Morgunblaðið - 26.01.1982, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1982
27
525*^55
i 1 n | H
Arabarnir fengu Kádilják i verðlaun
KUWAIT er upprennandi knatt-
spyrnuveldi, en í sumar tekur landið
þátt í lokakeppni HM á Spáni í
fyrsta skipti, en það er vert að geta
þess, að það eru aðeins 25 ár síðan
Kuwait-búar hófu að leika knatt-
spyrnu. Olíujöfrarnir vilja allt fyrir
íþróttina gera, sem dæmi má geta
þess, að hver einasti leikmaður í 22
manna landsliðshópi Kuwait fékk
sem svaraði tæpun 500.000 krónum í
• Hennes Weisweiler, knattspyrnu-
þjálfarinn góðkunni, sem starfar hjá
New York ('osmos, neitaði fyrir
skömmu tilboði frá spænska stórlið-
inu Valencia, en það var samningur
sem hefði gefið Weisweiler 7 millj-
ónir króna á þremur árum. Þeir hjá
Valencia voru fljótir að ná sér af
hryggbrotinu, leituðu til Luis (’esar
Menotti, landsliðsþjálfara Argentínu
og bíða nú eftir svari hans.
• Það eru ótrúlegustu „týpur" sem
taka sér ýmis konar íþróttir fyrir
hendur og ein þeirra er þessi tenn-
iskappi sem margir munu kannast
við þegar að er gáð. Þetta er jú eng-
inn annar en söngvarinn heimsfrægi
Luciano Pavarotti sem mundar spað-
ann á tennisvelli í San Francisco
fyrir skömmu, en hann var þá að
hvfla sig eftir að hafa slegið í gegn
sem Rasdames í óperunni „Aida".
„bónus" fyrir að vinna sæti í loka-
keppninni, auk þess sem þeir fengu
glænýjan Kádilják ...
Hér má sjá fyrirliða landsliðs
Kuwait í knattspyrnu er hann sótti
nýja Kádiljákinn sinn, eftir að lið
hans komst áfram.
Knattspyrna 1
• Sá sem þjálfar landslið Kuwait
er enginn annar en fyrrverandi
heimsmeistari í knattspyrnu, Bras-
ilíumaðurinn Carlos Alberto. Hann
hefur litlar 150 þúsund ísl. krónur
í árslaun. Lið Kuwait hefur unnið
einn heimsmeistaratitil. Það er
HM-titill herliða í knattspyrnu.
• Fahad Al Sabah, forseti knatt-
spyrnusambands Kuwait, er forrík-
ur olíukóngur.
• Þegar menn eru orðnir of gamlir
til að hlaupa á fótboltavellinum má
breyta til og fá sér mótorhjól og
leika mótorhjólaknattspyrnu eins og
gert er víða í Þýskalandi. Notaður er
stór gúmmíbolti, keyrt á fullri ferð á
hjólunum og sparkað í boltann og
reynt að skora að sjálfsögðu. (Eng-
inn markvörður er í leiknum.)
• Georg Buschner, hefur nú hætt
störfum sem landsliðsþjálfari austur
þýska knattspyrnulandsliðsins, en
hann starfaði sem slíkur í 11 ár og
stjórnanði liðinu í 113 landsleikjum.
Buschner gekk svona upp og ofan
með liðið, en hápunkturinn var
Olympíugull árin 1976 og 1980.
• Olíklegt verður að teljast að línuvörðurinn á myndinni hafi í huga að gæla
við hundinn sem veitist þarna að honum. Þá er það nokkurn veginn víst, að
hundurinn er ekki að sýna þeim svartklædda blíðuhót, enda þrautþjálfaður
lögregluhundur, sem sloppið hefur úr gæslu lögreglumanns. Hundarnir eru
ekki vanir að þeim sé sleppt nema til þess að snúa einhvern óþokka niður.
Snati vissi því ekki sitt rjúkandi ráð og réðist bara á næsta mann sem var
umræddur línuvörður. Það fylgdi þó fréttinni, að línuvörðurinn slapp án
teljandi meiðsla ...
• Ekki eru allir á eitt sáttir meó aó nautaat se íprott, en Spanverjar kalla
nautaatið þjóðaríþrótt sfna og næst á eftir knattspyrnunni er nautaatið mjög
vinsælt. Nautabanar á Spáni eru þjóðhetjur. Hér má sjá einn þeirra vera að
ögra nautinu. En eftir að hafa fengið margar stórar stungur frá nautabanan-
um virtist krafturinn þrotinn. Enda hné nautið niður rétt eftir að myndin var
tekin.
d 3U9 301 30013111153
?[330i311|318l309|160
9278l260l277|247|132
S 2 8 012 6 5|2 7 9l2 61113 7
4294l269fls|282|145
7 272]24J&|249i128
0 353.3 JHÍ42'173
• Hvað skyldi ég nú hafa fengið
mörg stig í keppninni. Það er eins
gott að reiðmennirnir þekki vel inná
stigagjöfina og viti hvernig lesa á af
töflunni.
• Gary Mills þykir vera einn af
efnilegustu lcikmönnum Notthing-
ham Forest. Nýiega gerði Brian
Clough honum þriggja ára samn-
ingstilboð og Gary skrifaði undir. Þá
hefur bakvörðurinn sterki Viv And-
erson endurnýjað samning sinn við
Forest.
• Hann Berti gamli Hemstock
(lengst til hægri) getur svo sannar
lega leyft sér þann munað að púa
risavindil, enda nýbúinn að vinna
rúmlega 370.000 sterlingspund hjá
Littlewoods-getraunafyrirtækinu.
Berti gamli, sem er reyndar ekki svo
ýkja gamall, aðeins 64 ára, er götu-
sópari og vikulaun hans hafa verið
um 400 krónur. Aðspurður um hvað
hann ætlaði að gera við peningana
sagði Berti: „Ekkert sérstakt. Ég
ætla jú að kaupa hús handa dóttur
minni, en annað er óráðið." Lengst
til vinstri er Brian Carey, einkabfl-
stjóri, sem datt einnig í lukkupottinn
og vann 381.000 pund ásamt fimm
vinnufélögum. A milli þeirra stendur
reffilegur vörður laganna, enda ekki
hættulaust að stilla upp slíkum fjár
upphæðum á götu úti.