Morgunblaðið - 21.01.1982, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JANÚÁR 1982
27
Nýleg BMW-bifreiðin var stórskemmd eftir veltuna.
Mynd Mbl. Júlíus.
Bræður stálu 2 bílum
og stórskemmdu annan
TVEIR bræÓur, 15 og 20 ára gamlir,
stálu um kl. 23 í fyrrakvöld nýrri
BMW-bifreið í Borgartúni, bak við
Klúbbinn og endaði fór þeirra með
því, að þeir veltu bifreiðinni og stór
skemmdu eftir að lögreglan hafði
veitt þeim eftirrör. Fyrr um kvöldið
höfðu brsðurnir stolið Cortina-
bifreið við Háskólabíó, á meðan eig-
andinn horfði á kvikmyndasýningu,
en skildu hana eftir óskemmda í
Borgartúni.
Aður en bræðurnir stálu
BMW-bifreiðinni, höfðu þeir farið
inn í nokkrar bifreiðir í Borgar-
túni og stolið ýmsum hlutum úr
þeim, meðal annars sjónauka,
kassettum og brauði og mjólk og
báru þeir við, að þeir hefðu verið
svangir. Þeir höfðu reynt að kom-
ast inn í nokkra bíla og gangsetja
þá, áður en þeir komu að
BMW-bifreiðinni, en lyklarnir
höfðu verið skildir eftir í henni.
Það var svo kl. 23.18 að tilkynnt
var um þjófnaðinn. Við Lindar-
götu voru þeir stöðvaðir en þegar
lögreglumenn hugðust handtaka
bræðurna, óku þeir af stað á
ofsahraða og hófst nú mikill elt-
ingarleikur. Þeir óku Frakkastíg-
inn gegn umferðarrétti, Hverfis-
götu, síðan Laugaveg og niður
Höfðatún gegn umferðarrétti. Síð-
an vestur Skúlagötu og á Kalk-
ofnsveginum óku þeir á umferð-
arskilti, en héldu áfram för sinni
um hafnarsvæðið, vestur Mýrarg-
ötu, og þaðan vestur á Seltjarn-
arnes. Þá héldu þeir austur Nes-
veg, síðan Kaplaskjólsveg, sem er
lokaöur við norðurendann. Þeir
áttuðu sig ekki á því, og óku á
gangstétt og veltu bifreiðinni. Alls
munu sex lögreglubifreiðir hafa
tekið þátt í eftirförinni.
Bræðurnir slösuðust ekki, en
Hestamannafélagið Fákur hefur
sótt, til borgarráðs, um leyfi til bygg
ingar reiðhallar á svæði sínu á Víði-
völlum. Bergur Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Fáks, tjáði Mbl. að
hugmyndin væri að byggja yfir eins
konar skeiðvöll, en allt málið væri þó
á frumstigi og lítið um það að segja.
Bergur Magnússon sagði, að at-
hafnasvæði Fáks á Víðivöllum
hefði verið stækkað nokkuð, en ef
bifreiðin sem er alveg ný, af ár-
gerð 1982 ekin 1400 kílómetra, er
mikið skemmd. Á heimili bræðr-
anna fundust svo stolnir munir.
Að undanförnu hefur verið mikið
um bílstuldi, og verður aldrei
ofbrýnt fyrir bifreiðaeigendum að
ganga tryggilega frá bifreiðum
sínum, þannig að óvelkomnir öku-
menn komist ekki í þá. Að skilja
eftir ólæstan bíl, að ekki sé talað
um lyklana í honum, er sama og
bjóða þjófum heim eins og reynsl-
an hefur sýnt að undanförnu.
ör fjölgun hestamanna héldi áfram
liðu ekki mörg ár þar til svæðið
yrði of lítið. Hugmyndin er sú sagði
hann, að fólk geti stundað hesta-
mennsku innan dyra, ekki síst börn
og e.t..v. lasburða fólk hvernig sem
viðraði og þarna mætti einnig hafa
námskeið. Hér væri þó aðeins verið
að leita hófanna hjá borgarráði og
ákvarðanir yrðu teknar í framhaldi
af umsögn þess.
Fákur leitar hófanna
um byggingu reiðhallar
Leiklistarráð um Þjóðleikhússkýrsluna:
Niðurstöður takmarkaðar,
oft barnalegar og rangar
Verður vonandi víti til varnaðar
Morgunbladinu hefur borist eft-
irfarandi greinargerð frá Leiklist-
arráði, þar sem harðlega er gagn-
rýnd nýleg skýrsla Ríkisendur
skoðunar um stjórnsýslu í Þjóð-
leikhúsinu og fleira:
„Leiklistarráð hefur á fundi
sínum 12. desember sl. falið
framkvæmdastjórn ráðsins að
gera athugasemdir við skýrslu
Ríkisendurskoðunar um stjórn-
sýslu í Þjóðleikhúsinu.
