Morgunblaðið - 14.07.1981, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 14.07.1981, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1981 17 Ríkisstýrð verkalýðsfélög í Póllandi: Tveir þriðju f élaga f lúnir Varsjá. 13. júlí. AP. -* MIÐSTJÓRN pólska kommúnistaflokksins varaði við því i dag, að ráðamenn i austantjaldsrikjum hefðu miklar áhyggjur af ástandi máia í Pollandi, og þættust hafa landinu. I skýrslu miðstjórnarinnar, sem samin var fyrir Úokksþingið, sem hefst á morgun, kemur fram, að þúsundir manna hafa sagt sig úr pólska kommúnistaflokknum, og að „fjöldaflótti" hafi átt sér stað frá verkalýðsfélögum sem eru í forsjá yfirvalda. Segir í skýrslunni, að félagar í ríkisstýrðu verkalýðsfélögunum, sem eru að sovézkri fyrirmynd, séu nú aðeins fimm milljónir, miðað við 13,6 milljónir fyrir ári. Ennfremur, að frá því í verkföll- unum í ágústmánuði í fyrra og fram til 15. maí sl., hafi 197.300 félagar í pólska kommúnista- flokknum skilað flokksskírteinum sínum, en hér er um að ræða 6,3% flokksfélaga. I skýrsluflni gerir miðstjórnin tilraun til að verja gjörðir sínar frá síðasta flokksþingi, er haldið var 1980, og segir m.a. að óhjá- kvæmilega hafi henni orðið á visbendingar um stjórnleysi i mistök, enda ástandið á innlend- um vettvangi slíkt, að vart væri við öðru að búast. Sagði í skýrsl- unni, að á síðustu 12 mánuðum hefðu gerst ýmsir atburðir sem ættu sér enga hliðstæðu frá lokum heim sstyrj aldarinnar. „Starfsemi andbyltingaraflanna hefur reynst hvað örðugust," segir í skýrslunni, og vitnað er til rita með áróðri gegn Sovétríkjunum, „ólöglegrar" notkunar prent- smiðja, og „undirróðurs" gegn forstjórum fyrirtækja. í löngu máli er varað við svonefndum „andbyltingaröflum" án þess að nánar sé útskýrt hvort um er að ræða hin óháðu verkalýðsfélög og leiðtoga þeirra. Hermt er, að ráðamenn í ríkjum Varsjárbanda- lagsins hafi þungar áhyggjur af starfsemi andbyltingaraflanna í Póllandi, en viðvaranir af því tagi voru stanzlaust birtar í þeim ríkjum í fyrra. Mitterand — Schmidt: Nauðsynlegt er að efla varnir vestrænna ríkja Bonn. 13. júlí. AP. FRANCOIS Mitterand, Frakklandsíorseti og Ilelmut Schimidt. kanzl- ari V-Þýzkalands, ræddust við í dag og gær og í sameiginlegri yfirlýsingu, sem gefin var út við lok viðræðnanna. var áherzla lögð á nauðsyn þess að efla varnir vestrænna rikja. Hétu leiðtogarnir samstöðu í gjaldeyris- og vaxtamálum á leið- togafundi um efnahagsmál í Ottawa í næstu viku. Á fundinum voru rædd ýmis utanríkismál, svo sem staðsetning meðaldrægra eldflauga í Evrópu, málefni Afganistan og Póllands og sagði Mitterand í dag, að hann væri fylgjandi takmörkun og fækk- un í herjum í Evrópu, en vestur- veldin þyrftu á meiri upplýsingum frá Sovétríkjunum að halda, áður en rætt yrði um raunhæfa fækkun í herjum. Lagði forsetinn á það áherzlu, að jafnvægi í hervæðingu austur- og vesturveldanna væri forsenda friðar í Evrópu. Sagði Mitterand að nú ríkti ójafnvægi í þessum efnum, þar sem Sovétmenn hefðu náð miklu forskoti í upp- byggingu venjulegs vopnabúnaðar og þeir hefðu yfir að ráða miklu fleiri meðaldrægum eldflaugum. Hermt er í fréttaskeytum, að viðhorf Mitterands og Schmidts fari mjög saman í þessum efnum, en Schmidt á nú í vök að verjast í sínum flokki, þar sem hann hefur varið fyrirætlanir NATO