Morgunblaðið - 21.01.1982, Page 31

Morgunblaðið - 21.01.1982, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1982 31 Næturverk við Geysi Eftir Birgi Thorlacius ráðuneytisstjóra Að undanförnu hefur Geysi í Haukadal nokkuð borið á góma og ekki allskostar að ástæðulausu. I skjóli nætur framkvæmdi einn af „vandamönnum" Geysis, Þórir Sig- urðsson, aðgerð á hvernum meira en lítið vafasama og án þess að leita samráðs eða heimildar Geysisnefndar eða ráðuneytis. Þórir mun annast eftirlit með Geysi til verkaléttis öldruðum föð- ur sínum, Sigurði Greipssyni, sem allir þekkja að góðu einu. Leitaði Þórir að eigin sögn ekki leyfis réttra aðila af því að hann taldi að leyfi myndi ekki fást. Tilefni þessara næturstarfa var áhugi Hrafns Gunnlaugssonar, kvikmyndagerðarmanns, á því að fá Geysi til að „leika" hlutverk í kvikmynd sem hann mun hafa í smíðum. Virðast þeir félagar, Hrafn og Þórir, bera höfuðábyrgð á þessum sérkennilegu fram- kvæmdum við Geysi. Eftirlitsmað- ur hversins er hinsvegar Sigurður Greipsson, sem Hrafn hefur mjög blandað í málið, en enginn trúnað- ur verður á það lagður að óreyndu. Það sem gerðist við Geysi var að Þórir Sigurðsson fór með loft- pressu og dýpkaði, breikkaði og lengdi rauf í skálarbarm Geysis og lækkaði á þann hátt mjög mikið vatnsyfirborð hversins og fékk síð- an hverinn til að gjósa með því að setja í hann sápu. Rauf þessi í skálarbarminn er ákaflega ljót og nánast eins og skurður. Það er hinsvegar engin gáta að unnt var að fá hverinn til að gjósa með þessum hætti, það hafði verið gert löngu áður, en hinsvegar voru menn ekki sáttir við þau lýti á hvernum sem þetta hefði í för með sér og sem nú blasa við. Hin gamla rauf var sem óðast að fyllast vegna kísilmyndunar. Er ekki úr vegi í þessu sambandi að rifja upp nokkur atriði varðandi Geysi. Geysir í Haukadal er frægastur goshvera. Eftir honum eru slíkir hverir kallaðir „geysers" á enskri tungu. Hinn 5. apríl 1894 seldi Greipur Sigurðsson, bóndi í Haukadal, fyrir sína hönd og með- eigenda sinna Mr. James C. Craig jr. í Castle Chambers í Belfast á Irlandi hverina Geysi, Strokk, Blesa og Litla Geysi, sem öðru nafni nefnist Óþerrishola, ásamt tiltekinni landspildu. Söluverðið var þrjú þúsund íslenskar krónur. Forkaupsréttur var áskilinn selj- endum og örfum þeirra, ef til sölu kæmi á ný. Næsta sala á Geysi fer fram 19. júlí 1894, er Mr. James Craig jr. selur Mr. Elliott Rogers í London hverinn, ásamt öðrum hverum og landspildu er hann keypti fyrr á árinu, er nú söluverðið fjögur þús- und krónur. Þriðja sala á Geysi fer fram 19. desember 1925. Þá selur Mr. Alex- ander Elliott Rogers bróðursyni sinum Mr. Hugh Charles Innes Rogers Geysi og aðra áðurnefnda hveri. Er þess getið „með tilliti til stimpilgjalds" að eignin sé fjögur þúsund króna virði. Það er síðan þessi Mr. Hugh Charles Innes Rogers sem selur og afsalar til ríkisstjórnar íslands Geysi, öðrum hverum sem með honum voru seldir og landspildu hinn 30. ágúst 1935. Milligöngu- maður um þetta var Sigurður