Morgunblaðið - 14.07.1981, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1981
21
r,
Sigurvegarinn í línubeitingu, Sigurður Sigurðsson, var ekki að
hafa fyrir því að líta upp frá beitingunni enda mikið i húfi.
„Ég er bara venjulegur trillukarl og
er búinn að standa í beitingu í 35 ár“
- sagði sigurvegarinn í línubeitingu, Sigurður Sigurðsson
ÞAÐ ER ekki á hvers manns faeri
að beita línu svo vel sé, en
RreinileKt var að Sigurður Sig-
urðsson frá Húsavík þurfti ekki
að skammast sin fyrir það sem lá
í halanum eftir hann þegar blm.
talaði við hann, enda fór svo að
Sigurður fór með sigur af hólmi
þó naumt hafi verið.
„Ég er nú bara venjulegur
trillukarl og búinn að standa í
beitingum í 35 ár og ætti því að
kunna handbragðið sæmilega,"
sagði Sigurður. Blm. spurði hvort
hann hefði keppt í þessari grein
áður. „Já ég keppti á Eiðum 1968
og vann þá og svo keppti ég aftur á
Sauðárkróki 1971 en gekk þá illa
og varð aftarlega,“ sagði Sigurður
hress í bragði þó ekki hafi verið
búið að tilkynna úrslitin.
Linan liggur fallega
í balanum.
Einungis 10 keppendur mættu
af þeim 19 sem skráðir voru og
höfðu þá 8 afboðað komu sína
kvöldið áður. Greinilegt var að
HSÞ-menn voru sterkir í þessari
grein enda skipuðu þeir þrjú efstu
sætin. í fyrsta sæti var eins og
áður sagði Sigurður Sigurðsson, í
öðru sæti Magnús Hreiðarsson og
svo í þriðja sæti Jósteinn Hreið-
arsson, allir úr HSÞ. Keppnin fór
fram í blíðskaparveðri við Gagn-
fræðaskólann á Akureyri.
Kom sá og sigraði í sjötta
skipti í röð á landsmoti
- hef ekiö dráttarvélum frá blautu barnsbeini
sagði sigurvegarinn í dráttarvélaakstri, Vignir Valtýsson
ÞAI) VAR Vignir Valtýsson HSÞ
sem kom sá og sigraði í sjötta
skiptið í röð í dráttarvélaakstri á
landsmótinu. Blm. náði tali af
Vigni rétt áður en hann steig upp
í vélina. Ilann var þá þokkalega
bjartsýnn og leist nokkuð vel á
brautina.
Hann sagðist vera alinn upp í
sveit og því umgengist og keyrt
dráttarvélar frá blautu barns-
beini. Blm. spurði hann hvort
hann hefði keppt í svona löguðu
áður og kom þá upp úr kafinu að
þetta var í sjötta skiptið sem han
keppti og hafði hann unnið jafn
oft. Við báðum hann um að fræða
okkur lítillega um framgang
keppninnar og var það sjálfsagt af
hans hálfu. Sagði hann að fyrst
væri farið í munnlegar spurningar
um vélarnar, uppbyggingu þeirra
og viðhald. Einnig er spurt um
• Vignir Valtýsson
öryggisatriði og jafnvel um um-
ferðarlög. Síðan er farið í verklega
þáttinn. Þá er keyrt eftir braut
sem lögð hefur verið á tún og
reynir þá á nákvæmni og öku-
leikni mannanna því að bæði þarf
að keyra afturábak og áfram í
gegnum hlið sem eru lítið breiðari
en vélin sjálf og svo er kerra
aftaní í ofanálag. Það eru gefin
refsistig fyrir það sem illa fer
bæði í spurningunum og akstrin-
um. Svo er allt reiknað út, bæði
stigin fyrir spurningarnar og/eða
refsistigin og svo tíminn sem fer í
að aka brautina. Eftir þessum
stigum er svo raðað niður í sæti og
gefa sex efstu sætin stig.
Við náðum svo tali af Vigni
aftur eftir að hann var búinn að
aka brautina. Hann var sæmilega
ánægður með frammistöðuna en
sagði að það hefði mátt ganga
betur, en greinilegt var að hann
þurfti engu að kvíða því að hann
sigraði nokkuð örugglega með 140
stig, næstur kom Einar Jónsson
UMSB með 135,5 stig og svo í
þriðja sæti Heiðar Jónsson HSÞ
með 134,5 stig.
Úrslit í starfsíþróttum
Þar var hart barist
um hvert stig
KEPPNI í starfsíþróttum eru þær greinar á landsmótum sem oft á
tiðum laða ekki mjög marga áhorfendur að. Þrátt fyrir að í mörgum
tilfellum sé bráðskemmtilegt að fylgjast með keppninni. Sér í lagi
fyrir þá sem til þekkja i viðkomandi grein. í starfsiþróttum er það
ekki klukkan eða sentimetrarnir sem ráða úrslitum. Það er ótal
margt annað sem tekið er með í reikninginn. Hér að neðan eru úrslitin
i starfsíþróttum á mótinu.
