Morgunblaðið - 26.01.1982, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1982
Portúgal:
Tveim-
ur Rúss-
um vísað
úr landi
l.issaúon. 2."». janúar. Al'.
SOVESKA sendirádið í Lissa-
bon dró í dag í efa þær fullyrð-
ingar portúgölsku stjórnarinn-
ar, að tveir rússnesku sendi-
ráðsmannanna hefðu „gengið
lengra eh staða þeirra leyfði“,
en þeim var vísað úr landi fyrir
tveimur dögum af þeim sökum.
I yfirlýsingu frá sendiráðinu
sagði, að brottrekstur mannanna
væri „ástæðulaus" og myndi skaða
mjög samskipti þjóðanna, Sovét-
manna og Portúgala. Portúgalska
stjórnin hefur vísað samtals sjö
Rússum úr landi síðustu tvö árin
og hún hefur nú orðið til þess fyrst
ríkisstjórna í NATO-ríki að fækka
í starfsliði rússnesks sendiráðs
eins og samþykkt var á utanríkis-
ráðherrafundi handalagsins í
Brússel fyrir skömmu. Ekki var þó
vikið að Póllandi þegar greint var
frá ástæðum brottrekstrarins að
þessu sinni.
I fyrri viku neitaði stjórnin að
hleypa inn í landið sendinefnd
háttsettra manna frá rússneska
kommúnistaflokknum, sem port-
úgalski kommúnistaflokkurinn
hafði boðið til sín.
ERLENT
Hernaðarráðu-
nautur veginn
llernaðarráðunautur bandaríska
sendiráðsins í París, ('harles Rob-
ert Ray, var veginn fyrir utan
heimili sitt í síðustu viku. Bana-
maður hans komst undan. Hér
breiða lögreglumenn teppi yfir lík-
ið á morðstaðnum.
Tekið á móti kistu (’harles Robert
Rays á Andrews-herflugvellinum.
Hermenn mynduðu heiðursvörð á
flugvellinum og sveit hermanna
bar kistuna úr flugvél í líkflutn-
ingabfl.
Rússneskir tæknimenn
aftur til Egyptalands
Kairo, 25. januar. Al*.
EGYPSKA utanríkisráðu-
neytið skýrði frá því í dag, að
von væri á 66 sovéskum
tæknifræðingum til Egypta-
lands og virðist nú sem
stjórnvöld vilji bæta sambúð-
ina við Sovétríkin. Hún hefur
verið afar stirð lengi eða síð-
an Sadat heitinn vísaði úr
ítalskir kommúnistar
skammaðir í Prövdu
Moskvu. Kóm. 25. janúar. Al'.
PRAVDA, málgagn sovéska komm-
únistaflokksins, réðist í dag mjög
harkalega á forystumenn ítalska
kommúnistaflokksins fyrir afstöðu
til ástandsins í Póllandi og sagði, að
þá greindi á við rússneska kommún-
ista og handamenn þeirra í „öllum
meiriháttar málum" og að þeir væru
að bregðast óbreyttum flokksfélög-
um með því að ausa Sovétríkin
„óhróðri". Italski kommúnistaflokk-
urinn vísaði í dag þessum ásökunum
á bug.
„Stórkostleg tíðindi berast
okkur,“ sagði í Prövdu. „Leiðtogar
ítalska kommúnistaflokksins tala
fjálglega um friðarást sína á sama
tíma og þeir úthrópa sjálfa
brjóstvörn friðarins, Sovétríkin,
og hina sósíölsku bandamenn
þeirra, hinn sósíalska heim.“ Sagt
var, að endurteknar yfirlýsingar
ítalskra kommúnista á síðustu ár-
um um sérstöðu í ýmsum málum,
væru ekki til vitnis um annað en
að þeir væru smám saman að fjar-
lægjast „hinn marx-leníníska
grundvöll".
ítalski kommúnistaflokkurinn
vísaði í dag á bug ásökunum Rússa
og sagði í yfirlýsingu hans, að það
væri „ekkert kommúnískt vatikan
til og það getur enginn bannfært
okkur“. „Herlögin í Póllandi eru
ósamræmanleg hugsjónum okkar
um lýðræði og sósiaiisma,“ sagði í
yfirlýsingunni, sem talið er að
Enrico Berlinguer, formaður
kommúnistaflokksins, hafi sett
saman að mestu.
landi hundruðum rússneskra
ráðgjafa.
Tilkynnt var, að tæknifræð-
ingarnir kæmu til starfa við
Aswan-stífluna og nokkrar járn-,
stál- og álbræðslur, sem reistar
voru fyrir rússneskt fé á sjöunda
áratugunum. Árið 1972 rak Sadat
heitinn úr landi 700 rússneska
ráðgjafa um iðnaðarmál, og 17.000
hernaðarráðgjafa og er það hald
vestrænna sérfræðinga, að
brotthvarf tæknimannanna hafi
valdið Egyptum meiri erfiðleikum
en þeir hafa viljað viðurkenna.
Haft er eftir heimildum í Eg-
yptalandi, að endurkoma rússn-
esku tæknimannanna hafi ein-
göngu verið ósk viðkomandi iðn-
greina og að hún muni ekki hafa
hin minnstu áhrif á vaxandi sam-
starf Bandaríkjamanna og Eg-
ypta. í viðtali, sem þýskt timarit
hafði við Hosni Mubarak forseta
og birt var í egypskum dagblöðum
i gær, sunnudag, sagði hann, að
Sovétmenn hefðu um ófyrirsjáan-
lega framtíð engu hlutverki að
gegna við lausn vandamálanna
fyrir botni Miðjarðarhafs.
