Morgunblaðið - 10.12.1981, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 10.12.1981, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1981 Drög að samkomulagi rædd á fundi samninga- nefndar BSRB í dag FUNDIJR hefur verið bodaður í samninganefnd BSKB síddegis í dag, en fullskipuð telur nefndin um 60 manns. Til umræðu á fundinum verða drög að samkomulagi við ríkið um aðalkjarasamning BSKB til sex eða sjö mánaða. Samkvæmt því sem Morgunblaðið kemst næst var vilji beggja aðila fyrir því að ganga til samninga á grundvelli ASÍ-samkomu- lagsins, með 3,25% launahækkun frá „Seljum ekki rjúpu, því okkur blöskr- ar verðið“ „VID erum nokkrir verslunareig- endur, sem ætlum ekki að selja rjúpu í verslunum okkar fyrir jól- in, vegna þess að okkur blöskrar hið háa verð, sem er á rjúpunni núna, en verð til verslana er 50—55 krónur en útsöluverð 60—65 krónur og hefur því orðið rúm 100% hækkun á rjúpunni frá því í fyrra," sagði Hrafn Bach- mann eigandi Kjötmiðstöðvar „Með þessum aðgerðum okkar erum við að vonast til þess að rjúpan lækki í verði rétt fyrir hátíðir og verði þá á sanngjörnu verði, auk þess sem við viljum sporna við óeðlilegri verðhækkun sem þessari," sagði Hrafn Bachmann. 1. janúar, cn viðbrögð stóru samn- ingancfndarinnar ráða framhaldinu. Undanfarið hafa 8 fulltrúar BSRB og fulltrúar ríkisins rætt samningsgerð á grundvelli tilboðs fjármálaráðherra, sem kynnt var síðastliðinn föstudag. Langir fund- ir hafa verið haldnir síðustu daga og meðal annars verið farið yfir önnur atriði í kröfugerð BSRB, en beinar launakröfur. Lítið mun þó vera af þeim inni í hugmyndum um samkomulag, sem kynntar verða samninganefndinni í dag. Hins vegar er kveðið á um það í lögum, að í framhaldi af gerð aðal- kjarasamnings skuli hefjast um- ræður um sérkjarasamninga. Talsverð ókyrrð var í höfninni í Reykjavík í fyrrinótt vegna norðanáttarinn- ar, sem gekk yfir og sökkk trillan Sædís þar sem hún lá við bólfæri, en í gærmorgun var bátnum svo náð upp með krana. 50 vilja í þróunar- hjálp í S-Súdan Hjálparstofnun kirkjunnar auglýsti nýverið eftir fólki til starfa við þróun- arhjálp í SuðurSúdan, en í samvinnu við hjálparstofnun norsku kirkjunnar hefur Hjálparstofnunin tekið að sér þróunarverkefni þar. Auglýstar voru 11 stöður sérfræð- inga í landbúnaði og heilsugæslu. Nærri 50 umsóknir bárust og verða þær athugaðar næstu daga. Þess má geta að í Noregi sóttu 2.000 manns um stöðurnar þegar þær voru aug- lýstar þar. Nú er að fara í gang söfnun Hjálparstofnunarinnar, ASI og kaþólsku kirkjunnar á íslandi til styrktar Pólverjum og til þróun- arhjálpar í Súdan og Kenýa. Önnur fjárlagaumræða á mánudaginn: Tekjuáætlun fjárlagafrumvarps- ins hækkar um 149 milljónir kr. Sáttafundir með sjómönnum, BHM og mjólkurfræðingum KYKSTI fundurinn undir stjórn sátta- semjara ríkisins um samninga undir- manna á bátum og togurum var hald- inn í gærmorgun. Kröfur sjómanna voru kynntar og ákveðið að halda næsta fund á mánudag. Þá var í gær haldinn fundur hjá sáttasemjara um endurskoðunar- kröfu Bandalags háskólamanna, en bandalagið hefur farið fram á 4,25% grunnkaupshækkun frá 1. nóvember og miðar BHM þá við ASÍ-sam- komulagið. I dag klukkan 16 hefur verið boðaður fundur hjá sáttasemjara um samninga mjólkurfræðinga. TEKJUÁÆTLUN fjárlagafrumvarps ríkisstjórnarinnar fyrir árið 1982 mun hækka um 149 milljónir króna milli fyrstu og annarrar umræðu, samkvæmt hcimildum, sem Morgun- blaðið hefur aflað sér. Búist er við að önnur fjárlagaumræða fari fram á mánudag í næstu viku, en þriðja og Margeir í 2.