Morgunblaðið - 14.07.1981, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1981
í boði bæjarstjórnar Húsavíkur að Hótel Húsavik. Jónína Hallgrimsdóttir forseti bæjarstjórnar afhendir Vigdisi fyrsta eintakið af Sögu
Ifúsavíkur.
Á Húsavík:
Vigdísi afhent fyrsta ein-
takið af Sögu Ilúsavíkur
Nú var komið að hádegi en
þá bauð bæjarstjórn Húsavík-
ur forseta og fylgdarliði til
hádegisverðar að Hótel Húsa-
vík og sátu þar samkvæmið
bæjarstjórn og nokkrir fleiri
gestir. I fyrri veislu færði
Jónína Hallgrímsdóttir forset-
anum að gjöf fyrsta eintakið
af Sögu Húsavíkur sem nú er
að koma út og kemur á
markaðinn innan skamms.
Um klukkan fjórtán hóf
lúðrasveit Húsavíkur lúðra-
blástur við félagsheimilið og
safnaðist þangað mikill
mannfjöldi. Þegar forsetinn
kom út færði lítil stúlka,
Jónasína Lilja Jónsdóttir, for-
setanum fagran blómvönd,
rauðar rósir og hvítar bundn-
ar bláum borða. Páll H. Jóns-
son frá Laugum flutti forset-
anum frumort ljóð og kirkju-
kór Húsavíkur söng, undir
stjórn Sigríðar Schiöth, nokk-
ur lög. Forsetinn ávarpaði
síðan viðstadda og gekk síðan
meðal fólksins í um eina
klukkustund og ræddi við það.
Heimsókninni til Húsavíkur
Iauk svo forseti Islands Vigdís
Finnbogadóttir með því að
heilsa upp á heiðursborgara
Húsavíkur, Guðrúnu Þórðar-
dóttur sem í haust verður
hundrað og tveggja ára. Þegar
forseta bar að garði stóð sú
aldraða í dyrum úti og bauð
forseta til stofu. Tíminn leyfði
ekki nema stutta viðdvöl en
þær ræddust nokkuð við báð-
um til sýnilegrar ánægju og
gamla konan kvaddi forsetann
með þeim orðum að hún þakk-
aði henni kærlega fyrir að
hafa komið við hjá sér, og
óskaði henni og þjóðinni allrar
guðs blessunar. Og með þær
óskir ók forsetinn frá Húsa-
vík.
FORSETI íslands Vigdís Finnbogadóttir kom til Húsa-
víkur á miðnætti sl. laugardagskvöld, eftir að hafa ekið
frá Ásbyrgi og kringum Tjörnes í hinu fegursta veðri.
Bæjarstjórn Húsavíkur tók á móti forsetanum og
fylgdarliði hennar við Hótel Húsavík hvar hún gisti þá
nótt en í fylgdarliði forsetans er Sigurður Gizurarson og
frú og Vigdís Bjarnadóttir
hennar.
Lúðrasveit Húsavíkur undir
stjórn Sigurðar Hallmarsson-
ar heilsaði forsetanum með
því að leika ættjarðarlög þeg-
ar hún gekk frá gististað
klukkan 10 að sunnudags-
morgni í hinu fegursta veðri
sem á þessu sumri hefur
komið. Forseti bæjarstjórnar
Húsavíkur, Jónína Hallgríms-
dóttir, og varaforsetarnir,
Katrín Eymundsdóttir og Jó-
hanna Aðalsteinsdóttir, sýndu
forsetanum bæinn en komið
var við m.a. á eftirtöldum
stöðum: Fyrst var gengið til
kirkju og þar rakti Ingvar
Þórarinsson sögu kirkjunnar,
síðan var sjúkrahúsið heim-
sótt og þar tóku Guðlaug
einkaritari forseta og maki
Sigmarsdóttir yfirhjúkrun-
arkona og Ólafur Erlendsson
forstjóri sjúkrahússins á móti
forsetanum og fylgdarliði.
Forsetinn heilsaði upp á alla
þá sjúku sem þar nú dvelja.
Næst var svo komið að
Hvammi, dvalarheimili aldr-
aðra og sýndu þeir Hörður
Arnórsson og Egill Olgeirsson
forsetanum hina nýju veglegu
byggingu. Vistmenn höfðu
safnast saman í setustofunni
og ræddi forsetinn drykklanga
stund við þá. Skoðunarferð-
inni um bæinn lauk svo með
dvöl í safnahúsinu þar sem
forsetinn hafði margt að sjá
undir leiðsögn safnvarðar,
Finns Kristjánssonar.
Páll H. Jónsson flytur forseta íslands ljóð.
Vigdís heimsækir Mývatnssveit:
Hátíðarsamkoma í Skjól-
brekku og gengið um Höfðann
Mývatnssveit. 13. júli.
FORSETI íslands. ViKdás Finn
boKadóttir, heimsótti Mývatns-
sveit í gær í bliðskaparveðri. í
fyltfd með forsetanum voru ýmsir
framámenn i héraðinu. Komið
var að Höfða klukkan 18.30. Þar
var fyrir á annað hundrað manns
ok mikill fjöldi barna var þar
með litlar fánastengur til heiðurs
Vigdísi.
Gengið var um Höfðann í góða
veðrinu í fylgd með kunnugum.
Dáðust margir að hinu fagra
umhverfi. Vigdís gróðursetti þrjú
tré í Höfðanum og var vel fylgzt
með þeirri athöfn, sem vakti
verðskuldaða athygli. Að lokinni
heimsókninni að Höfða var ekið að
hótel Reynihlíð, þar sem snæddur
var kvöldverður. Klukkan 22.00
var hátíðarsamkoma í Skjól-
brekku og henni stjórnaði Krist-
ján Ingvason, oddviti sveitarinn-
ar. Um 200 manns voru þarna
samankomnir og þáðu kaffi og
veitingar. Ræður fluttu Sigurður
Þórisson á Grænavatni og Stef-
anía Þorgrímsdóttir, Garði. Kór
Skútustaðakirkju söng undir
stjórn Þráins Þórissonar, Eyþór
Pétursson og Hjörleifur Sigurðs-
son sýndu íslenzka glímu. Laufey
Sigurðardóttir og Snorri Birgisson
léku saman á fiðlu og píanó.
Vigdísi barst gjöf frá íbúum Norð-
ur- og Suður-Þingeyjarsýslna,
málverk eftir Hring Jóhannesson,
málað í Aðaldal. Þá var Vigdísi
einnig færð gjöf frá Mývetning-
um, það er bókin Dýraríki íslands
eftir Benedikt Gröpdal. Síðast
talaði forsetinn og að lokum sungu
allir „Blessuð sértu sveitin mín“.
Komið var fram yfir miðnætti er
samkomunni lauk og var þá ekið
að Reynihlíð, þar sem Vigdís gisti
síðastliðna nótt. í morgun var
Kröfluvirkjun heimsótt og síðan
var ekið áleiðis til Akureyrar.
Mývetningar færa forseta ís-
lands, Vigdísi Finnbogadóttur,
beztu þakkir fyrir komuna og óska
henni allra heilla.
Kristján