Morgunblaðið - 14.07.1981, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 14.07.1981, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1981 15 hverfin innan Hringbrautar og Snorrabrautar, verður ljóst að óeðlilega hefur verið þjarmað að grænu svæðunum með hliðsjón af nýrri hverfum, og löngu kominn tími til að spyrna við fótum. Ég taldi satt að segja víst að með sigri Torfusamtakanna í átökun- um um gömlu húsin mundu þessir fáu grænu blettir í miðborginni einnig fá að vera í friði og veita lifandi og óbornum kynslóðum þá gleðitilfinningu sem grænt gras vekur jafnan í brjóstum íslend- inga. Gn nýjungagirni hinnar ungu borgar er ekki alveg úr sögunni og ekkert við því að segja. Ég ann skákmenntinni alls hins besta og er stoltur af þeim tiltölu- lega fjölmenna hópi íslendinga sem framúr skarar í þeirri erfiðu íþrótt, en ég á afarbágt með að skilja hversvegna ráðast þurfti á lungun til að svala þörfinni fyrir nýjungar og frumleika. Hvers- vegna mátti ekki varðveita þessa fáu grasbletti hér við Lækjargötu ósnortna af steinsteypu úrþví unnið er að endurreisn Torfunnar sem þeir óneitanlega tilheyra, en skáka taflborðinu tröllvaxna á einhvern annan stað þarsem ekki verða náttúruspjöll, til dæmis á Lækjartorg eða í Austurstræti? Nýjungagirni er eðlilegur þáttur í sálarlífi æskunnar og Reykjavík er enn á æskuskeiði, en hún þarf helst að haldast í hendur við heilbrigða skynsemi, og Reykjavík er í öllu falli orðin nógu gömul til að láta stjórnast af skynsemi þegar lifshagsmunir hennar eru i húfi. Þó ólíku sé saman að jafna, milljónaborginni Aþenu og litlu Reykjavík, þá er ekki alveg útí hött að gera á þeim samanburð. Aþena var lítið og fámennt þorp um miðja síðustu öld og fór ekki að vaxa að verulegu ráði fyrren milli heimsstyrjalda og þó einkum eftir seinni heimsstyrjöld. Á síð- ustu þremur áratugum hefur íbúatalan fimmfaldast og borgin þanist út með ógnarhraða. Allan þann tíma var fátt um annað hugsað en dýrar lóðir og háhýsi. Arðsemin sat semsé í fyrirrúmi fyrir öðrum sjónarmiðum. Nú er hinsvegar svo komið að Aþenubú- ar eru í bókstaflegum skilningi að kafna úr þrengslum og ólofti og krefjast hástöfum skjótra og rót- tækra úrbóta. Það er nokkuð seint í rassinn gripið og vont að sjá hvernig bæta má fyrir hirðuleysi margra áratuga þegar enginn gaf sér tíma til að leggja niður fyrir sér framtíðina eða hugleiða hvert blind gróðahyggja kynni á endan- um að leiða borgarbúa. Þeir gleymdu semsagt að gera ráð fyrir því að borgir þurfa að hafa lungu til að anda með ef þær vilja halda heilsu. Við eigum sem betur fer langt í land að rata í raunir Aþeninga, en við mættum gjarna draga lærdóm af reynslu þeirra og knýja á um það hjá hérlendum ráðamönnum að hjarta og lungum höfuðstaðar- ins verði þyrmt svo niðjar okkar fái notið hins sama og við höfum fengið að njóta til skamms tíma. Ég vil gjarna að harðgerir íslenskir skákmenn og erlendir gestir þeirra fái að tefla undir berum himni í hinni körgu ís- lensku veðráttu hvenær sem þeir hafa löngun og líkamsþrótt