Morgunblaðið - 26.01.1982, Page 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1982
,,Ég Hef kanna^ mái þifct, og ég held
,aS besta ÍQusnin -Pyrir þ/g sé oá>
graía göng!"
Ast er.
o
lC-tí-ö
.., að rera heima hjá
fjölskvldunni á jólun-
um.
TM Rea U.S. Pat Off — all rights reserved
• 1980 Los Angeles Times Syndicate
. yí'' -
Þú hofur staðið þig vel. Þú hefur
' þj gefið fyrirtækinu öíl bestu ár ævi
•" ~ þinnar. Vid munum ekki fara fram
á meira. Þú skilur hvad ég er að
fara?
HÖGNI HREKKVlSI
MrNaught Synd., Inc.
, /V'CTT'C/ /Ac3Sc//ut .. "
Kristilegt efni á
útvarpsdagskrá:
„Ég held að
fólk hafi
fagnað þess-
um stuttu
þáttum“
Kæri Velvakandi!
Þaö er þakkarvert, hve þeir
útvarpsmenn eru fúsir að birta
ýmislegt kirkjulegt og kristi-
legt efni í dagskránni. Messur
eru á hverjum sunnudegi, og
svo hafa verið fluttir margir
þættir, fastir eða lausir, um
trúarleg efni. Svo bættust við
fyrir nokkru „Morgunorð" og
„Orð kvöldsins". Ég held, að
fólk hafi fagnaö þeim stuttu
þáttum. Einkum þykja mér
„Orð kvöldsins" oft góð, þar er
yfirleitt aðeins biblíuorð og svo
bænir í bundnu máli.
I „Morgunorði" eru líka oft
flutt uppbyggileg orð. Þó vil ég
biðja þá, sem annast um þann
þátt, að vanda betur val sitt á
flutningsmönnum. Lífiþ er nú
alvara og lífsbaráttan oft erfið,
og við þörfnumst einhvers
meira en léttvægra orða t.d.
um hlátur eða um að gera gott
og vera svo ánægður með sjálf-
an sig að kvöldi („Við vorum
ekki sem verstir í dag“ — er
það ekki hugsunarháttur far-
íseans?).
Margt fólk er handgengið
Biblíunni. Fáið það til að fara
með „Morgunorð" — því að
þetta „eitthvað meira", sem við
þurfum, er einmitt orð frá
Guði í heilagri ritningu.
Ég endurtek þakklæti mitt.
Lesandi
Launamál —
Stjórn eða stjómleysi?
„Líkt og þegar
hundur eltir
skottið á sér“
Heiðraði Velvakandi.
Það er mikið rætt og ritað um
sjómennina okkar um þessar
mundir og ekki að ástæðulausu.
Ekkert kemur þó útúr þessu öllu
saman nema sama hringavitleys-
an og hefur verið ríkjandi um
áratugi. Þetta er líkt og þegar
hundur eltir skottið á sér, nema
hvað hundurinn gerir það af kæti
og öðrum til skemmtunar. Þessi
vinnubrögð sem við höfum í ís-
lenzku þjóðlífi eru öllum til
skamnaar og engu líkara en fávit-
ar séu að verki, sem aldrei geta
lært af mistökunum.
Öfundsykin er svo yfirþyrm-
andi að engu tali tekur. Lág-
launafólk má ekki fá nokkrar
krónur í kjarabót, þá er verk-
fallsvopnið reitt til höggs af öll-
um launahópum. Mig langar til
að benda á nokkur atriði varð-
andi sjómenn fyrst, þeir eru í há-
sætinu núna.
Sjómenn segjast ekki hafa
sambærileg laun og fólk sem
vinnur í landi. Nú vill svo til að
ég veit um sjómenn sem vildu
gjarnan fara að vinna í landi, en
hvað gerist þá — þeir hafa sára-
lítinn afgang af sköttum sem þeir
verða að borga og neyðast til að
fara á sjóinn aftur til að bjarga
fjármálunum. Af hverju skyldi
þetta stafa?
Þetta getur hver reiknað út
sem vill. Hvers vegna geta sjó-
menn byggt lúxusibúðir eftir
nokkurra ára veru á sjónum?
Geta verkamenn þetta? Ég held
nú síður — ekki einu sinni staðið
í skilum af lánum til ibúðabygg-
inga. Nú hafa verkamenn gert
verkföll til leiðréttingar kjara-
samningum um áratuga skeið.
Hver er svo árangurinn? Hreint
enginn. Þó kauphækkun hafi
fengist þá hefur hún horfið og
meira en það eftir fáa daga í stór-
felldum verðhækkunum. Svo eru
menn að því er virðist farnir að
trúa því að kauphækkanir hafi
ekki áhrif til aukinnar verðbólgu.
Verkföll eru til skammar.
Hvers vegna? Vegna þess að
Svar til Þórðar varðandi Bubba:
„Víst hef ég heyrt skífuna þá arna“
Hr. Flinkur skrifar:
Kæri Velvakandi!
Þann 21. jan. sl. spyr Þórð-
ur nokkur Jónsson mig að því
hvers vegna ég sé að dæma
Pláguna hans Bubba án þess
að hafa heyrt hana(?)
Víst hef ég nú heyrt skíf-
una þá arna og það oftar en
einu sinni, en hins vegar er
það greinilegt, að UB 40 + co.
hafa ekki hlustað vel á bestu
piötu síðasta árs „Ricochet"
með The Rollers, en samt
hafa þeir (þó aðallega UB 40)
óspart rakkað hana niður og
meira að segja líkt henni við
gamla Chinnichap bubble-
gum-ið — það var hámark
vitleysunnar.
Víst hef ég líka heyrt bestu
íslensku rokkplötuna „... en
hún snýst nú samt“ með
Start. Og annað: Nei, ég hef
ekki heyrt í þungarokks-
hljómsveitinni Egó, en hins-
vegar neita ég ekki að mig
langar örlítið til þess, þar
sem ég hef aldrei heyrt ís-
lenskt bárujárn, og líka þar
sem eftirfarandi hljómar
undarlega fyrir mér: „Teen-
idol gerist bárujárnsrokk-
ari“.
En á meðan ég hef ekki
heyrt í Egó (væntanlega
fyrstu ísl. bárujárnsgrúpp-
unni), þá læt ég öðrum eftir
að dæma þá (þó UB 40 myndi
líklega gera annað í mínum
sporum). Jæja, en ég vona að
þú, Þórður, hafir fengið full-
nægjandi svar við spurningu
þinni.