Morgunblaðið - 14.07.1981, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 14.07.1981, Blaðsíða 48
Síminn á afgreiðslunni er 83033 ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ1981 — súrálsskýrslan enn trúnaðarmál SÚRÁLSSKÝRSLAN svonefnda frá brezka endurskodunarfyrirtækinu Coopers ok Lyhrand var IökA fram á rikisstjórnarfundi i KærmorKun. ásamt KöKnum vikomandi málinu. Skýrsla fyrirtækisins mun vera mikil art vöxtum. Ilún er i tvennu laKÍ ok fjallar annars vegar um meinta veröhækkun súráls í hafi frá Ástraliu til íslenzka álfólaKsins i Straumsvik, en hins ve^ar um mat á verðlaKninKU á súráli i viðskiptum óháðra aðila. Niðurstöður skýrslunnar eru að söKn iðnaðarráðherra trúnaðarmál ok verður fjölmiðlum ekki Kreint frá þeim fyrst um sinn. Samþykkt var i ríkisstjórninni i Kær að kynna formönnum ok þinKflokksformönnum stjórnarandstöðuflokkanna niðurstöðurnar sem trúnaðarmál i daK- Skýrslan verður til framhaidsmeðferðar á rikisstjórnarfundi á fimmtudaK- Fulltrúi iðnaðarráðuneytisins fór utan á sunnudaK til að afhenda forráðamönnum Alusuisse i Zúrich eintak af skýrslunni. í útvarpsfréttum í gærkvöldi gaf Hjörleifur Guttormsson iðnaðarráð- herra í skyn, að niðurstöður skýrsl- unnar væru hagstæðar fyrir mál- flutning hans í upphafi. Samkvæmt öðrum heimildum Morgunblaðsins mun þó erfitt að fullyrða neitt um slíkt, án þess að taka tillit til margra þátta við endanlegt mat. Cooper og Lybrand munu hafa valið þann kost Tilmæli ríkisstjórnar: Byggðasjóður aðstoði Iðunni Á FUNDI ríkisstjórnarinnar í gærmorgun var samþykkt að skora á stjórn Byggðasjóðs, að sjóðurinn láni Skóverksmiðjunni Iðunni á Akureyri 400 þúsund krónur vegna mjög erfiðrar rekstrarstöðu fyrirtækisins og til að auka haKræðingu i verksmiðj- unni. Ráðamenn fyrirtækisins telja, að ein milljón króna sé nauðsynleg tii að tryggja rekstur þess og í bréfi til Byggðasjóðs, Atvinnuleysistrygg- ingasjóðs og Akureyrarbæjar fór Iðnaðardeild Sambandsins fram á þá upphæð. Reiknað er með, að Atvinnuleysistryggingasjóður láni Iðunni 400 þúsund krónur og 200 þúsund krónur komi frá Akureyrar- bæ í formi lána eða framlags. að tíunda álit iðnaðarráðuneytisins í niðurstöðu skýrslu sinnar, án þess þó að gera það að sínu. Kemur fram, að því er ein heimild Mbl. fullyrðir, að fyrirtækið telji sig ekki hafa tök á að staðfesta þær ásakanir iðnaðar- ráðherra, sem hann hefur sett fram, m.a. á erlendum vettvangi, að Alu- suisse hafi brotið aöalsamning fyrir- tækisins við íslenzk stjórnvöld. Onn- ur heimild fullyrðir að hækkunin í hafi sé meira en helmingi minni en iðnaðarráðherra og sérfræðingar hans fullyrtu á sínum tíma. Hjörleifur Guttormsson iðnaðar- ráðherra sagði í samtali við Mbl. í gær, að ráðuneytið myndi ekkert láta frá sér fara um niðurstöður málsins, fyrr en ríkisstjórnin hefði fjallað um það á sínum vettvangi. Fulltrúum Alusuisse hefði verið af- hent eintak af niðurstöðunum. Að- spurður sagði hann, að Islenzka álfélagið væri ekki beinn aðili að málinu og því væri ekki ákveðið hvort það fengi eintak af niðurstöð- unum á þessu stigi málsins. Þá mun það hafa komið til tals, að skipuð verði sérstök nefnd allra stjórnmálaflokkanna til að ræða við Alusuisse og kanna skýrsluna. Morg- unblaðið hafði í gær samband við fjölmarga aðila vegna máls þessa og reyndi m.a. að ná sambandi við Weibel forstjóra hjá Alusuisse í Ziirich, en hann verður ekki til viðtals fyrr en a föstudag. Þá tókst ekki, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir, að ná sambandi við Gunnar Thor- oddsen forsætisráðherra. Atlantshafsflug rætt í ríkisstjórn: Aframhaldandi aðstoð afgreidd á fimmtudag Á FUNDI ríkisstjórnarinnar í gær lagði Steingrímur Her- mannsson, samgönguráðherra, fram tillögu um áframhaldandi stuðning ríkisstjórnarinnar við flug Flugleiða á N-Atlants- hafsleiðinni, en islenzk stjórn- völd miðuðu sem kunnugt er tillögu sina i þessum efnum sl. ár við stuðning í þrjú ár. Eins og fram hefur komið í Mbl. telja Flugleiðir sig þurfa 3 millj. $ styrk frá íslenzka ríkinu á þessu ári og sama frá Luxemborg til þess að unnt