Morgunblaðið - 21.01.1982, Side 1
15. tbl. 69. árg.
FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1982
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Fjórir leiðtogar Samstöðu
dæmdir til langelsisdvalar
\ arsjá, W ashinglon, Hriissel, 20. janúar. Al\
I'OLSKUR dómstóll dæmdi í dag fjóra leiðtoga Samstöðu, samtaka
hinna frjálsu verkalýðsfélaga, í allt að þriggja og hálfs árs fangelsi
fyrir brot á herlögunum í landinu. Mennirnir munu hafa skipulagt
setuverkfall verkamanna í llrsus-verksmiðjunum eftir að herlögin
tóku gildi.
Réttarhöldum yfir fimmta mann-
inum var frestað, þar sem hann
gengur ekki heill til skógar. Rúm-
lega hundrað forystumenn í Sam-
stöðu hafa fengið fangelsisdóma
eftir að herlögum var komið á í
Póllandi.
Fimm leiðtogar Evrópulanda
hafa ákveðið að koma fram í sér-
stökum útvarps- og sjónvarpsþætti
á vegum upplýsingastofnunar
Bandaríkjastjórnar 30. janúar nk.
Reagan Bandaríkjaforseti hefur
lýst þann dag dag Samstöðu. Leið-
togarnir fimm eru Schmidt kanzl-
ari V-Þýzkalands, Willoch forsætis-
ráðherra Noregs, Thatcher forsæt-
isráðherra Bretlands og oddvitar
stjórnanna í Portúgal og Belgíu.
Búizt er við að fleiri eigi eftir að
bætast í hópinn.
Hollenzki sósíalistinn, Pieter
Dankert, sem í vikunni var kjörinn
forseti Evrópuþingsins í Stras-
bourg, sagði í dag, að hann teldi
rétt að undanskilja matvælaaðstoð
í refsiaðgerðum gegn Póllandi.
Stjórnarnefnd Efnahagsbandalags-
ins fól formanni sínum í dag að
finna leiðir til að veita Pólverjum
aðstoð af mannúðarástæðum án
þess að pólska herstjórnin hafi um
það milligöngu.
Að sögn bandaríska utanríkis-
ráðuneytisins fer þeim fjölgandi í
Póllandi sem hnepptir eru í varð-
hald. Talsmaður ráðuneytisins
sagði í dag, að aðgerðir Bandaríkja-
stjórnar gegn pólsku stjórninni
hefðu þegar haft mikil áhrif.
Páll páfi 2. hrósaði Reagan
Bandaríkjaforseta fyrir stuðning
við frelsisbaráttu Pólverja í bréfi;
sem Páfagarður greindi frá í dag. I
bréfinu er þó ekkert vikið að refsi-
aðgerðum Bandaríkjanna gegn Pól-
landi og Sovétríkjunum.
„Réttlætið mun ná fram
að ganga í Afganistan“
Nýju IR'lhi, 20. janúar. Al*.
Róm:
Sprenging í
bandarískri
skrifstofu
Kóm, 20. janúar. Al*.
ÖFLUG sprengja sprakk í dag
framan við skrifstofur banda-
ríska vcrzlunarráðsins í Róm.
Mikið tjón varð á húsa-
kynnum en engan mann sak-
aði. Enginn hópur hefur enn
lýst ábyrgð á þessum verkn-
aði á hendur sér. Skrifstofur
nokkurra bandarískra fyrir-
tækja urðu fyrir viðlíka árás-
um í október sl. og Rauðu
herdeildirnar hafa nú í haldi
bandaríska hershöfðingjann
James Dozier.
KARMAL, forseti Afganistans, við-
urkenndi í dag, að andstæðingar
stjórnar hans væru enn öflugir og
skoraði á alla þegna landsins að
leggja sitt af mörkum til að ráða
niðurlögum þeirra. Útvarpið í Afgan-
istan greindi frá því, að Karmal
hefði sagt þetta í ræðu er hann flutti
í höll sinni í Kabul fyrir hóp fyrir-
manna frá Samangan-héraði.
í ræðunni sagðist Karmal þess
fullviss, að stjórn hans mundi ná
markmiðum sínum með guðs hjálp
og ekkert stórveldi á jörðinni gæti
- segir Karmal
forseti
komið í veg fyrir að réttlætið næði
fram að ganga í Afganistan.
