Morgunblaðið - 26.01.1982, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1982
29
Hvað segja sjómenn á stóru togurunum
„Viljum hærra kaup, öðr
um kröfum lftt hampað“
- segir Bárður Sigurðsson bátsmaður á Karlsefni
„Kg er sáróánægdur með stöð-
una eins og hún er í dag. Ég tel
þessa hækkun á fastakaupi smán-
arlcga litla, því þar hefur 10%
hækkunin ekki meira vægi en
4,5% en auðvitað fer það eftir því
hvort vel eða illa aflast,“ sagði
Bárður Sigurðsson, bátsmaður á
Karlsefni.
Hverjar eru aðalkröfurnar
nú?
„Aðalkrafan er að kaupið
hækki, öðrum kröfum er lítt
hampað. Við fengum litla launa-
hækkun við síðustu samninga og
munum ekki standa upp frá
samningaborði með svo slæm
býtí.“
Hvernig líst þér á þá tillögu
útgerðarmanna að fækka
mannskap á dekki og þannig
hækka hlut hásetans?
„Ég er ekkert hrifinn af þess-
ari tillögu útgerðarmanna. Þetta
þýðir meira vinnuálag fyrir þá
sem eftir eru. Ef mönnum yrði
fækkað þyrfti að gera breytingar
á togurunum og búast má við að
slíkt yrði mjög kostnaðarsamt.
En það er greinilegt að útgerð-
armenn vantar ekki peninga í
þær framkvæmdir.
Ég og við allir erum orðnir
dauðleiðir á barlóminum í út-
gerðarmönnum. Eftir því sem
þeir segja þá hefur ekkert skip
borið sig síðan 1901 er vél var
sett í fyrsta bátinn, hver tekur
slíkar harmatölur trúaniegar!"
Hvernig hefur þú varið tíma
þínum meðan þú hefur verið í
landi?
„Tíminn hefur að mestu farið í
samninga og bið þess á milli. En
það er alltaf gaman að vera í
faðmi fjölskyldunnar. Enda þótt
segja megi að svona löng land-
lega virki sem stöðulækkun fyrir
Bárður Sigurðsson
konuna, því maður fer að skipta
sér af því sem verið hefur henn-
ar yfirráðasvið, þá held ég að
henni þyki samt ákaflega gott að
hafa mig í landi!"
„Við erum sárir út í Sjó-
mannafélag Eyfirðinga“
- segir Valdimar Sigþórsson háseti á Snorra Sturlusyni
„Það ríkir sama ástand nú og
þegar við komum í land. Kf útgerð-
armenn vilja ekkert ræða við
okkur, líst mér illa á þetta,“ sagði
Valdimar Sigþórsson, háseti á
Snorra Sturlusyni.
Telur þú að útgerðarmenn eigi
eftir að láta undan kröfum ykkar
um hærra kaup?
„Það er ómögulegt að segja.
Útgerðarmenn hafa viðurkennt
að okkur beri hærri laun en þeir
segjast ekki geta hækkað kaupið
nema að fækka um borð. Ég tel
að sjómenn eigi ekki eftir að
ganga að slíkum skilyrðum í
þessum samningum."
Hver er afstaða þín til samn-
inganna fyrir norðan?
„Við sjómenn á stóru togurun-
um hérna fyrir sunnan urðum
afar sárir út í Sjómannafélag
Eyfirðinga. Félagið gekkst fyrir
því að greidd voru atkvæði sam-
eiginlega um bátakjarasamn-
ingana og samningana við minni
og stærri togarana. Þar með
samþykktu þeir sömu sáttatil-
lögu og felld var í Reykjavík þar
sem stóru togararnir sömdu
sér.“
Hvernig heur þér svo liðið í
landi?
