Morgunblaðið - 14.03.1982, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. MARZ 1982
23
Deildakeppnin á skák:
N/V-sveit TR sigurvegari í 1. deild
TAFLFÉLAG Reykjavíkur, sem um
árabil hefur átt á að skipa sterkustu
skákmönnum landsins, fékk heimild
til að senda 2 sveitir í 1. deild sveita-
keppni Skáksambands íslands.
Skipað var í sveitir TR eftir búsetu
innan höfuðborgarinnar. Þannig að
aðra sveitina skipuðu skákmenn
sem búa í norð/vesturhluta borgar
innar og hina skákmenn sem búa í
suð/austurhluta borgarinnar.
N/V-sveit Taflfélags Reykjavík-
ur bar sigur úr býtum í 1. deild
eftir harða baráttu við S/A-sveit
TR. Sveitir þessar mættust í 1.
umferð og þá sigraði N/V-sveitin
með 5 % vinning gegn 2'/2. Þessi
munur hélst síðan út keppnina.
Þannig að N/V-sveitin sigraði í 1.
deild, hlaut 43% vinning af 56
mögulegum en S/A-sveitin hlaut
40% vinning.
Taflfélag Seltjarnarness hafm
aði í þriðja sæti með 29 vinninga. I
fjórða sæti er Taflfélagið hans
Nóa með 23 vinninga. Jafnar í 5-6.
sæti eru Skáksveit Akureyrar og
Skáksamband Vestfjarða með 21
vinning en í 7—8. sæti eru sveitir
Hafnafjarðar og Kópavogs með 19
vinninga. En Hafnfirðingar og
Kópavogsbúar eiga eftir að mæt-
ast og geta forðað sér frá falli. Ein
sveit fellur í 2. deild. Keppnin í 2.
deild er ekki lokíð en þar berjast
sveitir frá Suðurlandi og Akranesi
harðri baráttu um sigur.
Westinghouse
hitavatnsdunkar
Höfum fyrirliggjandi Westinghouse
hitavatnsdunka í 4 stæróum:
TR 221 20 gallon - 80 Iítrar
TL 522 52 gallon - 200 lítrar
TL 622 66 gallon - 250 lítrar
TL 822 82 gallon - 300 lítrar
Vandlátir velja Westinghouse
KOMIÐ-HRINGIÐ-SKRIFIÐ
viö veitum allar nánari upplýsingar.
Kaupfélögin um allt land
Véladeild
Sambandsins
Ármúla 3 Reyk/avik Simi 38900
Háskólafyrir-
lestur um skozk-
ar bókmenntir
WILLIAM R. McQuillan, sendi-
herra Breta á íslandi, flytur opinber
an fyrirlestur í boði heimspekideild-
ar Háskóla íslands, mánudaginn 15.
mars 1982 kl. 17.15, í stofu 422 í
Árnagarði, segir í fréttatilkynningu
frá Háskóla íslands.
Fyrirlesturinn nefnist „An
Introduction to Scottish Litera-
ture“ og fjallar um skozkar bók-
menntir frá miðöldum til okkar
daga með hliðsjón af sögu Skot-
lands og þróun tungunnar.
William R. McQuillan lauk BA-
prófi frá Edinborgarháskóla í
enskri tungu og bókmenntum, með
sérstakri áherzlu á skozkar bók-
menntir. Hann var síðan við
Yale-háskóla, þar sem hann lauk
MA-prófi, en meistaraprófsritgerð
hans fjallaði um skotann James
Boswell er reit ævisögu Samuel
Johnsons.
Húsavík:
Tveir hestar
drepast við
ákeyrslu
FOLKSBÍL var ekið á tvo hesta um
30 km sunnan Húsavíkur nýverið og
drápust hcstarnir báðir, en bifreiðin
gjöreyðilagðist.
Að sögn lögreglunnar á Húsavík
urðu engin eða smávægileg slys á
mönnum. Slysið varð með þeim
hætti, að maður var á ferð með
fjóra hesta og rak hann þrjá
þeirra. I förum með honum var
bifreið, sem nýverið hafði ekið
fram úr hestunum, þannig að bíl-
stjóri Toyota-jeppabifreiðar sem
kom úr gagnstæðri átt sá ekki til
ferða hestanna þar sem ljós bif-
reiðarinnar blinduðu hann. Bif-
reiðin er stórskemmd eins og að
framan segir.