Morgunblaðið - 21.01.1982, Blaðsíða 48
Síminn á afgreiðslunni er
83033
FIMMTUDAGUR 21. JANUAR 1982
Svavar Gestsson um Helguvíkurmálið:
Ekki ákvörðun
um framkvæmdir
„l*AD SEM ulanríkisráðherra
liefur farið fram á, er hönnun á
^ctinum á þessum stað. I»að
hefur ekki verið tekin nein
' ■ ;irðun um framkvæmdir,
getur það ekki verið, því
skipulagsyfirvöld hafa aldrei
Hafskip opnar
4 eigin skrif-
stofur erlendis
Á undanlornum mánuðum
hefur farið fram allsherjarút-
lekt á starfscmi Hafskips hf.
erlendis og hefur Björgólfur
(iuðmundsson, annar fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins,
stjórnað henni.
I samtali við Björgólf og
Ragnar Kjartansson, fram-
kvæmdastjóra, á viðskipta-
síðu blaðsins, kemur fram, að
niðurstaðan af þessari úttekt
sé sú, að félagið mundi á
næstunni stofna fjórar eigin
svæðisskrifstofur, í Bret-
landi, í Skandinavíu, á meg-
inlandi Evrópu og í Banda-
ríkjunum.
Fyrsta skrifstofan verður
opnuð í Bretlandi á næstunni
og er gert ráð fyrir, að þar
vinni um 5 manns, eins og
reyndar á hinum þegar þær
verða settar á laggirnar á
næstunni.
Sjá ennfrcmur
vidskiplasídu bls. 32—33.
samþykkt að þarna verði sett
upp olíuaðstaða," sagði Svavar
(iestsson, formaður Alþýðu-
bandalagsins, er Mbl. spurði
hann álits á yfirlýsingu Olafs
Jóhannessonar utanríkisráð-
herra þess efnis, að hann hefði
tekið ákvörðun um að olíu-
geymarnir ofan við Keflavík
verði fluttir í Helguvík.
Svavar var þá spurður,
hvort hann teldi að utanríkis-
ráðherra væri að ákveða hluti,
sem hann hefði ekki heimild
til, þar sem hann hefði lýst því
yfir í fjölmiðlum að olíutank-
arnir yrðu fluttir í Keflavík.
Svavar svaraði: „Það getur
líka verið að það sé rangt eftir
honum haft, en ég hef skilið
þetta þannig að hér sé ein-
göngu um að ræða beiðni um
hönnun, og ég hef ástæðu til
að ætla að ég hafi rétt fyrir
mér.“
Svavar sagði einnig að mál
þetta hefði ekki verið rætt ít-
arlega í ríkisstjórninni, en
hann sagðist persónulega
þeirrar skoðunar að Helguvík-
uráformin um stækkun á
geymarými og hafnaraðstöðu
væri varasöm á alla lund. „Ég
tel að málið eigi að leysa strax
samkvæmt hugmyndum og til-
lögum Olíufélagsins og að það
séu engin frambærileg rök á
að hafna þeim. Þær tillögur
fela í sér að endurnýjun geym-
anna eigi að fara fram innan
vallarsvæðisins."
Ksþo'r peio
Samningar á minni togurum samþykktir. — Þeir höfdu hröð handtökin strákarnir á Ásþóri þegar búið var ad
skrásetja og var togarinn farinn frá Reykjavík skömmu eftir klukkan 20 í gærkvöldi. Hér er springurinn tekinn
inn er skipið fer frá bryggju. — Sjá bls. 2. Ljósm. Mbi. Kristján.
Efnahagspakki ríkisstjórnarinnar:
Rætt um 160 millj. kr.
niðurskurð fjárlaga
Niðurstöðu ekki að vænta fyrr en um helgina
ins hvað þetta varðar.
Á löngum ríkisstjórnarfundi í
gærmorgun var áfram fjallað um
„EFNAHAGSMALAPAKKI" ríkiæ
stjórnarinnar mun varla sjá dagsins
Ijós fyrr en um helgina. Samkvæmt
heimildum Mbl. var 160 milljón
króna niðurskurður fjárlaga, eða um
2% af heildarniðurstöðutölum þess,
til umfjöllunar í gær. Greinir menn á
um hvernig staðið skuli að niður-
skurðinum og er mikill ágreiningur
innan þingflokks Framsóknarflokks-
Verðmæti skreiðarútflutningsins
yfir 1000 millj. kr. á síðasta ári
ISLENDINGAR Huttu út tæplega 20
þúsund tonn af skreið eða 440 þús-
und pakka á síðastliðnu ári. Verð-
mæti skreiðarinnar er því um 880
milljónir króna, ef miðað er við gengi
dollars 7,80 krónur. Þá voru á árinu
fluttir út 235 þúsund pakkar af haus-
um eða 7050 tonn, að verðmæti um
140 milljónir króna. Samtals er því
útflutningsverðmæti herzlunnar yfir
1000 milljónir króna á árinu og hefur
aldrei verið meira.
í viðtali sem Morgunblaðið hefur
átt við þá Braga Eiríksson og
Hannes Hall hjá Skreiðarsamlag-
inu kemur fram, að 10 aðilar flytja
nú út skreið frá íslandi. Þá segja
þeir Bragi og Hannes, að Nígeríu-
menn hafi ekki verið hrifnir af því
að heyra að útflutningsgjöld á ís-
landi skyldu hafa verið hækkuð í
10% úr 5,5% í fyrra. Þeir hafi sagt
við íslenzka skreiðarseljendur, að
það sé óþarfi að borga jafn hátt
verð og þeir hafi gert fyrir skreið-
ina, ef nota eigi hana sem ein-
hverskonar hátollaútflutningsvöru
á Islandi og til að greiða niður fisk,
sem fer á ríkasta markað heims.
