Morgunblaðið - 14.03.1982, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 14.03.1982, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. MARZ 1982 45 sem fól í sér 7% árlega hækkun hefur verðbólgan hjaðnað og er nú um 8% og býst ég við frekari hjöðnun.“ Hvernig hafa þessar hækkanir launa haft áhrif á heildarfjár- hagsstöðuna? „Ef við hefðum ekki greitt neina kauphækkun á síðastliðnu ári hefðum við verið nær jafnvægi á fjárlögum okkar, sem hefði verið öllum fyrir bestu, en flest lyf bragðast illa!“ Þú segir að efnahagsvandann megi rekja meðal annars til þróunar velferðarríkisins og til olíuverðhækkana? „Já, Svíþjóð og önnur lönd búa við svipað efnahagskerfi, sem má rekja til þess að þau eru byggð upp á svipaðan hátt. Annars vegar er að finna í þessum löndum mikla velferðarþjónustu, sem leiðir af sér of mikil ríkisafskipti, sem er efnahagslífinu ekki hollt. Hins vegar má rekja vandann til olíu- verðshækkana, sem komið hafa á misvægi. Heimurinn er ekki snið- inn til þess að eiga viðskipti við svo öfluga einokunaraðila og OPEC. Þar af leiðandi eru efna- hagssérfræðingar eða efnahagslíf þjóðanna ekki undir það búið að eiga viðskipti við þá. Ef lögð er saman sjálf samfé- lagsgerðin og utanaðkomandi erf- iðleikar eins og til dæmis olíu- verðhækkarnir, þá lítur dæmið ekki vel út. Það er nógu slæmt að hafa annað hvort, en báðir þessir þættir skapa heilmikinn vanda." Hvað er til úrbóta? „I fyrsta lagi þurfa þjóðirnar að virkja orkulindir sínar í ríkara mæli. í öðru lagi á að hætta opin- berum styrkjum til iðnaðar. í þriðja lagi að ríkið hætti afskipt- um af fyrirtækjum, sem þegar eru í miklum fjárhagsörðugleikum og einsýnt þykir að lítil breyting verði þar á.“ En hvað með félagslegar bætur til einstaklinga? „Tökum dæmi. Það er fjöldinn allur af fólki, sem borgar opinber gjöld, sem eru í engu samræmi við þau eftirlaun, sem það síðan fær. Fyrst verið er að hafa almanna- tryggingar á annað borð, þá er æskilegt að hafa samband á milli þess sem viðkomandi fær í laun og þess sem hann síðar fær í eftir- laun. Auðvitað er til fólk sem get- ur ekki borgað fyrir sig, látum það njóta ókeypis þjónustu. Hvers vegna ætti fólk að vera að fleygja peningum út og suður án þess að það sjái nokkurn árangur af því sjálft? Ef sænskur launþegi fær 1000 krónum meira í laun, verður hann að borga fyrir að fá hærri lífeyri, hann verður líka að borga meira fyrir tannlæknaþjónustu, sjúkra- húsvist, betri vegi og svo framveg- is, það er að segja hann verður að borga meira í opinber gjöld. Það getur verið að hann kæri sig ekk- ert um þetta. Það er tvennt til í þessu, annars vegar að borga meira og fá þannig viðunandi líf- eyri, ellegar að fólk borgi trygg- ingar og fái út úr þeim einhverja lágmarksupphæð en borgi síðan restina úr eigin vasa. Aftur á móti er kerfið þannig, að það takmarkar hvað fólk getur fengið út úr einkatryggingum, því það má aðeins nota lítinn hluta af tekjunum til að setja í eigin líf- tryggingu, síðan bætist við það sem fólk fær út úr almannatrygg- ingum. I staðinn fyrir að veita fólki frelsi til að meta sínar eigin framtíðarþarfir, þá er takmarkað hvað það má gera.