Morgunblaðið - 14.07.1981, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ1981
Stórsigur hjá Fram
FRAM var ekki i vandræðunt
með að siá KR út i bikarkeppni
KSÍ, er félöKÍn mættust öðru
sinni á laugardaginn. Fyrri leik-
ur liðanna endaði 1 — 1, en á
lauKarda^inn héldu Fram engin
bönd. lokatölurnar urðu 4 — 1 oj?
hefði talan þess veiína xetað
verið tvöföld áður en yfir lauk.
Framarar léku á köflum prýði-
le>fa, en hetja liðsins var Halldór
Arason. Ekki nóg með að hann
skoraði sín fyrstu mörk fyrir
Fram. heldur lét hann sér ekki
nægja færri mörk en þrjú talsins.
Fjórða markið skoraði Guðmund-
ur Steinsson og ætti að vera
þunjfu farjfi af honum létt, þvi
illa hefur gengið |,já honum að
undanförnu. Eina mark KR skor-
aði Jósteinn Einarsson. Á með-
fylgjandi mynd Bjarna Friðriks-
sonar má sjá Halldór (lengst til
hægri) skora eitt af mörkum
sinum.
Tvö dýrmæt stig
í stækkandi safn KA
- liöiö sigraöi ÍBV í grófum leik
sigraói
örugglega
3—1
ÓVÆNT úrslit urðu í leik pressu-
liðsins ok landsliðsins i knatt-
spyrnu á LauKardalsvellinum f
Kærkvöldi. Lið pressunnar sÍKr-
aði með þremur mörkum KCKn
einu. í hálfleik var staðan 20
fyrir pressuliðið.
Öll mörk pressuliðsins skoraði
einn og sami maðurinn, Hilmar
Sighvatsson úr Val, en mark
landsliðsins skoraði Ragnar Mar-
geirsson úr Keflavík. Hilmar átti
auk þess hörkuskot að markinu,
sem Akurnesingurinn Bjarni Sig-
urðsson varði af stakri snilld.
Sigur pressuliðsins gat hæglega
orðið enn stærri, miðað við gang
leiksins.
• Seb Coe
setti heimsmet.
TVÖ NÝ heimsmet litu dagsins
ljós á Bislett-leikunum i frjálsum
íþróttum sem haldnir voru i Osló
um helgina. Sebastian Coe frá
Bretlandi setti eitt þeirra i 1000
metra hlaupinu þrátt fyrir að fá
sbema blöðru á ilina í miðju
hlaupinu, en norska stúlkan
Ingrid Christiansen setti hitt í
5000 metra hlaupinu. Frægasta
hlaupakona Norðmanna, Grete
Waitz, varð að draga sig út úr
hlaupi þessu vegna meiðsla, en
Christiansen hélt uppi^ merki
Noregs svo um munaði. Árangur
á mótinu í heild var góður að
venju, enda margt frægra kepp-
enda.
Ingrid Christiansen hljóp í
skugganum af Grete Waitz allt
þar til að heimsmethafinn kunni
tognaði illa og varð að gefa eftir.
Náði Christiansen þar með foryst-
unni og efldist fremur en hitt,
glæsilegt heimsmet hennar hljóð-
aði upp á 15:28,43 mínútur. Það
liðu aðeins fimm mínútur þar til
að næsta og síðara heimsmet
leikanna var sett. Sebastian Coe
var þar á ferðinni í 1000 metra
hlaupinu. Sjötta heimsmet hans
utanhúss. Coe fékk sem fyrr segir
slæma blöðru á fótinn og dró
verulega af honum við það, heims-
met setti hann að vísu, en árang-
urinn hefði vafalaust orðið mun
betri ef hann hefði gengið heill til
skógar. Heimsmet Coes var 2:12,18
mínútur.
Fleiri frækileg afrek voru unn-
in, Edvin Moses frá Bandaríkjun-
um sigraði örugglega í 400 metra
grindahlaupi. Tími hans var 47,99.
Þar með hefur Moses sigrað 65
sinnum í röð í greininni, stórkost-
legur árangur það.
Breski ólympíumeistarinn í 100
metra hlaupi, Allan Wells, var
ekki borubrattur að þessu sinni,
langstökkvararnir bandarísku
Carl Lewis og James Stanford
skráðu sig í hlaupið og urðu báðir
á undan Wells. Lewis sigraði á
10,19 sekúndum.
Yvette Ray frá Bretlandi sigraði
í 400 metra grindahlaupi kvenna,
hljóp á 56,56 sekúndum, landar
hennar Debbie Skerritt og Mary
Appleby skipuðu sér í annað og
þriðja sætið. í 800 metra hlaupi
karla sigraði James Robinson frá
Bandaríkjunum á 1:44,95.
Finninn Pentti Siinesaari sigr-
aði í spjótkasti karla, lengsta kast
hans og sigurkastið var 89,42
metrar. Bob Rogby frá Bandaríkj-
unum varð annar með 88,88 metra
kast. Ungverjinn Miklos Nemeth
varð þriðji, besta kast hans var
85,18 metrar. í stangarstökki sigr-
aði Pólverjinn Klymszyk, hann
lyfti sér yfir 5,55 metra. Annar
varð Desrelles frá Belgíu með 5,40
metra.
Willy Banks frá Bandaríkjunum
kom nánast hlaupandi til keppn-
innar beint út úr flugvélinni og
svo móður var hann, að hann
ætlaði í fyrstu ekki að vera með.
