Morgunblaðið - 14.07.1981, Page 45

Morgunblaðið - 14.07.1981, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1981 45 Kristilegt mót KFUM í Vatnaskógi: Ljós í þjóðlífi Það var verulega gaman og mikil upplyfting að vera á mófi KFUM í Vatnaskógi dagana 26. til 28. júní sl., en þar eru kristileg mót árlega seinast í júnímánuði. Þarna mætast ungir og gamlir til að lofa, þakka og vegsama frelsara sinn og þarna er ekkert kynslóða- bil, sem alltaf er verið að tönnlast á. Þetta mót byrjar venjulega á föstudagskvöldi og lýkur seint á sunnudagskvöldi. Þar eru guðs- þjónustur og samkomur, söngur og gleði, því hún fylgir þeim ríkulega sem hafa öðlast trú á frelsarann. Þá hefir Vatnaskógur það til síns ágætis, fyrir utan gróður og fagurt umhverfi, að hann er úr þjóðbraut og útilokar allan skark- ala. Þar eru menn í nýrri veröld ef svo mætti að orði kveða. Aðstaða þarna öll er hin ákjós- anlegasta, svefnskálar, matar- skálar með þægindum og tilheyr- andi og síðast en ekki síst hefir stór samkomuskáli leyst sam- komutjaldið af hólmi. Það er undravert hversu KFUM hefir komið öllu þarna fyrir og gert margt fyrir staðinn. Er þetta sjálfboðastarf og framlög vina starfsins. Þá eru þarna á sumrin sumarbúðir fyrir drengi sem byggja þá upp til átaka í villu- gjarnri veröld. Það sem mér fannst einkenna þetta mót var skari ungmenna sem setti á það mikinn svip. Syngjandi æska, lofandi drottin og dýrð hans. Ósjálfrátt varð mér á að bera saman þessar samkomur og þær sem æskulýð þessa lands er boðið upp á í hverri viku um allt land með tilheyrandi hljómsveit- um og öllu því sem þeim skarkala fylgir, freistingum sem hafa sínar afleiðingar. Bera menjar ... Nei, hér þarf unga fólkið ekki að sofa vímuna úr sér daginn eftir. Til samkomanna var vandað, úrvals fólk með efni til íhugunar og margt tók huga minn. Þó held ég að einna ríkust áhrifin hafi verið eftir að hlusta á Jóhannes Ólafsson lækni og kristniboða segja frá starfinu úti í vanþróuðu löndunum þar sem hann hefir starfað, ásamt öðrum kristniboð- um. Það er aðdáunarvert hve miklu íslenska kristniboðið hefur áorkað þar og sérstaklega þegar tillit er tekið til fjárhagsmögu- leika en þetta kristniboð hefir frá öndverðu verið rekið fyrir sam- skotafé einstaklinga hér á landi. Þarna hefir fjármunum verið vel varið, og sýna verkin merkin. Þarna er verkefni fyrir alla góða og hugsandi Islendinga. Neyðin er mikil. Og þeir sem styrkja þessa starfsemi fá það ríkulega endur- goldið í þeim fjársjóði sem ekkert getur grandað, gleðinni yfir að geta gert gagn og hjálpað með- bróður sínum. Við eigum besta land í heimi, ef við bregðumst því ekki með þind- arlausri kröfugerð, bregst það okkur ekki. Munum að við erum ekki ein í heiminum. Ég vildi því minna landsmenn á þetta kjörna tækifæri til að láta gott af sér leiða og í raun og sannleika vill það hver maður. Vatnaskógur og samkomurnar gleymast engum sem þangað sæk- ir sína andlegu blessun og vonandi fjölgar þeim sem þangað leita. Árni Helgason. listform ryðji sér braut að nýju. En mættum við fá meira að heyra, eins og segir í gamalli þjóðvísu. Utvarpið á í segul- bandasafni sínu ótrúlega mik- ið af söngefni af þessu tagi. Einnig mun eitthvað vera til á 78 snúninga plötum. Ég nefni sem flytjendur Bjarna Böðv- arsson, Alfreð Andrésson, Harald Á. Sigurðsson, Her- mann Guðmundsson, Soffíu Karlsdóttur og Harald Björnsson. Það