Morgunblaðið - 14.07.1981, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 14.07.1981, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ1981 19 LANDSIVIÓT UMri Á AKUREYRI VAR í ALLA STAÐI GLÆSILEGT Encjinn vafi leikur á því að 17. landsmót UMFI sem fram fór um síðustu helgi á Akureyri, er eitt hið glæsilegasta í sögu landsmótanna frá upphafi. Þátttakendur voru nú fleiri en nokkru sinni fyrr eða um 1500 talsins og allur árangur í íþróttagrein- um mótsins hefur aldrei fyrr verið jafn góður. Var það mjög áberandi nú hversu vel þjálfað og undirbúið íþróttafólkið mætti til leiks. Enda var fjöldinn allur af nýjum lands- mótsmetum settur. Vegna þess hve þátttakan var mikil hófst keppni snemma dags á föstudag. Mótið var síðan sett um kvöldið af formanni UMFÍ, Pálma Gíslasyni. En meðal gesta voru forseti íslands og menntamálaráðherra. Var síðan keppt frá því snemma á morgnana og langt fram á kvöld á 12 stöðum í bænum, bæði á laugardag og sunnudag. Mótinu var síðan slitið á sunnudagskvöld. 10 þúsund gestir Landsmótin eru stærstu íþróttahátíöir íslensks æsku- fólks og fylgist jafnan meö því stór hópur áhorfenda. Talið er aö um 10 þúsund gestir hafi sótt Akureyri heim á meðan á mótinu stóö. Veðrið lék viö heimamenn og gesti þeirra allan tímann og átti sinn stóra þátt í þvi hversu vel mótið tókst að þessu sinni. Ungmennafélagshreyfingin stendur á gömlum grunni og landsmótið er þýðingarmikill viðburður fyrir alla sem þaö sækja, jafnt keppendur sem gesti. Ungmennafélags- hreyfingin er í mikilli sókn og einkunnarorö hennar „íslandi allt“ og „Ræktun lands og lýðs“ eru sönn einkunnarorð. Því að ungmennafélagshreyf- ingin hefur um árabil verið mikill og góður félagsmála- skóli íslensku þjóöarinnar. Félögin innan félagshreyf- ingarinar eru nú orðin 196 talsins og eiga aðild að 18 héraðssamböndum. Starf það sem hreyfingin vinnur er ómetanlegt fyrir land og þjóð. íþróttakeppnin var glæsileg Um íþróttakeppnina sjálfa er það að segja að hún tókst ákaflega vel. Frjálsíþrótta- keppnin vakti eins og oftast áður einna mesta athygli. Þar var keppnin jöfn og skemmti- leg og fjöldinn allur af lands- mótsmetum settur. Sund- keppnin var og sérlega glæsileg og skemmtileg. í stigakeppni mótsins sigraði Héraðssambandið Skarp- héðinn (HSK). UMSK varö í öðru sæti og UÍA í þriðja sæti. Þessi héraðssambönd geta verið stolt af því hversu mikil gróska er í starfi þeirra, en það sannaðist rækilega á landsmótinu. Skipulag var allt mjög gott Þegar litið er á skipulagið í heild á landsmótinu er ekki hægt að segja annað en að það hafi verið mjög gott. Landsmótið gekk að vísu ekki alveg hnökralaust fyrir sig, en þegar minnt er á að um 600 manns störfuðu á einn eða annan hátt viö mótið sést vel hversu gífur- lega viðamikið starfið var. Tímasetningar stóðust að mestu. Þá var aðstaðan til íþróttakeppninnar eins góð og kostur var þegar litið er á í hversu mörgum greinum var keppt. Setningarathöfnin tókst vel, aö því undanskildu að fimleikasýningar Gerplu voru alltof langdregnar. Næsta landsmót í Njarðvík og Keflavík Næsta landsmót UMFÍ fer fram á svæði Njarövíkur og Keflavíkur árið 1984. Blaðamenn Morgunblaðsins fylgdust með landsmótinu á Akureyri og hér í þessu blaði veröur þess freistað að gera mótinu eins rækileg skil og frekast er kostur. Landsmót UMFÍ eru stóríþróttaviðburðir og eiga skiliö veröskuidaða umfjöllun og nákvæma í fjölmiðlum. Þ.R.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.