Morgunblaðið - 26.01.1982, Page 48

Morgunblaðið - 26.01.1982, Page 48
Síminná QOfjOO afgreiðslunni er OOUOO Sími á ritstjórn og skrifstofu: 10100 JtlorDunX>Ifltiit> I>RIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1982 Fimm skip fengu loðnu um helgina l>AU FIMM loðnuskip, sem enn hal'a lejTi til loðnuveiða Tengu öll ada um helj>ina. Loðnuna fenjju skipin í Berufjarðarál, en þar er loðnan nú í litlum torfum. Segja sjó- menn að loðnan sé nú á mótum heita oj! kalda straumsins, sem eru |>arna og við þær aðstæður dreifi loðnan sér oft og þéttist síðan ekki á ný fvrr en hún kemur upp að land- steinum. Skijiin'sem fengu loðnu um helgina eru Huginn VE með 520 lestir, Krossanes SU með 100 lest- ir, Kap 2. VE með 400 lestir, Sæ- herg Sll með 450 lestir og Heima- ey VE með 300 lestir. Skipin lönd- uðu öll á Eskifirði. Skiptu á hassi og bjór TVKIK piltar af Suðurnesjum voru skömmu eftir áramót úr skurðaðir í gæzluvarðhald fyrir ávísanamisferli, svo sem skýrt var frá í Mbl. I»eir stálu ávísana- hefti og framvísuðu ávísunum í verzlunum. Alls munu þeir hafa gefið út ávísanir úr hinu stolna hefti fyrir um 20 þúsund krónur. I*eir framvísuðu skilríkjum, sem ekki voru þeirra. Þá urðu piltarnir uppvísir að að skipta á hassi og bjór. Þeir keyptu bjór af varnarliðs- mönnum og greiddu annars vegar með hassi og hins vegar í bandarískum dollurum, sem þeir keyptu fyrir fé, sem þeir komust yfir með því að falsa ávísanir. Þannig munu þeir hafa keypt 21 bjórkassa. Munu þeir hafa fengið sem næst tvo kassa fyrir hvert gramm af hassi. I gær var maður hand- tekinn af Fíkniefnalögregl- unni í Reykjavík fyrir dreif- ingu fíkniefna, meðal annars mun hann tengdur þessu máli. Biðskák hjá Guðmundi SKÁK (íuðmundar Sigurjónsson- ar við Israelann Kagan í 8 manna úrslitakeppni svæðamótsins í Kanders í Danmörku fór tvívegis í bið í gær. ísraelinn á ieik og getur vakið upp drottningu í næsta leik. Möguleikar Guðmundar felast í þráskák. Guðmundur var eini Islend- ingurinn, sem komst í úrslita- keppnina. Hann tryggði sér sæti á laugardag með því að gera jafntefli við Rantanen. Jón L. Árnason og Helgi Ólafsson eru báðir úr leik. Önnur úrslit í úrslitakeppn- inni urðu, að Grúnfeld, Israel, vann Karlsson, Svíþjóð; Murey, ísrael, vann Borik, V-Þýzka- landi, og Tiller, Noregi, vann Lobron, V-Þýzkalandi. ÞESSAR myndir sýna vel hver ógnarkraftur býr í brimskaflinum þegar úthafsaldan æðir að ströndinni, en myndirnar tvær tók Sigurgeir í Kyjum með sólarhrings millibili á strandstað belgíska togarans l’elagusar. Myndin af skipinu í briminu er tekin á laugardag um hádegi, en hin myndin er tekin 24 stundum síðar þegar aðeins voru tægjur eftir af togaranum. Það er stefnið og netageymslan sem eru þarna eins og krumpaður bréfpoki og brakið hafði færst um nokkur hundruð metra á einni nóttu norður með lleimaey í l’restahót. í fjarska sjást menn á hraunbrúninni þar sem skipið strandaði. Efnahagspakkinn kynntur í útvarpsumræðum á Alþingi á fimmtudagskvöld: Stefnir í 400—500 millj. kr. halla á viðskiptakjörum EFNAHAGSTILLÖGUR ríkisstjórnarinnar, sem beðið er og nefndar hafa verið „efnahagspakki**, verða iagðar fyrir Alþingi nk. fimmtudagskvöld. Tillögurnar verða þar lagðar fram í skýrsluformi og forsætisráðherra fylgir þeim úr hlaði. límræðunum á Alþingi á fimmtudagskvöld verður útvarpað. Samkvæmt heimildum Mbl. er hér að meginefni til um að ræða auknar niðurgreiðslur til að ná vísitölunni niður um 3% 1. febrúar nk. og um önnur :i% 1. maí og mun kostnaður nema um 400 millj. kr., og þess fjár aflað með niðurskurði o.fl. Þá er og Ijóst að nú stefnir í 400—500 millj. kr. halla á viðskiptakjörum við útlönd, samkvæmt endurskoðuðum útreikningum Þjóð- hagsstofnunar. Helstu þættir þessara tillagna eru eftirtaldir samkvæmt heimildum Mbl.: • Launaskattur i fiskiðnaði og iðn- aði lækki úr 3‘/z% í 2V4%, sam- tals um 40 millj. kr. • Auknar niðurgreiðslur (375 millj. kr.) og tollalækkanir á heimilis- tækjum (25 millj. kr.) samtals 400 millj. kr., til niðurfærslu vísitölu um 3% 1. febrúar og önnur 3% 1. maí. Niðurgreiðslur fara með þessu í a.m.k. 11% úr 5,2%. • 400 millj. kr. verður aflað með niðurskurði fjárlaga upp á 150 millj. kr.; nýtingu 125 millj. kr. sem tilgreint er „til sérstakra efnahagsaðgerða" á fjárlögum; einnig verða nýttar eftirstöðvar niðurgreiðslufjár upp á 30 millj. kr. Til viðbótar komi: Jöfnunar- tollur upp á u.