Morgunblaðið - 21.01.1982, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 21.01.1982, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1982 39 félk f fréttum + Hún gæti verið úr ævintýra- landi þessi íshöll í Chicago, en þar hefur verið undanfarið yfir þrjátíu gráðu frost. Húsið tók á sig þessa mynd, eftir að kviknaði í því og slökkviliðsmenn mættu með slöngur sínar og slökktu eldinn. Þennan dag sem myndin var tekin, var 32 gráðu frost í Chicago og strekkings vindur þar að auki og töldu veðurfræð- ingar að kuldinn væri í rauninni 63 gráðu frost. Þrír létust vegna kuldans þennan dag í Chicago. Á Englandi var víðast hvar yfir tuttugu gráðu frost þennan dag og kalt um alla Evrópu — en hinu megin^á hnettinum var dá- lítið hlýrra: Það var 40 gráðu hiti í Melbourne í Ástralíu ... 13 ára stúlku misþyrmt af skólasystr- um sínum + Francescu Shone, fallegri 13 ára gamalli stúlku, var misþyrmt illi- lega af skólasystrum sínum fyrir skömmu í Englandi. Hún var á leið heim úr skólanum, þegar sex stúlkur á fimmtánda ári réðust að henni og slógu hana og spörkuðu í hana miskunnarlaust, svo hún missti meðvitund og féll í snævi þakta jörðina, en stúlkurnar spörkuðu í hana og trömpuðu á henni góða stund eftir það. Loks rann af þeim æðið og villimennsk- unni lauk, en þær skildu Franc- escu eftir liggjandi í blóði sínu. Hún fannst skömmu síðar fyrir tilviljun og liggur nú á sjúkrahúsi með ýmsa alvarlega áverka. At- burður þessi vakti óhug manna í Coventry, þar sem hann átti sér stað. Francesca lá meðvitundar- laus í þrjár klukkustundir og móð- ir hennar sagði: „Það er hreint ótrúlegt að svo ungar stúlkur skuli eiga til slíkan hrottaskap. Barnið var þannig útleikið, að það var greinilegt að þær höfðu sparkað í hana miskunnarlaust þar sem hún lá meðvitundarlaus á jörðinni. Francesca verður lengi að jafna sig eftir þessa villimennsku." Lögreglan hefur nú málið til meðferðar, en líklegt þykir að rifr- ildi í leikfimitíma hafi verið kveikjan að þessum hrottaskap. Diana + Slúðurdálkahöfundum í enskum blöðum þykir sem prinsessa þeirra, hún Díana, sé nú öll sett- legri í framkomu eftir brúðkaupið, heldur en í tilhugalífinu, og ætti það nú ekki að koma á óvart. Þess- ar tvær myndir birtu þeir því til sönnunar og myndatextinn var: „Febrúar — Trúlofunin opinberuð. Núna — hvílík breyting!" + Fyrir 25 árum var Ivan Blatny vel þekkt skáld í heima- landi sínu, Tékkóslóvakíu. Hann var af kynslóð frábærra tékkneskra skálda, ljóðrænna og surrealískra, sem Stalín- isminn bældi niður og árið 1948 flúði Blatny til Englands. Flestir tékkneskir rithöfunduar héldu að Blatny væri löngu látinn — en nú er karl fundinn á sálsýkisspítala í Ipswich og yrkir hann enn. Það var ensk hjúkrunarkona sem komst að uppruna hans, en hún hafði haft kynni af honum í nokkur ár. Frances Meacham heitir hún, nú sest í heilgan stein, og heimsækir hún Blatny reglulega á spítalann og fyrir til- stuðlan hennar var honum útveguð vinnuaðstaða þar og ritvél. Blatny hefu” farið hirðuleysislega með verk sín og hjúkrunarfólkið kastaði jafnan þessum blaðsneplum sem hann skildi eftir sig og hann virtist ekki kæra sig um að bjarga þeim. En engu að síður hefur kanadískt bókaforlag nýlega gefið út nokkur ljóð Blatnys og önnur bók mun vera á leiðinni. Tékkneski skáldsagnahöfundurinn, Milan Kundera, sagði, er hann sá þessi nýju ljóð: „Ivan Blatny var einn hinna mestu. Og það leiftrar enn af snilld hans í mörgum þessara ljóða." Ljósaperur lUlli Þeimgeturðu I • ■ treyst Einkaumboð á íslandi SEGULLHF. Nýlendugötu 26 N- N. 'sh CT) CTj O CD O oo Sinfóníuhljómsveit Islands Sala og endurnýjun áskriftarskírteina síðara misseris þessa starfsárs er hafin á skrifstofu hljómsveitarinnar, Lindargötu 9A, (Edduhúsinu), sími 22310. Áskrifendur hafa forkaupsrétt að skírtein- um sínum til og með 1. febrúar nk. Sinfóníuhljómsveit Islands Vetrarhvítt Laugalæk, sími 33755.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.