um stað- setningu bandarískra meðaldrægra eldflauga í Evrópu til að vinna upp á móti yfirburðum Sovétmanna á því sviði. Begin hótar nýjum kosningum i Israel Jerúsalem, Beirút, 13. júli. AP. MENACHEM BEGIN, forsætisráðherra ísrael, sagði viðmælendum sinum um stjórnarmyndun á mánudag, að hann myndi ekki ganga að öllum kröfum þeirra um ráðherraembætti i þvi skyni einu að mynda stjórn. Hann sagði, að heldur vildi hann, að tsraelar gengju aftur að kjörborði. „Ég er viss um, að við hlytum fleiri sæti Þingkosningar voru haldnar i ísrael Þjóðlegi trúarflokkurinn, NRP, vill halda þremur ráðherraembætt- um í ríkisstjórninni, þótt hann hafi tapað helmingi þingsæta sinna í kosningunum og hafi nú 6 menn á þingi. Tami-flokkurinn, sem gamlir stuðningsmenn NRP stofnuðu fyrir kosningarnar, vill tvð ráðherraemb- ætti. Flokkurinn hlaut 3 þingsæti í kosningunum. Begin sagði, að flokk- arnir myndu hljóta eitt embætti fyrir hverja fjóra stuðningsmenn, sem þeir færa stjórninni. Begin sagðist ætla að gefa Shimon Peres, formanni Verkamannaflokks- ins, færi á að mynda stjórn, ef ekkert verður úr stjórnarmyndun- arviðræðum hans. Verkamanna- fiokknum bættist stuðningsmaður á þingi í dag, þegar Shulamit Aloni, sem var kosinn sjálfstætt á þing, lýsti yfir stuðningi við hann. Verka- mannaflokkurinn og Likud-bandalag i nýjum kosningum,“ sagði Begin. 30. júni sl. Begins hafa því 48 sæti hvor á þingi ísraela. Björgunarsveitir leituðu í nótt og dag í rústum eftir loftárás ísraels- manna á bækistöðvar Palestínu- Araba í Suður-Líbanon um helgina. Að minnsta kosti 7 létust í árásinni og 52 særðust illa. Líbönsk stjórn- völd sögðu fulltrúum sínum hjá Sameinuðu þjóðunum að kvarta und- an árásinni, sem stóð í 90 mínútur aðeins 19 km sunnan við Beirút, höfuðborg landsins. Mordechai Zipporai, aðstoðar- varnarmálaráðherra ísraela, sagði í útvarpsviðtali á sunnudag, að árásir ísraela á Líbanon myndu aukast þar til Palestínuskæruliðar hefðu horfið þaðan á braut. Philip Habib, sendi- boði Bandaríkjastjórnar í Mið- Austurlöndum, fór til Saudi-Arabíu frá ísrael á mánudag til að halda samningaviðræðum úm sýrlenskar eldflaugar í Líbanon áfram. Eldingu laust niður Lik eins skipverja af olíuskipinu dregið úr höfninni i Genúa. í olíuskip Genúa. 13. júlí. AP. ELDINGU laust niður í japanskt olíuskip i höfninni í Genúa á Ítalíu á sunnudag og hlaust af því mikil sprenging og eldsvoði. Tveir af áhöfninni fórust og fjögurra til viðbótar er saknað. Lögreglan skýrði frá því að losun hefði verið nýlega lokið úr skipinu, Hakuyoh Maru, en það var með 83.400 lesta farm. Gas var hins vegar enn í skipinu þegar eldingunni laust niður. Flestir úr áhöfn skipsins, en þeir eru 31 að tölu, björguðu sér með því að kasta sér í sjóinn og synda til lands. Fimm önnur skip lágu í grennd við japanska skipið, og forðuðu þau sér á brott, en eldur komst í eitt þeirra. Hann var fljótt slökkt- ur, en slökkvistarf við japanska skipið gekk hins vegar erfiðlega. Allirvílja vatns- þétt þök Kynntu þér úrvalið af Aquaseal þakpappa. Mismunandi teg- undir fyrir mismunandi að- stæður. Auk þess sérstök Aquaseal efni fyrir sprungu- og holufyllingar og gljúpa fleti. Rétt raö gegn raka OUUVERZLUN ÍSLANDS HF. HAFNARSTRÆTI 5 • REYKJAVÍK SÍMI 24220

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.