til, en ég bið þá lengstra orða að láta ekki lofsverðan skákáhuga bitna á þessum fáu grasblettum sem eftir eru í miðborginni. AUGLÝSING UM INNLAUSNARVERÐ VERDTRYGGÐRA SFARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ 10.000 GKR. SKÍRTEINI 1970- 1. fl.: 15.09.81 - 15.09.82 kr. 6.265,31 1971 - 1 . fl.: 15.09.81 - 15.09.82 kr. 4.115,04 1972 - 2. fl.: 15.09.81 - 15.09.82 kr. 3.029,95 1973 - 1. fl. A.: 15.09.81 - 15.09.82 kr. 2.243,70 1974- 1. fl.: 15.09.81 - 15.09.82 kr. 1.426,74 INNLAUSNARVERÐ ÁRGREIÐSLUMIÐA 1973- 1.fl. B.: 15.09.81 - 15.09.82 10.000 GKR.SKÍRTEINI kr. 165,77 50.000 GKR. SKÍRTEINI kr. 828,85 Innlausn spariskírteina ríkissjóös fer fram í afgreiðslu Seölabanka íslands, Hafnarstræti 10, og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin. Reykjavík, júlí 1981 SEÐLABANKI ÍSLANDS Síldarkvóti Norðmanna 50% meiri en í fyrra NORSKA ríkisstjórnin hefur nú annað árið i röð leyft veiðar á síld úr norsk-islenzka sildarstofnin- um, þrátt fyrir aðvaranir Alþjóða hafrannsóknaráðsins. í fyrra voru leyfðar veiðar á 100.000 hektólítr- um. en i ár er gert ráð fyrir að heildarkvótinn verði 50% hærri eða 150.000 hektólitrar. betta kemur fram i upplýsingabréfi Síldarútvegsnefndar. Þar segir ennfremur, að þegar hafi verið ákveðið að úthluta 100.000 hektólítrum, 60.000 hektó- lítrum í nót og 40.000 hektólítrum í net. Þá sé gert ráð fyrir, að skip sem stunda aðrar fiskveiðar megi leggja á land samtals 20.000 hektó- lítra af síld. Til beitu sé reiknað með að leyft verði að veiða 20.000 hektólítra og 10.000 hektólítra megi veiða í sambandi við rann- sóknarstarfsemi. í nýútkomnu málgagni norsku fiskimálastjórnarinnar segir að norska hafrannsóknastofnunin hafi lagzt gegn því, að veiðar yrðu leyfðar. Áfstaða Alþjóða haf- rannsóknaráðsins til þessara að- gerða norskra stjórnvalda er þegar kunn. Ráðið samþykkti í fyrravor, að áríðandi væri að allar veiðar á norsk-íslenzka stofninum yrðu bannaðar, bæði 1980 og 1981. Að síðustu segir í fréttabréfinu, að í fyrra hafi norska flotanum ekki tekizt að veiða leyfilegt kvóta- magn. Skiptar skoðanir séu á því hvort það hafi stafað af hinu lélega ástandi stofnsins, eða af markaðs- örðugleikum. Norðmenn haldi sjálfir á lofti síðari skýringunni. Á föstudag barst til utanríkis- ráðuneytisins svar norskra yfir- valda við bréfi íslenzkra stjórn- valda vegna málsins. Hannes Haf- stein, skrifstofustjóri utanríkisráð- uneytisins, sagði í samtali við Mbl., að Norðmenn hefðu svarað því til, að aflamagnið væri ekki aukið á þessu ári. Það hefði hreinlega gleymzt, að geta um viðbótarafla- magnið, sem getið er um að fram- an. , • i u ^ .< • ,|i' i-1 c- u i t Nú getum við boðið þér litla og lipra rafmagnsritvél fyriraðsins 3.130,- kronur! MESSAGE 860 ST Lítil og þægileg vél með 32 cm valsi. Góður ásláttur. Taska fylgir. MESSAGE 990 CR Lítil, fullkomin rafritvél með leiðréttingarbúnaði. Taska fylgir. \NVIf i m % SKRIFSTOFUVELAR H.F. + —x “ Hverfisgötu 33 Simi 20560

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.