—3. sæti MARGEIK Pétursson, sem nú teflir á alþjóðlegu móti í Ljubljana í Júgó- slavíu, er nú í 2.-3. sæti á mótinu, en í gær tapaði hann skák sinni fyrir Mensinger frá Júgóslavíu. í efsta sæti er Djuric og 2.-3. sætinu með Mar- geiri deilir Schnapic. I dag tefla þeir saman og hefur Margeir hvítt. síðasta umræða fjárlaga fer síðan alla jafna fram síðustu daga þings fyrir jólaleyfi alþingismanna. Tekjuáætlun fjárlagafrum- varpsins hljóðaði upphaflega upp á 7.799,3 milljónir króna, og sam- kvæmt því hefðu tekjur ríkisins hækkað um 41,4% frá fjárlögum ársins í ár, en að viðbættum 149 milljónunum nemur hækkunin milli áranna 1981 og 1982 44%, þegar tekjuáætlun fjárlagafrum- varpsins er komin úr 7.799,3 millj- ónutn kr. í 7.948,3 milljónir ný- króna. Fjárlagafrumvarpið er unnið út frá þeirri forsendu, að verðlags- breytingar milli ára nemi 33%, en það jafngildir því að áætlað er að verðbólga á næsta ári verði 25 til 27%, það er á tímabilinu 1. janúar 1982 til 1. janúar 1983. Rekstrar- liðir fjárlagafrumvarpsins hækk- uðu þó um 44,6%, og sem fyrr segir munu tekjur hækka um 44%, eða langt umfram verðlagsforsendurn- ar. Fjárfestingar og fjármagnstil- færslur hækka á hinn bóginn minna, sem þýðir með öðrum orð- um að minni hluti tekna ríkissjóðs fer í framkvæmdir og uppbygg- ingu, en vaxandi hluti í að reka hið opinbera kerfi. Sem fyrr segir er gert ráð fyrir að önnur umræða um fjárlög fari fram á mánudaginn kemur, og vinnur fjárveitinganefnd Alþingis nú að breytingum á frumvarpinu sem venja er til á daglegum fund- um sínum og fjölmargra sérfræð- inga hins opinbera og fleiri aðila. Bílasvik: Varðhald framlengt í G/EK var gæzluvarðhaldsúrskurður framlengdur til 21. desember yfir manni vegna umfangsmikils bíla- svikamáls, sem nú er í rannsókn hjá Kannsóknarlögreglu ríkisins. Alls Athugasemd frá Pálma Jónssyni Hr. ritstjóri. í Morgunblaðinu í gær, 9. des., er sagt frá umræðum utan dagskrár á Alþingi. I frásögn þessari er höfð eftir mér, innan gæsalappa, setning sem hlýtur að hafa orðið til hjá blaðinu sjálfu eða þingfréttaritara þess. Setning þessi gæti gefið í skyn að ég hafi ekki hugmynd um hvað fram fari innan ríkisstjórnarinnar eða á hennar vegum um efna- hagsmálin. Með tilliti til þessa óska ég eftir því að sá kafli ræðu minnar, sem var svar við fyrirspurn Geirs Hali- grímssonar um „væntanlegar efna- hagsaðgerðir, sem tilkynntar hafa verið í viðtölum við efnahagsnefnd- armenn?" verði birtur orðréttur: „I öðru lagi vil ég gera aths. við orðalag þeirrar fsp. sem ég las hér í 2. tölul. Eg veit ekki til þess að neinar væntanlegar efnahagsað- gerðir hafi verið tilkynntar í viðtöl- um við efnahagsmálanefndarmenn eins og fram kemur í fsp. sem mér var send, enda tæpast þeirra hlut- verk að gefa slíkar tilkynningar. Um þennan lið fsp. vil ég taka það fram efnislega, að ríkisstj. fylgist náið með framvindu efnahagsmála og á hennar vegum er unnið að sér- stökum athugunum á hinum ýmsu þáttum efnahagslífsins, m.a. af efnahagsmálanefnd. Á þessu stigi er á hinn bóginn ekki tímabært að gefa neinar yfirlýsingar um hugs- anlegar efnahagsaðgerðir á vegum ríkisstjórnarinnar, enda öll þau mál á umræðustigi. Ríkisstj. mun að sjálfsögðu gera Alþingi og þjóð- inni grein fyrir tillögum sínum og hugsanlegum aðgerðum í efna- hagsmálum á þeim tíma sem þær kunna að liggja fyrir.