Morgunblaðið - 14.07.1981, Side 32

Morgunblaðið - 14.07.1981, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1981 Frá útifundinum við Bernhöftstorfu á laugardag þar sem mótmælt var framkvæmdum við útitafl. Ljósm. Ól.K.M. Um 130 keppendur á Skákþingi Norð- urlanda i Reykiavík SKÁKÞING Norðurlanda verður í ár haldið i Menntaskólanum við Hamrahlíð og hefst keppni i úrvalsflokki 23. júli og öðrum fiokkum 25. júli. Lýkur þinginu 3. ágúst. Auk úrvaísflokks verð- ur keppt í meistaraflokki, kvennaflokki og opnum flokki og er keppt um titilinn skákmeistari Norðurlanda í úrvals- og kvenna- flokkum. Dr. Ingimar Jónsson forseti Skáksambands íslands, sagði fjölda þátttakenda nú liggja nokk- uð ljóst fyrir, en í dag er síðasti dagur, sem Islendingar geta til- kynnt þátttöku sína á skrifstofu Skáksambandsins. Tólf keppa í úrvalsflokki, um 40 í meistara- flokki, 70 í opna flokknum og í kvennaflokki eru keppendur 8 til 9. Meðal keppenda í úrvalsflokkn- um eru stórmeistararnir Guð- mundur Sigurjónsson og Finninn Rampanen og nokkrir alþjóðlegir meistarar, m.a. Helgi Olafsson, Karsten Hoi frá Danmörku, Ornstein frá Svíþjóð og Helmers frá Noregi. Þá á eftir að ganga frá því hver verður þriðji Islendingur- inn. í kvennaflokki keppa m.a. þær Sigurlaug Friðþjófsdóttir, Áslaug Kristinsdóttir, Ólöf Þrá- insdóttir og Birna Norðdahl, en Guðlaug Þorsteinsdóttir verður ekki með í þetta sinn. Hún hefur þrisvar orðið skákmeistari Norð- urlanda í kvennaflokki. Af öðrum íslendingum, sem orðið hafa Norðurlandameistarar, má nefna Baldur Möller og Friðrik Ólafsson, sem orðið hafa það tvisvar, Inga R. Jóhannsson og Freystein Þor- bergsson. Skákþing Norðurlanda er nú haldið í 80. sinn og í 4. sinn hérle'ndis, fyrst var það árið 1950. Framkvæmdum við útitafl mótmælt Evrópumótið í bridge: Léleg byrjun hjá íslenzka liðinu Á ÚTIFUNDI á Bernhöíts- toríu í Reykjavík sl. laugar- dag var mótmælt nýlega höfn- um framkvæmdum við útitafl sem Reykjavíkurborg ráðger- ir að þar verði sett niður. Þorsteinn Ö. Stephensen leik- ari. einn fundarboðenda, tjáði Mhl. i gær að fundarmönnum hefði verið gefinn kostur á að skrifa undir mótmæli gegn þessum framkvæmdum og er þess krafizt að grasbrekkan framan við húsin verði þegar sett á sinn stað og sagði Þorsteinn hundruð manna þegar hafa ritað nöfn sín á lista. Fundurinn stóð í um klukku- stund á laugardag og fluttu ávörp auk Þorsteins þau Edda Þórarinsdóttir og Sigurður A. Magnússon. Sagði Þorsteinn í öllum ávörpum hafa komið fram hörð mótmæli gegn þess- um framkvæmdum og einkum hefði hann átalið borgaryfir- völd fyrir að pukrast með þessi mál og láta engan vita fyrr en graftólunum var skellt í brekk- una, eins og Þorsteinn komst að orði. I dag er síðasti dagur, sem hægt er að rita nöfn sín á mótmælalista, en texti þeirra hljóðar þannig: „Við undirrituð mótmælum eindregið þeim skemmdarverkum, sem nú er verið að vinna á Bernhöfts- torfu, með því að útrýma þar grasi og gróðurmold, en setja í staðinn taflborð úr stein- steypu. Við krefjumst þess að ásýnd Bernhöftstorfunnar, grasbrekkan framan við húsin, verði aftur sett á sinn stað, og öliu grjóti verði útrýmt þaðan nú þegar." EVRÓPUMÓTIÐ I bridge hófst sl. sunnudag í Birmingham á Eng- landi. 