„Ég er í samninganefnd svo
tími minn hefur aðallega farið í
fundi og að bíða eftir símahring-
ingum og má því segja að ég hafi
lítið aðhafst annað en vona og
bíða. Mér líkar annars alltaf vel
í landi og fer að vinna þar ef
kjörin batna ekki. Á síðasta ári
hafði ég 13 þúsund krónur á
mánuði fyrir 84 stunda vinnu-
viku og er þá miðað við besta
Valdimar Sigþórsson
„túrinn“. Ég gæti haft miklu
betra upp úr því að afgreiða kók
og prins póló með 15 þúsund
krónur á rnánuði," sagði Valdi-
mar Sigþórsson.
„Rosalegt að ota sjó-
• •
u
monnum svona saman
- segir Anton Helgason háseti á Snorra Sturlusyni
„Auðvitað er ég óhress með að
við sem framkvæmum crfiðustu
vinnuna berum minnst úr býtum.
Fyrst það er svona erfítt að gera
stóru togarana út, hvers vegna
hafa þeir þá ekki verið seldir,"
sagði Anton Helgason, háseti á
Snorra Sturlusyni.
„Það er líka rosalegt hvernig
búið er að ota sjómönnum saman
með því að skapa aðstöðumun á
milli þeirra, sem vinna á minni
togurunum annars vegar og
þeirra sem vinna á stærri togur-
unum hins vegar, en munur á
kaupi er orðinn allverulegur."
Er aðstöðumunur á fleiri svið-
um?
„Já, aðstöðumunur er líka á
milii Akureyrartogaranna og
þeirra sem gerðir eru út fyrir
sunnan. Akureyrarskipin geta
nýtt alla sína þorskveiðidaga,
þar eð þeir fiska fyrir Ameríku-
markað. Bæjarútgerðartogar-
arnir eru aftur á móti á skrap-
fiskeríi, það er að segja á karfa-
og ufsaveiðum, þar eð þeir veiða
fyrir Rússlandsmarkað. Þorsk-
veiðidagarnir eru því ekki allir
nýttir. Þorskurinn er rúmlega
helmingi verðmeiri, þannig að
við berum minna úr býtum. Við
teljum það því mikið hagsmuna-
mál að allir þorsveiðidagarnir
séu nýttir," sagði Anton.
Hvernig hefur þér gengið að
lifa af hásetalaununum?
„Það gengur ekki betur en svo,
að ef ég vildi byggja yfir mig og
fjölskyldu mína, þá myndi ég
ekki hafa efni á að taka mér frí.
Ég þyrfti að kaupa að alla vinnu,
þar eð ég er út á sjó og get ckki
unnið í byggingunni sjálfur og
yrði húsbyggingin því mun dýr-
ari.“
Hvernig hefur þú svo eytt tím-
Anton Helgason
anum í landi?
„Ég hef verið að ditta að einu
og öðru heima hjá mér. Einnig
hef ég sinnt mínu áhugamáli,
sem er frimerkjasöfnun."
„Lýst illa á fækkunina, hún
myndi þýða aukna vinnu“
- segir Júlíus Gíslason háseti á Ögra RE
„Mér líst illa á ástandið, en það
er lítið hægt að segja að svo
stöddu, sáttascmjari á næsta leik,“
sagði Júlíus Gíslason, háseti á
Ögra RK 72.
„Kröfur okkar, sem við settum
fram í upphafi eins og hækkun á
fastakaupi, starfsaldurshækkan-
alla „rauða daga“, eru óhreyfðar.
Ymsar smærri kröfur, eins og að
fá vasahnífa endurgjaldslaust,
hafa heldur ekki gengið fram, en
við teljum það sjálfsagt að út-
gerðin leggi okkur til verkfæri,
en hver hnífur kostar um 100
krónur og við þurfum 4—6 hnífa
yfir árið.“
Hvernig líst þér á að fækkað
yrði á stóru togurunum?
„Mér líst illa á það. Þetta
myndi þýða aukna vinnu fyrir þá
sem eru á dekkinu auk þess sem
varla er hægt að gera ráð fyrir
að hægt sé að ná fullri nýtingu,"
sagði Júlíus Gíslason.
