Morgunblaðið - 14.07.1981, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 14.07.1981, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1981 Sonur okkar og bróöir, HRAFN SIGURÐSSON, Blönduósí, lést 5. júlí sl. jaröarförin hefur fariö fram. Hrafnhildur Valgeirsdóttir Siguröur Eiríksson, Eiríkur Sigurösson, Höröur Sigurðsson, Svavar Sigurðsson, Valgeir M. Valgeirsson. t Eiginmaöur minn, KARL SIGÞORSSON, HÆDARGEROI 54, lést í Borgarspítalanum aö morgni 12. júlí . Ingunn Gestsdóttir, t Eiginmaöur minn og faöir okkar GEIRLAUGUR K. ÁRNASON, deildarstjóri, Bláskógum 10, Reykjavík, lést 13. júlí í Borgarspítalanum. Útförin auglýst síöar. Sveinbjörg Arnmundsdóttir og börn. Maöurinn minn, + ÞÓRARINN JÓHANNESSON, Bergþórugötu 53, andaöist 12. júlí. Jóhanna Einarsdóttir. t Útför eiginmanns míns og fööur okkar, GUÐJÓNS EINARSSONAR Laugateig 40, fer fram frá Fossvogskirkju, þriöjudaginn 14. júlí. Guörún Böövarsdóttir, Nína Guöjónsdóttir, Ólafur Indriöason, Skafti Guðjónsson, Sigríöur Guönadóttir, og barnabörn. Haukur Jónsson frá Helgadal Fæddur 20. áKÚst 1907. Dáinn G. júlí 1981. Mörg hörmungarsagan gerðist hér á landi 1918, þegar spánska veikin fór yfir, mannskæðasta farsótt sem hingað hefur borizt á þessari öld. Á bæ einum í Mos- fellssveit brá hún ljánum svo óþyrmilega, að fært var í frásögur. Eftirfarandi klausa stendur í bók, þar sem rætt er um spönsku veikina: „í Helgadal í Mosfellssveit bjuggu hjón með 12 börnum sín- um, en þau höfðu alls eignazt 14 börn. Bóndinn hét Jón Jónsson. Veikin barst þangað, og lézt bónd- inn frá konu og börnum innan skamms. Húsfreyjan veiktist, svo og mörg börnin, og var heimilið ósjálfbjarga. Meðan konan lá sjúk, fæddi hún tvíbura andvana, og hafði hún þá eignazt 16 börn. Reynt var að veita heimili þessu brýnustu hjálp og fjársöfnun haf- in. Þegar heimiilisfaðirinn og börnin voru jörðuð, lá konan dauðveik." Börnin tólf í Helgadal, sem lifðu 1918, komust öll upp. Og nú í dag verður eitt þeirra, Haukur Jóns- son, fæddur í Helgadal 20. ágúst 1907, lagður til hinztu hvílu í nýja kirkjugarðinum í Gufunesi. Lifa þá eftir átta af systkinum hans. Jón bóndi í Helgadal andaðist 29. nóvember 1918, aðeins hálf- fimmtugur, sagður mannskaps- maður, bókhneigður og námfús. Hann var sonur hjónanna Jóns bónda Árnasonar á Varmá og Ragnhildar Þórðardóttur, og er frá Jóni beinn karlleggur til Jóns Þorleifssonar lögréttumanns á Esjubergi. Kona Jóns í Helgadal var Ingi- björg Jónsdóttir, ættuð úr Borg- arfirði, fædd að Bæ í Bæjarsveit árið 1874. Þau Jón gengu í hjóna- band sumarið 1900, bæði til heim- ilis að Varmá, fluttust að Mosfelli árið eftir og bjuggu þar til 1905. Þá færðu þau bú sitt að Helgadal og keyptu jörðina fljótlega. Reyndar var ætlun Jóns áður að - Minning eignast Varmá, en einhver mun hafa komizt þar á milli. Ekki þarf að orðlengja, hvílíkt reiðarslag það var konu og barna- hóp í Helgadal, að heimilisfaðir- inn skyldi falla frá í blóma aldurs. Þá var Haukur á viðkvæmu skeiði, ellefu ára gamall, en svo ógjarnt var honum að bera einkamál sín á torg, að ég heyrði hann aldrei nokkru sinni víkja tali að bernsku- raunum sínum. Þess var engin von að Ingibjörg í Helgadal, þrátt fyrir dugnað og verklagni, gæti fætt og klætt allan barnaskarann sinn eftir lát