Morgunblaðið - 14.03.1982, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 14.03.1982, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. MARZ 1982 33 Betri skuldari með betri tryggingar og góðan rekstur - sagði Albert Guðmundsson um kaup Arnarflugs á Iscargo ALBERT Guðmundsson, alþm. og formaður bankaráðs IJtvegsbankans, gerði viðskipti Utvegsbankans við ís- cargo að umtalsefni á Alþingi sl. fimmtudag, eins og skýrt var frá í Morgunblaðinu í fyrradag. í ræðu sinni sagði Albert Guðmundsson, að Iscargo væri 15 ára gamalt fyrirtæki og hefði verið í viðskiptum við bank- ann þessi 15 ár. Albert Guðmundsson sagði, að það hefði þótt saga til næsta bæjar, ef fyrirtæki, sem hefði verið svo lengi viðskiptavinur bankans, hefði ekki fengið nauðsyn- legar ábyrgðir til þess að endurnýja flugflota sinn og fyrirtækið hefði orðið að leita til annars banka. Ef þannig hefði verið á málum haldið, hefði bankastjórn Utvegsbankans ekki verið starfi sínu vaxin. Þingmaðurinn sagði, að könnun hefði leitt í ljós, að þær tryggingar sem bankinn hafði vegna þessara ábyrgða, voru nægar og bankinn hefði engu tapað, ef gengið hefði verið að veðun- um. Þá rakti Albert Guð- mundsson tilraunir Iscargo til þess að selja eina vél sína úr landi til Perú, þegar það lá fyrir, að af þeim kaupum yrði ekki, tilkynnti bankinn forsvarsmönnum fyrirtækis- ins, að ekki yrðu veittir frek- ari frestir og á ákveðnum degi yrði gengið að veðum og tryggingum, sem bankinn hafði í vörzlu sinni. Þá fór fyrirtækið fram á viðbótar- frest til þess að kanna aðra sölumöguleika. Á síðustu stigum kom Arnarflug inn í málið. Albert Guðmundsson sagði, að það félag hefði gengið mjög vel síðustu ár og með því að fá veð og tryggingar til viðbótar því að halda gömlum trygging- um frá Iscargo teldu banka- stjórn og bankaráð, að kom- inn væri betri skuldari með ekki verri tryggingar og góð- an rekstur og hefðu banka- stjórar og bankastjórn gætt hagsmuna bankans mjög vel með þessum nýju samning- um. Bridgehátíðin á Hótel Loftleiðum: íslenzku pörin standa sig vei GÍSLI Hafliðason og Gylfi Italdursson höfðu forystu í afmælismóti Bridgefélags Reykjavíkur þegar 19 umferð- um af 35 var lokið. Höfðu þeir fengið 151 stig yfir meðalskor. í öðru sæti voru bretarnir Willie Coyle og Barnet Shenkin með 148 stig en þeir höfðu leitt keppnina síðustu umferðirnar. Það vakti nokkra athygli að 6 íslenzk pör voru í sjö efstu sætunum og var auðsætt að ís- lenzku pörin höfðu enga minni- máttarkennd gagnvart erlendu andstæðingunum. Jón Baldursson og Valur Sig- urðsson voru í þriðja sæti með 136 stig og í 20. umferðinni tók þeir forystu í mótinu en nú þegar hafa mörg pör vermt fyrsta sætið eina eða tvær um- ferðir. Mótinu lauk í gær en vgna þess hve blaðið fer snemma í prentun er ekki hægt að greina frá úrslitum fyrr en eftir helgi. í dag hefst stórmót Flugleiða en það er sveitakeppni með þátttöku þriggja íslenzkra sveita, brezka landsliðsins, norska landsliðsins og Dallas Ásanna. Hefst keppnin kl. 13.15. Mótinu lýkur á mánu- dagskvöld. raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar Akranes Félags- og sljórnunarnámskeið veröur haldið í SjálfslaBöishúsinu Heiöarbraul 20 dagana 14—16 mars. Namskeiöiö hefst kl. 14, sunnudaginn 14. mars. Kennt veröur ræöu- mennska, fundarsköp og félagsstörf. Flutl veröur erindi um sjálfstæö- isstefnuna. Leiöbeinandi á námskeiöinu veröur Inga Jóna Þóröardóttir. Þátttaka tilkynnist til Ragnheiöar Ólafsdottur í sima 2448. Fræóslunefnd Sjálfstæóisflokksins. Blaðanámskeið A vegum fræöslunefndar Sjálfstæðisflokksins veröur efnt til nám- skeiös föstudaginn 19. marz og laugardaginn 20. marz nk , ætlaö þeim, er starfa aö útgáfu landsmálablaða og rita, sem gefin eru út i nafni sjálfstæöismanna. Námskeiöiö veröur haldiö í Valhöll viö Háaleitisbraut og hefst kl. 9 árdegis föstudaginn 19. marz. Námskeiöiö