Morgunblaðið - 20.02.1982, Side 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK
38. tbl. 69. árg.
LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1982
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
íslcn/kar sýningarstúlkur í dúfnafans á Trafalgartorgi í Lundúnum í gær. Stúlkurnar sýndu íslenzkan ullarfatnað á sýningu sem íslenzkir iðnrekendur
efndu til í heimsborginni í gærkveldi. Stúlkurnar eru (f.v.): Brynja Nordquist, Ásdís Loftsdóttir, Linda llaralds, Unnur Steinson og Kristín Waage.
Réttarhöld gegn 32
foringjum á Spáni
Madrid, 19. frbrúar. AP.
RÉTTARHÖLD hófust í dag gegn hægrisinnuðum foringjum,
sem reyndu að steypa ríkisstjórn Spánar í fyrra með því að
halda þingmönnum í gíslingu.
Yfirlýsing eins helzta sakborn-
ingsins, Jaime Milans del Bosch
hershöfðingja, var skjalfest sem
eitt af gögnum réttarins. Þar kveðst
hann hafa talið að Juan Carlos kon-
ungur hafi vitað um þá „öryggis-
ráðstöfun" sína að senda skriðdreka
út á götur Valencia eftir töku þing-
hússins.
Sækjandinn sagði, að hann vildi
að skriflegur framburður allra 33
sakborninga — 32 foringja og eins
borgara — yrði skjalfestur, líklega
til að afstýra tilraunum verjanda
til að bendla konung við málið.
Krafizt er að Milans del Bosch,
Alfonso Armada hershöfðingi, fyrr-
um varaforseti herráðsins, og Ant-
onio Tejero undirofursti, Þjóðvarð-
liðsforinginn, sem stjórnaði árás-
inni á þinghúsið, fái 30 ára fangelsi,
en aðrir sakborningar 18 mánaða
til 20 ára fangelsi.
Réttarhöldin eru talin mikilvæg-
ur prófsteinn á ríkisstjórn Leopoldo
Calvo Sotelo i kjölfar stöðugrar
ólgu innan heraflans, síðan bylt-
ingartilraunin var gerð, og áskor-
ana hægriöfgamanna um að hún
segi af sér.
Alls munu 69 menn, þar af 19
herforingjar, bera vitni í réttar-
höldunum, sem munu standa í einn
mánuð. Herréttur skipaður 15
hershöfðingjum og tveimur aðmír-
álum dæmir í málinu.
Armada,sem er fyrrverandi hern-
aöarráðunautur konungs, segir í yf-
irlýsingu, að hann hafi hringt til
konungshallarinnar meðan á töku
þinghússins stóð til að biðja konung
um að leysa málið friðsamlega, en
ekki náð sambandi við hann.
Þriðji hershöfðinginn, Luis Torr-
es Rojas, fv. herstjóri i La Coruna,
á yfir höfði sér 20 ára fangelsi fyrir
að skunda til Madrid að taka við
stjórn brynvædds herfylkis nálægt
borginni. Hinir sakborningarnir
eru kapteinn úr flotanum, 10 for-
ingjar í hernum og 17 foringjar
Þjóðvarðliðsins, auk borgarans sem
er í sjúkrahúsi.
Tvísýnt hvort írska
stjórnin héldi velli
Dyflinni, 19. febrúar. AP.
GARRETT Kitzgerald, forsætisráð-
herra, vann yfirburðasigur í kjördæmi
sínu, en samsteypustjórnarflokkarnir
höfðu unnið færri þingsæti en Eianna
Fail, stærsti stjórnarandstöðuflokkur
inn, þegar úrslit voru í Ijós í kosning-
um um 87 þingsæti af 166. Höfðu
stjórnarfiokkarnir hlotið 42 þingsæti
en Kianna Kail, flokkur Charles Haug-
hey fyrrum forsætisráðherra, sem var
endurkjörin, 43 sæti, og aðrir fiokkar
tvö.
Þegar fyrstu tölur tóku að berast.
hallaði á stjórnarflokkana, en þeir
sóttu í sig veðrið þegar á leið.
Fyrstu úrslit bentu til tvö prósent
sveiflu yfir til Fianna Fail, en það
hlutfall minnkaði þegar á leið. Þá
stóð í járnum hvort stjórnin héldi
velli og jafnvel talið að þingmeiri-
hluti kynni að ráðast af afstöðu
óháðra þingmanna, eins og var á
síðasta þingi, sem kosið var í júní
sl., en þá hlutu stjórnarflokkarnir
80 þingmenn en Fianna Fail 78.
Fitzgerald og Haughey hlutu báð-
ir færri atkvæði nú en í júní, Haug-
hey 1500 færri og Fitzgerald 1100.
Irskir þjóðernissinnar í N-írlandi
komu illa út úr kosningunum, og
Bernadetta Mcaliskey, sem betur er
þekkt undir ættarnafninu Devlin,
hlaut aðeins fimm prósent atkvæða
í einu kjördæmi Dyflinnar, en ekki
er útilokaö að hún komist á þing
sem uppbótarþingmaður. Hún bauð
sig fram í kjördæmi Haugheys, en
þaðan koma fjórir þingmenn.
í dúfnafans
SímamyndAI'.
