Morgunblaðið - 20.02.1982, Side 22
Kaupfélag Þingeyinga 100 ára
29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1982
Jón« er uppþornaö eölisljör
Egill þó minna getur.
Páll er kjörinn á kvennaför,
klæjar þig ekkert Pátur?
Björn á Brún var formaöur kaup-
félagsstjórnarinnar um tíma. Hann
var bæöi aigjörlega hár- og skegg-
laus. Einu sinni sat hann í for-
mannsstól og kom þá Helgi á Kál-
borgará í Báröardal til hans og
stungu þeir sama nefjum, en Helgi
var baeöi mjög hár- og skeggprúö-
ur:
Sumir stunda af oddi og egg
upp á hjálpargirni,
Helgi leggur hár og skegg
aö höfðinu á Birni.
Jónas Baldursson á Lundar-
brekku var mælskumaöur mikill og
þegar SÍS byrjaöi aö taka ullina
óþvegna af bændum í tilraunaskyni
fékkst oft lítið verö fyrir hana. Jón-
as taldi þvt ekki taka þvi aö rýja féö
og skoraöi á bændur aö leggja ull-
ina ekki inn. Eftir þessa ræöu var
matarhlé og spurði Karl Kristjáns-
son mig aö því hvort ekki væri til
vísa. Hún var til:
Viö erum ræflar annað veifiö,
þaö ástand er nokkuö langdregiö.
Nú sendum viö Jónas meö sauöarreiftö
svo Sambandiö fái þaö óþvegiö."
Þar með kvöddum viö Egil meö
nokkrar aðrar visur úr ýmsum áttum í
veganesti.
Fæddist í gamla kaup-
félaginu og ætla mér
aö deyja í því nýja
„ÉG HELD að þaö só nú aö
fara í geitarhús að leita ullaf,
ef eitthvað á aö fræöast af
mér. Ég er aö vísu fæddur í
gamla kaupfélagínu og
ætla mér aö deyja í því nýja,
en ég er svo samtvinnaður
þessu öllu að mér finnst
þetta bara hafa liðíð hægt
og rólega, þó maður muni
kannski eftir einhverju þegar
maður fer að hugsa sig um,“
sagði Birgir Steingríms-
son, sem fæddur er um
aldamótin og hefur unnið hjé
KÞ með litlum hléum síðan
1911.
„Já, ég sagöi þér aö ég væri
fæddur í gamla kaupfélaginu,
Jaöri, sem var fyrsta bygging KÞ.
Móöir mín var vinnukona hjá
Jakob Hálfdánarsyni og pabbi
afhenti vörur í pakkhúsdeildinni.
Annars gekk bölvanlega aö
koma mér í heiminn, rétt eins og
ég vildi ekki út. Þaö endaði meö
því aö læknirinn fór til járnsmiös-
ins og fékk hann til aö smíöa
töng til aö ná mér út, þaö er lík-
lega ein af fáum fæöingatöngum,
sem gerðar hafa veriö meö svo
litlum fyrirvara og á sama hátt.
Nú, en hvaö um þaö, ég byrjaöi
Birgir Steingríms
son bókari
aö hjálpa pabba í pakkhúsinu
þegar ég var 11 ára og hef síðan
unniö hjá kaupfélaginu meö litl-
um hléum þar til nú, aö ég er
farinn aö minnka viö mig vinnu
og hugsa um aö hætta alveg.
1924 fór ég á Samvinnuskólann
til aö læra tvöfalt bókhald hjá
Jónasi Rafnar og síðan hef ég
veriö í bókhaldinu. Ég man eftir
Jakob Hálfdánarsyni, en Jóni
Sigurössyni kynntist ég aldrei, en
síöan tók Pétur sonur hans viö
kaupfélagsstjórninni og eftir þaö
hef ég unnið meö þeim öllum.
1924 var ég viö aö loka aöal-
reikningum kaupfélagsins með
Benedikt Jónssyni og þá kom i
Ijós kunnátta Benedikts í bók-
haldi því þaö sem hann hafði gert
stefndi alveg viö þaö sem ég var
nýbúinn aö læra. 1930 til 1931
inu og tókum þaö af einstökum
deildum og síöan hefur þaö veriö
í þeirri mynd þar til nú aö tölv-
urnar hafa tekiö viö.