Jóns. Og því var það, að fimm af yngri börnunum hurfu að heiman í fóstur, en hin eldri, og þeirra á meðal Haukur, dvöldust áfram í Helgadal og unnu að búi móður sinnar allt til ársins 1927, að elzti sonur hennar, Sigurður, tók við jörðinni. Hann bjó þar síðan lengi. Ingibjörg fluttist að Álafossi, starfaði þar nokkur ár, settist svo að í Reykjavík og dó þar í elli. Á uppvaxtardögum naut Hauk- ur Jónsson þeirrar barnafræðslu sem tíðkaðist í sveitum, en að auki nam hann tvo vetur milli ferming- ar og tvítugs í unglingaskóla á Brúarlandi. Aðalkennarinn var Lárus Halldórsson, en einnig sagði Hálfdan prestur á Mosfelli nem- endunum til í dönsku. Komst Haukur býsna vel niður í henni, enda var móðir hans læs á dönsku og gat því liðsinnt honum við námið. Allt um það hélt Haukur ekki að heiman úr Helgadal vorið 1927 með stóran bagga bóklegrar fræðslu, en vel nestaður eljusemi og þreki; líka hertur af örðugri baráttu fyrir nauðþurftum. Hann var mjög verkslyngur maður og honum dauðleiddist staðnað bú- skaparlag flestra sveitunga sinna, kom það oft fram í tali hans á seinni árum. Þess vegna mun það hafa verið, að hann vistaði sig vorið 1927 að Blikastöðum til Magnúsar Þorlákssonar, hins mikla fyrirmanns í búnaði, og tók að nema jarðvinnslu hjá honum að nýrri tíma hætti. Ýmsir gerðust lærisveinar Magnúsar í þeirri + Móöir okkar og tengdamóöir. SIGRÍDUR ÓLAFSDÓTTIR HÚNFJÖRÐ, lést í Landspítalanum 13. júlí. Ásbjörg Húnfjörö, Geir Guönason, Ólöf Húnfjörð, Siguröur Óskarsson, Emilía Húnfjörö, Björn Jónsson. Móöir okkar, MÁLFRÍÐUR ÓLAFSDÓTTIR, sem lést 7. þessa mánaöar, verður jarösungin fró Fossvogskirkju miövikudaginn 15. júlí kl. 10.30. Blóm vinsamlega afþökkuö, en þeim sem vildu minnast hennar, er bent á líknarstofnanir. Einar Markússon Ólafur Markússon. Útför eiginmanns míns, JÓNS HELGASONAR, ritstjóra, sem lést laugardaglnn 4. júlí, veröur gerð frá Fossvogskirkju á morgun, miövikudaginn 15. júlí, klukkan 13.30. Þeir sem vildu minnast hans mættu láta Landgræöslusjóö njóta þess. Margrét Pétursdóttir. t Fósturmóðir okkar, GUÐRUN PÁLSDÓTTIR, Fjölnisveg 6, Reykjavík, andaöist í Landspítalanum föstudaginn 10. júlí. Jaröarförin auglýst síöar. Páll Sigurösson, Þrúöur Pálsdóttir, Gunnrún Gunnarsdóttir, Sígríóur MUIIer, Ingólfur A. Gissurarson, ísleifur Gissurarson, Hróömar Gissurarson. + Elskulegi bróöir minn, faöir okkar, tendafaöir og afi, ÁGÚST GUOMUNDSSON, fyrrum bóndi aö Stóra-Hofi, Rangárvallasýslu til heimilis aö Giljaseli 1, Reykjavík, lést á Landakotsspítala aöfaranótt laugardags 11. júlí. Bálför hans fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 16. júlí kl. 15. Elín Guömundsdóttir, Ragnhíldur Elín Ágústsdóttir, Garóar Erlendsson, Guömundur Einar Ágústsson, Þórunn Siguröardóttir, Silvía Hildur Ágústsdóttir, Tómas Sigurpálsson, og barnabörn. + Maðurinn minn, faöir og tengdafaöir, JÓHANNESJOHANNESSON, Skipholti 46, Reykjavik, andaöist aö heimili sínu 11. júlí. Jarösett veröur frá Háteigskirkju föstudaginn 17. júlí kl. 15. Margrét Meldal, Hjalti Jóhannesson, Kristmundur Jóhannesson, Guömundur Friövinsson, Þorgeröur Jóhannesdóttir, og barnabörn. + Faöir okkar, tengdafaöir og afi, SIGURÐUR HELGI SIGUROSSON, Sólvangi viö Fífuhvamm, Kópavogi, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju