Morgunblaðið - 26.01.1982, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1982
KR-INGAR héldu áfram sigurgöngu
sinni í úrvalsdeildinni í körfuknatt-
leik á sunnudagskvöldið, er liðið
sigraði Val 81-78 í hnífjöfnum leik.
Staðan í hálfleik var jöfn, 41-41.
Leikur þessi var allan tímann
hnífjafn og það var ekki fyrr en á
síðustu mínútu leiksins, sem KR
tókst að gera út um leikinn. Hljóp
skyndilega mikil spenna í leikinn
þarna undir lokin, því þrátt fyrir
mikið jafnræði fékk maður á til-
finninguna að leikurinn færi fram
á hálfum hraða. Það er hægt að
fara fljótt yfir sögu í sambandi við
gang leiksins, um miðjan fyrri
hálfleik var staðan 16-16, í hálf-
leik 41-41 og um miðjan síðari
hálfleik 62-62. Þegar 59 sekúndur
voru til leiksloka var staðan 79-77
fyrir KR og þá fékk Kristján Ág-
ústsson þrjú vítaskot. Hann náði
aðeins að skora úr síðasta kastinu
• Jón Sigurðsson lék mjög vel með
KK gegn Val og var stigahæsti leik-
maður liðsins.
KR nýtti vel
síðustu mínútuna
og í stað þess að jafna leikinn,
skoraði Jón Sigurðsson glæsilega
körfu og hirti síðan frákast undir
eigin körfu. Tókst KR-ingum síð-
an að halda knettinum til leiks-
loka og sigurinn var í höfn.
KR-liðið var ívið sterkari aðil-
inn og vann samkvæmt því sann-
gjarnan sigur. Þó mátti vart á
milli sjá. Besti maður liðsins var
Jón Sigurðsson sem skoraði marg-
ar glæsilegar körfur auk þess sem
hann var fastur fyrir í vörninni.
Stu Johnson sótti sig er á leið, var
mjóg góður lokakaflann, en slakur
framan af. Ágúst Líndal átti einn-
ig mjög góðan lokakafla en Krist-
ján Rafnsson góðar upphafsmín-
útur. Var hann síðan lítið með af
einhverjum sökum. Garðar var
með að nýju eftir nokkra fjarveru,
en var ekki sannfærandi og ungu
mennirnir voru ekki eins áberandi
í síðustu leikjum.
Torfi Magnússon og Ríkharður
Hrafnkelsson voru sterkustu
menn Vals að þessu sinni og fram-
lag Torfa í vörninni var Val dýr-
mætt. Ramsey var með betra móti
að þessu sinni, en alltaf hefur
maður það á tilfinningunni að
hann sýni ekki nema hluta af
raunverulegri getu sinni. Aðrir
Valsmenn komu minna vð sögu,
Kristján og Gylfi áttu þó góða
spretti annað slagið.
Stig KR: Jón Sigurðsson 26, Stu
Johnson 24, Garðar Jóhannsson
10, Ágúst Líndal 9, Kristján
Rafnsson, 6 Birgir Mikaelsson 4 og
Stefán Jóhannsson 2 stig.
Stig Vals: John Ramsey 22,
Ríkharður Hrafnkelsson 20, Torfi
KvL, 81-78
Magnússon 17, Kristján Ágústs-
son 11, Gylfi Þorkelsson 4, Jón
Steingrímsson og Valdemar Guð-
laugsson 2 stig hvor.
Dómarar voru Þráinn og Gunn-
ar Valgeirsson. Misstu þeir af
slatta af villum. gg-
PSV er efst
í Hollandi
ÞAÐ ER víðar en í Englandi sem
leikjum er frestað í knattspyrn-
unni. Aðeins þrír leikir fóru
fram í Hollandi um helgina og
urðu úrslit þessi:
Tilburg — Twente 0—2
NEC, Nijmegen — Ajax 1—3
RODA Kerkrade — Sparta 2—0
Staða efstu liða:
PSV 16 12 2 2 42-17 26
Ajax 17 11 2 4 58-27 24
AZ ’67 16 10 3 3 37-17 23
Sparta 16 8 4 4 30-19 20
Bikarmót f
skíðagöngu
BIKARMÓT í skíðagöngu fullorð-
inna og unglinga fer fram 30. janúar
1982 í Bláfjöllum. Mótið hefst laug-
ardaginn 30. jan. kl. 13.00. Þátttak-
endur verða bestu skíðamenn lands-
ins.
96 tóku þátt í Arnarmótinu í borötennis.
Hjálmtýr og Ragnhildur sigruðu
SPILAÐ var í Laugardalshöll um I
helgina og voru 96 þátttakendur.
Þetta var í 11. skiptið sem keppt var
um bikarinn og 2. skiptið sem
Hjálmtýr Hafsteinsson, KR, sigrar
(áður 1980).
