Morgunblaðið - 14.03.1982, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 14.03.1982, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. MARZ 1982 35 Tryggvi Gunnarsson stjórnar formadur 1902—17. Jes Ziemaen stjórnarformadur 1917—30. Kristján Siggeirsson stjórnar Tryggvi Ófeigsson stjórnarfor formadur 1959—75. maður 1975—. og Jes Ziemsen. Keypt var efni utanlands frá til smíði drátt- arbrautar, sem siðan var fleytt vestur í Hlíðarhúsasand, þar sem henni var komið fyrir — og þar hefur Slippurinn verið síðan. Slippurinn hefur alla tíð reynt að fylgja stærðarþróun fiski- flotans í smíði dráttarbrauta, jafnframt því sem færslubrautir hafa verið endurnýjaðar og stækkaðar. Nú eru brautirnar þrjár: ein fyrir 400 lesta skip, önnur fyrir 1500 lesta skip og sú þriðja fyrir 2500 lesta skip. Og hliðarfærslur eru fyrir fimm skip. Þannig geta átta skip staðið uppi í Slippnum í einu og er hann því langstærsta dráttarbraut landsins. Síðastliðin fimm ár hafa verið tekin upp um 700 skip að brúttórúmlestatölu um 500 þúsund lestir. Er það geysilegt stökk frá fyrstu árum Slippsins. Vélsmiðjur í Reykjavík annast alla járn- og vélsmíði í Slippnum en Slippurinn trésmíðina, málun og hreinsun. Hefur sú verka- skipting haldist frá upphafi járn- og stálskipa hérlendis. Timbursalan og Slippbúðin hafa síaukið umsvifin hin seinni ár og málningarverksmiðja Slippfé- lagsins er nú í stóru og glæsilegu húsnæði að Dugguvogi í Reykja- vík. Fastir starfsmenn Slippfé- lags Reykjavíkur eru nú orðið oftast um 100, en auk þess er jafnan fjöldi lausráðinna starfs- manna að störfum og fer starfs- mannafjöldinn iðulega upp í 160. Þá vinnur, ein« og áður greinir, fjöldi járniðnaðarmanna í Slippnum og þar eru allt að 300 manns við vinnu, þegar mest er að gera. Framkvæmdastjórar Slippfélagsins hafa verið þessir: O. Ellingsen 1902—1916, Daníel Þorsteinsson 1916—1931, Sigurð- ur Jónsson 1932—1968, 1968—1979 Jón H. Sigurðsson og frá 1968 núverandi forstjóri, Þór- arinn Sveinsson. egar flett er sögu þessa gamalgróna fyrirtækis sem hefur staðið af sér öll veður ís- lensks þjóðlífs í 80 ár og lifir góðu lífi — þá blasir við einn rauður þráður: Það hefur alltaf verið byggt eftir þörfum og aldr- ei umfram þarfir. Þannig hefur hver nýr vagn eða önnur endur- bót gagnast að fullu strax. Verk- efnin hafa jafnan legið fyrir, svo sem þegar kútterana vantaði braut, eða gömlu togarana síðar, ellegar verkefnin svo aUgljós að hægt var að gera sér fulla grein fyrir höfninni, svo sem þegar byggð var braut sem ætluð var nýsköpunartogurunum. Þetta er sá galdur í fjárfestingu sem við Islendingar hefðum betur fest okkur í minni. Gamalgróið fyrir- tæki með miklar og verðmætar eignir, eins og Slippurinn, á að fá að byggja áfram eftir þörfum á sínum gamla og trausta merg — auka starfsemi sína með viðráð- anlegum hætti og eftir þeim þörfum sem við blasa. Sagan hef- ur sýnt að það má treysta Slipp- félaginu í Reykjavík. Uppfyllingin mikla sem mun stækka athafnasvædi Slippsins verulega. Splunkunýr aaaa x 1/9 Getum útvegað nokkra splunkunýja Fiat X 1/9 árgerö 1981 frá Danmörku á verðbilinu 120-130 þús. Sérstaklega glæsilegur og kraftmikill 5 gíra, bíll með öllu tilheyrandi. Afgreiöslutimi áætlaöur 1 mánuöur. Þeir sem áhuga hafa hafi samband við okkur sem fyrst. EGILL FIAT / VILHJÁLMSSON HF. / / UMBOÐIÐ Smiðjuvegi 4, Kópavogi. Simi 77200. NÝJA HCISQVARNA 6690 TÖLVCIVÉUN „Hún er svo ótrúlega einföld - bara að ýta á hnapp” Munurinn á „venjulegri” saumavél og Husqvama 6690 er, að í Husqvama 6690 er litil ör-tölva. Þessi ör-tölva getur í raun og vem hjálpað þér að búa til eigin mynstur, skrifað orð og setningar og saumað af mikilli nákvæmni. Allt sem þarf að gera, er að ýta á hnapp! Þetta er saumavél sem hefur hlotið margar viðurkenningar um heim allan. 0k Gunnar Ásgeirsson hf. Suðurlandsbraut 16 Simi 91352ÓÖ Akurvik. Akureyri

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.