Morgunblaðið - 14.07.1981, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1981
5
Við Lögberg, hús lagadeildar Háskóla íslands. er að finna þessa reiti i
stéttinni austan við húsið og er þar komið útitafl i Reykjavik.
Ljósm. Kmilia.
Fiskimjölsverksmiðj-
an í Vestmannaeyjum
kaupir 700 tonna skip
Fiskimjolsverksmiðjan hf. i
Vestmannaeyjum hefur keypt
aflaskipið Haförn RE 69, áður
Loft Baldvinsson. og verður
skipið afhent hinum nýju eig-
endum nk. fimmtudag með
nafninu Sighvatur Bjarnason
VE 81. Sighvatur heitinn var
einn af dugmestu skipstjórum
Eyjanna um áratugaskeið og
síðan forstjóri Vinnslustöðvar-
innar í Eyjum til dauðadags.
Sighvatur Bjarnason VE 81 er
700 tonna skip og samkvæmt
upplýsingum Haralds Gíslason-
ar, framkvæmdastjóra Fiski-
mjölsverksmiðjunnar í Vest-
mannaeyjum, fer skipið skjótt á
loðnuveiðar og síðan á net.
Haförninn var í eigu bræðr-
anna Júlíusar og Péturs Stef-
ánssona, Stefáns Péturssonar
frá Húsavík.
Norrænar blómarósir. Fulltrúi íslands í keppninni „Miss Young
InternationaU, Svava Johansen, sleikir Filippseyjasólskinið ásamt
vinkonum sinum frá Danmörku, Noregi og Finnlandi, er
keppendur voru kynntir blaðamönnum i Manila i gær. Keppnin er
þegar hafin en henni lýkur þann 26. þessa mánaðar. Símamynd AP.
Geirlaugur Árnason
deildarstjóri látinn
gerðist árið 1975 deildarstjóri á
skrifstofum Sementsverksmiðju
ríkisins. Geirlaugur Arnason tók
mikinn þátt í félagsmálum og sat
um tíma í bæjarstjórn Akraness.
Einnig starfaði hann mikið að
tónlistarmálum, var stjórnandi
karlakórs og organisti á Akranesi
og eftir að hann fluttist til Reykja-
víkur gerðist hann organisti í Ar-
bæjarsókn og var fyrsti formaður
sóknarnefndar. Hann var einnig
fulltrúi safnaðarins í stjórn Kirkju-
garða Reykjavíkur. Um skeið var
hann stjórnandi Æskulýðskórs
KFUM og K í Reykjavík og Karla-
kórs KFUM og starfaði þannig
mikið að söngmálum innan þeirra
félaga. Geirlaugur Arnason var um
árabil einn af forystumönnum Gide-
onsamtakanna og var í fyrra kjör-
inn forseti Landssambands Gideon-
félaganna á íslandi.
Eftirlifandi kona. Geirlaugs er
Sveinbjörg Arnmundsdóttir og
eignuðust þau 6 börn.
GEIRLAUGUR Árnason, deildar-
stjóri hjá Sementsverksmiðjum
ríkisins, varð bráðkvaddur í gær.
54 ára að aldri, cn hann var fæddur
24. ágúst 1926 á Akranesi.
Geirlaugur Árnason var rakara-
meistari að mennt og starfrækti
hann um skeið rakarastofu á Akra-
nesi og síðar í Reykjavík, en sneri
sér síðar að verzlunarstörfum og
Veitingastaðurinn Lækjarbrekka opnar í ágúst
.ÞETTA hefur tekið lengri tíma en
við héldum en ég er þó bjartsýn á að
við getum hafið reksturinn ein-
hverntíma í ágúst." sagði Kolbrún
Jóhannsdóttir sem mun reka veit-
ingahúsið Lækjarbrekku i húsinu
að Bankastræti 2 í samtali við Mbl.
Kolbrún mun leigja húsið af torfu-
samtökunum en framkvæmdir við
það hafa dregist nokkuð vegna
seinkunar á fullnaðarleyfi bygg-
ingarnefndar til framkvæmda inn-
anhúss.
„Ég mun reka veitingastaðinn með
tveimur börnum mínum, Lindu
Ingvarsdóttur og Guðmundi Ingv-
arssyni," sagði Kolbrún. „Húsið mun
taka rúml. 80 manns í sæti en
ætlunin er að hafa þarna fjölbreytt-
ar veitingar — kaffi, mat og jafnvel
vínveitingar, ef leyfi fæst.“
RAFGEYMIR 9. ÁRATUGSINS
RAUÐICAMELINN
Bylting í rafgeymum.
Þessi nýi hefur marga kosti fram yfir venjulega rafgeyma. Ný gerð
af plötum minnkar vatnsuppgufun, sem þýöir að nær aldrei þarf að
setja vatn á hann = viðhaldslaus.
tiidOR
• AUKIÐ KALDRÆSIÞOL I MIKLU FROSTI.
• FLJÓTUR AÐ HLAÐAST UPP EFTIR NOTKUN.
• ÞOLIR BETUR YFIRHLEÐSLU.
• PASSAR í ALLFLESTA BÍLA, STÆRÐ 27x17x22 CM.
• VERÐ AÐEINS KR. 650.00
Gerið kröfur og veljið það besta á markaðnum.
Bílablaðið Motor lét óháða stofnun gera samanburð á helstu raf-
geymum á markaðnum. Bílablaðið Motor segir: „Tudor rauði
Camelinn er besti rafgeymirinn á markaönum”. Við athugum
rafgeyminn þinn þér að kostnaðarlausu.
Útsölustadir:
Skorri hf. Skipholti 35, Olís bensinstöðvar í Reykjavík og Akureyri,
Rafgeymaþjónustan Hringbraut 119, Veltir hf. Suðurlandsbraut 16,
Vélsmiðja Hornafjarðar Hornafirði, Kaupf. Rangæinga Hvolsvelli,
Bifreiðaverkstæði Guðjóns, Patreksfirði, Póllinn hf. ísafirði o.fl.
ísetning á staðnum.
Skipholt 35. — Sími: 37033