Afganska útvarpið greindi einnig
í dag frá hörðum bardögum stjórn-
arhermanna og frelsissveita
skammt frá landamærum Pakist-
ans. Sagði útvarpið, að andstæð-
ingar stjórnarinnar, sem þátt tóku
í bardögunum, hafi verið mörg
hundruð, allir vel búnir kínversk-
um og bandarískum vopnum.
Vestrænn stjórnarerindreki í
Kabul sagði í dag, að a.m.k. þrír
hafi látið lífið nýlega þegar stjórn-
arandstæðingar gerðu eldflauga-
árás á bústað ríkisstjórans í Kand-
ahar, annarri stærstu borg Afgan-
istans.
Að sögn sama heimildarmanns
eru skipulegar hreinsanir hafnar í
afganska kommúnistaflokknum og
hefur flokkurinn nú hafið útgáfu
nýrra floksskírteina til þeirra
flokksmanna sem í náðinni eru.
Finnland:
Karjalainen
eða Pekkala
forsætis-
ráðherra?
Ilelsinki, 20. janúar. Krá Harry
(.ranbi-rg, fréttarilara Mbl.
IJOST er nú, að Mauno Koivisto
verður kjörinn næsti forseti
Finnlands í fyrstu atkvæða-
greiðslu kjörmanna nk. laugar
dag. Finnski kommúnistaflokk-
urinn tilkynnti í dag, að kjör
menn flokksins myndu greiða
Koivisto atkvæði þegar í fyrstu
atkva>ðagreiðslu í stað þess að
greiða eigin frambjóðanda, Kal-
evi Kivisto, atkvæði. Þar með er
meirihluti Koivistos tryggður.
í tilkynningu kommúnista-
flokksins segir, að þetta verði
gert til að leggja áherzlu á þá
vinstri sveiflu, sem orðið hafi í
forsetakosningunum.
Almenningur í Finnlandi
veltir því nú mjög fyrir sér,
hver verði næsti forsætisráð-
herra landsins, en því starfi
gegndi Koivisto áður. Líklegast
er talið að núverandi stjórnar-
flokkar haldi áfram samstarfi
sínu og að miðflokksmaður
taki við stjórnarforystu, þar
sem jafnaðarmaður verður nú
forseti. Eru þá helzt nefndir
sem forsætisráðherraefni Ahti
Pekkala, sem nú er fjármála-
ráðherra, og Ahti Karjalainen
seðlabankastjóri. Stjórnin mun
væntanlega sitja fram að þing-
kosningunum í marz 1983.
Koivisto, næsti forseti Finnlands,
lyfti sér upp í blaki á meðan verið
var að telja atkvæði í forsetakosn
ingunum.
Stjórn Sýrlands
föst í sessi
Damaskus, 20. janúar. Al*.
SYRLENZKA stjórnin mótmælti í
dag harðlega fréttum um að gerð
hafi verið tilraun til stjórnarbylt-
ingar í landinu.
Utvarpsstöð í Líbanon hafði áð-
ur greint frá því, að yfirvöld í
Sýrlandi hafi látið handtaka 147
foringja í hernum og sakað þá um
samsæri gegn stjórninni.
Flugslysið
í Washington:
„Svörtu
kassarnir“
fundnir
W a.shinj'ton, 20. janúar. Al*.
KAFARAR fundu í dag „svörtu
kassana" tvo, sem voru í Bocing
737-þotu Air Florida er fórst í
Potomae-ánni í Washington
fyrir viku.
I kössunum er að finna upp-
tökur af samtölum flugmanna
síðustu mínúturnar fyrir slys-
ið, svo og ýmsar tæknilegar
upplýsingar um aðstæður í
flugvélinni sem fórst. Vonast
er til að þessar upplýsingar
geri rannsóknarmönnum
kleift að gera sér grein fyrir
orsökum slyssins.
Farið var með kassana tvo í
mikilli skyndingu í rannsókn-
arstofu bandaríska loftferða-
eftirlitsins, og í kvöld var
ljóst, að engar skemmdir urðu
á kössunum í slysinu.
Kafarar fundu í gær þrjú
lík farþega úr vélinni sem
fórst. Atján til viðbótar er
enn saknað og óvíst talið
hvort þau finnast nokkurn
tíma. Alls fórust 78 í flugslys-
inu, þar af fjórir vegfarendur
á brúnni, sem vélin rakst á
áður en hún hrapaði í fljótið.
* - '- " ! I -
Kafari kemur upp ur roiumac-anni meo annan „svörtu kassanna" úr Air Florida-flugvélinni, sem fórst í fyrri viku.