Morgunblaðið - 14.03.1982, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. MARZ 1982
47
Breyttir tímar krefjast
breyttra starfsaðferða
- segir Povl Hjelt, fyrrum aðalforstjóri dönsku ríkisjárnbrautanna, sem flytja mun
fyrirlestra um stjórnunarstörf á ráðstefnu Stjórnunarfélags íslands 17. og 18. mars
„Efnahags- og þjóðfélagsleg
þróun á þessum áratug mun hafa
það í for með sér, að atvinnurek-
endur jafnt sem stjórnmálamenn
verða að laga sig að nýjum og
breyttum tíma. Ekki gengur lengur
að hafa þær hugmyndir að leiðar
Ijósi, sem voru góðar og gildar
Fyrir nokkrum árum, og atvinnu-
rekendur og aðrir stjórnendur
verða að gera sér grein fyrir því, að
umsvif annarra setja þeim æ
þrengri skorður. Hér veldur ekki
minnstu, að efnahagslegt sam-
hengi og viðmiðun um heim allan
hefur farið úr böndunum og ekki
er víst, að það sem talið hefur ver
ið sjálfsagt við stjórn efnahags-
mála, komi nú að nokkru haldi.
Við lifum á óvissum tímum og þeir,
sem veita fyrirtækjum forstöðu
eða öðrum rekstri, eiga erfitt með
að gera sér grein fyrir framvind-
unni.“
Það er Povl Hjelt, formanni
danska stjórnunarfélagsins
(Dansk Management Center),
sem þannig farast orð í viðtali,
sem átt var við hann nokkru áð-
ur en hann hélt hingað til lands í
boði Stjórnunarfélags Islands.
Þar til fyrir þremur mánuðum
var Povl Hjelt aðalforstjóri
dönsku ríkisjárnbrautanna en
lét af störfum þegar hann hafði
náð 60 ára aldri að eigin ósk. Það
gerði hann til að geta helgað
tíma sinn hugðarefni sínu, sem
eru stjórnunarstörf, auk þess
sem honum gæfist þá meira ráð-
rúm til að sinna störfunum í
stjórnum ýmissa stórra danskra
fyrirtækja.
Povl Hjelt hefur verið sæmdur
virðingarheitinu „Besti stjórn-
andi áttunda áratugarins" og á
11 ára ferli sínum sem aðalfor-
stjóri dönsku ríkisjárnbraut-
anna endurskipulagði hann
rekstur þeirra frá grunni. Upp-
bygging þeirra þykir nú vera
með mjög nútímalegu sniði og
hafa hinar ýmsu einingar alveg
sjálfstæðan fjárhag.
Erfiðir tímar
„Við lifum á erfiðum tímum,"
segir Povl Hjelt, „sem einkenn-
ast þó ekki bara af vonleysi og
smámunasemi, þvert á móti, því
að þeir fá okkur einnig í hendur
verðugt viðfangsefni og gera til
okkar miklar kröfur, ekki síst til
þeirra, sem hafa stjórnunarstörf
á hendi. Hins vegar skulum við
ekki ganga að því gruflandi, að
vandamálin eru erfiðari úr-
ÞU AUGLÝSIR UM
ALLT LAND ÞEGAR
ÞÚ AUGLÝSIR í
MORGUNBLAÐINU
lausnar nú en áður og að við,
sem stjórnendur, verðum að
taka höndum saman við ýmsa
þá, sem við hingað til höfum
ekki haft beint samstarf við.
Árangurinn af slíku samstarfi er
oft með miklum ágætum og það
er lífsnauðsynlegt fyrir einka-
fyrirtæki og opinber að komast
klakklaust frá þeirri umbylt-
ingu, sem óhjákvæmileg er um
allan hinn vestræna heim."
Fyrirlestrar Povl Hjelts
utn stjórnunarstörf
Povl Hjelt hefur tekið mikinn
þátt í því, sem Danir kalla
„Dönsk stjórnunarstörf á níunda
áratugnum", og mun flytja fyrir-
lestur um reynslu sína af því á
ráðstefnu, sem Stjórnunarfélag
íslands efnir til 17. og 18. mars
nk. í hátíðarsal Háskóla íslands.
Fyrirlesturinn verður fluttur
fyrri daginn en á öðrum degi
Povl Hjelt, fyrrum aðalforstjóri
dönsku ríkisjárnbrautanna og nú-
verandi formaður stjórnunarfélags-
ins danska.
verður haldið námskeið á Hótel
Loftleiðum þar sem Povl Hjelt
mun taka fyrir ýmsa þætti
stjórnunarstarfanna.
Meðal umræðuefnanna þá
verða t.d. einkafyrirtækið and-
spænis ríkisfyrirtækinu með
sérstöku tilliti til þróunar
dönsku ríkisjárnbrautanna á
síðasta áratug; áætlanir til langs
og skamms tíma; yfirstjórn
fyrirtækja; stjórnun á kreppu-
tímum; val stjórnenda; samstarf
stjórnenda og starfslið; þátttaka
stjórnenda í þjóðfélagsumræð-
unni; upplýsingastarf innan
fyrirtækis og utan og tækni-
þróunin og menntun stjórnenda.
„Með öðrum orðum," segir
Povl Hjelt. „Nútíma stjórnun-
arstörf krefjast þess, að menn
hasli sér nýjan vettvang. Það er
hættulegt að staðna í gömlum
starfsaðferðum, sem breyttir
tímar hafa varpað fyrir róða.“
SAMBANDSVERKSMIÐJANNA Á AKUREYRI
ÞESSA VIKU AÐEINS
í SÝNINGARHÖLUNNIBÍLDSHÖFÐA.
EKKERT KOSTAR AÐ LÍTAINN - OG LÍTIÐ MEIR PÓTT PÚ VERSLIR
VBÐ NEFNCIM: Gallabuxur, úlpur, peysur, sokka og skó,
bamafatnað allskonar og mokkafatnað
EINNIG: Herraföt og kvenkápur, kjóla, pils og tískuvörur úr ull.
PÁ: CJllarteppi og teppabúta, áklæðisefni og gluggatjöld
buxnaefni oq kiólefni. AÐQGLEYMDG: Garni, loðbandi og lopa
Komdu í 20 kall homið
og sjáðu hvað þér býðst
4*
'
-
—