sé að reka Atlants- hafsflugið á meðan erfiðleikarnir eru mestir. Samkvæmt upplýsingum Pálma Jónssonar, landbúnaðarráðherra, var tillagan um styrkinn ekki afgreidd á fundinum í gær, en ráðherrann kvað stefnt að því að afgreiða tillöguna á ríkisstjórn- arfundi nk. fimmtudag. Borgarfulltrúar um útitaflið: Mun stærra í snið- u m en búist var við „BORGARRÁÐ samþykkti á sin- um tima gerð útitafls á Lækjar- torgi, en ég minnist þess ekki að hafa samþykkt allt þetta jarð- rask, sem nú á sér stað á Bernhöftstorfu ... Ég verð að segja að þetta er mun stærra i sniðum en ég bjóst við og ég er ekki frá því að þetta sé e.t.v. of stórt í sniðum að því er bezt verður séð,“ voru ummæli nokk- urra borgarfulltrúa er Mbl. innti þá eftir áliti þeirra á fram- kvæmdum við útitafl, sem nú er unnið að á Bernhöftstorfu. „Ég held að bezt sé að hafa þann háttinn á, að klára verkið úr því sem komið er. Það má þá breyta því aftur ef menn eru mjög óánægðir með útkomuna," voru ummæli Kristjáns Benediktssonar borgarfulltrúa Framsóknarflokks- ins. Byggingarnefnd hefur gert tillögur um að minnka hellulagða svæðið kringum útitaflið og er gert ráð fyrir að það verði m.a. rætt á fundi borgarráðs í dag. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir þessar kosti alls kringum 500 þúsund krónur. Þá sagði Þorsteinn Bergsson formaður Torfusamtakanna í samtali við Mbl. í gær, að samtök- in hafi verið í þeirri aðstöðu að verða að samþykkja að útitaflið yrði sett niður á þessum stað. Samtökin teldu sér ekki fært að ganga í beina andstöðu við vilja borgaryfirvalda í þessu máli þar sem samtökin þyrftu að sækja til borgarinnar um fjárstuðning til uppbyggingarstarfsins á Bern- höftstorfunni, en Þorsteinn lagði áherzlu á að framkvæmdir við útitaflið væru ekki á vegum Torfu- samtakanna. Sjá einnig á miðopnu og bls. 2. Samningarnir við starfsmenn Graskögglaverksmiðjanna: Verulegar launahækkanir og landbúnaðarstörf í fyrsta sinn metin við niðurröðun í launaflokka „VIÐ erum ánægðir með þessa samninga. það náðust verulegar launahækkanir ok ýmsar endur- hætur á fyrri samninKum, auk þess sem reynsla af landbúnaðarstOrf- um er nú i fyrsta skipti tekin til Kreina vjð niðurröðun i launa- flokka. Hve launahækkunin er mikil Ket ók ekki sagt að svo stöddu, þetta er eins og i læknadeil- unni að erfitt er að reikna hana út. en hún er veruleg," sagði SÍKurður óskarsson, framkvæmdastjóri og varaformaður verkalýðsfélagsins RanKæinKs er Mbl. ræddi við hann um nýgerða samninKa starfs- manna KrasköKKlaverksmiðjanna ok fjármálaráðuneytisins. „Það náðust miklu rýmri starfs- aldurshækkanir en áður voru, árs- mennirnir eru í 13. launaflokki d, og sumarmennirnir í 13. a. Þá fengust ferðapæningar fyrir þá, sem ekki búa á staðnum, 15% vaktafor- mannsálag á vaktatímabili og 10% álag á sömu menn, sem flokksstjór- um annað tímabil. Þá er það, sem kannski er merkilegast, að ólaunuð landbúnaðarstörf fengust metin allt að þremur árum eftir 16 ára aldur og er það algjört nýnæmi í samning- um, sem kemur Jteim mjög vel sem vanir eru sveitastörfum. Þá er í samningnum ákvæði um það að allt sem unnið er umfram 48 stundir á viku, það er 6 vaktir, teljist nætur- vinna, þannig að sjöundu vaktina verður þá að leysa með afleysingar- mönnum eða borga fyrir hana fulla næturvinnu. Þá er í samningum ákvæði um að hann skuli endur- skoða á samningstímabilinu með viðmiðun við aðra samninga í huga og að vaktaformannskerfi og sláttu- kerfi í Dölunum verði endurskoðað. Ásakanir iðnaðarráðherra á Alusuisse: Engin staðf est- ing lig-gnr fyrir Þegar forseti íslands, Vigdis Finnbogadóttir, var á Húsa- vik, leit hún inn til heiðurs- borgara bæjarins, Guðrúnar Þórðardóttur. Guðrún er 102 ára gömul og bað forsetanum og þjóðinni allrar Guðs blessun- ar og þakkaði henni sérstak- lega fyrir að hafa litið inn til sin. Sagðist hún hafa meira gaman af að sjá hana i sjón- varpinu eftir að hún hefði heimsótt sig. Sjá nánari frétt- ir af ferð forseta íslands á bls. 46 og 47. LjÓKm. Mbl. Sigurúur P. Hjörnsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.