Morgunblaðið - 14.03.1982, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 14.03.1982, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. MARZ 1982 19 Þú hefur ef til vill í hyggju að fara út á þá braut að semja ballett? „Hver veit, það er alltaf spennandi að prófa eitthvað nýtt en fyrst er að sjá hvernig þessi frumsmíði mín tekst.“ Ásdís og Ólafía Ásdís Magnúsdóttir dansar hlutverk Giselle, en Ólafía Bjarnleifsdóttir hefur einnig æft hlutverkið. — Hvað segja þær um Giselle? „Þetta er stærsta danshlut- verk sem ég hef farið með og jafnframt það yfirgripsmesta. Það má segja að Giselle sé draumahlutverk hverrar ball- erínu." sagði Ásdís Magnús- dóttir, „Hlutverkið er krefjandi og ég tel að til að geta túlkað það þurfi viðkomandi að hafa gengið í gegnum ákveðinn þroska, ég hefði til dæmis ekki getað dansað Giselle fyrir átta árum.“ „Danshlutverkið er erfitt en ákaflega fallegt," sagði Ólafía Bjarnleifsdóttir. „I þessu hlutverki þarf að samræma leikræna tjáningu og dans og koma innihaldinu til skila til áhorfenda. Annars vegar felst hlutverkið í því að túlka Gis- elle lifandi en hins vegar dána. Það er nokkuð strembið að ná þarna fram samteng- ingu, þannig að úr verði heil- steypt mynd.“ í fyrsta þætti Giselle dansa þau Ólafía og Einar Sveinn Þórðarson Pas de Deux eða tvídans. Einar Sveinn Einar Sveinn er líka kom- inn sérstaklega frá New York til að taka þátt í sýningunum, en hann stundar ballettnám í School of American Ballet, Ólafía Bjarnleifsdóttir og Einar Sveinn Þórðarson sem rekinn er í tengslum við New York City Ballet. Hvern- ig líst Einari á danshlutverk sitt, en hann og Ólafía eru í hlutverkum þorpsbúa, en at- burðarásin gerist í sveitaþorpi í Rínardalnum. „Mér finnst hlutverkið spennandi. Þetta er fyrsta stóra sýningin, sem ég tek þátt í hérna heima. Ég hef dansað meira erlendis, þá einkum á nemendasýningum. Síðastliðið vor var ég í Tokyo þar sem ég dansaði með jap- önskum ballettflokki. Dansaði ég meðal annars í Hnotu- brjótnum og Faust. Þetta kom þannig til að auglýst var eftir dansara og var ég svo heppinn að verða fyrir valinu." Þú staldrar hér fremur stutt við, ekki svo? „Jú, ég kom fyrir fimm dög- um svo ég hef ekki haft mik- inn tíma til að æfa með flokknum. Auðvitað var ég bú- inn að æfa danshlutverkið úti Morgunblaöiö/ Emilía Ádís Magnúsdóttir og Helgi Tóm- asson í danshlutverkum sínum í Gis- elle. Hjá þeim stendur Sigmundur Örn Arngrímsson, sem fer með leikhlutverk í ballettinum. í baksýn er hluti íslenska dansflokksins. í New York, en það þurfti að breyta ýmsu, þó ekki neinu stórvægilegu. Héðan fer ég svo aftur í skólann.“ Hvenær lýkur námi þínu hjá School of American Ball- et? „Ég sé fram á að ljúka því innan eins árs og auðvitað langar mig til að koma heim, en ef mér byðist eitthvað gott í New York, þá yrði ég áfram þar.“ Þar með lauk þessum við- tölum við dansarana í helstu hlutverkum Giselle og hver fór að huga að sínu enda stór stund framundan. — HE

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.