MEISTARAFLOKKUR KARLA:
1. Hjálmtýr Hafsteinsson KR
vann 21-15, 21-19
2. Jóhannes Hauksson KR
3. Stefán Konráðsson Víkingi
Meistaraflokkur kvenna:
1. Ragnhildur Sigurðardóttir
UMSB vann 21-12, 21-13
2. Ásta Urbancic Erninum
3. Kristín Njálsdóttir UMSB
1. flokkur kvenna:
1. Arna Sif Kærnested Víkingi
vann 21—11, 21—17
2. Elísabet Ólafsdóttir Erninum
3. Elín Eva Grímsdóttir Erninum
1. flokkur karla:
1. Björgvin Björgvinsson KR vann
21—10, 21 — 16
2. Árni Gunnarsson UMFK
3. Gunnar Birkisson Erninum
2. flokkur karla:
1. Kristján Viðar Haraldsson
HSÞ vann 21-16,18-21, 21-8
2. Gunnar Hall Erninum
3. -4. Sigþór Haraldsson HSÞ og
Guðmundur I. Guðmundsson
Víkingi
Punktastaða BTÍ að loknu
Arnarmóti 24.1. 1982:
MKISTAKAKL. KAKLA: I'unktar
1. Tómas (iuðjónsKon KK Hf>
2. Tómas Sölvason KK 47
3. Iljálmtýr llafsu*ins.s. KK 42
4. Bjarni Kri.s(jánss. l’MKK 33
5. Jóhanncs llauksson KK 27
6. (iunnar Kinnhjörnss. ()rn 2«
7. Krislján Jónasson Vík. 1K
K. Stefán konrádsson Vík. 17
9. (iuðmundur Maríuss. KK Ifi
1«. Ililmar KonráAss. Vík. 1»
MKISTAKAKL. KVKNNA: Kunklar
1. Kagnhildur Sigurðard. I MSH 1K
2. Ásta l'rbancic <)rninn 13
3. Kristín Njálsdótfir l'MSII 4
4. Ilafdís Ásgeirsdóttir KK 2
i>. Krna Sigurðardóttir HMSB I
I. KLOKKI K KVKNNA: Kunktar
1. Arna Sif Kærncsted Vík. 5
2. (fuðleif Jonna Kristjánsd. I'MSB 4
3. Klín Kva (■rímsdóttir Örninn 3
I. KLOKKI K KAKLA. I'unktar
1. Björgvin Björgvinsson KK 20
2. Kristinn Már Kmilss. KK 16
3. Árni (.unnarsson l'MKK 13
4. —5. (Jylfi l*álss. HiyiKK II
4.-5. Kmil Pálsson Örninn II
2. KLOKKI K KAKLA: 1‘unktar
1. Kriðrik lk*rndsen Vík. ^ 20
2. Stefán Stefánsson Vík. 13
3. —í>. Andri Marteinss. Vík. 12
3.-5. Bergur Konráðss. Vík. 12
3.-5. (iuðmundur I. (fuðmundss. Vík. 12
mpi
• Halldór Guðbjörnsson leggur andstæðing sinn með fallegu bragði. Halldór Guðbjörnsson JFR sigraði í 71 kg
flokki á afmælismóti JSÍ um síðustu helgi.
Góð þátttaka í afmælismóti JSI
FYRRI hluti afmælismóts Judosam-
bands íslands fór fram sl. sunnudag,
24. janúar, í íþróttahúsi Kennara-
háskólans. Keppt var í 6 þyngdar
flokkum karla og var þátttaka mikil.
Úrslit urðu sem hér segir:
- 60 kg
1 Gunnar Jóhannesson, UMFG
2. Þorsteinn Jóhannesson Árm.
3. Ágúst Egilsson Gerplu og
Sigurður Kristinsson UMFG
- 65 kg
1. Karl Erlingsson Árm.
2. Magnús Jónsson Árm.
3. Rögnvaldur GUðmundsson
Gerplu og Hallur Sigurðsson
UMFG (veitt er tvenn 3. verð-
laun þar sem keppendur eru 8
eða fleiri.)
- 71 kg
1. Halldór Guðbjörnsson JFR
2. Gunnar GUðmundsson UMFK
3. Hilmar Jónsson Árm.
- 78 kg
1. Ómar Sigurðsson UMFK
2. Magnús Hauksson UMFK
3. Gísli Wíum Árm.
- 36 kg
1. Gísli Þorsteinsson Árm.
2. Kári Jakobsson JFR
3. Sigurður Hauksson UMFK
Tvöfalt hjá stúdentum
TVEIR leikir voru leiknir í fyrstu
deild karla á íslandsmótinu í blaki
um helgina. Fyrri leikurinn var á
milli UMSE og Þróttar og lauk hon-
um með sigri Þróttar 3—0. Þróttarar
léku nú án Guðmundar E. I’álsson-
ar, en hann er nú á förum til Noregs
og mun ekki leika meira með Þrótti
í vetur.
