruliða, að sögn heimilda.
Sovétmenn vanmátu mjög styrkleika
skæruliða á svæðinu. Þúsundir skæru-
liða gerðu herliðinu fyrirsát, réðust á
sovésku og afgönsku hermennina úr
fjöllunum og tókst að hneppa herliðið í
herkví.
Um 2 þúsund manna lið var sent til
aðstoðar en að sögn heimilda tókst
skæruliðum að koma í veg fyrir að
hjálp bærist. Þrívegis réðust sovéskar
MIG-orustuþotur fyrir mistök á sov-
éska og afganska herliðið í herkvínni.
Hundruð Sovétmanna munu hafa fallið
í árásum MIG-þotnanna og urðu sov-
ésku og afgönsku hersveitirnar fyrir
mestum skakkaföllum í loftárásunum.
Yfir 100 skriðdrekar og önnur þunga-
vopn hafa eyðilagst. Fréttir af bardag-
anum eru enn að berast til Kabúl og
skömmu fyrir helgi var sovéska og
afganska herliðið enn sagt vera í
herkvínni. Ekki var ljóst hvort hjálp-
arliðið hefði gefist upp á að ná til
vígvallanna eða snúið aftur til Jalal-
abad.
Óeirðir í kjölfar
láts IRA-fanga
Belíast. 13. júli. AP.
ÓEIRÐIR blossuðu upp í Bel-
fast ojí Londonderry á N-ír-
landi í kjölíar láts IRA-fang-
ans Martin Hursons, sem lézt í
morgun eftir 45 daga mót-
mælasvelti í Maze-fangelsinu.
Skæruliðar IRA skutu á
brezka hermenn úr launsátri.
Sex særðust í átökunum í dag.
Þing pólska kommúnistaflokksins:
70% miðstjórnar féll í
kosningum til þingsins
Varsji. 13. júli. AP.
ÞING PÓLSKA kommúnistaflokksins hefst á morgun, þriðjudag.
Þcgar á fyrsta degi verður gengið til kosninga og er fastlega
reiknað með, að Stanisiaw Kania, flokksleiðtogi. verði endurkjör-
inn. Úrslita er beðið með mikilli eftirvæntingu. Búist er við, að
þingið muni leggja blessun sina yfir umbætur þær, sem stjórnvöld
hafa samið um við Samstöðu, hin óháðu verkalýðsfélög i landinu.
Margt hefur breyst í Póllandi sem nýlega lauk fundi sfnum,
á ótrúlega skömmum tíma. Frá
því verkföllin brutust út í
Gdansk í ágúst síðastliðnum,
hefur meðlimum kommúnista-
flokksins fækkað um 10%; rétt
tæplega 200 þúsund Pólverjar
hafa sagt sig úr flokknum.
Þá hafa margir meðlimir í
miðstjórn kommúnistaflokksins,
misst tiltrú aimennings. Hvorki
meira né minna en 70% mið-
stjórnarmanna, sem voru kosnir
fyrir 16 mánuðum, náðu ekki
einu sinni kjöri á þing kommún-
istaflokksins nú. Þá eru 21%
þeirra, sem sitja munu þing
flokksins, meðlimir í Samstöðu.
Átta af hverjum tíu, sem sitja
munu þingið, hafa aldrei setið
þing flokksins áður.
Verkalýðsfélög flokksins hafa
nánast þurrkast út eftir stofnun
Samstöðu; meðlimum í félögum
flokksins hefur fækkað um tæp-
ar 10 milljónir. Fyrir tæpu ári
síðan var Samstaða ekki til; ekki
einu sinni bjartsýnustu Pólverj-
ar trúðu að stofnuð yrðu óháð
samtök verkalýðsins, en í dag
eru meðlimir Samstöðu um 10
milljónir.
Flokksþingið í Varsjá verður
sett í skugga verkfalla. Verka-
menn í Kutno, sem er fyrir
vestan Varsjá, efndu í dag til
tveggja klukkustunda verkfalls.
Þá hótuðu hafnarverkamenn við
Eystrasalt að efna til verkfalla
ef ekki verði gengið að kröfum
þeirra. Þá eiga starfsmenn Lot,
ríkisrekna flugfélagsins, í úti-
stöðum við stjórnvöld og hafa
hótað verkfalli síðar í mánuðin-
um, verði ekki gengið að kröfum
þeirra.
Sjá fréttir: „Tveir þriðju
féiaga flúnir“ og „Spáð er
dramatisku þingi og úr-
slita þess beðið með mikiili
eftirvæntingu“ á bls. 16.
fjórir hermenn, lögreglumað-
ur og óbreyttur borgari. Ilur-
son er sjötti IRA-fanginn sem
Iátizt hefur eftir mótmæla-
svelti. Yfirvöld segja, að átök-
in í dag hafi ekki verið eins
víðtæk og eftir lát hinna IRA-
fanganna.
Brezk yfirvöld héldu því fram í
dag, að Hurson hefði framið
sjálfsmorð með því að neyta ekki
matar en Sinn Fein, hinn stjórn-
málalegi armur IRA, hélt því
fram, að Hurson hefði verið myrt-
ur. Jafnframt voru brezk stjórn-
völd hvött til að semja við fanga,
sem krefjast réttinda sem póli-
tískir fangar.
Mótmælendur fóru í göngur víðs
vegar um N-írland til að minnast
þess, að 291 ár er liðið síðan
mótmælendur sigruðu kaþólikka
við Boyne. Um 100 þúsund manns
tóku þátt í göngunum.
Mósambik
í Comecon
Maputo. 13. júli. AP.
STJÓRNVÖLD í Mósambik til-
kynntu i dag. að landið myndi
innan skamms ganga i Comecon.
efnahagsbandalag rikja A-Evr-
ópu. Marcelinos Santos, efna-
hagsmálaráðherra landsins, er
nýkominn frá þingi Comecon,
sem var haldið fyrir skömmu i
Sófiu i Búlgariu.