Að mati framkvæmdastjórn-
arinnar er tilgangslaust að gera
stjórnsýsluathugun á listrænni
menningarstofnun eins og Þjóð-
leikhúsinu án þess að í hendur
haldist sérþekking á listrænu
eðli starfseminnar og lærdómur
á sviði stjórnsýslu.
Skýrslan hlýtur að vera mark-
laus a.m.k. í augum leiklistar-
fólks, ef skilning og þekkingu
vantar á því hvernig listrænar og
menningarlegar frumforsendur
starfsins móta alla þætti þess.
Því miður hefur verið lagt í þessa
athugun og skýrslugerð án þess
að höfundar hefðu nokkra sér-
þekkingu á sviði leiklistar og því
verða niðurstöður skýrslunnar í
besta falli takmarkaðar, oft
barnalegar og jafnvel beinlínis
rangar.
Engu að síður freistast höf-
undar til að leggja listrænt mat á
starfsemi Þjóðleikhússins; talað
er um vont verkefnaval, reynt að
túlka sveiflur í aðsókn þessu til
sönnunar, lagt er mat á störf
leikstjóra, listræn sjónarmið tal-
in sitja um of í fyrirrúmi í leik-
myndagerð, stungið uppá að leik-
ari taki að sér i hálfu starfi að
gegna stöðu bókmennta- og leik-
listarráðunauts o.s.frv., o.s.frv.,
o.s.frv.
Ennfremur er að finna í
skýrslunni ýmsar fljótfærnisleg-
ar ályktanir um störf núverandi
þjóðleikhússtjóra, sem rýra gildi
skýrslunnar.
Harma ber að skýrsla sem
þessi skuli hafa komist í hendur
fjölmiðla. Þau blaðaskrif, sem af
því hafa leitt, geta valdið
ósanngjarnri tortryggni almenn-
ings í garð leiklistarstarfsemi í
landinu.
Framkvæmdastjórn leiklist-
arráðs varar við því að svo gölluð
skýrsla verði lögð til grundvallar
ákvarðana í hinum ýmsu deild-
um stjórnkerfisins og biður
a.m.k. um að athugasemdum
leiklistarráðs verði dreift til
allra þeirra er fengið hafa
skýrsluna í hendur eða fjalla
með nokkrum hætti um hana.
Árangur þessarar skýrslu
verður Ríkisendurskoðun von-
andi víti til varnaðar, þannig að
þess verði gætt í framtíðinni að
úttekt á starfsemi menningar-
stofnana sé ekki gerð á þennan
hátt heldur unnin í samvinnu við
sérfræðinga á viðkomandi sviði.
Leiklistarráð vekur athygli á
hlutverki sínu samkvæmt leik-
listarlögum og lýsir sig reiðubúið
til að vera Ríkisendurskoðun til
ráðuneytis í leiklistarmálum."
Ert þú:
• einn þeirra, sem vegna stööugs tímahraks hef-
ur ekki nægan tíma til nauðsynlegs lesturs?
• einn þeirra, sem vegna starfs eöa náms þarft
aö lesa mjög mikið?
• sért þú einn þeirra, þá átt þú erindi á hraö-
lestrarnámskeiö.
• Næsta námskeið hefst 1. febrúar nk.
Skráning í síma 16258 í kvöld og næstu kvöld kl.
20.00—22.00.
Hraðlestraskólinn.
HEL0 SAUNA
Höfum ávallt fyrirliggjandi saunaofna og klefa á mjög
hagstæöu verði.
Benco,
Bolholti 4, sími 21945
Konur i stjorn-
unarstörfum
Stjórnunarfélag íslands efnir til námskeiðs sem
nefnist Konur í stjórnunarstörfum og verður það
haldið í Kristalssal Hótels Loftleiöa dagana 8., 9. og
10. febrúar nk. kl. 09—17 hvern dag.
Markmiö þessa námskeiös er að ræöa stööu kvenna í
stjórnunarstörfum og kenna hvernig þær geta beitt viöur-
kenndum stjórnunaraöferöum til aö ná sem bestum ár-
angri í starfi.
Á námskeiðinu veröur gefiö almennt yfirlit um stjórnun,
skipulagningu, áætlanagerö, starfsmannahald og önnur
störf stjórnenda.
Námskeiö þetta er eitt af reglubundnum námskeiöum
AMR-lnternational og nefnist á ensku „Management
Skills and Techniques for Women in Business". Leiöbein-
andi verður Leila Wendelken, en hún starfar sem fram-
kvæmdastjóri eigin ráögjafafyrirtækis í Kaliforníu.
Námskeiöið er ætlaö konum sem hafa meö höndum
stjórnunarstörf innan fyrirtækja, stofnana eða félaga-
samtaka.
Þátttaka tílkynnist til Stjórnunarfélagsins í síma 82930.
SUÓRNUNARFÉLAG ÍSLANDS
SÍOUMÚLA 23 105 REYKJAVÍK SÍMI 82930