Ég hef alltaf kunnaö vel viö
mig hjá kaupfélaginu, en þó stóö
ég fyrir verkfalli einu sinni með
Einari Olgeirssyni. Þá var ég í
stjórn verkalýösfélagsins, en
varö aö hætta því upþ ur þessu.
Siöan hef ég aldrei veriö pólitisk-
ur, þaö hefur veriö mér alveg nóg
aö vera samvinnumaöur, enda
gantast félagar mínir meö þaö
hér á kaffistofunni aö ég sé mesti
samvinnumaöur á íslandi. En það
er nú ekki vel aö marka, viö
göntumst dálítiö viö hvern annan
og Ijúgum svolitiö á kaffistofunni
til aö krydda tilveruna.
Þetta er nú alltaf sama kaupfé-
lagiö, þó flutt hafi veriö í ný hús.
Það er annars til skammar
hvernig farið hefur veriö meö
gömlu húsin. Ég verö aö viöur-
kenna þaö aö þegar kviknaöi í
þeim vonaöist ég til þess aö þau
brynnu alveg, þá hefði vandinn
veriö leystur og skömmin horfiö.
Þaö hefur komiö á daginn aö þó
menn hafi sagt aö varöveita ætti
þessi hús hefur enginn veriö til-
búinn til aö leggja hönd á plóg-
inn. Annars ætti ég nú aö fara aö
halda aftur af mér, þaö má ekki
rífa þetta allt saman niöur, af-
mæliö er aö koma og ég aö fara,
svo þaö er bezt aö þegja,“ sagöi
Birgir.
Húsavík um 1906
íslenzkir sauöir
komnir á land í
Englandi. Fremstir
á myndinni eru J.
Vídalín og Louis
Zöllner. Þaö var
einmitt meö sauöa-
sölu til Englands
sem starfsemi KÞ
hólst meöal annars.
Elztu hús KÞ um 1920. Lengst til vinstri er pakkhús, reist 1886, naest er
Jaðar, byggt 1883 og Söludeildin reist 1902. Lengst til hsegri er barnaskól-
inn, en í honum var apótekið einnig til húsa.
Ákveðiö hefur veriö aö gera elzxtu hús KÞ, Jaöar og Söludeildina, upp,
en svona líta þau út í dag.
Kaupfélag Þingeyinga er ein af
slagæðum atvinnulífs sýslunnar
Hreiðar Karlsson
kaupfélagsstjóri
„NÚ í DAG er starfsemi Kaupfé-
lags Þingeyinga talsvert fjölþaett
og miöast viö aö þjóna hóraós-
búum á eins mörgum svióum og
mögulegt er. Starfseminni má
skipta í þrennt, verzlunarrekstur,
afuröameöferó og iðnaó og aðra
þjónustu og auk þeirra verzlana
og þjónustustöóva, sem hár á
Húsavík eru, rekur KÞ útibú á
Laugum í Reykjadal, Reykjahlíö í
Mývatnssveit og vió Laxárvirkjun,
“ sagói Hreiöar Karlsson, kaupfé-
lagsstjóri KÞ, meðal annars.
„Hér er fjölbreytt smásöluverzl-
un, verzlaö er meö mat, íþróttavör-
ur, járn- og glervörur og heimllis-
tæki svo eitthvaö sé nefnt. Verzlaö
er meö byggingavörur, fóöur, olíu-
vörur, vélar og varahluti og ýmis-
legt fleira. Húseignir kaupfélagsins
eru og talsverðar, nýtt og fullkomiö
sláturhús, sem leyfi hefur til útflutn-
ings á Bandarikjamarkaö og í því
var slátraö um 43.000 fjár auk stór-
gripa og svina á síöasta ári. Þá fer
einnig fram kjötiönaöur i húsinu og
miðast hann aöallega viö heima-
markaö. Hér er nýlega endurbyggt
og fullkomiö mjólkursamlag, sem
tekur árlega á móti um 7 milljónum
lítra af mjólk og framleiöir aöalega
osta. Auk þess á KÞ nokkur verzl-
unarhús og birgöageymslur. Þá
rekur kaupfélagiö brauögerö og
efnalaug og eru starfsmenn kaup-
félagins um 200 í dag. Það hefur
einnig verið talsveröur þáttur í
rekstri kaupfélagsins undanfarin ár
aö taka þátt í frekar uppbyggingu
atvinnulífs hér á Húsavík og í þeim
tilgangi hefur KÞ gerzt hluthafi i
Fiskiöjusamlaginu, togaraútgerö-
inni Höföa, Hótel Húsavik, véla-
verkstæöinu Fossi hf., Garöræktar-
félagi Reykhverfinga og Reiknistofu
Húsavíkur hf., sem annast tölvu-
vinnslu fyrir ýmis fyrirtæki hér á
staönum. Þetta er svona i stórum
og fáum dráttum það sem fram
fer á vegum kaupfélagsins í dag en
margt fleira mætti telja til.
