Morgunblaðið - 20.02.1982, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. FEBRÍ^R 1982
Siglufjörður:
Sameiginlegt prófkjör 27. feb.
SAMEIGINLEGT prófkjör stjórn-
málaflokkanna í Siglufirði fyrir bæj-
arstjórnarkosningar í maí fer fram
laugardaginn 27. febrúar. Kosið
verður í skólahúsinu við Hlíðarveg
frá klukkan 10—19 og er þátttaka
bundin við 18 ára og eldri. Kjósandi
skal merkja x framan við bókstaf
þess lista, sem hann vill raða á, og
skal raða í a.m.k. þrjú sæti með því
að setja töiustafi við nöfn frambjóð-
enda. Kjósanda er heimilt að bæta
nöfnum á listann. IJtankjörstaða-
atkvæðagreiðsla fór fram á bæj-
arskrifstofum Siglufjarðar til próf-
kjörsdags.
Núverandi meirihluta bæjar -
stjórnar Siglufjarðar skipa 3 alþýðu-
bandaiagsmenn, 2 sjálfstæðismenn
og 2 alþýðuflokksmenn. Af núver
andi bæjarfulltrúum gefa 5 ekki
kost á sér í prófkjörinu; Gunnar
Kafn Sigurbjörnsson og Kári Eð-
valdsson frá Alþýðubandalagi, Jó-
hann Möller frá Alþýðuflokki, Skúli
Jónasson frá Framsóknarflokki og
Vigfús Þór Árnason frá Sjálfstæðis-
flokki.
Frambjóðendur Alþýðubanda-
lagsins eru: Brynja Svavarsdóttir
Hávegi 63, Guðmundur Lárusson
Hólavegi 73, Jóel Kristjánsson
Grundargötu 14, Kolbeinn Frið-
bjarnarson Hvanneyrarbraut 2,
Marteinn Marteinsson Hverfis-
götu 29, Signý Jóhannesdóttir Suð-
urgötu 77, Sigurður Hlöðversson
Suðurgötu 86, Svava Baldvinsdótt-
ir Túngötu 43 og Þorleifur Hall-
dórsson Suðurgötu 57.
Frambjóðendur Alþýðuflokksins
eru: Anton V. Jóhannsson Hverf-
isgötu 9, Arnar Ólafsson Suður-
götu 59, Björn Þór Haraldsson
Hafnargötu 24, Hörður Hannesson
Fossvegi 27, Jón Dýrfjörð Hlíð,
Kristján Möller Laugavegi 39,
Ragnar Hansson Aðalgötu 19, Reg-
ína Guðlaugsdóttir Aðalgötu 24 og
Viktor Þorkeisson Laugavegi 33.
Frambjóðendur Framsóknar-
flokksins eru: Bjarni Þorgeirsson
Hafnartúni 6, Bogi OÍRwhjönisson
Hávegi 34, Guðrún Hjörleifsdóttir
Grundargötu 5B, Hermann Frið-
riksson Hafnartúni 22, Hrefna
Hermannsdóttir Hverfisgötu 8,
Skarphéðinn Guðmundsson
Laugavegi 24, Sveinn Björnsson
Lindargötu 22, Sveinn Þorsteins-
son Vallargötu 23 og Sverrir
Sveinsson Hlíðarvegi 17.
Frambjóðendur Sjálfstæðis-
flokksins eru: Axel Axelsson Tún-
götu 8, Birgir Steindórsson Lind-
argötu 16, Björn Jónasson Suður-
götu 56, Guðmundur Skarphéð-
insson Hafnartúni 18, Gunnar
Ásgeirsson Suðurgötu 91, Karl
Eskil Pálsson Hávegi 9, Konráð
Baldvinsson Fossvegi 9, Óli J.
Blöndal Hávegi 65 og Valbjörn
Steingrímsson Hvanneyrarbraut
63.
Frambjóð-
endur Sjálf-
stæðisflokks
í Siglufirði
Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins
í Siglufirði við prófkjör stjórnmála-
Tlokkanna í Siglufírði sem haldið
verður laugardaginn 27. febrúar
1982 til undirbúnings bæjarstjórn-
arkosningum.
Axel Axelsson,
aðalbókari, Túngötu 8.
Birgir Steindórsson,
bóksali, Lindargötu 16.
Björn Jónasson,
Sparisjóðsstjóri, Suðurgötu 56.
Guðmundur Skarphéðinsson,
vélvirkjameistari, Hafnartúni 18.
Valbjörn Steingrímsson,
iðnnemi, Hvanneyrarbraut 63.
Benedikt Brynjólfsson
Stykkishólmi - Minning
Fæddur 28. október 1915
Dáinn 10. febrúar 1982
Hann lést hér í Sjúkrahúsinu í
Stykkishólmi 10. þ.m. Hafði þá átt
við mikia vanheilsu að stríða. í
haust fór hann til Englands til að-
gerðar og eftir það voru bundnar
vonir við betri heilsu og um sl.
áramót byrjaði hann að vinna aft-
ur eftir árs hlé. Skyndilega veikt-
ist hann og lést sem fyrr segir.
Ungur byrjaði hann störf hjá
Kristjáni Rögnvaldssyni vél-
smiðameistara og stundaði þá
nám í vélsmíði og lauk prófi. Um
50 ára skeið starfaði hann í þjón-
ustu sama fyrirtækis að segja má
og þegar Kristján lést og synir
hans tóku við, fylgdi hann þeim
eftir. Hann var afburða tryggur
maður og hag þess fyrirtækis sem
hann vann við bar hann alltaf
fyrir brjósti, vann því vel og vildi
hag þess í hvívetna.