miövikudaginn 15. júlí kl. 3. e.h. Guörún Hjálmdís Guómundsdóttir, Siguröur Páll Sigurösson, Ósk Konráðsdóttir, Jakobína Sigurrós Siguröardóttir, Guðmundur Ásgeirsson, Kristín Siguröardóttir, Guöbjörn Guðmundsson Jón Karl Sigurðsson, og barnabörn. grein, fóru síðan hingað og þangað um sveitir lands og unnu fyrir bændur. Þannig var Haukur þegar vorið eftir ráðinn allar götur norður í Bæjarhrepp í Hrútafirði til starfa. Fram til 1934 vann hann síðan að jarðabótum hvert vor og átti sjálfur á fjórða áratugnum jarðvinnslutæki í félagi við annan mann. Þeir tóku að sér verkefni, m.a. í nágrenni Reykjavíkur og upþi í Mosfellssveit, og spurðu þá ekki hvað klukkunni liði, heldur hömuðust eins og berserkir dægr- um saman. Á þessum árum réð Haukur sig í kaupavinnu að sumr- inu þangað sem eitthvað var um að vera í búskap, svo sem að Kaldaðarnesi í Flóa og Korp- úlfstsöðum. Um 1932 festi Sigurður í Helga- dal kaup á ábýlisjörð sinni, nema að því leyti að Haukur bróðir hans keypti nokkurn part hennar aust- an megin í dalnum. Fyrir honum vakti hálft í hvoru að reisa þar nýbýli, þótt aldrei kæmi til þess. Hann átti þetta land fram til um 1950, reisti þar sumarhús og nefndi staðinn Katlagil, eftir ár- gili einu fögru þar hið næsta. Katlagilsland var honum mjög hjartfólgið, og neyddist hann til að selja það í því skyni að kljúfa húsakaup í höfuðstaðnum. Það mun sannmæli, að hann kveddi þetta land sitt með tárum, enda var hann um leið að kveðja ítök sín í Helgadal, jörð æsku sinnar. Ekki svo að skilja, að honum þætti Helgadalur óaðfinnanlegur, öðru nær, hann kvartaði stundum und- an því, að í gamla daga hefði sér fundizt þar fullþröngt umhorfs. Og þrátt fyrir velþóknun á sveit- um, þar sem er myndariega búið, og á gróðri jarðar og ræktun, þótti honum varið í sjávarsíðu, þaðan sem róið er til fiskjar. Hann var einu sinni á vertíð suður í Höfnum og hafði jafnan gaman af því að hugsa þangað, reisti sér meira að segja til skemmtunar í dagdraum- um efri áranna lítið hús þar í túni, til þess eins að horfa út á hafið. Haukur Jónsson hefði orðið góður og athafnasamur búmaður í sveit, ef til þess hefði verið að taka. En þótt hann sæti aldrei neina jörð, tengdist ævistarf hans allt að heitið getur landbúnaði með einhverjum hætti, fyrst jarð- vinnslu og öðrum verkum til sveita, því næst þjónustu á vegum Mjólkursamsölunnar í Reykjavík. Hún komst á stofn í ársbyrjun 1935. Haukur var einn meðal fárra manna sem ráðnir voru til fyrir- tækisins þegar í öndverðu. Þar stóð hann upp frá því við sinn stjórnvöl, 41 ár samfleytt, en sagði þá starfi sínu lausu vegna heilsu- bilunar. Hann var alla tíð af- greiðslumaður Mjólkursamsöl- unnar, og varð hlutverk hans með tímanum, eftir því sem umsvif fyrirtækisins uxu, næsta erilsamt og lýjandi ábyrgðarstarf, ekki sízt manni eins og honum, sem ekki mátti vamm sitt vita í neinu því sem honum var trúað fyrir. Hinn 2. nóvember 1935 gekk Haukur að eiga blómarós úr Strandasýslu, Friðborgu Guðjóns- dóttur, og lifir hún mann sinn. Friðborg kom úr stórum systkina- hópi, dóttir hjónanna Guðjóns Ólafssonar og Ingibjargar Sæ- mundsdóttur sem bjuggu í Hey- dalsseli og Miðhúsum í Bæjar- hreppi, og eru ættir hennar grón-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.