Morgunblaðið - 14.07.1981, Qupperneq 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1981
ínsœldarlistar
ÍSLAND
TOPP 12
1 1 STARS ON 45 ................ Star Sound
2 2 SUMARGLEÐIN SYNGUR ........ Sumargleðin
3. - JOURNEY TO GLORY ........ Spandau Ballet
4 3 DEIÓ ........................... Laddi
5 5 SOMEWHERE IN ENGLAND ... George Harrison
6 4 TÓNAR UM ÁSTINA ..... Richard Clayderman
7 12 JACK MAGNET ........... Jakob Magnússon
8 - COMPUTER WORLD .............. Kraftwerk
9 11 COME AN’ GET IT ............ Whitesnake
10 - í BRÓÐERNI ...... Gísli og Arnþór Helgasynir
11 8 TRAUMEREI ............ Richard Clayderman
12 - MISTAKEN IDENTITY ........... Kim Carnes
BRETLAND
Stórar plötur
1 3 DISCO DAZE & DISCO NITES . Ýmsir (Ronco)
2 2 STARS ON 45 .............. Star Sound
3 1 NO SLEEP TILL HAMMERSMITH . Motorhead
4 - LOVE SONGS ............... Cliff Richard
5 5 ANTHEM ...................... Toyah
6 - SECRET COMBINATION .... Randy Crawford
7 4 PRESENT ARMS ................. UB40
8 8 KINGS OF THE WILD FRONTIER Adam & The Ants
9 7 JU JU ............ Siouxie & The Banshees
10 10 FACE VALUE ................ Phil Collins
Litlar plötur
1 1 ONE DAY IN YOUR LIFE ........ Michael Jackson
2 6 GHOST TOWN ......................... Specials
3 - CAN CAN ....................... Bad Manners
4 5 GOING BACK TO OUR ROOTS .......... Oddyssey
5 2 BEING WITH YOU ............ Smokey Robinson
6 9 MEMORY ......................... Elaine Paige
7 - BODY TALK ....................... Imagination
8 3 MORE THAN IN LOVE .... Kate Robbins & Beyond
9 4 TEDDY BEAR ...................... Red Sovine
10 7 HOW ’BOUT US .................... Champaign
Tenpole Tudor er bresk hljóm-
sveit sem gaf út sína fyrstu
hreiðskífu fyrir nokkrum mánuð-
um. Skömmu síðar kom lítil plata
með lagi sem sett var á stóru
plötuna. rétt áður en hún kom út,
„Swords of a Thousand Men“.
Eins og flestir vita þá varð lagið
feikivinsælt og myndband með
þessu lagi var flutt í sjónvarpinu
hér. Breiðskífan, sem heitir
„Eddie, Bob, Dick og Gary“ var
fyrir nokkru „gefin út“ á Islandi, Á
plötunni eru 13 bráðhress lög í stíl
poppaðari Rolling Stones laganna
(þ.e. af þeirra allra fyrstu plötum),
enda eru Rollingarnir í miklu
uppáhaldi hjá þeim og meira að
segja er haft eftir Eddie Tudor, að
léleg Stones plata sé betri en engin
Stones plata!
En þessi samlíking er þó engann
veginn fullnægjandi. Tenpole Tu-
dor ganga nefnilega fyrst og
fremst fyrir húmor og léttleika.
Enda er tónlistinni best lýst sem
ærslum. Allt spil er einfalt og
útsetningarnar líka. Söngurinn er
óheftur og taka Bob, Dick og Gary
óspart undir með forsöngvara sín-
um Eddie.
Þó að „Swords Of A Thousand
Men“ sé það lag sem vinsældanna
hefur notið eru nokkur lög sem
vert er að minnast á í sömu andrá.
„There Are Boys“, „Wunderbar",
sem verður á næstu smáskífu, og
„Three Bells In A Row“ sem var á
fyrstu skífu þeirra, eru allt ágæt-
islög.
Stars On 45-plöturnar, bæði
sú litla og sú stóra, hafa notið
gífurlegra vinsælda um ger-
vallan heim undanfarnar vikur
og ekki síst hérlendis. í kjölfar
vinsælda „Bítlasyrpunnar"
hefur Jaap Eggermont nú
brætt saman nýja syrpu sem
hann kallar „Stars on 45,
Volume 2“.
