Morgunblaðið - 14.07.1981, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ1981
3
Borgarstjórnarmeirihlutinn klofnar um smábátahöfn:
Samþykkt að hef ja f ram-
kvæmdir í EUiðavoginum
BORGARSTJÓRN samþýkkti á
aukafundi i na'r. með 10 atkvseö-
um borKarfulItrúa Sjálfstæðis-,
Alþýðu- ok Framsóknarflokks,
KPKn 5 atkvæðum borKarfulltrúa
AlþýðubandalaKsins. að hefja i
sumar framkvæmdir við smá-
bátahofn við EUiðavoK.
I borKarráði hafði tillaga um
þetta verið samþykkt með 4 at-
kvæðum gegn einu, en tillagan er
komin frá Björgvini Guðmunds-
syni. Sigurjón Pétursson forseti
borgarstjórnar sagði að Alþýðu-
bandalagið væri á móti byggingu
smábátahafnar í Elliðavogi, hins
vegar væri flokkurinn því fylgj-
andi að bygging slíkrar hafnar
yrði athuguð í samráði við nær-
liggjandi sveitarfélög.
Björgvin Guðmundsson benti á
að bæði á Seltjarnarnesi og í
Hafnarfirði væri verið að athuga
með byggingu slíkra hafna og því
ekki líkur á að þau sveitarfélög
fengjust í slíkt samstarf. Hins
vegar væri nauðsynlegt að byggja
smábátahöfn í Reykjavík.
Borgarstjórn hélt aukafund i gær, þar sem afgreidd voru tvö
ágreiningsmál úr borgarráði. í öðru málinu klofnaði meirihlutinn. cn
þá var tekin ákvörðun um að hefja framkva-mdir við smábátahöfn við
Elliðavog í sumar. Alþýðubandalagið var því mótfallið.
Á myndinni eru Gunnlaugur Pétursson, sem gegnir störfum
borgarstjóra í fjarveru Egils Skúla Ingibergssonar, Sigurjón Pétursson
forseti borgarstjórnar ok Sjöfn Sigurhjörnsdóttir borKarfuIltrúi.
Ljósm. Mhl. (íuójón.
Gjaldeyrisþjófnaður:
Andvirði 10.000 kr. stol-
ið frá áttræðum manni
GJALDEYRI var stolið frá átt-
ræðum vistmanni á Ilrafnistu en
maðurinn varð var við hvarf
pcninganna á laugardag. Gamli
maðurinn ætlaði sér að ferðast til
Sviþjóðar ug heimsækja börn sin
þar og hafði lengi sparað saman
til ferðarinnar.
Gjaldeyririnn, sem tekinn var,
var bæði í peningum og ferðatékk-
um og nam um 10 þúsund íslensk-
um krónum.
Samkvæmt upplýsingum rann-
sóknarlögreglunnar hefur þjófur-
inn ekki fundist enn og er málið í
rannsókn, en gamli maðurinn mun
hafa orðið að hætta við Svíþjóðar-
ferðina af þessum sökum.
Enn er §kki vitað
hvort LIÚ fær að
byggja að Hellnum
EKKI cr enn ljóst hvort LÍC fær
hyggingarleyfi fyrir sumarhús á
Skjaidartröð að Hellnum á Snæ-
fellsnesi. Heimamenn mótmæltu
fyrirhuguðum byggingum sumar-
bústaða á þessum stað síðastliðið
sumar og voru þá unnin skemmd-
arverk á undirstoðum, sem LÍÚ
var búið að koma upp. Skemmd-
irnar kærði LÍÚ til sýslumanns-
embættisins i Stykkishólmi, en fór
þess á leit við félagsmálaráðuneyt-
ið. að það úrskurðaði hvort LIÚ
uppfyiiti öll skiiyrði til að fá
byggingarleyfi á staðnum.
Félagsmálaráðuneytið hefur enn
ekki fellt úrskurð sinn um það
hvort Landssamband íslenzkra út-
gerðarmanna uppfylli öll ákvæði til
að fá leyfi til að byggja sumarhús-
in, en málið er í meðförum ráðu-
neytisins. LÍÚ vísaði málinu til
ráðuneytisins eftir deilur við bygg-
ingarfulltrúa svæðisins. Búist er
við, að úrskurður liggi fyrir á
næstunni.
Þá er refsi- og skaðabótamálið
vegna skemmdarverkanna að
Hellnum enn til meðferðar hjá
sýslumannsembættinu í Stykkis-
hólmi.