Öll sín verk vann hann af alúð
og samviskusemi, var sérstakur
verkmaður og spurði ekki um þó
vinna þyrfti meira en fullan
vinnudag, ef þess þurfti með og
hálfkláruð verk voru honum ekki
að skapi.
Benedikt var ekki afskiptamikill
um annað en sín störf. Hann var í
eðli skapmikill, en kunni vel að
fara með og tryggð hans og góð-
mennska aflaði honum líka góðra
vina. Stykkishólmur var hans
starfsvettvangur, þar kunni hann
best við sig og ekki voru margar
ferðir hans til annarra staða. En
þegar hann fékkst til að fara með
félögum sínum í hóp, þá var hann
manna kátastur og lék á als oddi.
Benedikt var fæddur 28. okt.
1915 og voru foreldrar hans Frið-
semd Ólafsdóttir og Brynjólfur
Arngrímsson. Stuttu eftir fæðingu
fór hann í fóstur til Jófríðar
Kristjánsdóttur hér í bæ sem
reyndist honum sem sönn móðir
og hann þá eki síður henni sem
sonur. Var alltaf mjög kært með
þeim.
Það er mikill skaði þegar dug-
miklir og athafnasamir menn
hverfa af starfsvettvangi á besta
aldri, því enn virtist öllum að
Benedikt ætti mörgu ólokið og fer
ekki hjá því að við starfsfélagar
hans söknum hans sem vinnufé-
laga sem við gátum alltaf treyst.
Benedikt var mjög handgenginn
Ólafi Jónatanssyni frænda sínum
hér, konu hans og börnum, enda
var hann þeim góður og þau einn-
ig. Þar átti hann vinalegt athvarf
sem hann mat að verðleikum.
Einn bróður átti hann, Guðjón
Brynjólfsson, sem er búsettur í
Reykjavík, og hálfsystur Maríu
sem á heima í Færeyjum.
Um leið og við kveðjum okkar
ágæta félaga með þökk fyrir góða
samfylgd, viljum við biðja honum
allrar blessunar á nýjum vett-
vangi.
Blessuð sé minning hans.
Starfsfélagar
Foreldrar Friðsemd Ólafsdóttir
og Brynjólfur Arngrímsson vél-
stjóri. I Stykkishólmi fæddist
Benedikt og ól þar allan aldur
sinn. Hann missti foreldra sína í
æsku, föður sinn 1922 en móður
ári síðar. Bróðir hans, Guðjón,
sem var ári yngri, fluttist þá til
frændfólks á Álftanesi og ólst upp
hjá því. Ömmusystir Benedikts,
Jófríður Kristjánsdóttir, tók hann
þá til sín í fóstur. Það var ekki
auður í garði, en ástúð því meiri.
Nærri má geta hvort bernskuárin
hafi verið dans á rósum fyrir
munaðarlausan dreng á þeim hall-
æris- og krepputímum. En þessi
góða kona, Jófríður, lagði sig alla
fram um að halda sambandi milli
bræðranna ungu, sem svo skyndi-
lega stóðu tveir einir eftir, en gátu
þó ekki notið samvista í uppvext-
inum. Henni áttu þeir að þakka að
bróðerni þeirra hélst alla tíð.
Benedikt var fyrstur sinna jafn-
aldra til að vinna fyrir sér, eða svo
fljótt sem hann hafði krafta til.
Harðduglegur var hann, laginn og
samviskusamur. Lagði hann stund
á vélsmíði hjá Kristjáni Rögn-
valdssyni, og síðar starfaði hann
hjá Skipavík, en eigendur þess
fyrirtækis eru synir Kristjáns.
Hann vann því allan sinn aldur
hjá sömu fjölskyldunni og var það
samstarf mjög gott. Á siðasta
hausti fór Benedikt til London í
hjartaaðgerð. Jafnskjótt og hann
fór að hjara við, vildi hann halda
til vinnu sinnar og var í hálfu
starfi til dauðadags.
Benedikt fór þögull og fáskipt-
inn í gegnum lífið, eignaðist fáa
vini, en góða, og hélt tryggð við þá
alla tíð. Breiðafjörðinn yfirgaf
hann aldrei og gerði ekki víðreist í
önnur byggðarlög.
Nú, þegar hann er allur,
ókvæntur og barnlaus, er ekki
annað eftir skilið en minningar
samferðamanns og verkin, sem
hann vann, þögull, en sívakandi.
Hvort tveggja ber vitni um góðan
Breiðfirðing.
B.G.
t Sonur minn, bróöir okkar og faöir, t Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför
KRISTJÁN JÓNASSON, móöur okkar, tengdamóöur og ömmu.
Hreggnasa, Bolungavik, GUÐRÚNARJÓNSDÓTTUR,
sem andaöist 15. þ.m. veröur jarösunginn frá Hólskirkju í Bolunga- Flókagötu 12.
vík laugardaginn 20. febrúar kl. 14.00. Sérstakar þakkir færum viö læknum og starfsfólki Borgarspital-
Hansína Bssringsdóttir, ans, deild A-7 og A-4, fyrir ástúölega umönnun.
Jón Kristjónsson, Jóna Gissurardóttir, Kristján Gissurarson,
Guðbjartur Kristjánsson, Guóbjörg Margrét Gissurardóttir,
Björg Kristjánsdóttir, Þorgeröur ina Gissurardóttir, Halldór Skaftason
systkini og sörir vandamenn. og barnabörn.