í fyrstu hrinu náðu Þróttarar strax
afgerandi forystu en þegar líða tók á
hrinuna jafnaðist lcikurinn og um
tíma voru heimamenn með forystu
en Þróttur var sterkari á endasprett-
inum og sigraði 16—14. í upphafi
annarrar hrinu komst IJMSE í 4—1
en smátt og smátt söxuðu Þróttarar
á forskotið og unnu öruggt 15—8.
Síðustu hrinuna unnu Þróttarar svo
15—12 eftir að staðan hafði verið
11—4 þcim í hag. Bestu menn Þrótt-
ar voru Leifur Harðarson og Sveinn
Hreinsson en hjá IIMSE var Aðal-
steinn Bernharðsson bestur.
Á sunnudag áttust síðan við
Víkingur og ÍS og var það fremur
daufur leikur eins og reyndar
flestir leikir í fyrstu deild karla
hafa verið í vetur. Fyrstu hrinuna
vann IS örugglega 15—9. Næsta
hrina var mun jafnari og voru
Blak
Víkingar yfir 12—10 en ÍS-menn
léku lokakaflann af miklu öryggi
og sigruðu 15—12.
í þriðju hrinu sýndu Víkingar
hvers þeir eru megnugir og sigr-
uðu örugglega 15—3. Það var
sama hvað Víkingar gerðu, allt
gekk upp. Sömu sögu er ekki hægt
að segja um ÍS því hjá þeim gekk
allt á afturfótunum. I fjórðu hrinu
tryggðu ÍS-menn sér sigur í leikn-
um með því að vinna hrinuna
15—10 eftir að staðan hafði verið
13-3.
Víkingar léku þarna sinn besta
leik í vetur og munar þar eflaust
mest um að Páll Ólafsson er
mættur til leiks að nýju. Þrátt
fyrir að hann sé ekki í góðri æf-
ingu þá stendur hann ávallt fyrir
sínu og drífur félaga sína áfram.
Bestu menn Víkings auk Páls voru
Skjöldur Vatnar og Björgólfur Jó-
hannsson.
ÍS-liðið var mjög jafnt en Frið-
bert Traustason og Sigurður Þrá-
insson voru hvað bestir, einnig
átti Kjartan Páll Einarsson góð-
ann leik.
Dómari var Þorvaldur Sigurðs-
son og dæmdi hann ágætlega.
Strax að leik Víkings og IS lokn-
um léku ÍS og UBK í kvennaflokki.
Margir bjuggust við spennandi
leik og góðu blaki þar sem að þetta
eru tvö bestu liðin á landinu, en
þar urðu menn fyrir miklum
vonbrigðum því bæði liðin léku
langt undir getu og var leikurinn
hreint og beint leiðinlegur.
Ekki verður gangur leiksins
rakinn hér, en úrslitin urðu þau að
ÍS sigraði 3-0 (16-14, 15-5,
15—13). Sem dæmi um hversu
slakur þessi leikur var þá voru
misheppnaðar uppgjafir alls 31,
þar af 18 hjá Breiðabliki. Bestar
hjá ÍS voru þær Ursula Juhneman
og Þóra Andrésdóttir en hjá UBK
voru Þorbjörg Rögnvaldsdóttir og
Sigurborg Gunnarsdóttir bestar.
Leikinn dæmi Björgólfur Jó-
hannsson og gerði hann það mjög
vel.
SUS
+ 86 kg
1. Bjarni Friðriksson Árm.
2. Kolbeinn Gíslason Árm.
3. Hákon Halldórsson JFR
Þátttaka var mjög góð í öllum
flokkum, Bjarni Friðriksson sigr-
aði með yfirburðum í þyngsta
flokknum, en í öllum hinum flokk-
unum var mjög jöfn barátta um
úrslitasætin.
Næstkomandi sunnudag verður
seinni hluti afmælismótsins
Verður þá keppt í opnum flokki
karla, unglingaflokkum og
kvennaflokki.
Athugasemd
UNDIRRITAÐUR vill mótmæla um-
sögn um dómgæslu mína sem birtisi
í Morgunblaðinu á þriðjudaginn. í
mótabók HSÍ stendur hvaða dóm-
arapar eigi að dæma hvern leik á
mótinu. Til þess að leikur Þórs og
Fylkis gæti farið fram var ég til-
neyddur til þess að dæma þennan
leik ásamt dómara úr Yestmanna
eyjum.
Hefði verið betra að fella leikinn
niður þar sem ekki fékkst dómara
par. Heimamenn eru sárir vegna
þess að 4 lcikmcnn þeirra voru rekn
ir af leikvelli í 2 mínútur.
Virðingarfyllst:
Steingrímur Sigurjónsson.