“ Að lokum þessa viðtals sagði Curt Nicolin: „Hin vestrænu þjóð- félög hafa aldrei verið eins auðug af veraldlegum gæðum og nú. Samt sem áður glíma þjóðirnar við fjöldann allan af efnahags- vandamálum. Það er ef til vill ekki nauðsynlegt fyrir okkur að verða ríkari, heldur ættum við að reyna að verða hamingjusamari." HE Félag ísl. síma- manna ályktar: Sammingsatr- iði sniðgengin FÉLAG ísl. símamanna hélt nylega félagsfund um kjaramál og gerði samninganefnd félagsins þar grein fyrir stöðu varðandi sérkjarasamn- ing. Ekki hefur tekist samkomulag við fjármálaráðherra og hefur mál- inu verið vísað til úrskurðar Kjara- dóms. í frétt frá félaginu kemur fram að einhugur hafi ríkt um þá af- stöðu samninganefndar að semja ekki á þeim grundvelli sem fjár- málaráðherra hafi krafist. í fund- arlok var samþykkt ályktun þar sem segir m.a.: „Almennur fundur í Félagi ís- lenskra símamanna haldinn 11. mars 1982 mótmælir harðlega af- stöðu fjármálaráðherra, sem fram hefur komið í samningaviðræðum við félagið að undanförnu um nýj- an sérkjarasamning, að neita að samræma launakjör símamanna kjörum sambærilegra starfshópa annars staðar þrátt fyrir ákvæði í nýgerðum aðalkjarasamningi, sem kveður skýrt á um að það skuli gert. Telur fundurinn að með þessari afstöðu sinni séu ákveðin samn- ingsákvæði sniðgengin og fyrir- heit sem gefin voru í viðræðum um aðalkjarasamninginn að engu orðin.“ Stofnað félag um tölvutækni f BORGAKNESI hefur verið stofnað Félag áhugamanna um tölvutækni, skammstafað FAT. Voru stofnfélag- ar 27 og samhliða stofnfundinum voru sýndar 8 heimilistölvur af 5 gerðum. Voru sýningargestir alls um 7°. í frétt frá „FÁTI“ segir að til- gangur félagsins sé að auðvelda félagsmönnum að auka þekkingu sína á tölvum og tölvuforritun, einnig að útbreiða þekkingu á þessu sviði meðal almennings. Stjórn félagsins skipa: Björgvin Oskar Bjarnason formaður, Sæ- mundur Bjarnason, Reynir Ás- berg, Ragnar Torfi Geirsson og Sólrún Anna Rafnsdóttir og geta áhugamenn um heimilistölvur sem vilja fræðast um félagið haft samband við stjórnarmenn. Bútasauma- sýning á Kjarvals- stöðum BÚTASAUMSSÝNING var opnuð á Kjarvalsstöðum föstudaginn 12. mars en hún er á vegum verslunar- innar Virku sf. Teppin eru um 40 talsins og flest yfir 100 ára gömul og frá hinum ýmsu ríkjum Bandaríkj- anna. Við opnun sýningarinnar mun Mrs. Marti Michell, eigandi safnsins sem á sýningunni er, segja frá búta- saumi í Bandaríkjunum. Sýningin verður opin daglega frá kl. 14.00 til 22.00 til 21. mars. Bjögun (WRMS): 0,005% Tíðnisvörun frá 25 riðum og upp í 18 þús. rið S/N hlutfall (með Dolby CA): 79.dB Tækiö er útbúiö meö nýjasta Dolby kerfinu sem kallast Dolby C og eyöir þaö algerlega öllu suði. Tækiö er útbúiö með léttrofum þannig aö aðeins þarf aö styöja létt á takkana (soft touch). Fínstillir fyrir tónhausa (fine Bias) en þaö gerir þér kleift aö stilla tónhaus- ana, í samræmi viö þá tónspólu, sem þú notar, en þaö stendur aftan á betri tónspólu, á hvaöa stillingu á aö stilla (t.d. Maxell). Tækiö er hlaðið mörgum athyglisveröum nýjungum, sem of langt mál væri að telja upp svo sem „Peak Protection Systern" Rúsínan í pylsuendanum: Verö 6.302.- Greiðsluskilmálar. Útborgun: frá 1.500 og rest á 2-6 mánuðum. 3ja ára ábyrgð. VERSLIÐ I SÉRVERSLUN MEO LITASJÓNVÖRP OG HLJÓMTÆKI SKIPHOLTI 19 SlMI 29800 Eldstæði 655 Leitið upplýsinga. Sýnishorn á staönum. iíiekutcud Símar 18160 — 12902, Laufásvegi 17.ig Box 689, Reykjavík. 651 641 717 716 Þessi fallegu eldstæði (arnar) úr potti fyrir sumarbústaði og heimahús eru væntanleg. 708 709 710

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.