er byggt upp meö þaö i huga aö gefa sem besta innsýn í uppbyggingu almennra frétta- og greinaskrifa, svo og undirstööuatriöi pólitiskra skrifa. Áriöandi er, aö þátttaka á námskeiðiö veröi tilkynnt sem allra fyrst á skrifstofu Sjálfstæöisflokksins, sími 82900. Fræöslunefnd Sjálfstæðisflokksins. Miðneshreppur Sjálfstæöisfélag Miöneshrepps heldur al- mennan félagsfund, sunnudaginn 14. marz kl. 14.00 í barnaskólanum í Sandgeröi. Fundarefni: Tillaga aö framboðslista vegna hreppsnefndakosninga 1982. Önnur mál. Stjórnin. Hvað er framundan í orkumálum Reykvíkinga? Landsmálafélagiö Vöröur heldur almennan fund um orkumál, miövikudaginn 17. marz nk. Fundurinn veröur haldinn í Valhöll, Háaleit- isbraut 1 og hefst kl. 20.30. Frummælandi: Birgir ísleifur Gunnarsson, alþingismaöur. Reykvíkingar hvattir til aö fjölmenna. Stjórnin. Hvöt félag sjálfstæðiskvenna Málefnanefnd um sveitarstjórnarmál tekur fljótlega til starfa. Þeir sem áhuga hafa á aö taka þátt i störfum nefndarinnar vinsamlega láti skrá sig i Valhöll á skrifstofu Hvatar, sem fyrst. Elín Pálmadóttir, formaður nefndarinnar, veröur til viötals i Valhöll, mánudaginn 15. mars frá kl. 17 til 18. Stjómin. Fella- og Hólahverfj Bakka- og Stekkjahverfi Skóga- og Seljahverfi Félagsvist Félög sjálfstæöismanna í Breiöholti halda spilakvöld fimmtudaginn 18. febrúar kl. 20.30 aö Seljabraut 54 (hús Kjöts og fisks). Spiluð veröur fyrsta umferö af þremur. Spila- verölaun eftir hvert kvöld. Allir velkomnir. Stjórnirnar. Njarðvík Fulltrúaráö sjálfstæöisfélaganna i Njarövik boöar til fundar i Sjálf- stæöishúsinu laugardaginn 13. mars kl. 2.00 e.h. Tekin veröur ákvöröun um framboö til bæjarstjórnar, enn fremur veröur kosið í kjördæmisráö. Onnur mál. Sjálfstæðisfólk Siglufirði Sameiginlegur fundur félaganna veröur hald- inn þriöjudaginn 16. marz kl. 20.30 í Sjálf- stæðishúsinu. Ákvörðun veröur tekin um framboðslistann. Allt stuöningsfólk listans velkomið. Sjálfstæðisfélögin. Sauðárkrókur Bæjarmálaráð Bæjarmálaráö Sjálfstæðisflokksins á Sauð- árkróki heldur fund í Sæborg þriðjudaginn 16. marz nk. kl. 20.30. Dagskrá: 1. Fjárhagsáætlun Sauöárkróks 1982 og önnur bæjarmálefoi. 2. Önnur mál. Kaffiveitingar. Allt stuöningsfólk Sjálfstæöis- flokksins er velkomið á fundinn. Ath! Breyttan fundardag. Stjórn Bæjarmálaráós. Ráðstefna um skattamál Skattamálanefnd Sjálfstæöisftokksins heldur ráöstefnu um skattamál i Valhöll, Háaleitisbraut 1, Reykjavik, dagana 25. marz og 1. april nk. Dagskrá: Fimmtudagur 26. marz. Kl. 17.30 Ráöstefnan sett: Geir Hallgrimsson. tormaöur Sjálfstæöis- flokksins. Kl. 17 40 Hversu stór hluti þjóöartekna er æskilegt aö renni til hins opinbera? Framsögumaöur: Árni Árnason, framkvæmda- stjóri. Kl. 18.40 Hver er eólileg verkaskipting rikis og sveitarfélaga? Framsögumaöur Salóme Þorkelsdóttir, alþingismaöur. Kl. 20.00 Hvaöa tekjustofnar koma til greina og hvernig skal skipta þeim á milli rikis og sveitarfélaga? Framsögumaöur: Ólafur Nilsson, lögg. endurskoöandi. Fimmtudagur 1. april. Kl. 17.30 Opinber fjármálastjórn. Valddreifing, abyrgð. ákvaróanir og eftirlit. Framsögumenn: Matthías Á. Mathiesen, alþingis- maður. Þorvaröur Eliasson, skólastjóri. Kl. 18.30 Opinber umsvif. Framsögumaöur: Víglundur Þorsteinsson, framkvæmdastjóri. Kl. 20.00 Réttlát nýting tekjustofna. Lagabreytingar. Framsögumenn: Björn Þórhallsson, viöskiptafræöingur, Pétur H. Blöndal, forstjóri. Umræóur og ályktanir. Ráöstefnustjórar. Friörik Sophusson, alþingismaöur, Eyjólfur K. Jónsson, alþingismaöur. Þátttaka tilkynnist á skrifstofu Sjálfstæöisflokksins í sima 82900. Gögn vegna ráðstefnunnar veröa jafnframt afhent þar og send þeim, sem þess óska. Skattamálanefnd Sjáltstæóistlokksins. Geir Hallgnmsson. Ami Arnason Salome Þorkelsdóttir. Olatur Nilsson. Matthías Á Mathiesen. ÞorvarOur EUasson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.