18 þjóóir mættu til leiks og veröa spilaðir 40 spila leikir milli þjóða. Spilaður verður IV2 leikur á dag eða 60 spil. í islenska landslið- inu eru Örn Arnórsson, Sævar Þorbjörnsson, Guðmundur Sv. Hermannsson, Guðlaugur R. Jó- hannsson. Þorgeir Eyjólfsson og Björn Eysteinsson. í fyrstu umferð spilaði íslenzka liðið gegn Norðmönnum og tapaðist leikurinn 19— Vfc. Islenzka liðið fékk 'k stig í sekt fyrir að telja ekki spil úr bakka. Á sunnudagskvöldið var síðan spilaður fyrri hálfleikur við ítali og varð liðið undir í þeirri viðureign en síðari hluti leiksins var spilaður í gærkvöldi. í gærdag var spilað gegn Luxemburg. Frakkar og Norðmenn voru efstir eftir fyrstu umferðina með 19 stig en Ungverjar og Svíar með 16 stig. Súr mjólk í Reykjavík: „Nú styttum við sölu- tímann um einn dag“ - sagði forstjóri Mjólkursamsölunnar UNDANFARIÐ hafa Neytendasamtökunum borist fjölmargar kvart- anir vegna þess að nýmjólk og nýmjólkurafurðir voru óhæfar til neyslu þó að samkvæmt dagstimplun mjólkurstöðva væri ekki komið að síöasta söludegi. Kvartanir eru það margar að áliti Neytendasamtakanna að þau krefjast þess nú 1. að settum reglum um dagstimplun mjólkurafuröa verði fylgt og skora á viðkomandi yfirvöld að hlutast til um það. 2. að gamalli mjólk frá framleiðendum sé ekki blandað saman við nýja mjólk og seld sem „nýmjólk“, 3. að ýtrustu hollustuhátta sé gætt við vinnslu og dreifingu mjólkur og mjólkurafurða eins og lög mæla fyrir, 4. að afnumdar verði allar undanþágur um dagstimplun mjólkur. Blaðamaður Mbl. hafði sam- band við Jóhannes Gunnarsson hjá Neytendasamtökunum og sagði hann að þessir fjórir punkt- ar sem nefndir væru og þá sérstaklega númer eitt og fjögur, væru mjög mikilvægir. Það er mjög mikilvægt að Mjólkursam- salan hlíti reglum um dagstimpl- un, en fari ekki eftir geðþótta sínum að ákveða hvað stimpla skal langt mjólkurafurðir. Síðan er þungamiðjan að afnumdar verði allar undanþáguar um dagstimplun mjólkurinnar. Nú er í gildi reglugerð um mjólk og mjólkurafurðir frá árunum 1973 þar sem kveðið er á um að nýmjólk og nýmjólkurafurðir megi stimpla þrjá daga fram í tímann. Síðan fengu mjólkur- samlögin undanþágu frá þessu á sínum tíma, og eftir því sem ég kemst næst eftir viðtöl við heil- brigðiseftirlit ríkisins og heil- brigðisráðuneytið, þá munu þeir hafa undanþágu til að stimpla fjóra daga fram í tímann. En eftir þvi sem mér skilst, telur Mjólkur- samsalan sig hafa undanþágu til fimm daga stimplunar. Við gerum þá skýlausu kröfu, að þegar mjólk er orðin súr einum til tveimur dögum áður en síðasti söludagur rennur upp verði hún að sjálf- sögðu dregin til baka. Og engar undanþágur veittar. Mjólkursamlög eða Mjólkursam- salan yrðu í þessu tilviki að vinna mjólkina með þannig markmiði að mjólkin væri heil þegar hún kæmist á borð neytenda en ekki hvað væri hagkvæmast fyrir sam- söluna sjálfa. Við