Morgunblaðið - 10.12.1981, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 10.12.1981, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1981 47 UEFA-keppnin í knattspyrnu: Arnór skoraði fyrir Lokeren Young til Forest LIÐ Arnórs Guðjohnsen ta|)adi 1—4 í gærkvöldi fyrir Kaisers- iautern í UEFA-keppninni í knattspyrnu. Arnór skoraði eina mark Lokeren á 85. mín- útu leiksins. I»ar með er Loker en úr leik þar sem fyrri leik liðanna, sem fram fór í Belgíu, lauk með sigri Lokeren 1—0. Ntaðan í hálfleik var 1—0 fyrir Kaiserslautern. Önnur úrslit í UEFA-keppninni í gærkvöldi urðu þessi: Hamborg SV — Aberdecn 3—1 (1—0), Hamborg fer áfram, 5—4 saman lögð markatala. Neuchatel frá Sviss sigraði Sporting Lissabon 1—0 og kemst áfram þar sem fyrri leik liðanna í Portúga! lauk með markalausu jafntefli. Sænska liðið IFK-Gautaborg náði góðum árangri þegar það sigraði Dynamo Bucharest 1—0 á útivelli og kemst áfram í keppninni. Fyrri leik liðanna, sem fram fór í Svíþjóð, lauk með 3—1 sigri Gautaborg. Hajduk Split frá Júgóslavíu sigraði Valencia frá Spáni 4—1. Staðan í hálfleik var 2—0. Split komst áfram á betra markahlutfalli 6—5. Radnici Júgóslavíu tapaði í Hollandi 0—1, fyrir Feyeno- ord. En þar sem fyrri leik lið- anna lauk með 2—0 sigri Rad- nici kemst liðið áfram í næstu umferð UEFA-keppninnar. Real Madrid og Rapid Vín gerðu markalaust jafntefli í Madrid í gærkvöldi. Real Madrid vann fyrri leikinn 1—0 og kemst áfram. Nottingham Forest festi í gær kaup á Willy Young, miðverði Arsen- al, en Young hefur ekki komist í liðið hjá Arsenal síðustu vikurnar. Einar endurráðinn Skallagrímur í Borgarnesi hefur endurráðið Einar Friðþjófsson sem þjálfara fyrir næsta keppnistímabil. Hbj. Forest borgaði 170.000 sterlings- pund fyrir gripinn, en Brian ('lough, framkvæmdastjóri liðsins, hefur ver ið á höttunum eftir sterkum mið- verði síðustu vikurnar, eftir að Dave Needham og Norðmaðurinn Jan Kinar Aas meiddust illa á dögunum. Albert þjálfar lið FH-inga Knattspyrnudeild FH hefur ráðið Albert Kymundsson frá Hornafirði sem þjálfara fyrir næsta keppnis- tírnabil. Lið Fll féll niður í 2. deild á síðasta keppnistímabili. -I»R. Þaö hlaut aö koma aö’í Saumavél sem heitir PALINA Og nú er þaö verðið, sem allir O OOfT syngja um, aðeins krónur J-J • ^J O • . ;• t? 'v** !***^4o'* * Þaö er furöulegt til þess aö hugsa aö ekki hafi nokkrum dottið í hug aö skíra saumavél í höfuöiö í fræg- ustu saumakerlingu íslands, henni PÁLÍNU, fyrr en nú. En nú er PÁLÍNA komin á markaðinn hér á landi og nú geta allir saumaö. Fyrir utan öll venjuleg spor býður PÁLÍNA: 1. Sjálfvirkan hnappagata- saum. 2. Stoppspor. 3. Blindfaldsspor. 4. Teygjusaum. 5. Varpsaum. 6. Vöfluspor. AÐ SJÁLFSÖGÐU VEITUM VIÐ TVEGGJA ÁRA ÁBYRGÐ Á PÁLÍNU TOYOTA VARAHLUTAUMBOÐIÐ Ármúla 23, sími 81733.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.