“ l’álmi Jónsson Aths. ritstj.: Vegna athugasemdar Pálma Jónssonar skal tekið fram, að gæsalappir þær, sem ráðherrann vísar til, urðu ekki til hjá þingfréttaritara blaðs- ins, heldur á síðara vinnslu- stigi. Er beðið velvirðingar á því. hafa þrír menn setið í gæzluvarðhaldi vegna þessa máls, en einum þeirra hefur verið sleppt úr haldi. Fyrir um þremur vikum barst RLR kæra vegna bílasvika. Utan- bæjarmaður hafði selt bíl og tekið við víxlum sem greiðslu. Þegar hann hugðist innheimta víxlana kom hann að tómum kofunum. Samþykkjendur reyndust eigna- lausir menn og víxlarnir verðlausir pappírar. Við rannsókn hefur mál- ið vaxið mjög að umsvifum og virð- ist ljóst, að nokkrir aðilar hafi skipulega haft með sér samstarf um bílasvik. Þessir aðilar fengu eignalausa menn til að skrifa upp á víxla, sem þeir síðan notuðu í viðskiptum. Þá fölsuðu þeir nöfn samþykkjenda á víxla. Þessa víxla létu þeir í skipt- um fyrir notaða bíla. Víxlar þessir eru einskis virði og ljóst, að margir hafa orðið fyrir fjárhagstjóni. Albert Guðmundsson: Neyðarhúsnædi á vegum borgarinnar ALBERT Guðmundsson, borgarráðsmadur Sjálfstæðisflokksins, hefur lagt fram í borgarráði tillögu þess efnis, að borgarstjóra verði falið að kanna hvort Félagsmálastofnun Keykjavíkurborgar eigi að ráða yfir íbúð eða ein- hvers konar húsaskjóli til þess að hýsa þá, sem á götunni standa, ef bruni eða önnur óhöpp henda borgarbúa. í tillögu Alberts er gert ráð fyrir að aðeins megi hýsa viðkomandi í stuttan tíma. sem kunna að verða kallaðir út á vegum borgarinnar til þess að leysa vandamál af þessu tagi viti að þeir hafi þennan möguleika. Ég tel mikla þörf á slíku athvarfi sagði Albert Guðmundsson en eins og um önnur neyðar- eða hjálpar- tæki þarf það að vera til staðar, þótt vonandi þurfi ekki að nota það. * Forseti Islands til Bretlands FORSETÁ íslands hefur verið boðið í opinbera heimsókn til Bretlands í boði brezku ríkis- stjórnarinnar á næsta ári. Ráð- gert er, að frú Vigdís Finnboga- dóttir fari í opinbera heimsókn dagana 17. til 19. febrúar. Er hér um sams konar heimsókn að ræða og þegar Ásgeir Ásgeirsson fór til Bretlands haustið 1963. í samtali við Morgunblaðið í gær, sagði Albert Guðmundsson, að ástæðan fyrir því að hann hefði lagt þessa tillögu fram, væri sú, að í ekkert hús væri að venda, ef fólk lenti í því óhappi að standa á göt- unni. Nú nýlega varð ég áhorfandi að bruna á Óðinsgötu um hánótt og þá var það eldri maður, sem slapp út úr húsinu á sokkum og skyrtu einum saman svo og kona með ung börn. Þá datt mér í hug að endurflytja tillögu, sem ég áður hafði flutt í svipuðu formi en fékk þá ekki undirtektir, sagði Albert Guðmundsson. Þessi tillaga gerir ráð fyrir, að borgin eigi íbúð til að hýsa fólk í neyðartilfellum. Hún gerir líka ráð fyrir að nota aðra möguleika, sem kunna að vera fyrir hendi eins og t.d. hjá borg- arstofnunum, sem e.t.v. ráða yfir hlýju og góðu húsnæði með að- gang að eldhúsi, sem gætu tekið á móti fóki í neyðartilfellum. Aðal- atriðið er, sagði Albert, að þeir Fiskverð til yfirnefndar: „Ekkert samkomulag nema með opinberum ráðstöfunum“ VERÐLAGSRÁÐ sjávarútvegsins ákvað í gær að vísa ákvörðun um fiskverð það, er taka á gildi um ára- mót til yfirnefndar. í frétt frá Verð- lagsráðinu segir, að á fundum ráðs- ins vegna væntanlegs fiskverðs hafi komið í Ijós, að afkomuskilyrði fisk- vciða og fiskvinnslu séu með þeim hætti, að engir möguleikar séu til þess að samkomulag náist um nýtt fiskverð, nema til komi ráðstafanir af hálfu hins opinbcra. I yfirnefnd þeirri, er nú tekur til starfa eiga sæti: Ólafur Davíðsson forstjóri Þjóðhagsstofnunar, sem er oddamaður nefndarinnar lögum samkvæmt, Friðrik Pálsson og Eyjólfur Isfeld Eyjólfsson, til- nefndir af hálfu kaupenda, og Ing- ólfur Ingólfsson og Kristján Ragn- arsson af hálfu fiskseljenda.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.