En hann lét til leiðast og gerði sér
lítið fyrir og sigraði í þrístökkinu,
sigurstökkið 17,23 metrar. Tony
Darden frá Bandaríkjunum
tryggði Bandaríkjunum enn eitt
gullið, er hann sigraði í 400 metra
hlaupinu á 45,89 sekúndum. í
samsvarandi hlaupi í kvenna-
flokki sigraði breska stúlkan Joce-
lyn Hoyte, tími hennar var 51,83
sekúndur.
Steve Ovett, breski hlauparinn
kunni, sigraði örugglega í mílu-
hlaupinu og vakti gremju áhorf-
enda með því að hægja ferðina
mjöK greinilega undir lok hlaup-
sins, í stað þess að reyna við
heimsmet. Haft var eftir Ovett:
„Eg hafði engan áhuga á heims-
meti að þessu sinni, hugsaði að-
eins um að vinna hlaupið." Að-
spurður hvort hann hygðist bæta
heimsmetið síðar í sumar svaraði
Ovett stutt og laggott: „Ekki
spyrja heimskulegra spurninga."
Ovett sigraði sem fyrr segir, tími
hans var 3:49,29.
Loks má geta þess, að Finninn
Martti Vainio sigraði í 10.000
metra hlaupinu, tími hans var
27:45,50 mínútur.
KA SIGRAÐI ÍBV 1-0 í grófum
og tilþrifalitlum 1. deildarleik i
knattspyrnu á Akureyri á sunnu-
dagskvöldið. Sigurmarkið var
skorað tíu mínútum fyrir leiks-
lok, en áður höfðu bæði lið átt
stangarskot. Jafntefli hefði
kannski verið sanngjarnasta út-
koman, en KA-menn höfðu
heppnina með sér við mark and-
stæðinKsins. 1 hálfleik var staöan
0-0.
KA-menn voru sprækari fram-
an af og áttu þrjú góð færi á
fyrsta stundarfjórðunginum, Elm-
ar var tvívegis á ferðinni og
Gunnar Gíslason einu sinni. Páll
Pálmason varði tvívegis mjög vel,
sérstaklega síðari tiiraun Elmars,
sem hafði leikið á tvo varnarmenn
og lyfti knettinum laglega yfir
markvörðinn. Páll náði með
naumindum að slæma hendinni í
knöttinn og bjarga í horn. Leikur-
inn jafnaðist smám saman og
gerðist afar grófur, sérstaklega af
hálfu IBV. En Eyjamenn voru nær
því að skora, tvívegis nötruðu
Pressan
KA:ÍBV 1;0
stangirnar hjá KA, fyrst eftir skot
Kára Þorleifssonar á 26. mínútu
og síðan eftir skot Gústafs Bald-
vinssonar á 34. mínútu.
Á 51. mínútu var komið að KA
að hrista stangirnar hjá ÍBV,
Gunnar Blöndal fékk þá góða
sendingu að marki ÍBV og þrumu-
skot hans small í stönginni.
Nokkrum mínútum síðar fékk
Sigurlás Þorleifsson sannkallað
dauðafæri, komst einn að marki
KA, en mistókst hroðalega er
hann hugðist renna knettinum
fram hjá úthlaupandi markverð-
inum. Lási hitti knöttinn afar illa
og hann skoppaði fram hjá mark-
inu vita hættulaust. Sigurmarkið
kom á 80. mínútu, þvaga myndað-
ist í vítateig ÍBV, knötturinn barst
til Páls Pálmasonar í markinu, en
hann missti hann til Ásbjarnar
Björnssonar sem þakkaði kurteis-
lega fyrir sig og skoraði með föstu
skoti. Eyjamenn sóttu meira loka-
kaflann, en allt kom fyrir ekki,
1—0 urðu lokatölur leiksins.
I stuttu máli:
íslandsmótið 1. deild: KA-ÍBV
1-0 (0-0)
Mark KA: Ásbjörn Björnsson á 80.
mínútu.
Spjöld: Engin þrátt fyrir mörg
tilefni.
Áhorfendur: 1456
Dómari: Þóroddur Hjaltalín.
sor./gg.
• Ásbjörn Björnsson skoraði sigurmark KA.
Einkunnagjofin
Lið KA:
Aðalsteinn Jóhannsson 5
Guðjón Guðjónsson 6
Steinþór Þórarinsson 4
Erlingur Kristjánsson 5
Ilaraldur Ilaraldsson 5
Jóhann Jakobsson 6
Gunnar Gislason 6
Gunnar Blöndal 5
Elmar Geirsson 5
Hinrik Þórhallsson 4
Ásbjörn Björnsson 5
Lið ÍBV:
Páll Pálmason 6
Guðmundur Erlingsson 4
Viðar Eliasson 4
Þórður Hallgrimsson 5
Gústaf Baldvinsson 6
Snorri Rútsson 5
Illynur Stefánsson 4
Jóhann Georgsson 5
Sigurlás Þorleifsson 5
Kári Þorleifsson 6
Ingólfur Sveinsson 5
Jón bar sigur úr býtum
JÓN ÞÓR Gunnarsson sigraði á
Meistaramóti Akureyrar í golfi,
en mótið var haldið nyrðra um
helgina. Jón lék á 318 höggum og
hafði mikla yfirburði þar sem
næsti maður, Gunnar Þórðarson,
lék á 331 höggi. Þriðji varð Viðar
Þorsteinsson, hann lék á 336
höggum. í kvennaflokki sigraði
Inga Magnúsdóttir á 378 högg-
um, Jónina Pálsdóttir varð önnur
á 400 höggum.
Tvö glæsileg
heimsmet á Bislett