Morgunblaðið - 10.12.1981, Page 1
48 SIÐUR MEÐ MYNDASÖGUBLAÐI
271. tbl. 68. árg.
FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1981
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Leiðtogar Samstöðu
og kirkju ræðast við
Varsjá, 9. desember. AP.
LECH Walesa og sex adrir
hinna óháðu verkalýðsfélaga
tíma fund með Jozef Glemp
ólsku kirkjunnar í landinu.
Póllandi undanfarna daga m
fjölmiðla á Samstöðu.
Orðrómur var á kreiki um það
í Varsjá í dag, að Walesa,
Glemp erkibiskup og Jaruzelski
forsætisráðherra og leiðtogi
kommúnistaflokksins, myndu
eiga með sér fund í kvöld eða
leiðtogar Samstöðu, samtaka
í Póllandi, áttu í dag fjögurra
erkibiskupi og yfirmanni kaþ-
Vaxandi spenna hefur verið í
a. vegna hertra árása opinberra
fyrramálið. Glemp hefur skrif-
að bæði Walesa og Jaruzelski og
lagt að þeim að taka upp við-
ræður og sneiða hjá opinberum
deilum.
Hin opinbera fréttastofa
Austur-Þýzkalands sagði í dag
að leiðtogar Samstöðu hefðu
þjálfað sérstakar „stormsveit-
ir“, sem ætlað væri að efna til
uppþota og jafnframt halda aga
innan Samstöðu.
Anker Jörgensen kemur af fundi Danadrottningar í gærmorgun.
(Símamvnd AP)
Ongþveiti framundan í
Andrew
prins segir
brandara
l.ondon 9. desember. AP.
ANDREW Bretaprins vann hug
og hjörtu viðstaddra, er hann hélt
snjalla ræðu á Hilton-hótelinu í
l.ondon í gærkvöldi, er þess var
minnzt aó 100 ár eru liðin síðan
íþróttakeppni var fyrst háð milli
háskólanna í ('ambridge og Ox-
ford.
Prinsinn flutti mál sitt undir
borðum. Sagði hann að hér væri
betra í boði en hefði verið hjá
mannætufeðgunum tveimur
sem voru á göngu í frumskógin-
um og komu auga á ljómandi
þekkilega unga stúlku. Andrew,
sem er kunnur að því að hafa
gott auga fyrir kvenfólki, hélt
síðan áfram: „Sonurinn sem
hafði ekki kynnzt lífinu að
marki sagði við karl föður sinn:
Líttu á hana pabbi, eigum við
ekki að taka hana með okkur
heim og hafa hana í hádegis-
mat? Faðirinn svaraði: Ég hef
betri uppástungu: Við skulum
fara með hana heim .. . og hafa
mömmu þína í hádegismatinn."
dönskum stjórnmálum
Kaupmannahöfn, 9. desember. AP og Ib Björnbak, fréttaritari Mbl.
ANKER Jergensen gekk í morgun á fund Margrétar Dana-
drottningar og sagði af sér fyrir sig og ráðuneyti sitt. Ríkis-
stjórn Jergensens mun sitja áfram til bráðabirgða þar til ný
stjórn hefur verið mynduð. Allt bendir til þess að mjög erfið
stjórnarkreppa sé framundan í Danmörku. Leiðtogar annarra
stjórnmálaflokka en jafnaðarmanna ganga á fund drottn-
ingar á morgun, fimmtudag, og munu þeir ráðleggja henni
um hverjum veita beri stjórnarmyndunarumboð. Búizt er við
að Jergensen reyni fyrst að mynda nýja ríkisstjórn, þótt
flokkur hans hafi tapað níu þingsætum og aðeins fengið
32,9% atkvæða og 59 menn kjörna. Flokkurinn hafði áður
fylgi 38,3% kjósenda.
Danski íhaldsflokkurinn fékk
14,4% atkvæða og 26 þingmenn
en hafði 22 menn áður. Bætti
flokkurinn við sig 1,9% atkvæða
sem er mun minna en búist var
við. Frjálslyndi flokkurinn,
Venstre, missti einn mann, fékk
21 þingmann og 11,3% atkvæða.
Sósíalíski þjóðarflokkurinn fékk
sama hlutfall atkvæða og 20
menn kjörna, bætti við sig 9 þing-
mönnum. Framfaraflokkurinn
fékk 16 þingmenn, tapaði fjórum
mönnum og fékk 8,9% atkvæða.
Miðdemókratar fjölguðu þing-
mönnum sínum úr 6 í 15 og fengu
8,3% atkvæða. Radikali vinstri
flokkurinn, sem or íriðflokkur,
missti einn þingmann og fékk 9
menn kjörna. Vinstri sósíalistar
og kristilegi þjóðarflokkurinn
töpuðu einnig einum manni hvor-
ir og fengu 5 og 4 menn kjörna
hvorir um sig. Réttarsambandið
tapaði öllum fimm þingmönnum
sínum.