Hvaö framtíöina varöar er svo
auövitaö margt sem þar af hugsa
um. Þaö hefur alltaf veriö aöalverk-
efniö í svona félagsskap aö fylgjast
ai
með nýungum til hagræöis fyrir fé-
lagsmenn og viöskiptavini, en þaö
er ekki um neinar byltingarkenndar
hugmyndir aö ræöa. Þaö er frekar
spurningin um þaö hvort fylgja beri
núverandi stefnu og ég sé ekki
ástæöu til annars en aö svo veröi.
Þaö hefur alltaf veriö mikill áhugi
fyrir því aö taka þátt í atvinnuupp-
byggingu á Húsavík og þvi hefur
kaupfélagiö gerzt hluthafi i fyrir-
tækjum eins og togaraútgeröinni.
Þá er ætíö reynt aö byggja upp
verzlunaöstæöur miöaö viö hvern
tíma, en það er ekki alltaf, sem það
fer saman, það sem manni finnst
aö gera þurfi og þaö, sem efnahag-
urinn leyfir. Veröbólga, vextir og
fjármagnsskostnaöur gerir okkur
einna erfiöast fyrir nú, því þjón-
ustufyrirtæki eins og kaupfélög
þurfa aö liggja meö miklar birgöir,
sem er kostnaöarsamt. Þá koma
þessi sömu atriöi niður á bændum
og erfiöleikar þeirra koma fljótt
fram hér. Það eru bein tengsl á milli
afkomu bænda og kaupfélagsins.
Þaö má segja aö KÞ sé ein af slag-
æöum atvinnulífs sýslunnar og þvi
mikil nauösyn á aö rekstur þess
haldi áfram sem slíkur, þróunin
veröur þó aö vera samkvæm
breyttum tímum. Kaupfélagiö er
mikil kjölfesta byggöarlagsins og
reynir þaö aö hlaupa undir bagg-
ann meö félagsmönnum sínum,
enda leita þeir oft til þess.“
Er ekki hætta á því aö stórt fyrir-
tæki eins og KÞ veröi óheppilegur
einokunaraöili?
„Nei, ég kannast ekki viö þaö aö
Kaupfélag Þingeyinga geti oröið
einokunaraöili, sem hafi neikvæö
áhrif á verzlun og þjónustu. Hér
þrífst eðlilegur einkarekstur, en fó-
lagsmenn ætlast auövitað til ým-
issra hluta af KÞ. Kaupfélagiö á
auðvitað ekki að vera einokunaraö-
ili, en þaö þarf aö vera þaö sterkt
aö þaö geti valdiö því, sem ætlazt
er til af því. Þaö var stofnaö til þess
að bæta verzlunarkjör. Hór var
dönsk selstööuverzlun er kaupfé-
lagiö var stofnaö til þess aö auka
verzlunartrelsi og auka þjónustu.
Það hefur verið reynt aö standa viö
þau markmið, en ég held því ekki
fram að þaö hafi alltaf tekizt. Fyrst
i staö var lögö aherzla á lágt vöru-
verð, en síöar einnig þjónustu. Ég
held aö tilgangurinn hljóti alltaf aö
vera sá sami, aö veröa héraösbú-
um aö sem mestu gagni. Þó ekki
hafi alltaf tekizt til eins og vilji hefur
verið til, verður sú stefna alltaf rikj-
andi.
Þá vil ég aö lokum segja þaö, aö
ég er ánægöur meö þaö aö blaða-
menn Morgunblaösins skuli hafa
áhuga á þvi aö kynna sér starfsemi
KÞ, þvi oft hefur veriö fjallaö um
málefni kaupfélaganna af of litilli
þekkingu," sagöi Hreiðar.