Njá midopnu.
efnahagsmálin. Einnig voru þau
rædd á þingflokksfundum Fram-
sóknar og Alþýðubandalags í gær, í
efnahagsnefndum og einnig er sér-
stök þriggja manna ráðherranefnd,
svonefnd niðurskurðarnefnd, á
stöðugum fundum.
Ríkisstjórnin kemur á ný saman
árdegis í dag, en ekki reiknuðu
stjórnarliðar, sem Mbl. ræddi við í
gær, með því að takast myndi sam-
komulag í dag. Viðmælandi Mbl. úr
hópi framsóknarmanna sagði
framsóknarmenn alls ekki áfjáða í
að afgreiða málið fyrr en um helg-
ina og sagði niðurstöðurnar varla
verða kynntar úr þessu fyrr en i
byrjun næstu viku.
Náðst hefur samstaða um skatt-
lagningu á banka og einhverjar
tollalagabreytingar, en frekari
skattaálögur, svo sem hækkun
söluskatts og skattur á innflutn-
ingsverzlun eru ekki lengur inni í
dæminu. Það hefur aftur á móti
valdið því að niðurskurðardæmið
hefur vaxið úr 100 milljónum
króna, eins og talið var að með
þyrfti, upp í um 160 milljónir kr.
Niðurskurðardæmið, sem nemur
2% af heildarniðurstöðutölum
fjárlaganna, hefur verið lagt fyrir
ríkisstjórnina af fulltrúum Al-
þýðubandalags og Framsóknar í
fjárveitinganefnd, sem þeirra
hugmynd, en menn eru ekki á eitt
sáttir hvernig með eigi að fara. Ein
hugmyndanna, sem komið hafa
fram, er samkvæmt heimild Mbl.
sú, að gengið verði í niðurskurðinn
með svonefndri „flataprósentu“,
þ.e. að ákveðin prósenta verði not-
uð á línuna, þ.e. alla þá liði, sem
unnt er að skera niður. Launaliðir
og ýmis framlög, sem nú þegar eru
í lágmarki, verður augljóslega ekki
unnt að hrófla við að sögn viðmæl-
anda Mbl. úr stjórnarliðinu. Pró-
sentutölurnar sem nefndar hafa
verið í þessu sambandi eru á bilinu
3-6%.
Karl Þorsteins:
Ákaflega ánægjulegur sigur“
99
„ÉG ER ákaflega ánægður með sigurinn, en mér tókst að sigra Zuniga
frá Perú í aukaskákum um efsta sætið, 2'/r'h. Fyrsta skákin endaði
með jafntefli. Mér tókst að vinna aðra skákina. Náði betri stöðu eftir
byrjunina og tókst að knýja fram sigur eftir að við höfðum báðir lent í
tímahraki. I þriðju skákinni náði Zuniga betra tafli, en mér tókst að
snúa á hann og sigra," sagði Karl Þorsteins, skákmaðurinn ungi, sem
í gær vann það afrek að sigra á sterku alþjóðlegu unglingamóti í Rio
de Janeiro í Brazilíu.
„Þetta var erfitt mót og nokk-
uð vel skipað. Hér voru ýmsir
efnilegustu skákmenn heims,
vantaði í raun aðeins 2 til 3 svo
allir væru mættir til leiks og
þetta var því nokkurs konar óop-
inbert heimsmeistaramót pilta
og það eykur á ánægjuna. Eg var
búinn að sætta mig við að hafna
ekki í efsta sætinu þegar ég tap-
aði heldur klaufalega í 12. um-
ferð. En ég er nokkuð ánægður
með taflmennsku mína í mótinu,
sérstaklega í lokaumferðunum,“
sagði Karl í samtali við Mbl.
Karl hlaut 500 dollara í verð-
Karl Þorsteins
laun fyrir sigur sinn í mótinu.
Þetta er annað alþjóðlega mótið
sem hann vinnur. Á Puerto Rico
vann hann barnaskákmót Sam-
einuðu þjóðanna og þar var Zun-
iga einmitt einn helsti keppi-
nautur hans. Næsta verkefni hjá
hinum unga skákmanni er þátt-
taka í Reykjavíkurskákmótinu.
Þess má geta, að fyrir mótið var
Karl fjórði stigahæsti skákmað-
ur mótsins, Ian Wells, Englandi,
hefur 2.355 Elo-stig, D’Lugy,
Bandaríkjunum, hefur 2.350,
Saeed, Dubai, 2.310 en Karl hef-
ur 2.300 Elo-stig.
Stöðumælarnir
við Laugaveg
verði óhreyfðir
Á FJÖLMENNUM fundi kaup-
manna við Laugaveg, sem Kaup-
mannasamtök íslands stóðu fyrir í
gær, var samþykkt ályktun, þar sem
þess er krafizt að borgarstjórn
Reykjavíkur breyti þeirri ákvörðun
sinni, að láta fjarlægja 9 stöðumæla
við Laugaveg frá Klapparstíg og
niður úr, að ósk Strætisvagna
Reykjavíkur.
í ályktuninni segir, að upptaka
umræddra stöðumæla muni á eng-
an hátt koma strætisvögnunum til
góða. Hins vegar komi það sér
mjög illa fyrir verzlun og aðra þá
þjónustu, sem veitt er við Lauga-
veg, ef enn fækkar þar bílastæð-
um.
Þá var það mál manna á fundin-
um, að upptaka stöðumælanna 9
væri aðeins upphafið að því, að
allir stöðumælar við Laugaveg, 90
að tölu, yrðu fjarlægðir.
Sjá frásögn af fundinum á midopnu hladsins.