150 þúsund
atvinnulausir
í Svíþjóð
SAMKVÆMT upplýsingum
sænsku hagstofunnar var fjöldi at-
vinnulausra í Svíþjóð í janúar
153.000, eða 3,6(jg vinnufærra.
Hefur atvinnulausum því
fjölgað um 45.000 miðað við
sama árstíma í fyrra. Atvinnu-
lausir unglingar voru í janúar
61.000, eða rúmlega 20.000 fleiri
en í fyrra, og 80.000 konur voru
atvinnulausar, en þeim hefur
fjölgað um 27.000 á árinu.
Jaime Milans del Bosch
Varsjá, 19. febrúar. AP.
PÓLSKUR prestur hefur verið fang-
elsaður og leiddur fyrir rétt fyrir að
rægja Jaruzelski forsætisráðherra og
ríkisstjórnina í stólræðu, að sögn
Jerzy Urban, talsmanns pólsku stjórn-
arinnar. Hins vegar neitaði llrban að
herstjórnin hyggðist láta til skarar
skríða gegn kirkjunni og að fjölda-
handtökur presta væru fyrirhugaðar,
það væri óklókt og samrýmdist ekki
hagsmunum stjórnarinnar að stofna
til árekstra við kirkjuna.
Urban sagði að ekki bæri að líta á
fangelsun prestsins sem viðvörun
til annarra klerka, enda hefði taka
hans ekki verið notuð í áróðurs-
skyni. Hann neitaði að segja frá
nafni prestsins eða hvenær hann
hefði verið handtekinn, en sagði
hann vera frá Koszalin-héraði í
norðurhluta landsins. Prestur hefur
ekki verið fangelsaður í Póllandi í
áratug. Af hálfu kirkjunnar eða
Glemps erkibiskups, hefur ekki ver-
ið gefin út yfirlýsing um fangelsun-
ina.
í viðtali við fréttamenn sagði
Urban að herstjórnin mundi „herða
á ólinni", ef „andróðursöflin"
reyndu að efna tii pólitískra átaka,
jafnvel vopnaðra, með vorinu. Sagði
Urban að undirróður andróðursafl-
anna, undir slagorðinu „Ykkar er
veturinn, en vorið okkar“, benti til
að reynt yrði með vorinu að stofna
til ófriðar. Imyndaði hann sér að
andstæðingar stjórnarinnar settust
að í skógum landsins og efndu það-
an til hernaðar gegn stjórninni.
Fjórir félagar í Samstöðu voru í
dag dæmdir í allt að fjögurra og
hálfs árs fangelsi og sviptir lýðrétt-
indum í fjögur ár fyrir að efna til
verkfalla í kolanámu eftir að herlög
gengu í gildi.
Tveir franskir læknar, sem dval-
ist hafa í Póllandi um hríð, sögðust
hafa orðið snortnir af andstöðu
Pólverja í garð herstjórnarinnar,
sem þeir sögðu mikla og almenna.
Algengt hefði verið að læknar og
starfsfólk sjúkrahúsa hefðu borið
merki Samstöðu í barmi, og á sum-
um spítölum hefði allt starfsfólkið
verið félagar í óháðu verkalýðs-
samtökunum. Þeir sögðu veggspjöld
til stuðnings Samstöðu hanga uppi
á mörgum sjúkrahúsum. Gífurlegur
skortur er á lyfjum og öðrum bún-
aði sjúkrahúsa víða í Póllandi, að
sögn læknanna.
Seðlabanki Sovétríkjanna til-
kynnti í dag, að gengi rúblunnar
gagnvart pólska gjaldmiðlinum,
zloty, hefði verið hækkað um 800
prósent. Gilti hið nýja gengi ekki
fyrir viðskipti. Búist er við að þessi
ráðstöfun eigi eftir að koma illa
niður á Pólverjum búsettum í Sov-
étríkjunum og Rússum sem búa i
Póllandi, auk þess sem þetta eigi
eftir að draga verulega úr ferða-
mannastraumi milli Sovétríkjanna
og Póllands.
Hrifsudu
62 karata
demant
New York, 19. febrúar. Al*.
TVEIR grímubúnir menn komu
þrcmur auðugum gestum á Hotel
Pierre í New York að óvörum í
nótt og rændu af einum þeirra 62
karata demanti og öðrum skart-
gripum, sem eru metnir á meira en
eina milljón dollara.
Það voru fulltrúar frá Saudi-
Arabíu og Sýrlandi og kona frá
New York, er þeir höfðu rætt við
um fasteignaviðskipti, sem urðu
fyrir barðinu á ræningjunum.
Þegar þau komu til herbergis
Saudi-Arabans voru ræningj-
arnir þar fyrir, vopnaðir byss-
um, sem þeir beittu þó ekki. Þeir
höfðu ekki brotizt inn, svo að
lögreglan telur að þeir hafi haft
mjög góðar upplýsingar.
Ræningjarnir handjárnuðu
fórnarlömb sín og hurfu á braut
þegar þeir höfðu tekið 60.000
dollara í reiðufé af Saudi-
Arabanum, 20.000 dollara af
Sýrlendingnum og demanta- og
safírhálsfesti með 62 karata
demanti af konunni, auk eyrna-
Iokka og armbands.
Fangelsaður vegna
ummæla í stólræðu