teljum að gæði mjólkurinnar séu númer eitt, en einhvers staðar mun aftar í röð- inni komi hvernig hagkvæmast sé fyrir samsöiuna að vinna mjólkina. — Teljið þið þá að smásöluaðil- ar eigi enga sök á þessum kvört- unum yfir mjólkinni og mjólkur- afurðum? Ég lnyndi telja mjög eðlilegt að allur ferill mjólkurinnar allt frá því að kýrnar eru mjólkaðar og þar til mjólkin kemur í hendur neytenda verði rannsakaður í kjölfar þessara atburða. Mér fyndist mjög eðlilegt að heilbrigð- iseftirlitið hér í Reykjavík rann- sakaði m.a. hvernig kæliaðstaðan væri í verzlunum, hvort kælar séu nógu stórir til að geta tekið á móti ákveðnu magni af t.d. mjólk. En þegar kvartanir koma hvað- anæva að úr Reykjavík, alveg óháð því hvað verzlunin heitir, hljótum við að álykta að þetta sé fyrst og fremst sök framleiðenda, þá Mjólkursamsölunnar, en þó getur ein og ein verzlun spilað inn í ef kæliaðstaða er ekki nægjan- leg, en á þessu verður heilbrigðis- eftirlitið að gera úttekt. Það er held ég út í hött að kenna smásöluaðilum um þetta þar sem við erum um ieið að segja að allir smásölueigendur brjóti lög um kæliaðstöðu og að heilbrigðiseft- irlit sé ekki til á Reykjavíkur- svæðinu. Blaðamaður hafði einnig sam- band við forstjóra Mjólkursam- sölunnar, Guðlaug Björgvinsson, og spurði hann álits á kröfum Neytendasamtakanna hvað varð- ar mjólkur- og mjólkurafurðir. Sagði Guðlaugur að fundur hefði verið boðaður af hálfu heilbrigðisráðuneytisins í gær og þá var þetta útkljáð með dag- stimplunina. Aðalreglan hefur verið sú að mjólkin hefur verið stimpluð þrjá daga fram í tímann, og síðan hefur Mjólkursamsalan fengið undanþágur um helgar til að stimpla mjólkina lengur. Núna þegar fór að bera á hve lélegt geymsluþol mjólkin hefur, þá styttum við sölufrestinn um einn dag, þannig að það er þessi þriggja daga regla sem er í gangi nema á fimmtudögum og föstu- dögum, þá stimplum við einn dag til viðbótar og það er heimilað af heilbrigðisráðuneytinu. — Það er þá aldrei stimplað upp í fimm daga fram í tímann? Það var gert í vetur þegar mjólkin hafði nægjanlegt geymsluþol. En aftur á móti í sambandi við hvort gamalli mjólk sé blandað saman við nýja mjólk eru ákveðnar reglur um það í mjólkurreglugerð, hversu gömul mjólkin megi vera og það er farið eftir því, sem ég best veit, hjá öllum mjólkurbúum. Sérstaklega er farið eftir því núna yfir sumartímann þegar færð hamlar ekki. Mjólk er sótt til framleiðenda annan hvern dag þannig að ég held að það sé ekki vandamálið. Við höfum ávallt haft það að leiðarljósi að framleiða góða vöru og reynt að gera neytendum til hæfis þó að við eigum við þetta vandamál að stríða núna. Hvernig stimplunin er hjá Mjólkursamsölunni skiptir í raun og veru ekki máli fyrir hana hvað varðar hagkvæmni. Á hverjum degi er farið í hverja einustu verzlun með vörur og oftar stund- um. Þetta er eingöngu gert til þess að neytendur kaupi vöruna úti í verzlununum að það eru eiginlega kaupmenn og neytendur sem verða að hafa þetta svigrúm í stimplun.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.