þ.b. 10 millj. kr., tekjuskattur á bankastofnanir 30 millj. kr., breyting skattvísitölu 25—30 millj. kr. o.fl. • Tollkrít um áramót. Veittur verð- ur frestur á greiðslu tolla frá um áramót, að meðaltali til tveggja eða þriggja mánaða. • Yfirlýst verðbólgumarkmið í árs- lok verður 35%. • Yfirlýsing verður væntanlega í tillögunum um endurskoðun við- miðunarreglna hvað varðar vísi- tölugrundvöll. Engar breytingar ákveðnar á þessum tímapunkti, en boðaðar viðræður um breyt- ingar. • Peningamálin verða liklega óbreytt, en boðaðar breytingar síðar. • Þá mun fylgja tillögunum niður- staða endurskoðaðrar áætlunar Þjóðhagsstofnunar frá í lok síð- asta árs, sem segir að nú stefni í 400—500 millj. kr. halla á við- skiptakjörum við útlönd. Tillögurnar leiða af sér a.m.k. þrenns konar lagabreytingar, þ.e. hvað varðar niðurskurðinn, verð- lagslög og skattlagningu á banka- stofnanir. Samkvæmt heimildum Mbl. verða fyrstu lagabreytingarnar ekki lagðar fram á Alþingi fyrr en á mánudag. Það munu þó ekki verða breytingartillögur við fjárlög vegna niðurskurðarins, enda niðurskurð- ardæmið enn ekki að fullu frágengið og samkvæmt heimildum Mbl. vefst það enn mjög fyrir stjórnarliðum hvernig standa skuli að því. Þó er nokkuð ljóst að stefnt er að u.þ.b. 6% niðurskurði opinberra sjóða og framkvæmda. Fleiri þættir þessa „efnahags- pakka" voru ekki að fullu afgreiddir síðari hluta dags í gær. „Pakkinn" verður til afgreiðslu á ríkisstjórn- arfundi í dag. Mbl. er kunnugt um að á þingflokksfundi Framsóknar- flokksins í gær voru samþykktar til- lögur til breytinga á „pakkanum", eins og hann lá þá fyrir. Stjórnarandstöðunni var tilkynnt fyrirhuguð meðferð málsins á fundi með forsætisráðherra, forsetum og skrifstofustjóra Alþingis í gær. Þeim var einnig tilkynnt þar að stjórnarandstaðan fengi tillögurnar afhentar sem trúnaðarmál á morg- un, miðvikudag. Ólafur Jóhannesson vegna ummæla Svavars Gestssonar: Olfutankarnir fara á Hólms- víkurbjarg við Helguvík Utanríkisráðherra var í lokin spurður álits á ummælum Svavars um að skipulagsyfirvöld hafi ekki samþykkt staðsetningu við Helgu- vík. Hann svaraði: Málið verður auð- vitað tekið fyrir á ný þegar hönnun- arframkvæmdum er lokið og þá af hálfu utanríkisráðuneytisins. Ef Svavar á við, að skipulagsyfirvöld samþykki ekki þessar hugmyndir, má benda á að fyrstu hugmyndir um þennan flutning geymanna komu frá skipulagsyfirvöldum á Suðurnesjum. Svavar er kannski að hugsa um að breyta reglum hvað þetta varðar. „ÉG KK búinn að afgreiða málið, eins oj< éj» lýsti jTir, og sú afgreiðsla mín byggir á samþvkkt Vlþingis, — þingsályktun frá 23. maí sl. þar sem mér sem ulanríkis- ráðherra er falið að hraða afgreiðslu þessa máls eins og unnt er. Olíutankarnir fara samkvæmt afgreiðslu minni á llólmsvíkurhjarg við Helguvík," sagði Olafur Jóhannesson, utanríkisráðherra, er hann var spurður álits á yfirlýsingu Svavars Gestssonar, formanns Alþýðuhandalagsins þess efnis, að hans mat á afgreiðslu Olafs væri það að hún fæli eingöngu í sér ákvörðun um hönnun framkvæmda en ekki endanlega niðurstöðu um að olíugeymarnir yrðu fluttir í lielguvík. Ólafur sagði einnig, að í afgreiðslu hans á málinu fælist að geymarými yrði óbreytt, en alþýðubandalags- menn hefðu verið hvað mest á móti auknu geymarými á sínum tíma. Ólafur var þá spurður álits á yfirlýs- injjxi Svavars um að hann væri mót- fallinn staðsetningu við Helguvík og að hann vildi að tankarnir yrðu inn- an vallargirðingarinnar. Ólafur svaraði: „Helguvík var valin vegna þess að allar jarðvegsrannsóknir sýna að geymarnir eru bezt staðsett- ir þar. Jarðlagamyndun og berglög innan vallargirðingarinnar eru þannig, að ef olíuslys yrði þar væri mikil hætta á að olían rynni í vatnsból á svæðinu. Slíku er ekki til að dreifa við Helguvík." Þá sagði Ólafur að samkvæmt af- greiðslu hans á málinu yrði auðvitað fyrst staðið að hönnunarfram- kvæmdum, slík væri venjuleg af- greiðsluleið, en síðan kæmu fram- kvæmdir í kjölfarið. í tilefni af um- ræðum um olíuhöfn í Helguvík sagði hann að höfn væri ekki endanlega ákveðin og bætti því við að höfn væri reyndar teygjanlegt hugtak. Það væri þó ljóst að einhvers konar lönd- unaraðstaða yrði til að koma í •Helguvík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.