Njósnari í innsta hring
kommúnista í Bretlandi
hmdon, 25. janúar. AP.
FIMMTÍU og fjögurra ára gömul
brezk kona, Betty (lordon, laum-
aði sér til áhrifa í æóstu stjórn
hrezka kommúnistaflokksins fyrir
brezku gagnnjósnaþjónustuna
MI5 á árunum 1950 til 1960 og
dvaldist eitt ár í Austur Þýzka-
landi á vegum flokksins og njósn-
aói fyrir Breta að sögn „Sunday
Timcs“.
Frú Gordon var ráðin ti)
starfa hjá MI5 1949, þegar hún
var 22 ára gömul og svaraði
auglýsingu í The Times, þar sem
sagði: „Velmenntaðar stúlkur
óskast til starfa í London. Góðir
framtíðarmöguleikar og mögu-
leiki á starfi erlendis."
Hún játaði í síðasta mánuði
fyrir fyrrverandi vinum sínum í
flokknum, þar á meðal háttsett-
um flokksstarfsmönnum, að hún
hefði njósnað um þá þar sem
hún fyndi til „svo mikillar sekt-
arkenndar“, að sögn blaðsins.
„Ég hafði enga hugmynd um
að hún væri í MI5,“ sagði Betty
Reid, einn fyrsti félagi hennar
og fulltrúi í framkvæmdastjórn
flokksins. „Mér var talsvert
hlýtt til Betty Gordon.“
„Hún vann ágætt starf fyrir
okkur,“ sagði Clanmorris lávarð-
ur, fyrrverandi starfsmaður MI5
og yfirmaður hennar. „Hún var
flokksstarfsmaður í fullu starfi í
aðalstöðvunum i London og
hafði sambönd við öll kommún-
istasendiráðin."
Frú Gordon sagði að frú Reid
hefði útvegað henni starf hjá
flokksblaði í Austur-Berlin 1958.
En eftir eitt ár „fór ég að missa
kjarkinn", sagði hún, og hún
sagði af sér þrátt fyrir mótbárur
MI5.
Á árunum 1950 til 1960 var
hætta á undirróðri talin stafa
frá brezka kommúnistaflokkn-
um. Frú Gordon var ráðin þegar
Clement Attlee forsætisráðherra
hafði fyrirskipað algert eftirlit
með flokknum 1949.
Nú eru aðeins nokkur þúsund
manns félagar í flokknum, sem
hefur haft lítil áhrif á brezk
stjórnmál og brezkt þjóðfélag.
í stuttu máli
Samsæri
í Salisbury
('hilungwiza, /imhahwp.
ROBERT Mugabe, forsæt-
isráðherra Zimbabwe, segir
að einn þingmanna Ian
Smiths fyrrum forsætis-
ráðherra, Stuttaford, hafi
verið handtekinn fyrir sam-
blástur með fyrrverandi
skæruliðum um að steypa
ríkisstjórninni. Minnst 11
aðrir hvítir menn hafa verið
handteknir fyrir sömu sakir.
Mugabe sagði Stuttaford
hafa leitað eftir stuðningi
byltingarhers Joshua
Nkomo, ZIPRA.
Fleiri
verkföll
hindon.
BRKZKIR lestarstjórar hófu
aftur vinnu í gær, mánudag,
eftir verkfall sitt á sunnudag,
hið fjórða síðan 13. janúar.
Horfur eru á fleiri verkfallsað-
gerðum brezkra lestarstjóra.
Óvelkomnir
Sanliafo.
JAIME ('astillo, forseti
mannréttindanefndar Chile,
sem var rekinn úr landi í ág-
úst, og tveir aðrir útlagar
fcngu ekki að fara úr flugvél-
um sínum þegar þeir komu til
Santiago á sunnudaginn til
þess að vera viðstaddir útför
Kaduardo Frei fyrrum forseta.
Nureyev ger-
ist Austur-
ríkismaður
Vín, 25. janúar, AP.
RUDOLF Nureyev, ballett-
dansarinn frægi, sem missti
borgararéttindi sín í Sovétríkj-
unum árið 1961, þegar hann
flúði vestur yflr, fékk ríkis-
fang í Austurríki. Að sögn stóð
honum til boða að gerast
borgari í nokkrum öðrum
löndum, en hann kvaðst hafa
valið Austurríki. „Ég hef alltaf
horið hlýjan hug til þessa
lands,“ sagði hann.
Verkfall
á Kastrup
Kaupmannahofn, 25. janúar, Al*.
Flugvallarstarísmenn hjá
SAS-flugfélaginu í Kaup-
mannahöfn leyfðu í dag vél-
um frá félaginu að fljúga frá
Kaupmannahöfn en komu
hins vegar í veg fyrir lend-
ingu og varð af þeim sökum
að vísa SAS-vélum til ann-
arra flugvalla. Samtals 1600
manns eru í verkfalli og
veldur því ágreiningur milli
þeirra og stjórnar fyrirtæk-
isins.
Týnd
í Sahara
Al.sírhorg, 25. janúar, Al*.
Björgunarmenn frá Alsír og
Malí hafa síðustu dagana ver-
ið við leit að tveimur þýskum
hlaðamönnum, sem hefur ver
ið saknað síðan 22. des. sl.
Blaðamennirnir, hjónin
Manfred og Monica, ætluðu
að fara á eigin jeppa frá Ah
sírborg til Túnis en hafa ekki
komið þar frá. Á þessum tíma
er mikið um sandstorma í
Norður Afríku og hitinn að
jafnaði um 30° á C.