í þessari syrpu eru flutt
nokkur vinsælustu Iög Abba.
Platan kemur bæði sem venju-
leg Htil 7-tommu plata og sem
12-tommu plata, með eitthvað
fleiri lagabútum.
Meðal laga í Abba-syrpunni
eru: Fernando — Money Money
Money — SOS — Knowing Me
Knowing Yóu — Voulez Vous
— Super Trouper — The Winn-
er Takes It AIl.
Meðfylgjandi mynd er af
Jaap Eggermont sem á veg og
vanda að „Stars On 45".
Stars
on
45
volume
2!
BANDARÍKIN
Stórar plötur
1 1 MISTAKEN IDENTITY ............ Kim Carnes
2 2HI INFIDELITY ............ REO Speedwagon
3 5 LONG DISTANCE VOYAGER .....: Moody Blues
4 4 PARADISE THEATRE ................. Styx
5 3 DIRTY DEEDS DONE DIRT CHEAP ...... AC/DC
6 6 HARD PROMISES Tom Petty & The Heartbreakers
7 7 FACE VALUE ................... Phil Collins
8 - STREET SONGS ................. Rick James
9 10 STARS ON LONG PLAY ..... Stars on Long Play
10 9 ZEBOP .......................... Santana
Litlar plötur
1 1 BETTE DAVIS EYES ............. Kim Carnes
2 2 ALL THOSE YEARS AGO ....... George Harrison
3 3 THE ONE THAT YOU LOVE .......... Air Supply
4 4 JESSIE’S GIRL ............. Rick Springfield
5 5 YOU MAKE MY DREAMS . Daryl Hall & John Oates
6 6 ELVIRA .................... Oak Ridge Boys
7 7 STARS ON 45 .................. Stars On 45
8 9 THE THEME THE AMERICAN GREATEST HERO
........................... Joey Scarbury
9 10 I DON’T NEED YOU ......... Kenny Rogers
10 - SLOW HAND ................. Pointer Sisters
Misjöfn hljóö í Höllinni
Hljómleikarnir i Laugardalshöllinni hafa verið nokkuð umræddir i
fjölmiðlum i vikunni vegna þess sem miður fór. En það atriði vegur þó
ekki stærst, heldur það, að á þessum hljómleikum fengu margar
hljómsveitir að sýna getu sina, sem annars heíðu átt erfitt með það.
Það fer ekki á milli mála að mikið af ungmennum eru að stofna
hljómsveitir og byrja að spila um þessar mundir. Slíkt hefur reyndar oft
gerst áður, en möguleikarnir virðast vera meiri í dag til þess að slíkar
hljómsveitir fái að láta í sér heyra. Þetta hefur orðið til þess að
hljómsveitir hafa komið fram sem engan veginn hafa verið tilbúnar til þess
og má segja það um næstum helming þeirra hljómsveita sem fram komu í
Höllinni föstudagskvöldið 3. júlí sl.
Hljómleikarnir voru haldnir á tveimur sviðum, aðalsviðinu og öðru litlu
til hliðar við það. Skiptingar milli hljómsveita tókust nokkuð blessunarlega
en hljóðstjórnin var ekki jafn góð allan tímann, og komu verri hljóðin
sérstaklega frá litla sviðinu.
„Stóru" hljómsveitirnar Þeyr, Fræbbblarnir, Bara-Flokkurinn og
Taugadeildin báru af, þó Þeyr og Fræbbblarnir hafi sést betri í annan tíma,
en Taugadeildin bætti framlag sitt um mun frá fyrri hljómleikum.
Af nýrri hljómsveitum voru Spilafíflin öruggust, enda engir nýgræð-
ingar á ferð, heldur nýtt nafn og ný tónlist fyrir hljómsveitina Fimm.
Sævar Sverrisson, söngvari þeirra, er lipur sviðsmaður og virðist geta
þanið raddböndin duglega.
Exodus var skipuð mjög ungum strákum sem spiluðu ágætlega. Einfalt
og grundvallandi.
Boxið frá Keflavík var nokkuð samstillt band, en sonur Rúnars
Júlíussonar syngur og spilar á hljómborð í hljómsveitinni.
Aðrar hljómsveitir áttu sína ágætu punkta og nokkra efnilega
hljóðfæraleikara, en voru annars á byrjunarbrautinni, og sumar jafnvel
hörmulegar. hia