Jón- asson, forstjóri. Söluverðið var átta þúsund ísl. krónur. Sigurður greiddi sjálfur kaupverðið og gaf íslenska ríkinu. Þar með var þessari herleiðingu Geysis lokið. Arið 1953 skipaði forsætisráðu- neytið nefnd til þess að gera tillög- ur um endurbætur við Geysi og stýra þeim framkvæmdum. Sú nefnd er nú á vegum menntamála- ráðuneytis. Frá upphafi áttu sæti í nefndinni dr. Trausti Einarsson, prófessor, Páll Pálmason, ráðu- neytisstjóri, Hörður Bjarnason, húsameistari ríkisins, Páll Hall- grímsson, sýslumaður og Þorleifur Þórðarson, forstjóri, auk Birgis Birgir Thorlacius „t»að var hljótt um skurðgröftinn við Geysi og þess e.t.v. gætt að tíð- indin bærust ekki ráðu- neyti eða Geysisnefnd með hraði.“ Thorlacius, sem var formaður til 1. júní 1978, en þá tók Runólfur Þór- arinsson við, og í stað Þorleifs heitins Þórðarsonar kom Kjartan Lárusson, forstjóri Ferðaskrif- stofu ríkisins. Alþingi hefur árlega veitt fé til umbóta við Geysi og hefur það gert nefndinrii kleift að láta girða hverasvæðið mjög vand- aðri girðingu, leggja veg meðfram girðingunni og gera stórt bifreiða- stæði til þess að beina bifreiða- umferð út af sjálfu hverasvæðinu, leggja gangstíga um svæðið og af- marka og merkja staði, sem hættulegir geta verið umferðar. Innan girðingarinnar eru 15,3 ha lands. Ingólfur Davíðsson, grasa- fræðingur, athugaði gróðurfar svæðisins í júlí 1960 til þess að unnt væri að fylgjast með hvaða breytingum það kynni að taka við friðunina og hefur hann fylgst með gróðurfari þarna síðan. Þá hefur birki verið gróðursett í Laugarfelli innan girðingarinnar, og komið var fyrir hringsjá, í hlíðinni fyrir ofan Konungshver, sem nöfn hver- anna eru mörkuð á og nöfn fjaHa, sem við blasa. Síðsumars 1%3 lét Geysisnefnd í samráði við dr. Gunnar Böðvars- son, yfirverkfræðing, bora 40 metra djúpa holu niður úr botni Strokks með þeim árangri að hver- inn tók að gjósa á ný. Strokkur var áður fyrr mesti goshver í Hauka- dal, næst á eftir Geysi, og er gos- um hans lýst í sumum hinna eldri ferðabóka. Á seinni hluta 19. aldar urðu gos hans treg, uns þau hættu alveg upp úr 1915 eða um líkt leyti og gos Geysis. Við borunina 1963 jókst uppstreymi heits vatns, vatn- ið steig upp í hina fornu skál, sem er svipuð Geysisskálinni, og hver- inn tók að gjósa á ny og hefur haldið því áfram síðan. Gosin eru mishá. Sum hafa mælst 35 metrar. Geysir gýs mjög sjaldan nú orð- ið. A tímabilinu 1915—1935 lá hann að mestu í dvala eins og Strokkur, én þá örfuðu þeir dr. Trausti Einarsson, Jón Jónsson frá Laug og Guðmundur Gíslason, læknir, gosmátt hans á ný með því að höggva rauf í skálarbarminn og létta þannig nokkru af vatnsþung- anum af hvernum, en svipuð að- ferð hafði verið reynd með góðum árangri við Ystahver í Reykja- hverfi í Suður-Þingeyjarsýslu laust fyrir 1918. Hafði þetta mjög örfandi áhrif á gostíðni Geysis um tveggja áratuga skeið. Af framanskráðu er ljóst að það var alkunna að unnt væri að fá Geysi til að gjósa með því að lækka vatnsborðið og bera í hann sápu. Vegna næturverka Þóris