Dönsku blöðin eru sammála
um það í dag, að kosningaúrslitin
kunni að leiða til öngþveitis í
stjórnmálum í Danmörku, en
ljóst þykir að Anker Jorgensen
muni áfram gegna lykilhlutverki
l við að greiða úr flækjunni.
Jafnaðarmannaflokkurinn og
flokkarnir til vinstri við hann
hafa nú 84 þingmenn til samans,
en borgaraflokkarnir að Fram-
faraflokknum meðtöldum 82
þingsæti. Samtals þarf 90 þing-
sæti til að hafa meirihluta í
danska þinginu. Afstaða Rad-
ikala vinstri flokksins mun því
geta ráðið úrslitum, en leiðtogar
hans hafa lýst því yfir að þeir
geti hvorki starfað með Sósíal-
íska þjóðarflokknum né Fram-
faraflokknum.
Utilokað er talið að jafnaðar-
menn og borgaralegu flokkarnir
geti starfað saman og því helzt
talið að annað hvört jafnaðar-
menn eða nokkrir borgaraflokk-
anna reyni að mynda minnihluta-
stjórn. Thomas Nielsen, forseti
danska alþýðusambandsins, LO,
hefur sagt að hann sé andvígur
nýrri minnihlutastjórn jafnað-
armanna.
Búizt er við því, að ný stjórn
verði ekki langlíf og að boðað
verði til nýrra kosninga áður en
langt um líður, jafnvel innan 18
mánaða. Tæplega 83% kjósenda
neyttu atkvæðisréttar síns í
kosningunum í Danmörku.
Fær Liza Alexeyeva að fara úr landi?
Líbýska vélin lent í
Beirut í þriðja sinn
lU'irul. 9. dosombtT. AP.
LÍBÝSKA flugvélin, sem rænt var yfir Ítalíu á mánudag, lenti
í kvöld á flugvellinum í Beirut í þriðja sinn frá því henni var
rænt. Kom vélin í þetta sinn frá Teheran, þar sem flugræn-
ingjarnir reyndu aö fá Khomeini trúarleiðtoga til liðsinnis við
sig.
Leiðtogi flugræningjanna sagði
þegar vélin lenti í Beirut í kvöld að
vélin væri komin á leiðarenda og
að ræningjarnir vildu að málinu
lyki án þess að neinn meiddist.
Moskvu, 9. dosombcr. AP.
SOVÉZKA leynilögreglan KGB tilkynnti Lizu Alexeyevu,
tengdadóttur Andrei Sakharovs í dag, að hún myndi fá að
fara úr landi og að Sakharov hjónin hefðu fallizt á að hætta
mótmælasvelti sínu. Skrifstofa sú, sem annast útgáfu vega-
bréfsáritana vegna flutnings til útlanda, kannaðist hins vegar
ekki við þessa ákvörðun, þegar Liza hafði samband við hana
í dag.
Liza Alexeyeva sagði vestræn-
um fréttamönnum að hún hefði í
dag verið kvödd á skrifstofu
KGB-foringjans Alexanders
Baranovs, sem hefði sagt sér að
hún fengi að flytja úr landi og að
tengdaforeldrar hennar hefðu
byrjað að neyta matar, þegar þau
fréttu um þessa ákvörðun. Bar-
anov hafi líka sagt, að Liza fengi
e.t.v. að heimsækja Sakharov-
hjónin í Gorky, en það væri komið
undir læknum þeim, sem nú önn-
uðust þau í sjúkrahúsi.
i V
Liza Alexeyeva
Liza sagði að Baranov hefði sagt
sér að brottför hennai* færi eftir
því hvernig hún hagaði samskipt-
um sínum við útlendinga, sér-
staklega vestræna fréttamenn, á
næstunni.
Genscher, utanríkisráðherra
V-Þýzkalands, fagnaði í dag frétt-
um um að Liza fengi að flytjast úr
landi og hitta eiginmann sinn í
Bandaríkjunum og talsmaður
Haigs, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, tók í sama streng. Sagði
hann Lizu velkomna til Bandaríkj-
anna.
Nokkrir skothvellir heyrðust þó
frá vélinni skömmu eftir að hún
var lent og er talið að ræningjarn-
ir hafi með þeim viljað bægja líb-
önskum og sýrlenzkum hermönn-
um frá vélinni. Vélinni var ekið út
á afskekktan brautarenda í kvöld
og umkringd, en þegar Mbl. fór í
prentun var ekki ljóst hvaða endi
málið myndi fá. Vélin stóð mjög
nærri íbúðarhverfi í Beirut, þar
sem nokkrir flugræningjanna og
stuðningsmenn þeirra búa. Hóp-
uðust stuðningsmennirnir að
flugbrautinni og hrópuðu vígorð
til stuðnings flugræningjunum.