Júlíus (ííslason
ir, fatapeningar og að fá greidda
mu hii i mn.M'unn.n'i nii i .m'biLi im i iiii birrmmi'i biu.itM
Skákmótid í
Wijk aan Zee:
Jóhann í
4. -7. sæti
JÓHANN Hjartarson er í 4.—7. sæti
að loknum 4 umferðum í B-flokki
alþjóðlega skákmótsins í Wijk aan
Zee í Hollandi. Jóhann gcrði jafn-
tefli í tveimur fyrstu umferðunum,
við alþjóðlega meistarann Iskov frá
Danmörku og Jan V'ogel, Hollandi.
í þriðju umferð tapaði hann
fyrir alþjóðlega meistaranum Van
der Sterren, Hollandi en vann
Vlam, Hollandi í 4. umferð. Van
der Sterren hefur forustu með 3V4
vinning, Scheeren, Hollandi hefur
3 vinninga, Ligterink, Hollandi
hefur 2'/2 og síðan koma Jóhann,
Kindermann, Hollandi, Davies,
Englandi og Iskov, Danmörku,
með 2 vinninga.
Að loknum 8. umferðum í stór-
meistaraflokki hefur Englending-
urinn John Nunn forustu með 5V4
vinning. Hann gerði jafntefli við
Lubomir Kavalek. Önnur úrslit.
urðu: Syunye, Brazilíu, vann van
der Wiel, Hollandi, Yuri Balashov,
Sovét, vann Murrey Chandler,
Nýja Sjálandi, Vlastimil Hort,
Tékkóslóvakíu og Pedrag Nikolic,
Júgóslavíu, gerðu jafntefli, Hans
Ree og Larry Christiansen,
Bandaríkjunum, gerðu jafntefli,
Jan Timman vann Robert Húbner,
V-Þýzkalandi, og var það fyrsti
sigur Timmans í mótinu og
Mikhail Tal vann Gerd Sosonko,
Hollandi.
Staðan er nú: 1. Nunn 5V4, 2.-4.
Van der Wiel, Balashov og Hort
með 5, Húbner og Nikolic eru í
5. -6. sæti með 4V4 vinning, Kav-
alek, Ree og Sosonko hafa 4 vinn-
inga, Tal og Christiansen 3V4,
Sunye og Timman 3 og Chandler
rekur lestina með 1V4 vinning.
13 nauðgunar
kærur í fyrra
Á SÍÐASTLIÐNU ári bárust 13
nauðgunarkærur til Rannsóknar
lögreglu ríkisins. Af þessum 13 kær
um eru 6 enn í rannsókn, en af þeim
eru 3 taldar tilraunir til nauðgunar,
sem ekki náðu fram að ganga.
Tvær kærur voru lagðar til hlið-
ar, þar sem ekki sýndist vera um
sök að ræða. Ein var send út á
land og fjórar til Rikissaksóknara.
Af þessum fjórum nauðgunarkær-
um hefur saksóknari fellt tvær
niður.
„Fjöldi kæra síðastliðið ár er
svipaður og undanfarin ár, og eins
virðist um hlutfal! brota,“ sagði
Arnar Guðmundsson, deildar-
stjóri hjá Rannsóknarlögreglu
ríksins í samtali við Mbl.
Skákþing Reykjavíkur:
Margeir
efstur
MARGKIR Pétursson hefur forustu
á Skákþingi Reykjavíkur að loknum
7 umferðum. Hann hefur 5Ví vinn-
ing, en Sævar Bjarnason er í öðru
sæti með 5 vinninga en hefur aðeins
teflt 6 skákir. Yiðurcign hans við
Asgeir Inir Árnason í 7. umferð var
frestað.
Af helstu úrslitum í 7. umferð á
sunnudag má nefna að Margeir
Pétursson vann Róbert Harðarson
í 7. umferð á sunnudag. í 6. um-
ferð sem tefld var á föstudag vann
Sævar Hilmar Karlsson, Margeir
vann Lárus Jóhannesson og Rób-
ert og Ásgeir Þór gerðu jafntefli.
Staða efstu manna er:
1. Margeir Pétursson 5V4
2. Sævar Bjarnason 5 og 1 frestað
3. Róbert Harðarson 5