Morgunblaðið - 26.01.1982, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1982
11
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ frumsýnir á
föstudaginn næsta nýjasta leik-
rit breska leikskáldsins Peter
Shaffers, Amadeus. Segir þar
frá samskiptum tveggja tón-
skálda, Antonio Salieris og
Wolfgang Amadeus Mozarts.
Leikstjóri er Helgi Skúlason,
leikmynd og búningar eru eftir
Björn G. Björnsson, lýsingu
annast Arni Baldvinsson og
Þorkell Sigurbjörnsson hefur
unnið hljóðband með tónlist
eftir Mozart og Salieri. Þýðing
verksins var í höndum Katrínar
Fjeldsted og Valgarðs Egils-
sonar.
LjÓNm. ÓLK.M.
Heigi Skúlason leikstjóri og Sveinn Einarsson Þjóóleikhússtjóri.
Þjóðleikhúsið:
Leikrit um Mozart og Salieri
verður frumsýnt á föstudaginn
Á fundi með fréttamönnum
kynntu forráðamenn leik-
hússins verkið og sögðu það
hafa hlotið mikla frægð og
vinsældir um allan hinn vest-
ræna heim sl. ár. Hefur það
verið sýnt í Evrópu og Amer-
íku og gengur enn í London og
New York. Það var frumsýnt í
London 1979 og kosið besta
nýja leikritið í Bretlandi það
ár. Tvö fyrri leikrit Peters
Shaffers hafa aflað honum
verðlauna og viðurkenninga,
„Equus", sem LR hefur sýnt
hérlendis, og „The Royal
Hunt of the Sun“. Annað verk
Shaffers hefur LR sýnt,
Svarta kómedíu, og Ferða-
leikhúsið sýndi fyrir allmörg-
um árum tvo einþáttunga
hans.
I leikriti Shaffers rekur
Salieri, sem var eitt þekkt-
asta tónskáld samtíðar sinn-
ar og hirðskáld Austurríkis-
keisara, sögu samskipta sinna
og Mozarts, sem lést 35 ára að
aldri og komst þá fljótlega
upp sá kvittur að Salieri hefði
byrlað honum eitur. Ekkert
mun hafa sannast né afsann-
ast, en leikrit Shaffers er eins
konar játning Salieris.
Róbert Arnfinnsson leikur
Salieri og er það hlutverk
mjög viðamikið, eitt stærsta
hlutverk Róberts. Sigurður
Sigurjónsson leikur Mozart
og Guðlaug María Bjarna-
dóttir Konstönsu, eiginkonu
Mozarts. Alls eru hlutverkin
16, en að öllum aukahlutverk-
um meðtöldum koma alls 30
leikarar fram í sýningunni.
Athugasemd
Eftir Siguró E.
Haral dsson
í Morgunblaðinu í dag gerir for-
stjóri Strætisvagna Reykjavíkur,
hr. Eiríkur Ásgeirsson, ummæli
mín á fundi, sem boðað var til að
frumkvæði Kaupmannasamtaka
Islands, að umræðuefni. I frásögn
af fundinum gætir nokkurrar
ónákvæmni, þegar sagt er að ég
hafi framkvæmt þær tímamæl-
ingar, sem ég ræddi á fundinum.
Ég sagði að einstakir kaupmenn
hefðu gert athuganir á því, hvað
vagnarnir væru lengi niður
Laugaveginn. Auk þess hefðu
Kaupmannasamtökin fengið til
þess menn og sú tímataka átt sér
stað, þegar hvað mest umferð var
um götuna. I þessar heimildir
vitnaði ég og í því sambandi sagði
ég, og get endurtekið hér, að ég
áliti ummæli forstjóra SVR um
tímalengd 10—20 mín. ámælis-
verð, svo ekki væri fastara að orði
kveðið.
Auðvitað á ekki að þurfa að
deilá um þessa hluti, auðvelt er að
fá hlutlausan aðila til að ganga úr
skugga um, hvað rétt er. Það virð-
ist sjálfsagt að gera það. Þá fæst
úr því skorið, hvort tölurnar 8—11
mín. sem ég nefndi eða 10—20
mín., sem Eiríkur Ásgeirsson læt-
ur hafa eftir sér, eru nær lagi.
Þrautalendingin gæti orðið sú, að
við Eiríkur fengjum okkur frí í
vinnunni einn dag og gerðum
sjálfir þessar athuganir. Úrsmiðir
við Laugaveginn myndu efalaust
lána okkur skeiðklukkur, þannig
að slík lausn gæti vel leitt menn í
einhvern sannleika.
Að lokum vildi ég beina tveim
spurningum til forstjóra SVR:
Hvaða rök liggja til þess að um
helgar renna þeir vagnar fjórir að
tölu, sem aka Laugaveginn, í einni
halarófu niður götuna á hálfrar
klukkustundar fresti?
Frá hvað tíma er leiðakerfi
SVR, sem tímamælingar á ein-
stökum eru miðaðar við? Hvað
hefur bifreiðum í borginni fjölgað
mikið frá þeim tíma.
23. ian. 1982.
Sigurður E. Haraldsson
Konur f meirihluta
á Grund á liðnu ári
í fréttatilkynningu frá Elli- og
hjúkrunarheimilinu Grund kemur
fram að af vistmönnum þar í fyrra
voru konur þrisvar sinnum fleiri en
karlar. í byrjun síðasta árs voru
vistmenn 314, þar af 229 konur og
85 karlar, en í árslok voru vistmenn
306, 231 kona og 75 karlar. Á árinu
komu 116 nýir vistmenn, 82 konur
og 34 karlar, 29 konur og 17 karlar
fóru af vistheimilinu á árinu eða alls
46. Þeir sem létust voru alls 78, þar
af 51 kona og 27 karlar.
Á Dvalarheimilinu Ási, Ásb-
yrgi, var skipting milli kynja
nokkur jöfn, í ársbyrjun voru þar
91 kona og 95 karlar, eða 186 ein-
staklingar og í árslok voru vist-
menn 155, 76 konur ðg 79 karlar. Á
árinu 48 nýir vistmenn, 75 fóru af
heimilinu og 4 létust.