þarf ekki að taka það fram eftir slíka upptalningu að efni það sem hér um ræðir gefur í engu eftir því sem þegar er útkom- ið. Sannast enn einu sinni að listin er löng en lífið er stutt. Frá sjónarmiði leikmanna eru hljóðgæði efnis þessa slík að varla þarf að kosta miklu til að gera útgáfu þess að veruleika. Svavar, hingað til hefur heii tylft hafnfirskra ljósastaura ekki stöðvað þig á útgáfuferli þínum. Þú nærð upp í þá alla. Hvað með þennan? Guðni Björgúlfsson Þessir hringdu . . . Er læknirinn í sjúkrasamlagi? Móðir utan af landi hringdi og hafði eftirfarandi sögu að segja: „Fyrir stuttu uppgötvaðist að barn- ið mitt hefði skakka hæla og plattfót. Ég pantaði tíma hjá lækni hér í borginni. Eftir aðeins um stundarfjórðung eftir áætlaðan tíma komumst við að. Ég tók barnið úr skóm og sokkum og set það upp á borð þar sem fætur þess eru mældir. Það tók varla meira en 15 sekúndur. Á meðan ég klæddi barnið í aftur skrifaði læknirinn beiðni í sambandi við að fá smíðuð innlegg. Ég spyr hvað þetta kosti og dreg upp fimmtíu króna seðil, en þá verður læknirinn dálítið vand- ræðalegur og segir að þetta kosti nú tvöhundruð krónur, að hann sé ekki í sjúkrasamlagi og þetta sé svipað og hjá tannlæknum og afsakaði sig mjög mikið. Ég greiddi þetta möglunarlaust og ákvað að reyna að fá endurgreitt frá sjúkra- samlaginu en þar er mér sagt að þessi læknir og nokkrir aðrir starfi fyrir utan sjúkrasamlag. Mér finnst að það þurfi að vara mann við svona nokkru. Ég var með tilvísun, en hann vildi ekki taka við henni. Ef ég hefði farið til einhvers læknis í sjúkrasamlagi hefði ég ekki þurft að borga þessi ósköp. Þess vegna vil ég benda fólki á að spyrja áður en það pantar tíma, hvort læknirinn sé í sjúkra- samlagi." Gætu þeir lifað á þessu? Eldri borgari hringdi og beindi þeirri fyrirspurn til forráðamanna þjóðarinnar, sem ráða málefnum eins og ellilífeyri, hvort þeir treystu sér til að lifa af þriggja daga vinnu á mánuði. „Getur nokk- ur maður dregið fram lífið á þessari hungurlús? Þeir ættu að re.vna það sem stjórna þessum málum og sjá hvernig þeim gengi það. Getur nokkur hætt að vinna með þennan lága ellilífeyri? Er þetta ekki orðið til skammar? Svo er að sjá sem ellilífeyrir fylgi ekki neinni dýrtíð, það er engu líkara en verðbólgan hafi brennt upp þessa peninga sem við höfum alla ævi verið að leggja í lífeyris- sjóð. Er þetta ekki orðið eins og með ljósmóðurina á Álftanesi sem fékk úr lífeyrissjóði — hún átti að fá 170 kr. á mánuði þá en hún fékk eina krónu og sjötíu og fimm aura? En mig langar til að koma þeirri fyrirspurn á framfæri við þá sem ráða þessum málum. Gætu þeir sjálfir dregið fram lífið á þessum peningum?" Þaö er orka og kraftur sem kemur aftur og aftur meö Júnó ís. Viö bjóöum ís, shake, heitt kakó, pylsur, gosdrykki, samlokur, hamborgara, pizzur, sælgæti og tóbak. Nýtt frá Pinto fisléttir 4470 Dökkbrúnt, Ijósbrúnt, Ijósblátt skinn. No: 36—42. Verö frá kr. 274.- 4485 Dökkbrúnt, Ijósblátt skinn. Nr. 39—45. Verð frá kr. 229.- 4441 Brúnt, beige skinn. No: 36—42. Verö frá kr. 287.- 4460 4467 Dökkblátt, vínrautt skinn. No: 36—41. Verö frá kr. 278.- Dökkbrúnt, beige skinn. No: 40—46. Verö frá kr. 229.- 4445 Vínrautt skinn. No: 40—48. Verö frá kr. 274.- 4452 Vínrautt skinn. No: 40—48. Verö frá kr. 337.- Póstsendum samdægurs Egilsgötu 3, sími 18519.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.