Morgunblaðið - 14.07.1981, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 14.07.1981, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1981 myndsegulband Leiga VHS HLJOMTÆKJADEILD«C ULjp KARNABÆR i_n /cdciO/^ATI I 1fn CÍ Leigjum út SHARP myndsegulbönd ásamt tökuvélum D <C HVERFISGOTU 103 SIMI 25725 Demantar — Dra, umaskart Kjartan Ásmundsson, gullsmíðav. Aðalstræti 8. Stálklæðning með níðsterkri PVC húð á þök og veggi. Mikið litaurval. Allir f ylgihlutir. varanleg og fagleg lausn. Mjög hagstætt verð. Tilboð yður að kostnaðarlausu. Sala og uppsetningarþjónusta: © S.S.innréttingar sími 21433 BJÖRGUNARSKÓLI LHS Reka eigin björgunarskóla, sem hefur m.a. útskrifað 44 skyndihjálparkennara Rætt við Thor B. Eggertsson, formann skóla- stjórnar hjálpar- sveitar skáta MIKIÐ hefur reynt á þolrifin í bjorKunar- og hjálparsveitar- monnum viðs veuar um landið á síðasta ári, en þeir hafa verið kallaðir út óvenjulega oft. Það leiðir því hugann ósjálfrátt að þvi hvernÍK þessir menn fái þjálfun sína ok hverjir sjái um að leiðbeina þeim. eru einhverjir sérstakir skólar eða sitja menn námskeið? — Hjálparsveitir skáta hafa náð mjöK lanKt í skipulaKÍ þjálfunar sinna manna ok reka í daK eina björKunarskól- ann í landinu. BjörKunarskóla LIIS, en LHS stendur fyrir Landssamband hjálparsveita skáta. Formaður skólanefndar er Thor B. EKKertsson, sem lenRÍ var sveitarforinKÍ Hjálparsveitar skáta í Reykjavík, ok hefur verið einn helzti skyndihjálparfrömuð- urinn síðari árin. MorKunblaðið hitti Thor að máli fyrir skömmu ok fyrsta spurninKÍn var. hver kveikjan hefði verið að þvi, að björKunarskólinn var stofnaður á sínum tima. — Það voru búnar að fara fram miklar umræður um árabil um þjálfunarmál sveitanna og menn voru á þeirri skoðun, að nauðsyn- legt væri að samhæfa hana og staðla eins og hægt væri. Það var svo iátið til skarar skríða árið 1977 og skólinn var stofnaður, sagði Thor. — Við ákváðum þegar í upphafi, að reyna að halda námskeið í sem allra flestum greinum, sem tengj- ast starfi sveitanna, sem eru 12 víðs vegar um landið. Því er þó ekki að neita, að skyndihjálpar- þátturinn hefur verið mest í há- vegum, en þar höfum við verið með leiðbeinendanámskeið, þ.e. við höfum útskrifað kennara, sem síðar geta farið út í sveitirnar og miðlað af þekkingu sinni. Eru þetta eitthvað stöðluð kennaranámskeið, sem þið eruð með? — Já, þetta eru nákvæmustu leiðbenendanámskeiðin, sem danski Rauði krossinn notar í Sinni áætlun. Það er mun ná- kvæmara en þau leiðbeinendan- ámskeið, sem aðrir aðilar hafa Thor B. Eggertsson formaður skólastjórnar Björgunarskóla LHS, en hann er aðalkennari skólans í skyndihjálp. staðið fyrir hér á landi og ástæðan fyrir því er einfaldlega sú, að við teljum, að hjálparsveitarmenn verði að hafa alla þá mögulegu þekkingu, sem völ er á í þessum fræðum. Við höfðum til þessa útskrifað 44 kennara í skyndi- hjálp, en þeir hafa verið á þremur námskeiðum, 1977, 1979 og 1981, sagði Thor B. Eggertsson. Á þessum orðum Thors er auð- sætt hversu gífurlega vel skipaðar hjálparsveitir skáta eru velmennt- uðum skyndihjálparmönnum, enda er þeim ætlað sérstakt sjúkrahjálparverkefni í neyðar- vörnum Almannavarna ríkisins. Þá kom það fram hjá Thor, að væntanlega myndu 15—20 nýir kennarar bætast í þennan hóp í haust, en þá verður haldið fjórða námskeiðið. Nánar um þessi skyndihjálpar- kennaranámskeið, sagði Thor, að reynt væri að byggja sem allra mest á verklegum æfingum, auk þess sem þátttakendur fengju góða þjálfun í kennslufræðum. — Það eru haldnir fyrirlestrar alla þá 10 daga, sem námskeiðið stendur yfir, auk þess, sem ein stór verkleg æfing er haldin á hverjum degi, sagði Thor enn- fremur. Hvað fer þá mikill tími á dag á hverju námskeiði? — Það má segja, að þetta sé 15—20 klukku- tíma vinna á sólarhring í þá 10 daga, sem námskeiðið stendur yfir, og það er því ljóst, að menn leggja gífurlega mikla vinnu á sig þennan tíma. Að mínu mati er þetta ekki nægilegur tími og þess vegna höfum við hugmyndir um að lengja námskeiðið í haust upp í a.m.k. 12 daga, sagði Thor enn- fremur. Það kom fram hjá Thor, að skyndihjálparnámskeiðin hafa verið haldin að Úlfljótsvatni í húsnæði skátasamtakanna, og sagði hann mjög góða reynslu af því halda þessi námskeið fjarri ys °K þys þéttbýlisins. — Hópurinn verður mun samhentari og vinnan gengur öll betur en ella, sagði Thor ennfremur. Hverjir sækja þessi námskeið, eru það eingöngu félagar úr hjálp- arsveitum skáta? — Hingað til hafa að stærstum hluta sótt þetta menn úr okkar sveitum en þó hafa komið menn fra Slysavanarfélagi íslands, lögreglu og fleirum. Hins vegar er ég þeirrar skoðunar, að öll björgunarsamtökin þ.e. hjálp- arsveitir skáta, Slysavanarfélag íslands og flugbjörgunarsveitirn- Menn fá hin óliklegustu verkefni á námskeiðum skólans. en hér er lokið vettvangsrannsókn á slysstað. .irqus e CITIZEN Vasahljóöritinn Bráðnauðsynlegur lítill hljóðriti fyrir þá, sem eru á ferð og flugi. Nýtir tímann á skrifstofunni, í bílnum, í flugvélinni, á sýningum — alls staðar þar sem þörf er á minnisatriðum og samningu bréfa á skömmum tíma. "Secretary 60” afspilari einnig fáanlegur. £ / SKRIFSTOFUVÉLAR H.F. % ry ■ x. o Sr Hverfisgötu 33 Simi 20560

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.