Sig- urðssonar er sýnilegt að nauðsyn- legt er að setja harðari reglur um verndun Geysissvæðisins en gert hefur verið. En hverjum átti að detta í hug að helst þyrfti að var- ast þann sem gegndi störfum eftir- litsmanns á staðnum? I lögum um náttúruvernd segir: „Lögin eiga að tryggja eftir föng- um þróun íslenskrar náttúru eftir eigin lögmálum, en verndun þess sem þar er sérstætt eða sögulegt." Ennfremur segir: „Öllum er skylt að sýna varúð svo að náttúru landsins verði eigi spillt að þarf- Iausu. Spjöll á náttúru landsins, sem framin eru með ólögmætum hætti af ásetningi eða gáleysi, varða refsingu." Það var hljótt um skurðgröftinn við Geysi og þess e.t.v. gætt að tíð- indin bærust ekki ráðuneyti eða Geysisnefnd með hraði. En strax og vitnaðist um framkvæmdina bað ráðuneytið sýslumann Árnes- sýslu að kanna málið og að skýrslu hans fenginni var málið fengið rík- issaksóknara til meðferðar 18. des- ember sl. Af þeirri reynslu, sem fengin er í máli þessu, vænti ég að Geysis- nefnd og ráðuneyti æski þess að Náttúruverndarráð taki málefni Geysis til meðferðar og að hverinn og landsvæðið umhverfis verði sett undir strangari friðunarákvæði en talin var þörf á til þessa. Að lokum gamanmál. í viðtali við blaðamann frá Morgunblaðinu í gær segir einhver á heimaslóð við Geysi að ég hafi komið í Haukadal til gæsaveiða en aðeins skotið heimagæsirnar á næsta bæ! Skemmtilegra hefði verið að gam- ansagan sem að þessu lýtur og er frá mér sjálfum komin hefði verið rétt sögð en hún er þannig: Fyrir nokkrum árum fór ég og kunningi minn til gæsaveiða í Haukadal í leyfi Sigurðar Greipssonar. Við héldum heim án þess að hafa veitt nokkra gæs eða hleypt skoti úr byssu. Næsta dag hringdi Sigurður Greipsson til mín og spurði hvern- ig veiðin hefði gengið. Ég sagði sem var. Mikið er ég feginn, sagði Sigurður, að þið fenguð ekkert. Heimagæsirnar í Neðradal eru nefnilega allar horfnar! 20. janúar 1982, Hugheilar hjartans þakkir til allra, sem glöddu mig meö heimsóknum, gjöfum og skeytum á 80 ára afmæli mínu, 2. janúar sl. Guö blessi ykkur öll. Jóhanna St. Gudjónsdóttir frá Gilsfjaröarmúla. THORENS Vil kaupa gamlan Thorens plötuspilara. Upplýsingar í sima 11930 e. kl. 17.00 Takið eftir: LVorum að taka upp takmarkað magn af dekkjahringum, hvítum og svart/hvítum yo ®naust h.f Síðumúli 7—9, sími 82722 75 % ofslóttur í tilefni af 100 ára afmæli Samvinnuhreyfingarinnar á íslandi hefur Skipadeild Sambandsins ákveðið að veita viðskiptavinum sínum 25% afslátt af skráðum flutningsgjaldatöxtum stykkjavöru til eða frá Hamborg í janúar og febrúar 1982. Út- og uppskipun greiðist samkvæmt töxtum. Farmbókanir annast: Skipadeild Sambandsins, Norwegische Shiffahrtsagentur G.m.b.H. Sambandshúsinu, Sölvhólsgötu, Kleine Johannisstrasse 10, Reykjavík, sími 28200 2 Hamburg 11, Sími: 040-361.361, Telex 214823 NSA D. Aætlaðir lestunardagar í Hamborg: HELGAFELL 25.januar HELGAFELL 12.februar JÖKULFELL 5,febrúar HELGAFELL 3.mars SKIPADEILD SAMBANDSINS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.