Róstusamt í Landmannalaugum:
Magadans, taugaáfall,
hártog og handarbit
MIKILL fjöldi íerðamanna hefur sótt LandmannalauKar í sumar
sem endranær og stundum hefur dregið til tíðinda. einkum vegna
ölvunar. sem er talsverð, samkvæmt þeim fréttum sem Mbl. hefur
fengið frá LandmannalauKum.
Skálaverðir hafa skipt tjald-
stæðum í tvennt, rólegra fólkið
er á öðru svæðinu en ærslabelgir
og drukkið fólk á hinu.
Á föstudagskvöldið var almenn
ölvun á síðarnefnda svæðinu.
Slagsmál upphófust hjá einni
fjölskyldu, sem hafði drukkið
áfengi sleitulitið í einn sólar-
hring.
Hér á eftir birtist orðréttur
kafli úr fréttabréfi, sem Mbl.
hefur borizt frá Landmannalaug-
um:
„Ein stúlkukind í þeirri fjöl-
skyldu tók upp á þeim ósköpum
að hoppa á maga sofandi vinkonu
sinnar. Sú sem fyrir magadans-
inum varð fékk taugaáfall og var
flutt í skála Ferðafélagsins, þar
sem hún fékk aðhlynningu. En
þetta var aðeins byrjunin. Móðir
þeirrar, sem fékk taugaáfall, var
dregin út úr tjaldi sínu á hárinu!!
Sá sem það gerði var enginn
annar en eiginmaðurinn. Þessi
sama kona var síðan bitin í
höndina af „vinkonunni", sem
hoppað hafði á maga dóttur
hennar. Til að flækja málið enn
meira, var hún slegin af unnusta
„magadansarans". Var fram-
koma allrar fjölskyldunnar til
mikilla leiðinda, sér í lagi þar
sem hún var með aðeins ársgam-
alt barn með sér.
Laugin er sem fyrr mjög vin-
sæl á helgarferðum Islendinga,
þó menguð sé. Strípast landinn
haugadrukkinn innan um hver
annan og lætur ýmislegt í ljós,
sem varla er hafandi eftir.
Ekki er þó allt á floti i víni,
hópar frá Ferðafélaginu koma
einnig um helgar og stunda
göngutúra af miklu kappi.
Straumur erlendra ferðamanna
er mikill bæði einstaklingar og
fólk í hópferðum. Er umgengni
þeirra að öllu leyti til sóma, enn
sem komið er. Veður hefur verið
gott, léttskýjað mest alla vikuna
en fór að þykkna upp um helg-
ina.“
Hakkavél
Hakkar kjöt og f isk jafn-
óöum og sett er I hana.
Einnig fljótvirk viö gerö
ávaxtamauks.
Grænmetiskvörn
Blandar súpur, ávexti,
kjötdeig og barnamat.
Saxar hnetur, o.fl.,
malar rasp úr brauói.
Sítrónupressa
Býr til Ijúffengan fersk-
an sftrussafa á litlu
lengri tlma en tekur aö
skera sundur appelslnu.
Grænmetisrifjárn
Sker niöur rauörófur,
agúrkur, epli, kartöflur.
Raspar gulrætur, ost,
hnetur og súkkulaöi.
Stálskál
Endingargóð og varan-
leg skál, tilvalin f alla
köku- og brauógerö.
Ávaxtapressa
Skilar ávaxta- og græn-
metissafa meö öllum
vltamfnum.
Dósahnifur
Opnar allar tegundir
dósa án þess að skilja
eftir sköröóttar brúnir.
Grænmetisrifjárn
Sker og raspar niöur I
salat. — Búió til yöar
eigin frönsku kartöflur
meö til þess gerðu járni.
00
AUKNIR MOGULEIKAR
KENWOOD chef
er engin venjuleg
hrærivél.
Verð með skál,
þeytara, hnoöara
og hrærara
Kr. 3.550.-
KENWOOD chef
Kaffikvörn
Malar kaffiö eins gróft
eóa fínt og óskaö er og
ótrúlega fljótt.
Hraógengt rlfjárn
Sker niður og afhýöir
grænmeti á miklum
hraða og er meó fjórum
mismunandi járnum.
Þrýstisigti
Aöskilur steina og
annan úrgang frá ávöxt-
um. Auóveldar gerö
sultu og ávaxtahlaups.
Rjómavél
Býr til Ijúffengan, fersk-
an rjóma á nokkrum
sekúndum, aöeins úr
miólk og smjöri.
KENWOOD chef
ELDHÚSHJÁLPIN
Kartöfluhýóari Hetta
Eyöiö ekki mörgum Yfirbreiösla yfir Ken-
stundum I að afhýða wood Chef vélina.
kartöflur sem Kenwood
afkastar á svipstundu.
PRISMA