í keppninni lagt á borð sigraði Margrét Sveinsdóttir UMSE. Var
hún vel að sigrinum komin, en keppni i greininni var mjög jöfn.
Margrét sýndi snilldarhandbragð við að leggja á borðið og var
skreyting hennar sérlega smekkleg og vel útfærð.
Þá var mjög hörð keppni i jurtagreiningu. Þar voru efstu
keppendur mjög vel að sér og hart var barist um hvert stig.
Guðmundur Jónsson HSK hafði það þó i lokin. Úrslit í starfsiþróttum
urðu þessi:
STARFSÍÞRÓTTIR - LAGT A BORÐ
Úrslit: Stig:
1. Margrét Sveinsdóttir, UMSE 60
2. Helga Guömundsdóttir, HSK 59
3. Emelía Gránz, HSK 58
4. Halla Loftsdóttir, HSÞ 57
5. Sigriöur Sæland, HSK 56
6.-7. Sigrún Þorsteinsdóttir, UMSE 55
6.-7. Aðalheiður Ólafsdóttir, UÍA 55
8. Ragnheiður Júlíusdóttir, USVS 54
9. Hólmfríður Haraldsdóttir, HSÞ 53
10. Elín Eydal, HSÞ 52
11. -12. Ingibjörg Þorsteinsdóttir, UMSE 51
1J *12. Guðrún Jóhannsdóttir, UMSK 51
13.-14. Anna M. Arnfinnsdóttir, UÍA 50
13.-14. Auður Traustadóttir, UÍÓ 50
15. Garðar Vilhjálmsson, UÍ A 44
16. Kristine Lundkvist, UMSK 37
STARFSRlÞRÓTTIR -
DRÁTTARVÉLAAKSTUR
(irsllt: Stig:
1. Vignir Valtýsson, HSÞ 140,0
2. Einar Jónsson, UMSB 135,5
3. Heiðar Jónsson, HSÞ 134,5
4. Benedikt Blöndal, UÍA 132,0
5. Þorkell Fjeldsted, UMSB 128,0
6. Grímur Grétarsson, HSK 125,5
7. Gunnar R. Grímsson HSS 125,0
8. Jón Ingi Sveinson, UMSE 123,0
9. Kristinn Sigurösson, HS6 119,5
10. Finnur Pétursson, UMSK 117,5
11. -12. Haraldur Jósefsson, UMSE 113,0
11.-12. Rögnvaldur Gíslason, HSS 113,0
13. Grímur Jónsson, HSK 111,5
14. Elías Höskuldsson, UMSE 111,0
15. Grétar Einarsson, USVS 108,5
16. Guðmundur Sigurösson, HSK 105,5
17. Hjörtur Gíslason, UMSK 102,5
18. Símon Sigvaldason, UDN 94,0
19. Finnbogi Kristjánsson, HVÍ 81,0
20. Hörður Guðbrandsson, UMSK 75,0
LÍNUBEITING Úrslit: Stig:
Sigurður Sigurðsson, HSÞ 149
Magnús Hreiðarsson, HSÞ 148
Jósteinn Hreiðarsson, HSÞ Júlíus Magnússon, UÍÓ 147
146
ólafur Axelsson, HSS 145
Gestur Sæmundsson, UÍÓ 144
Sigurður Michaelsson, UMSK 135
Bjarki Björgólfsson, UÍ A 131
Rúnar Guðjónsson, HSK 128
Leif österby, HSK 115
JURTAGREINING
Úrslit: Stig:
Guðmundur Jónsson, HSK 48(+4>
Ketill Tryggvason, HSÞ 48(+l)
Sesselja Ingólfsdóttir, UMSE 47(+3)
Þorsteinn Bergsson, UÍ A 47
Hjördís Haraldsdóttir, UMSE 45<+3)
Stella Guðmundsdóttir, UMSK 45(+l)
Aðalbjörg Tryggvadóttir, HSÞ 43(+2)
Guðmundur H. Gunnarsson, UMSE 43(+l)
Sigrún Hrafnsdóttir, UÍA 43
Sonja I. Elíasson, UMSB 40
HESTADÓMAR
Úrslit: Stig:
1. Kristín Thorberg, UMSE 94
2.-3. Sigurður Pálsson, HSÞ 93
2.-3. Steingrímur Viktorsson, HSK 93
4. Baldvin Baldvinsson, HSÞ 92
5. Guðmundur Skarphéðinsson, HSÞ 89
6. Þórir ísólfsson, USVH 84
7. Magnús Jóhannsson, UMSE 82
8. Ægir Sigurgeirsson, USAH 79
9.-11. Atli Lilliendahl, HSK 77
9.-11. Hermann Jónsson, UMSE 77
9.-11. Gunnar Þór Magnússon, UÍÓ 77
12. Hjörleifur Ólafsson, HSK 74
13. Sævar Pálsson, UÍA 52
• Keppendur þurftu að sýna mikla akst-
urslagni í dráttarvélakeppninni.
• Vignir gerir klárt fyrir aksturinn.
Keppni í starfsíþróttum var hin skemmtilegasta
r